Morgunblaðið - 28.02.1989, Page 6

Morgunblaðið - 28.02.1989, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJOINIVARP ÞRIÐJUDAGUR 28. FBBRÚAR 1989 19:30 20:00 20:30 21:00 21:30 22:00 22:30 23:00 23:30 24:00 UTVARP RÍKISÚTVARPIÐ FM 92,4/93,6 8.45 Veðurlregnir. Bæn, séra Agnes M. Sigurðardóttir flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 i morgunsárið með Randveri Þorláks- syni. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfr. kl. 8.15. Lesiö úr forustugreinum dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30. Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn. „Sögur og ævin- týri", höfundurinn, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, les (4). (Endurtekið um kvöldið kl. 20.00.) 9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Björnsdóttir. 9.30 í pokahorninu. Sigriður Pétursdóttir gefur hlustendum holl ráð varðandi heim- ilishald. 9.40 Landpósturinn — Frá Suðurlandi. Umsjón: Þorlákur Helgason. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tið. Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. Umsjón: Hanna G. Sig- urðardóttir. (Einnig útvarpað á miðnætti.) 11.66 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.46 Veðurfregnir. Tilkynningar. 13.06 I dagsins önn — Sagnahefð. Um- sjón: Steinunn Harðardóttir. 13.36 Miðdegissagan: „( sálarháska”, ævi- saga Árna prófasts Þórarinssonar skráð af Þórbergi Þórðarsyni. Pétur Pétursson byrjar lestur annars bindis. 14.00 Fréttir. Tilkynningar. 14.05 Eftirlætislögin. Haukur Morthens vel- ur. (Einnig útvarpað aðfaranótt sunnu- dags kl. 2.00). 15.00 Fréttir. 15.03 Imynd Jesú i bókmenntum. Fyrsti þáttur. Úr verkum Dostojevskís. Umsjón: Árni Bergmann. (Endurtekið frá fimmtu- dagskvöldi). 15.45 Þingfréttir. 18.00 Fréttir 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. — Að lesa afturábak, hvernig er það hægt? Umsjón: Kristín Helgadóttir. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á siðdegi — Beethoven og Gershwin. — Sónata nr. 5, „Vorsónatan", fyrir fiðlu og píanó eftir Ludwig van Beethoven. David Oistrakh og Lev Oborin leika. — Píanókonsert í F-dúr (í upprunalegri mynd, fyrir tvö píanó) eftir George Gersh- win. Katia og Marielle Labeque leika. 18.00 Fréttir. 18.03 Á vettvangi. Umsjón: Bjarni Sig- tryggsson, Guðrún Eyjólfsdóttir og Páll Heiðar Jónsson. Tónlist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.32 Kviksjá - Lík í næsta herbergi. Viöar Víkingsson flytur pistil um hrollvekjur í kvikmyndum. (Einnig útvarpaö á föstu- dagsmorgun kl. 9.30.) 20.00Litli barnatiminn. „Sögur og ævintýri" höfundurinn, Þórunn Magnea Magnús- dóttir, les (4). (Endurtekið frá morgni.) 20.16 Kirkjutónlist — Schubert og Mend- elssohn. — „Salve Regina" fyrir blandaðan kór og orgel eftir Franz Schubert. Kór útvarpsins í Munchen syngur; Elmar Schloter leikur á orgel; Josef Schmidhuber stjórnar. — Orgelsónata nr. 6 f d-moll eftir Felix Mendelssohn. Wolfgang Dallmann leikur. — Þýsk messa fyrir kór, blásarasveit, páku og orgel eftir Franz Schubert. Kór og hljómsveit útvarpsins í Munchen flytja; Wolfgang Sawallisch stjórnar. 