Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 12
Í2
esei flAuaaa'3 .ei auoAauMMua öiöAjaviuohgm
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989
ISUW
EVROPU
eftir Huga Ólafsson
í árslok 1992 eiga ríkin tólf i Evrópubandalag-
inu að vera orðin einn sameiginlegur markað-
ur, landamæri þeirra á milli nánast þurrkuð
út og f lutningar á vörum, fjármagni og vinnu-
afli frjálsir og hindrunarlausir. EFTA-ríkin sex
- og ísland þar á meðal - í útjaðri þessa verð-
andi efnáhagsrisa eru sem óðast að búa sig
undir þessar róttæku breytingar með því að
aðlaga löggjöf sína og efnahagskerfi því sem
gerist í EB. Það eru bæði tækifæri og hættur
samfara breytingunum 1992, sem ættu að
koma fáum þjóðum
jafn mikið við og ís-
lendingum, þar sem
við erum geysilega
háðir utanríkisversl-
un og nærri 60%
hennar eru við EB.
Umræða um málið er
þó aðeins nýlega haf-
in fyrir alvöru hér á
landi. Hún á örugg-
lega eftir að eflast, enda varðar hún ekki
aðeins tolla og saltfisk, heldur hvaða sess
við íslendingar ætlum okkur í nýrri heims-
mynd. Verður ísland orðið úthérað í öflug-
asta efnahagsveldi heims skömmu eftir alda-
mót? Eða býr hér þá stolt og fátæk eyþjóð
sem valdi óskert sjálfstæði ofar viðskipta-
hagsmunum? Eða verðum við íslendingar
„heimsborgarar" við heimskautsbaug, sem
getum selt vörur okkar tollf rjálst til Asíu,
Ameríku og Evrópu án þess að tilheyra neinni
hinna stóru ef nahagsblokka heimsbyggðar-
innar?
víðsflarri að bandalagsríkin væru
orðinn einn markaður. Landamæra-
eftirlit og mismunandi reglur og
staðlar hindruðu frjálst streymi á
vöru og þjónustu og Evrópulönd
héldu áfram að dragast efnahags-
lega aftur úr Japan og Bandaríkjun-
um, sem nutu miklu stærri heima-
markaðar en þau. Árið 1985 ákváðu
EB-ríkin að hefja nýja sókn í sam-
einingarátt og gáfu sér frest til
ársloka 1992 til að rífa niður þá
múra sem enn eru uppi innan
bandalagsins. Þá eiga EB-ríkin tólf
að vera sem eitt ríki hvað varðar
viðskipti með vörur, þjónustu og
fjármagn og streymi á vinnuafli.
Danskir bankar eiga að geta opnað
útibú á Ítalíu eins og í Arósum og
portúgalskir verkamenn eiga að
geta gengið í vinnu í Liverpool jafnt
og Lissabon. Leggja á niður landa-
mæragæslu innan bandalagsins og
skattar á vörur og þjónustu eiga
alls staðar að vera þeir sömu.
Fáum dettur í hug að öll þau 280
lög og reglur sem EB telur að setja
þurfi til að ná þessum markmiðum
verði orðin að veruleika á réttum
tíma og margir - ekki síst Margar-
et Thatcher - hafa gagnrýnt þau
ummæli Jacques Delors að innan
áratugar verði 80% af öllum efna-
hagslegum og jafnvel félagslegum
ákvörðunum teknar í höfuðstöðvum
EB í Brussel. Breski forsætisráð-
herrann hefur einnig lagst gegn
hugmyndum Delors um sameigin-
legan evrópskan seðlabanka og
mynt. Hér verður ekki spáð hversu
hratt þróunin í Evrópu muni ganga
fyrir sig, en hún er aðeins í eina átt
- til sameiningar.
DVERGUR I
Ártalið „1992“ varð áberandi í
evrópskum fjölmiðlum og ráðstefn-
um á síðasta ári og prýddi forsíður
margra virtra viðskipta- og frétt-
atímarita, svo sem Evrópuútgáfu
Time og Newsweek. Hugsjónin um
sameinaða Evrópu komst aftur „í
tísku" eftir að hafa legið illa farin
árum saman undir Iqot- og smjör-
ijöllum Evrópubandalagsins (EB).
„1992 er spuming um að halda
velli eða hnigna enn,“ sagði Jacques
Delors, hinn franski formaður fram-
kvæmdastjómar EB, sem fékk við-
umefnið „herra Evrópa" fyrir at-
orku sína og útsjónarsemi við að
koma hugmyndinni um sameigin-
legan markað af pappímum og á
skrið. Hér á landi er vaxandi um-
ræða um „1992“, eins og sést á
því að á síðustu tveimur vikum
hafa Sjálfstæðisflokkurinn, Al-
þýðubandalagið og Verslunarráð
gengist fyrir ráðstefnum um sam-
skiptin við Evrópubandalagið. En
hvað á þetta ár á að bera í skauti
sér?
