Morgunblaðið - 19.02.1989, Qupperneq 21
9391 HAÚaSíTí .91 HUDACIUW.Ua R/iMiqnAVGAwiHVoyoflav OKJAJaVIUOHOM
os
ATVINNU RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
A7VINNUAUGLÝSINGAR
Framkvæmdastjóri
á Hjaltlandi
Shetland Seafood Quality Control auglýsir eftir fram-
kvæmdastjóra til að hafa yfirumsjón með nýrri rannsóknarað-
stöðu. Um er að ræða gerlarannsóknarstofu og aðstöðu til
efnagreininga á físki. Umsækjanda er einnig ætlað að sjá
um að viðhalda því eftirliti sem haft er með laxi og fiskafurð-
um, sér í lagi ræktuðum laxi frá Hjaltlandi. Hann-þarf að
geta leiðbeint fiskframleiðendum í gæða- og hreinlætismálum
og vera fær um að starfa sjálfstætt. Starfið er sagt henta
vel matvælafræðingi eða manni með hliðstæða menntun.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafí starfað við fiskvinnslu
og hafi á henni greinargóða þekkingu. Húsnæði er í boði
gegn vægri leigu og svo og afnot af bifreið. Þá segir að
framfærslukostnaður sé u.þ.b. 30% lægri en á íslandi og
skattar lágir. Laun verða 20 þúsund sterlingspund.
Hlutverk í
„Englakroppum“
Sjónvarpið auglýsir eftir tveimur strákum til þess að fara
með hlutverk engla í sjónvarpsmyndinni „Englakroppar".
Talið er æskilegt að þeir séu feitlagnir með búttaðar kinn-
ar. JJmsækjendur þurfa að senda upplýsingar með nafni,
heimilisfangi og aldri ásamt ljósmynd á afgreiðslu sjón-
varpsins.
Siglufiörður:
Uppihald
hjá Sigló
Siglufirði.
Á ATVINNULEYSISSKRÁ er 51,
mest fólk sem bíður efltir vinnu
lyá Sigló hf. Uppihald hefur verið
lyá Sigló síðan fyrir jól, en vonir
standa til þess að vinnsla hefjist
aftur í lok mánaðarins.
Nokkrir sjómenn eru einnig
skráðið atvinnulausir en bát-
amir hafa ekkert getað farið á sjó
vegna ótíðar. Smábátamir eru hætt-
ir á línu. Illa gengur á netunum og
þeir sem em með rauðmaganet hafa
ekkert fengið.
Frysting og saltfískvinnsla er í
gangi hjá Þormóði ramma. Mest af
hráefninu kemur af Stálvíkinni.
Sigluvíkip hefur verið biluð og illa
gengur hjá Stapavíkinni.
Matthías
Grindavík:
Framkvæmdaslj ór i
hjá KR
Knattspyrnudeild KR óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra
til að annast daglegan rekstur deildarinnar, skipuleggja fjár-
öflun, sjá um framkvæmd kappleikja og námskeiða o. fl.
Hjúkrunarfræðingar
óskast
Borgarspítalinn auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum á ýmsar
deildir. Áhugasama hjúkrunarfræðinga vantar til þess að
taka þátt í uppbyggingarstarfi og skipulagsbreytingum hjúk-
mnarþjónustu slysa- og sjúkravaktar (slysadeild). Staða
aðstoðardeildarstjóra á sótthreinsunardeild er laus til um-
sóknar. Þá er laus staða aðstoðardeildarstjóra á sviði háls-,
nef-, og eyrnaskurðlækninga. Loks em auglýstar tvær stöð-
ur hjúkrunarfræðinga á Endurhæfingar- og taugadeild
(Grensásdeild).
RAÐAUGLÝSINGAR
Stj ómmálask óli
Námskeið á vegum Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisfiokksins
verða haldin 21. febrúar til 4. mars nk. Þau standa frá kl.
17.30-22.30 mánud. - föstud. og helgidaga frá kl. 10.00-
17.00. í fyrirlestmm verður m.a. fjallað um ræðumennsku,
fjölmiðla, skipulag og starfshætti Sjálfstæðisflokksins, stjórn-
skipan og stjómsýslu, efnahagsmál og menningarmál. Efnt
verður til sérstakrar kynningar á RÚV, Alþingi og borgar-
stjórn.
SMÁAUGLÝSINGAR
Sunnudagsferðir
Útivist gengst fyrir tveimur ferðum í dag. Ný og skemmti-
leg skíðagönguleið verður farin en hún liggur frá Rauðuhjúk-
um meðfram Sandfelli og inn í Heiðmörk. Brottför er kl.
13.00. Þá verður farin ferð að Fossvallaklifí og Selfjalli.