21.00 Kveðja að austan. Úrval svæðisút- varpsins á Austurlandi i liöinni viku. Um- sjón: Haraldur Bjarnason. (Frá Egilsstöð- um.) 21.30 Útvarpssagan: „Þjónn þinn heyrir" eftir Söru Lidman. Hannes Sigfússon les þýðingu sína (17). 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.16 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma. Guðrún Ægis- dóttir les 32. sálm. 22.30 Leikrit: „Lögreglufulltrúinn lætur í minni pokann" eftir George Courteline. Þýðandi: Ásthildur Egilson. Leikstjóri: Flosi Ölafsson. Leikendur: Gísli Alfreðs- son, Baldvin Halldórsson, Inga Bjarna- son, Helgi Skúlason, Erlingur Gíslason, Hákon Waage, Guðjón Ingi Sigurðsson og Karl Guðmundsson. (Einnig útvarpað nk. fimmtudag kl. 15.03.) 23.15 Tónskáldatími. Guðmundur Emils- son kynnir íslenska tónlist, að þessu sinni verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. Umsjón: Hanna G. Sig- urðardóttir. (Endurtekinn frá morgni.) 1.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á sam- tengdum rásum til morguns. RÁS 2 — FM 90,1 1.10 Vökulögin. 7.03 Morgunútvarpið. Leifur Hauksson og Ólöf Rún Skúladóttir hefja daginn með hlustendum. Fréttirkl. 8.00 og 9.00, veð- urfregnir kl. 8.15 og leiðarar dagblaðanna kl. 8.30. 9.03 Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Alberts- dóttur. Afmæliskveöjur kl. 10.30. Fréttir kl. 10.00 og 11.00. 11.03 Stefnumót. Jóhanna Harðardóttir tek- ur fyrir það sem neytendur varðar. 12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar. 12.15 Heimsblöðin. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Umhverfis landið á áttatiu. Margrét Blöndal og Gestur Einar Jónasson. Frétt- ir kl. 14.00. 14.05 Milli mála. Óskar Páll á útkíkki. — Auður Haralds talar frá Róm. Fréttir kl. 15.00og 16.00, Hvaðgerabændurnú? 16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp. Stefán Jón Hafstein, Ævar Kjartansson og Sigríð- ur Einarsdóttir. Hlustendaþjónustan kl. 16.45. Fréttanaflinn, Sigurður G. Tómas- son með fjölmiðlarýni eftir kl. 17.00, Stór- mál dagsins milli kl. 17 og 18. Þjóðarsál- in kl. 18.03. Fréttir kl. 17.00 og 18.00. 19.00 Kvöldfréttir. 19.33 Áfram ísland. fslensk dægurlög. 20.30 Útvarp unga fólksins. 21.30 Fræðsluútvarp: Lærum ensku. Enskukennsla f. byijendur á vegum Fjar- kennslunefndar og Málaskólans Mímis. Sautjándi þáttur endurtekinn frá liðnu hausti. Fréttir kl. 22.00. 22.07 Bláar nótur. Pétur Grétarsson kynnir djass og blús. Fréttir kl. 24.00. 1.10 Vökulögin. Kl. 2.00 „Ljúflingslög" i umsjá Svanhildar Jakobsdóttur. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veöurstofu kl. 1.00 og 4.30. BYLGJAN — FM 98,9 7.30 Páll Þorsteinsson. Fréttir kl. 8 og Potturinn kl. 9. 10.00 Valdís Gunnarsdóttir. Brávallagatan kl. 10-11. Fréttir kl. 10, 12 og fréttayfirlit kl. 13. 14.00 Þorsteinn Ásgeirsson. Fréttir kl. 14 og 16 og Potturinn kl. 15 og 17. Bibba og Halldór kl. 17-18. 18.00 Fréttir. 18.10 Reykjavik siðdegis — Hvað finnst þér? Steingrimur Ólafsson. 