Morgunblaðið - 28.02.1989, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 28.02.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRUAR 1989 5 Flóð í Kringlunni Vörur að verðmæti l'/2 til 2 milljónir skemmdust fyrir nokkru í verslun Sævars Karls og sona í Kringlunni, vegna flóðs. Vatn flæddi inn í verslun- ina í gegnum loftræstikerfi. Verslunin hefur fengið skaðann bættan hjá tryggingarfélagi sínu. Þórshöfin: Forstjóra- staðan laus tilumsóknar Að sögn verslunarstjórans flæddi vatnið inn í útibú Pósts og síma á næstu hæð fyrir ofan verslunina. Snjór hrundi í asahláku af þaki hússins og var skafl fyrir framan hurð Pósts og síma. Þar sem Póstur og sími ekur vögnum þar í gegn er enginn þröskuldur. Snjórinn bráðnaði og vatnið rann inn í hús- næði Pósts og síma og niður um loftræstistokka í gólfi. Þaðan átti það greiða leið inn á lager verslun- arinnar á næstu hæð, þar sem dæla þurfti út um 500 lítrum. Þá mun einnig hafa flætt inn í verslun- ina Heimsljós, sem er við hlið Sæv- ars Karls og sona, en skaðinn þar var mun minni. Sævar Karl og synir halda nú útsölu á þeim fatnaði sem var á lager verslunarinnar þegar flæddi. Morgunblaðið/Sigurgeir Krístján Egilsson safiivörður hagræðir Háfvarði. V estmannaeyjar: Háfvarð- ur stopp- aður upp Starfsmenn Náttúrugripa- saftisins í Vestmannaeyjum hafa stoppað upp kambháf- inn Háfvarð sem skipveijar á Guðbjörgu fengu í vörpuna á Vestfjarðamiðum. Kambháfurinn þoldi ekki flutn- ingana og drapst fijótlega eftir komuna til Eyja. Safnverðimir, Friðrik Jesson og Kristján Egils- son, stoppuðu fiskinn upp og er hann nú til sýnis í safninu. STAÐA forstjóra Norðurlanda- hússins í Þórshöfii Færeyjum er nú laus til umsóknar. Ráðið verð- ur í stöðuna til allt að fjögurra ára. Norðurlandahúsið starfar fyrir fé frá ráðherranefnd Norðurlanda og landsstjóm Færeyja. Stofnuninni ber að vera tengiliður á menningar- sviði milli Færeyja og annarra hluta Norðurlanda s.s. með leiksýningum, hljómleikum, ráðstefnum, listsýn- ingum, rekstri grafík-vinnustofu o.fl. Ætlunin er að nýr forstöðumaður taki við 1. október nk. en undanfar- in þrjú og hálft ár hefur Svíinn Karin Flodström gegnt stöðunni. Umsóknarfrestur rennur út 4. mars. SR: Neftid endur- skoðar lög umfyrirtækið Sjávarútvegsráðherra hefúr skipað nefiid til að endurskoða lögin um Sildarverksmiðjur ríkisins og rekstrarform þeirra, að sögn Þorsteins Gíslasonar fiskimálastjóra og stjórnarfor- manns SR en hann á sæti í nefiid- inni. Formaður nefhdarinnar er Helgi Bergs. Aðrir nefndarmenn eru ísak Ól- afsson bæjarstjóri á Siglufirði, Jón Ingi Ingvarsson verksmiðjustjóri SR á Skagaströnd, Hörður Þór- hallsson sveitarstjóri á Reyðarfirði, Þorvaldur Jóhannsson bæjarstjóri á Seyðisfírði og Gunnar Hilmarsson sveitarstjóri á Raufarhöfn. Starfsmenn nefndarinnar em Þórður Jónsson rekstrarstjóri SR og Amdís Steinþórsdóttir deildar- sjóri í sjávarútvegsráðuneytinu. Vestmannaeyjar: Grunaður um nauðgun Vestmanneyingpir á þrítug^s- aldri var á sunnudag úrskurðað- ur í 14 daga gæsluvarðhald grun- aður um að hafa nauðgað 16 ára gamalli stúlku í samkvæmi á heimili í Eyjum á laugardags- morgun. Maðurinn hefur ekki játað á sig verknaðinn. Hann hefur hlotið dóm fyrir svipað brot, að sögn rannsókn- arlögreglu. Vitni, sem vom í sam- kvæminu þar sem atburðurinn átti sér stað hafa verið yfirheyrð. Stúlk- an mun ekki hafa hlotið mikla áverka. Þar sem enginn fangaklefi er til í Vestmannaeyjum, síðan lögreglu- stöðin þar brann fyrir fimm mánuð- um, var hinn gmnaði fluttur í Síðumúlafangelsi í Reykjavík. Rannsóknarlögreglan í Vestmanna- eyjum er á ferð og flugi milli lands og Eyja til að vinna að málinu. Bemdorm ábetraverði og' bamaklúbburinn í kaupbætí!! Vertu viss um að þú fair réttu ferðina fyrir peningana. Á Benidorm nýtur fjölskyldan lífsins á fegurstu ströndum Spánar og það byggir á reynslu og kunnáttu þeirra sem að ferðinni standa, bæði heima og erlendis. 15 ára reynsla Ferðamiðstöðvarinnar á Benidorm tryggir þér bestu gististaðina og Ferðamiðstöðin Veröld býður nú fyrst íslenskra ferðaskrifstofa þjónustutryggingu sem tryggir þér góðan aðbúnað í sumarleyfinu. Það er þess vegna sem við segjum: Hjá VEROLD færðu meira fyrir peningana. EUROPA CENTER í maí og júní: Hjón með 2 börn Verð samtals 138.400,- í 2 vikur eða 34.600,- fyrir manninn CLUB LEVANTE Páskaferd 2 í stúdíóíbúð Verð kr. 39.900,- fyrir manninn í 13 daga Gerðu samanburð á verði og þjónustu, það borgar sig! KYNNTU ÞÉR RAÐGREIÐSLUR OG ÞJÓNUSTUTRYGGINGU VERALDAR. FERflAMIÐSTDBIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.