1992 - fijáls verslun,
fjármagn og
fólksflutningar
Tilgangur Evrópubandalagsins
var í upphafí fyrst og fremst sá að
útrýma tollum á milli ríiq'a þess en
samræma tolla á innflutning frá
utanbandalagsríkjum. Þessum
markmiðum var í raun náð á sjö-
unda áratugnum, en því fór samt
Harðnandi samkeppni -
hugsanlegir tollmúrar
Hvað þýða þessar breytingar fyr-
ir okkur íslendinga? Ólafur Daví-
ðsson, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra iðnrekenda og formaður
ráðgjafanefndar á vegum EFTA-
ríkja er sá íslendingur sem einna
mest hefur kynnt sér samskipti ís-
lands við EFTA og Evrópubanda-
lagið. Hann nefnir þijú atriði:
- Auðveldari aðgangur að stærri
markaði. Fyrirtæki sem hafa komið
sér fyrir innan eins EB-ríkis eiga
mun auðveldara með að ná til þeirra
allra.
- Harðnandi samkeppni. Evrópsk
fyrirtæki munu hafa greiðari að-
gang að ódýrri þjónustu og fjár-
magni og vöruverð ætti því að fara
lækkandi. Þetta hefur ekki einungis
áhrif á íslenskan útflutningsiðnað
heldur mun samkeppnin á markað-
inum innanlands fara harðnandi
þegar vöruverð samkeppnisaðila
íslensks iðnaðar lækkar.
- Hugsanlegir tollmúrar. Banda-
rílq'amenn, Japanir og fleiri þjóðir
óttast að um leið og innri múrar
EB-landanna verði rifnir reisi
bandalagið nýja múra gagnvart
umheiminum til að byggja upp
„Evrópuvirki" („Fortress Europe")
svo að evrópsk fyrirtæki hafí betri
aðstöðu en önnur til að njóta ávaxt-
anna af hinum nýja risamarkaði.
Skiptar skoðanir eru á þessu innan
EB, en opinber EB-skýrsla um áhrif
1992 á samskipti við ríki utan
bandalagsins segir að þau verði að
láta eitthvað í staðinn fyrir aðgang
að markaðinum og þá væntanlega
greiðari aðgang að sínum eigin
mörkuðum. Hvað ísland varðar
hafa Spánveijar falast eftir 3.000
tonna kvóta á íslandsmiðum og
hugsanlegt er að fastar verði ýtt
það eða aðrar kröfur um aðgang
að íslensku fískveiðilögsögunni í
náinni framtíð.
Skattar og lög
aðlagist EB-reglum
Hvað þurfum við íslendingar að
gera til að laga okkur að þessum
breyttu aðstæðum? Ólafur Davíðs-
son telur að stjómvöld verði að
skapa íslenskum fyrirtælq'um sem
líkust skilyrði og samkeppnisaðilum
innan EB. Einna mikilvægast í
þessu skyni sé að afnema allar
hömlur í gjaldeyrisviðskiptum.
Þetta yrði ekki gert í einu stökki
heldur í áföngum, eins og í EB.
Norðurlöndin hafa komið sér saman
um skipulagt afnám gjaldeyrishafta
og samkvæmt síðustu efnahagsað-
gerðum ríkisstjómarinnar á að
framkvæma þá áætlun.
Annað atriði sem snýr að stjórn-
völdum er að aðlaga ýmis lög og
reglur reglum Evrópubandalagsins.
Þetta á ekki síst við um skatta, en
ein stærsta breytingin með 1992 -
og reyndar einnig eitt stærsta ljó-
nið á veginum - er samræming á
álagningu virðisaukaskatts og ann:
ara skatta á vörur og þjónustu. í
EFTA-löndum er það nú orðið að
almennri vinnureglu að með öllum
tillögum um stefnubreytingar, svo
sem á sviði skatta, skuli leggja fram
greinargerð um hvemig þær sam-
ræmist þeim breytingum sem eru
að verða innan EB. Tillaga þessa
efnis hefur verið borin upp í ríkis-
stjóminni.
Upptaka virðisaukaskatts á Is-
landi er skref í þessa átt, en Ólafur
Davíðsson telur að flestar aðrar
breytingar sem gerðar hafa verið í
skattamálum hérlendis upp á
síðkastið gangi í öfuga átt við það
sem er að gerast í Evrópubandalag-
inu. Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, segir tollabreyt-
ingarnar í fyrra hafa orðið til þess
að íslenska tollakerfið sé líkara
kerfi EB en nokkurs annars EFTA-
lands og nefnir að efasemdir eru
uppi - til dæmis í Danmörku - um
að hægt sé að halda uppi viðamiklu
velferðarkerfí með þeim skattaregl-
um sem nú er rætt um í EB.
Fyrirtæki stofiú
útibúíEB
Hvað fyrirtæki snertir er það
einkum tvennt sem þau geta gert
til að laga sig að hinum sameigin-
lega markaði. Hið fyrra er að sam-
ræma staðla á vömm, svo sem ör-
yggis- og hollustukröfur, sem hér
era í gildi þeim stöðlum sem í gildi
era í Evrópu. Þessi vinna er nú
þegar komin vel á veg í svokallaðri
staðlanefnd, en einnig er í gangi