19.00 Freymóður T. Sigurðsson. 20.00 Islenski listinn. Olöf Marin kynnir 40 vinsælustu lög vikunnar. 22.00Bjarni Olafur Guðmundsson. 24.00Næturdagskrá Bylgjunnar. RÓT—FM 106,8 13.00 Úr Dauðahafshandritunum. Haraldur Jóhannsson les (6). 13.30 Nýi timinn. Baháí-samfélagið á ís- landi. E. 14.00 í hreinskilni sagt. E. 15.00 Kakó. Tónlistarþáttur í umsjón Árna Kristinssonar. 16.30 Umrót. Tónlist, fréttir og fl. 17.00 Kvennalistinn. 17.30 Laust. 18.00 Hanagal. 19.00 Opið. 20.00 FÉS. Unglingaþáttur. 21.00 Barnatími. 21.30 Úr Dauðahafshandritunum. 22.00 Við við viötækið. Tónlistarþáttur. 23.30 Rótardraugar. 24.00 Prógramm Sig. ívarssonar. E. 2.00 Nætun/akt. Baldur Bragason. STJARNAN — FM 102,2 7.30 Jón Axel Ólafsson, tónlist. Fréttir kl. 8.00 og 10.00, fréttayfirlit kl. 8.45. 10.00 Helgi Rúnar Óskarsson, tónlist. Frétt- ir kl. 12.00 og 14.00. 14.00 Gísli Kristjánsson. Fréttir kl. 18. 18.00 Róleg tónlist. 20.00 Sigurður Helgi Hlöðversson og Sig- ursteinn Másson. 24.00 Næturstjörnur. ÚTRÁS — FM 104,8 8.00 Árdegi. Friðjón Friðjónsson. 12.00 Síðdegi. Margrét Grímsdóttir og Garðar Þorvarðarson. 16.00 Blandan. Hafþór og Gunnar. 18.00 Kvöldvaka. Kjartan Lorange. 20.00 Undir grund. 22.00 Þunginn. 24.00 Næturvakt. Gunnar og Harpa. 4.00 Robbi (róbót). 1.00 Dagskrárlok. ÚTVARP ALFA — FM 102,9 10.00 Morgunstund, Guðs orð, bæn. 10.30 Alfa með erindi til þín. 14.00 Orð guðs til þín. Þáttur frá Orði Lífsins. Umsjónarmaðurer Jódís Konráðs- dóttir. 15.00 Alfa með erindi til þín. Frh. 24.00 Dagskráriok. ÚTVARP HAFNARFJÖRÐUR FM91.7 14.00 Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar. Seinni umræða. Bein útsending frá fundi bæjarstjórnar í Hafnarborg. Dagskrárlok óákveðin. HLIÓÐBYLGJAN FM 95,7/101,8 7.00 Réttum megin framúr. 8.00 Morgungull. Hafdís Eygló Jónsdóttir. 12.00 Ókynnt tónlist 13.00 Perlur og pastaréttir. 17.00 Síðdegi í lagi. Þráinn Brjánsson. 19.00 Ókynnt tónlist. 20.00 Kjartan Pálmarsson. 23.00 Þráinn Brjánsson. 1.00 Dagskrárlok. SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2 8.07— 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03—19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. ÓLUND AKUREYRI FM 100,4 19.00 Gatið. 20.00 Skólaþáttur. 21.00Fregnir, 21.30 Sagnfræðiþáttur. 22.00 Æðri dægurlög. Diddi og Freyr. 23.00 Kjöt. Ási og Pétur. 24.00 Dagskrárlok. * A „ Afram Island“ Væntonleg o ollar úrvols myndbondaleigur L AST EMBRACE „Æsispenna, dulúð og hrollvekja af bestu gerð, í stíl Alfred Hitchcock*. Sunday Tclegraph. Aðalhlutverkið er í höndum Roy Scneider (The French Connection, Jaws, Marathon Man). Tvímælalaust mynd sem enginn spennumyndaaðdáandi má missa af. að er ekki hægt annað en þjóta að orðabelgnum þegar íslenska handknattleiksliðið vinnur stærsta sigur íslenskrar íþróttasögu gegn Pólveijum í heimsborginni miklu París ... til hamingju helj- ur! Það var alveg hárrétt hjá Bjama er lýsti leiknum af innlifun í beinu sjónvarpsútsendingunni að spennan var... ólýsanleg. Þess vegna þýðir ekkert að lýsa þessum