Morgunblaðið - 28.02.1989, Page 23

Morgunblaðið - 28.02.1989, Page 23
Sovétríkin MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989 23 Bandarískir lækn- ar kanna ástand- ið í geðlækningnm Moskvu. Reuter. HÓPUR bandarískra lækna hélt í gær af stað til Sovétríkjanna og hyggjast þeir kanna ástandið í sovéskum geðlækningum. Andófsmenn í Sovétríkjunum og vestrænir sérfræðingar hafa lengi sakað sovésk yfirvöld um að loka pólitíska andstæðinga inni á geðsjúkrahúsum. Næstu tvær vikur munu 19 sér- fræðingar, þar af fimm rússn- eskumælandi, ræða við sjúklinga á stofnunum og fólk sem nýlega hefur verið útskrifað. „Markmiðið með ferð okkar er að meta breyt- ingar á stefnu sovéskra stjórn- valda í þessum málum; þ. á m. breytingar á lögum og réttargæslu geðsjúkra," sagði talsmaður hóps- ins, Robert Farrand, á blaða- mannafundi. Að sögn Farrands hafa sovésk yfirvöld ekki takmark- að fyrirhuguð störf hópsins á neinn hátt. Könnun af þessu tagi hefur ekki verið leyfð fyrr í Sovétríkjun- um. Á síðasta ári voru boðaðar umfangsmiklar breytingar á með- höndlun geðsjúkra og m.a. var yfírstjórn þessara mála flutt úr innanríkisráðuneytinu í heilbrigð- ismálaráðuneytið. Nöfn tveggja milljóna borgara voru þurrkuð út af opinberum skrám yfír geðsjúka og Æðsta ráðið, þing Sovétríkj- anna, samþykkti lög um vemdun borgaranna gagnvart slæmri með- ferð og misnotkun á gildandi lög- um. DonKíkóti 20. aldar? Madríd. Reuter. SPÆNSKA lögreglan handsam- aði uppivöðslusaman mann í miðborg Madríd í síðustu viku. Maðurinn stóð greinilega í þeirri trú að hann væri nauta- bani og blikkbeljur á helstu umferðargötu borgarinnar mannýg naut. Maðurinn mundaði jakka sinn fýrir framan bílana eins og hann væri nautabani. Að sögn lögregl- unnar olli bílabaninn umferða- röngþveiti með tiltækinu og lög- reglumaður slasaðist lítillega því að maðurinn veitti mótspymu þeg- ar átti að handtaka hann. Reuter Sovésk stríðstól á afgönskum teppum Teppasali í Kabúl býður til sölu afganskt teppi þar sem hefð- bundin mynstur eru látin vfkja fyrir sovéskum skriðdrekum og herþyrlum. Áhrifa af 10 ára styrjaldarástandi í Afganistan gætir viða og afgönsk veflist hefur ekki farið varhluta af því. AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKlRTEINA RlKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1982-1. fl. 01.03.89-01.03.90 kr. 925,77 1983-1. fl. 01.03.89-01.03.90 kr. 537,87 1984-2. fl. 10.03.89-10.09.89 kr. 360,54 ‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þarjafnframtframmi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, febrúar 1989 SEÐLABANKIÍSLANDS ROMIKA %\\ ROMIKA SKÓR FÁST MEÐAL ANNARS í EFTIRFARANDI VERSLUNUM: Reykjavík: RR Skór, Kringlunni, S. Waage, Kringlunni, Skóverslunin, Laugavegi 97, Hvannbergsbræður, Laugavegi 71, Skósel, Laugavegi 44, Axel Ó„ Laugavegi 11, Gísli Ferdinandsson, Lækjargötu, Skóbúð Kópavogs, Kópavogi, Skóhöllin, Hafnarfirði. Landið: Skóbúðin Keflavík hf., Keflavík, Axel Ó. Lárusson, Vestmannaeyjum, Skóbúð Selfoss, Selfossi, Krummafótur, Egilsstaðir, Skóbúð Húsavíkur, Húsavík, Skótiskan, Akureyri, Staðarfell, Akranesi, Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki, KASK, Höfn í Hornafirði. Cockpit skórnir eru bæði inni- og útiskór og upplagðir fyrir skrif- stofufólk, starfsfólk í verslunum, í hreinlega verkstæðisvinnu og fyrir alla þá fjölmörgu sem vilja ganga í þægilegum, mjúkum og fisléttum skóm. Þeim sem ganga í Cockpit ætti að líða betur í fótunum eftirdaginn. Notaðu réttu skóna í vinnuna - gangtu í Cockpit.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.