Morgunblaðið - 21.02.1989, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1989
41
Bömín og valdið
Afi skrifar: í stuttri en merkri
grein prófessors Páls Skúlasonar
gat að líta þann fróðleik í Morgun-
blaðinu þann 8. febrúar sl. að í
raun eru mannréttindaákvæði
íslensku stjómarskrárinnar ættuð
frá valdatíma Kristjáns 9. — frá
1874.
í annarri ritsmíð eftir Baldur
Andrésson arkitekt í Dagblað-
inu/Vísi þann 20. janúar sl. getur
hann um að núgildandi barnavemd-
arlög séu í raun talin vera frá árinu'
1947,- en svo virðist sem 19. aldar
embættisviðhorf til ungmenna ráði
ríkjum í löggjöf þessari.
Nýlega hefur umboðsmaður Al-
þingis ritað Alþingi bréf þar sem
hann minnir á, að mannréttindi séu
engan veginn tryggð í stjómarskrá
okkar (né heldur lögum) og telur
þar til m.a. skort á vemdun frið-
helgi fjölskyldulífs, skort á vemdun
skoðanafrelsis og fleiri atriði, sem
okkur nútímamönnum þykja sjálf-
sögð. Dáum við Sókrates eða er
hann gleymdur?
Dapurlegt er að vita til þess, að
eitt elsta alþingi heimsins skuli
„vegna anna" eiga erfítt með að
viðhalda ýmsum grundvallarlögum
svo þau samræmist viðhorfum nú-
tímans. Illt er að vita til þess, að
alþjóðlega viðurkennd mannréttindi
skuli ekki skráð í stjómarskrá okk-
ar, en slíkt veldur að sjálfsögðu
því, að sértæk löggjöf, sem mann-
réttindi varða gjalda þess. Bama-
vemdarlöggjöfín geldur þess vissu-
lega.
Grein Baldurs er hin piýðilegasta
ádrepa til okkar um, að strax verði
hafist handa um að bæta mannrétt-
indastöðu 75.000 ungmenna á ís-
landi, innan sem utan heimila, ekki
síst gagnvart þeim opinbera stjóm-
völdum, sem ætlað er að gæta
mannréttinda og velferðarmála
fólks á bemsku- og unglingsáram.
Baldur færir prýðileg rök að því,
að einmitt barnavemdarkerfið
starfi á grandvelli fomeskjulegra
laga þar sem mannréttindi bama
eru látin óskilgreind, en á hinn bóg-
inn sé stjómvöldum færð í hendur
óhemjumikil og takmarkalítil völd
til hvers kyns ráðstafana er böm
varða, án eftirlits og án aðildarrétt-
ar málsaðila.
Baldur telur að bamavemdar-
kerfið sé bömum falskt öryggi, en
ef starfshættir þess séu ógn við
mannréttindi. Hvemig líður endur-
skoðun bamavemdarlaga?
©1987 Unlver&al Presa Syndicate
þacS stendur „Hvab e_r iangt pa.r\g<*5
•fccL viS lendum?"
Ást er. . .
... að láta hana um að
velja áfangastaðinn.
TM Reg. U.S. Pat Off. —all rights reserved
® 1989 Los Angeles Times Syndicate
Hvað gafetu honum eigin- Ég verð að hætta núna,
lega i þjórfé —? mamma. Hundurinn bíður
eftir matnum.
Víkverji skrifar
Víkveiji heyrði ávæning af því
í útvarpsfréttum á laugardag,
að Gísli Alfreðsson, þjóðleikhús-
stjóri, teldi að byggja ætti nýtt Þjóð-
leikhús við hlið þess gamla og nota
gamla húsið, sem litla svið hins
nýja leikhúss.
Þetta era óraunhæfar hugmynd-
ir, sem enginn grandvöllur er fyrir.
Þjóðleikhúsið stendur fyrir sínu.
Þetta er glæsileg bygging, sem
hefur náð að festa rætur. Viðhald
þessarar byggingar hefur verið van-
rækt og það er ríkinu til skammar.
Þrátt fyrir það er engin ástæða til
að hefja nú umræður um byggingu
nýs Þjóðleikhúss. Meira vit væri í
að byggja í námunda við Þjóðleik-
húsið einhveijar þær stoðbygging-
ar, sem leikhúsið þarf á að halda,
en fráleitt er að tala um nýja leik-
húsbyggingu á þessum stað eða
yfirleitt að tala um nýtt leikhús.
í haust tekur Borgarleikhúsið til
starfa og þangað flytur Leikfélag
Reykjavíkur starfsemi sína, eftir
að hafa starfað í nálægt því heila
öld við Tjömina. Hið nýja Borgar-
leikhús mun áreiðanlega hleypa
nýju lífi í leiklistarstarf í höfuð-
borginni en þar að auki má búast
við, að eitthvert litlu leikhúsanna
fái inni í Iðnó. Þegar á allt þetta
er litið er ástæðulaust að tala nú
um nýtt Þjóðleikhús.
XXX
Mikið er talað um bjór og í fjöl-
miðlum er talað af áfergju um
hinn svonefnda B-dag og að þá
muni eitthvað mikið gerast. Hvað?
Bjórinn verður ekki til sölu þennan
eina dag heldur til frambúðar.
Hvaða læti eru þetta? Víkveiji hafði
spumir af móður, sem spurði son
sinn, hvort ekki yrði mikið um að
vera í hans aldursflokki hinn 1.
marz n.k. Pilturinn yppti öxlum og
gerði lítið úr því. Hann bætti svo
við: annars er eins og fjölmiðlamir
HÖGNI HREKKVÍSI
ætli að koma allri þjóðinni á bjórfyll-
erí þennan dag!
Sennilega er nokkuð til í því hjá
þessum unga manni, að æsingur
vegna bjórsins sé fyrst og fremst í
fjölmiðlum.
XXX
Kona ein, sem býr í námunda
við miðbæinn hafði orð á því
við Víkveija, að það væri óþolandi,
að ekki væri hreinsaður snjór af
gangstéttum heldur væri honum
mokað upp á gangstéttimar. Afleið-
ing væri sú, að gangandi vegfarend-
ur kæmust ekki leiðar sinnar, nema
með því að ganga á götunum og
væra þá í lífshættu vegna bílaum-
ferðar.
Það er nokkuð til í þessu. Það
ber að fagna rösklegum vinnu-
brögðum við snjómokstur en hvað
um gangandi vegfarendur? Eiga
þeir ekki rðtt á að komast leiðar
sinnar?
SOtrriNM viepisT VEiep. liflcgri i AR."