gullmed- alíuleik frekar í orðum. Og hér koma yfirburðir hinna beinu sjón- varpssendinga í ljós. Það er blátt áfram ólýsanleg tilfinning að horfa á slíkan leik í beinni útsendinga. Reyndar hefir undirritaður uppiifað svipaða spennu við að hlýða á beina lýsingu á fótboltaleik er lslendingar unnu A-Þjóðveija fyrir langa langa löngu. En gervihnattasjónvarpið hefir nú samt að ég hygg nokkra yfirburði og sambandið við París var bara býsna gott ef horft er fram hjá smávægilegum hljóðtruflunum. Annað var uppá teningnum hjá Samúel Emi á rás tvö. Þar skyggðu að mér heyrðist ákafar hljóðtrufl- anir á lýsinguna. Skrýtið að betra samband náist milli Parísar og ís- lands gegnum gervihnött en um símalínur? Gervihnattasendingar eru greinilega það sem koma skal á ljósvakasviðinu. En hvernig stendur á því að Pól- verjar og íslendingar leika til úr- slita? Er skýringin sú að bæði liðin höfðu pólska þjálfara? Vafalaust eiga þjálfaramir mikinn hlut að velgengni þessara frábæru liða en úrslitum raeður líkamlegt og and- legt atgervi leikmanna. En eiga lið- in fleira sameiginlegt en afburða þjálfara og atgervi? Ja, er hugsan- íegt að sagan sameini hið besta í pólsku og íslensku leikmönnunum? Islenska þjóðin hefír um aldir hjarað í harðbýlu landi á mörkum hins byggilega heims og pólska þjóðin hefír um aldir verið undir oki víg- reifra nágranna er umkringja landið á alla vegu. Þessar óblíðu aðstæður eiga vafalítið sinn þátt í að herða og stæla þjóðimar. En tekst þessum aðkrepptu þjóðum að hjara í óblíðum heimi? Undirritaður óttast persónulega um framtíðarhag íslensku þjóðarinnar eftir að hafa horft á hina sakleysislegu teikni- mynd: Dotta og hvalurinn er birtist á Stöð 2 skömmu áður en hand- boltalýsingin hófst. NeytendurframtíÖar Þessi teiknimynd var listavel gerð enda hvergi til sparað og blandað á snilldarlegan hátt saman teiknimyndum og öðm myndefni og þá var lesið fagmannlega inná myndina. En boðskapurinn gæti reynst veiðiþjóðum hættulegur er fr&m líða stundir í Dottu var lýst baráttu nokkurra krakka fyrir björgun hvals er villtist upp á strendur Ástralíu. Er hvalnum lýst nánast eins og guðlegri vem og sungið ákaft um þá... fáu hvali sem em eftir í heiminum. Er hanuv að á vamaleysi hvalanna og ann- arra sjávardýra. Vondu kallamir í myndinni eru síðan veiðimenn- imir og einnig — fisksalarair. Að sjálfsögðu var svo beðið um peninga til hjálpar hvalnum og upp- hæðin tíunduð en undir lokin kemur ríki maðurinn er nefndist „Kristján" nánös til hjálpar. Milljónir baraa um heim allan horfa á slíkar áróðursmyndir og taka smám saman að hata veiði- menn og þá sem höndla með sjáv- arafla. Og muna menn útvarpsvið- talið við einn af forsvarsmönnum Grænfriðunga í Skandinavíu er upplýsti að næsta skrefið væri að koma í veg fyrir... ofveiði svo hvalimir fengju nóg að borða. Sennilega hefir íslensk þjóð sjaldan verið í meiri hættu en nú á veldis- tfma fjölmiðlanna þar sem óprúttnir menn sá sæði hatursins í gljúpar sálir. Ólafur M. Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.