Verður litið inn í Botnahelli en um hann er til útlegumannasa-
ga. Fargjald í báðar ferðirnar er kr. 600.-
Sérleyfíshafar:
Hörð samkeppni
við einkabílinn
Farþegum hefur fækkað um 27-30%
ferðinni fyrir póstþjónustuna. Hins
vegar sagði Gunnar að sérleyfis-
hafarnir hefðu verið tilbúnir að flýta
sínum ferðum um því sem næmi
að póstbíllinn færi, en það hefði
ekki verið þegið. Sama væri með
póstþjónustuna á Suðumesjum,
þessari leið væri vel sinnt af sérleyf-
ishöfum, en Póstur og sími færa
þar einnig á eigin bílum.
Þá sagði hann, að fargjöld hefðu
ekki fylgt verðlagi annarrar þjón-
ustu í landinu. Til samanburðar
mætti nefna, að lengi vel kostaði
ferð frá Reykjavík til Selfoss svipað
og klipping. Nú kosti 265 krónur
að fara til Selfoss, en klipping kosti
nærri þrisvar sinnum meira.
„Stefnt hefur verið að því að
kaupa minni bíla, 14—18 manna,
því þeir eru mun hagkvæmari
rekstrarlega séð. Einnig hefur verið
farið í vaxandi mæli út í að kaupa
svokallaða hálfkassabíla, þar sem
eru sæti fyrir örfáa farþega, en
einnig geymslurými fyrir pakka-
fiutninga.
Þá eru flestir sammála um að
alltof mörg leyfi hafa verið gefin
út á síðastliðnum ámm. Fyrir um
10 árum vora 80 bílar í sérleyfis-
akstri, en nú era þeir 240. Engar
reglur hafa gilt um fjölda sérleyfis-
hafa eins og er t.d. í leigubíla-
akstri.“
FARÞEGUM á sérleyfisleiðum utan höfuð-
borgarsvæðisins hefiir fækkað um 27—30%
frá árinu 1983. Mest varð fækkunin á árinu
1988 eða 15%. Voru farþegar um 500 þús-
und þegar mest var, en aðeins 385 þúsund
á nýliðnu ári. Á sama 5 ára tímabili fjölg-
aði erlendum ferðamönnum hér um 50%.
Hefur §öldi útlendinga í áætlunarferðum
aukist, sem þýðir að Islendingum hefur
fækkað því mun meir, að sögn Gunnars
Sveinssonar, fi-amkvæmdastjóra Bifreiða-
stöðvar Islands. Á aðalfundi BSÍ og Félags
sérleyfishafa, sem haldinn var skömmu fyr-
ir jól voru menn uggandi vegna þessara
upplýsinga og urðu sammála að leita ráða
til lausnar vandans.
Gunnar sagði að erfiðleikana
mætti rekja til ýmissa atriða,
auglýsa þyrfti meira innanlands,
t.d. hvernig mætti nota hringmiða
og tímamiða. Verð þessara miða
væri hagkvæmt og gæfi ferða-
mönnum mikla möguleika. Það
þyrfti í raun að kenna íslendingum
að nota þessa miða. Þá sagði hann
að Póstur og sími leitaði ekki nægi-
lega til sérleyfishafa með póstþjón-
ustuna. Fyrir a.m.k. tveimur áram
hefði Póstur og sími hafið akstur á
leiðinni Reykjavík-Vík í Mýrdal-
Reykjavík. Þeir hefðu haft uppi
athugasemdir um að sérleyfishaf-
arnir væra ekki nógu snemma á
Eindæma
gæftaleysi
Grindavík.
GÆFTALEYSI hefur verið með
eindæmum í Grindavík það sem
af er vetrarvertíð og muna menn
vart annað eins í langan tíma.
Grindvíkingar hafa ekki farið
varhluta af því veðri sem geng-
ið hefur yfir landið undanfarinn
mánuð. Afli hefur verið í meðallagi
góður. 920 tonn fengust í 100 róð-
rum á móti 1.240 tonnum í 257 róð-
rum í janúar fyrir ári. Einu sinni frá
áramótum hafa allir bátar verið á
sjó í einu og komu 12 línubátar með
afla að landi auk 9 netabáta.
- FÓ
Hrunamannahreppur:
Mikil vinna
á Flúðum
Syðra Langiiolti.
SEGJA má að atvinnuástand sé
allgott hér í sveit, ef miðað er við
árstíma. Hjá vinnuvélum Úlfars
Harðarsonar og Hjúp hf. á Flúð-
um, starfa um 20 manns, en þessi
fyrirtæki hafa samstarf. Þar er
m.a. unnið að framleiðslu á hita-
veiturörum og lagningu þeirra.
Oðinn Sigurgeirsson, framleiðslu-
stjóri í Límtrésverksmiðjunni,
sagði að þeir finndu ekki mikið fyrir
samdrætti og þar hefði ekki þurft
að segja mönnum upp vinnu. Nú
vinna þar 18 manns og er alltaf
unnið á vöktum. Útlit er sæmilegt
með verkefni.
- Sig. Sigm.