Morgunblaðið - 28.02.1989, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989
iitagp Útgefandi mÞlafeffr Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Svelnsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, BjörnJóhannsson, ÁrniJörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson.
Auglýsingastjóri BaldvinJónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 70 kr. eintakið.
Sveitarfélögin og
atvinnulífið
Umsvif flestra sveitarfé-
laga drógust vemlega
saman á liðnu ári. Ástæðan
var ekki sízt skerðing tekna
þeirra. „Talið er,“ segir í for-
ystugrein Sveitarstjómarmála,
„að hér muni um allt að tvö
þúsund milljónir króna, sem
skert útsvarshlutfall og lýrður
jöfnunarsjóður gefa minni
tekjur en mátt hefði ætla.“
Sveitarstjómarmál segja að
„þessi tekjurýmun komi aðal-
lega niður á miðlungsstórum
sveitarfélögum, til dæmis á
Norður- og Austurlandi, þar
sem nokkur dæmi eru um
sveitarfélög, þar sem tekjur
duga hvergi nærri fyrir gjöld-
um og fjármagnskostnaður
nemur orðið um 30% af tekjum
þeirra".
Rekstrarleg staða undir-
stöðugreina, Iandbúnaðar og
sjávarútvegs, hefur og bitnað
hastarlega á mörgum sveitar-
félögum, einkum í stijálbýli.
Þetta á ekki sízt við sjávar-
plássin. Þau byggja mörg hver
atvinnu og afkomu á einu eða
örfáum fyrirtækjum, sem gert
hefur verið að sæta tapi, ganga
á eignir og safna skuldum hin
síðari misserin.
Útflutnings- og samkeppn-
isgreinar hafa sætt verulegu
tapi, sem kunnugt er, meðal
annars vegna hins háa raun-
gengis krónunnar. Talið er að
eigið fé í sjávarútvegsfyrir-
tælgum hafi á heildina litið
rýmað um helming á tiltölu-
lega skömmum tíma. Atvinna
hefur víða dregizt saman, ekki
sízt yfirvinna, og sums staðar
hefur umtalsvert atvinnuleysi
sagt til sín — í fyrsta skipti í
herrans háa tíð. Af þessum
sökum hafa skattstofnar sveit-
arfélaganna skerzt, aðstöðu-
gjöld og útsvör. Þess eru og
allnokkur dæmi að fyrirtæki
hafa ekki staðið í skilum með
lögboðin gjöld til sveitarsjóða.
Fjárhagsleg staða sveitarfé-
laga hefur því víða veikzt mjög
sem og geta þeirra til að sinna
lögboðnum verkefnum og
þjónustu.
„Sveitarfélögin setja nú allt
sitt traust á að endurskoðun
telgustofna sveitarfélaganna
skili þeim sambærilegum tekj-
um og vera ætti í dag miðað
við gildandi lög og þá án skerð-
ingar," segir í tilvitnaðri for-
ystugrein Sveitarstjómarmála.
Verka- og tekjuskipting ríkis
og sveitarfélaga er stórt mál,
sem lengi hefur verið þæft um.
Sveitarfélögin leggja ekki sízt
áherzlu á heimastjóm á mál-
um, sem mestu skipta í búsetu
og umhverfi fólks, enda trygg-
ir staðbundin þekking betri
almenna þjónustu sem og betri
nýtingu á fjármunum.
Hitt skiptir síðan ekki minna
máli fyrir sveitarfélög í stijál-
býli, að búa undirstöðugrein-
um í þjóðarbúskapnum, ekki
sízt útgerð og fískvinnslu, að-
stöðu til að standa á eigin fót-
um og til að mæta atvinnu-
og tekjuþörf fólks.
Undir sig-
urboganum
Islenzka landsliðið í hand-
bolta kemur heim frá París
með gullið í farteskinu.
B-keppni heimsmeistaramóts-
ins lauk með íslenzkum stór-
sigri. ísland hefur ekki aðeins
tryggt sér rétt til að leika í
hópi A-þjóða — rétt til þátt-
töku í keppninni um heims-
meistaratitilinn í greininni á
næsta ári — heldur gert það
með þeim glæsibrag sem lengi
verður í minnum hafður.
Það fer ekki á milli mála
að íslendingar eru stoltir af
landsliðinu. Liðsmenn stóðu
sig sem hetjur, bæði sem ein-
staklingar og heild. Hver og
einn leikmaður skilaði frábærri
frammistöðu. Það eykur síðan
á ánægju landans að Þorgils
Óttar Mathiesen, fyrirliði liðs-
ins, var valinn í heimsliðið
gegn landsliði Portúgals í sum-
ar — og ekki síður að Alfreð
Gíslason var lgörinn bezti leik-
maður B-keppninnar. Síðast
en ekki sízt ber að þakka þjálf-
ara landsliðsins, Bogdan Kow-
alczyk, sem á sinn stóra þátt
í þessum íslenzka sigri.
Frammistaða landsliðs okk-
ar í handknattleik í B-keppn-
inni í París var ómetanleg aug-
lýsing fyrir Island í umheimin-
um. Og það var stolt þjóð sem
horfði á lið sitt undir sigur'ooga
heimsborgarinnar á sunnudag-
inn. Hún fann sig í þakkar-
skuld við þá sem gerðu garðinn
svo frægan. Megi sú tilfínning
vara lengur en augnablikið.
Afborganir af þakkarskuld
falla ekki sízt þegar syrtir í
álinn.
Landskeppni í eðlisfræði:
Efstu sætin í úrslit-
um öll til MA og MR
FIMM nemendur framhaldsskólanna unnu til peningaverðlauna
í úrslitum landskeppni í eðlisfræði, sem Eðlisfræðifélag íslands
og Félag raungreinakennara standa árlega fyrir með tilstyrk
Morgunblaðsins. Agni Ásgeirsson, MR, varð í efsta sæti, en
næst og jöfix urðu Ásta K. Sveinsdóttir og Kristján Leósson,
MR, og Guðbjörn Freyr Jónsson og Gunnar Pálsson, MA.
Þetta er í sjötta sinn, sem land- eðlisfræði, sem kennd er í fram-
skeppni er haldin í eðlisfræði og
tóku þátt í henni 146 nemendur.
13 nemendanna komust síðan í
úrslitakeppni og fór hún fram um
helgina. Þessir 13 nemendur voru
úr 7 framhaldsskólum. Nemend-
umir glímdu við 4 fræðileg verk-
efni á laugardag og 3 verklegar
tilraunir á sunnudag. Verkefnin
fjölluðu um grundvallarskilning á
haldsskólum.
Dómnefnd keppninnar skipuðu:
Einar Júlíusson, Jakob Yngvason,
Þorsteinn Vilhjálmsson og Sigfús
Jóhann Johnsen. Keppendur í úr-
slitum hlutu allir viðurkenningu,
bókina „í hlutarins eðli“, sem gef-
in var út í minningu Þorbjöms
Sigurgeirssonar prófessors.
Agni Ásgeirsson við verklegar tilr
Nemendumir 13, sem þátt tóku í úrslitum landskeppni í eðlisfræði.
Þorkell
wjk ££ I
g, y j| J
Sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ:
Nýtt félags-
heímili opnað
NÝTT félagsheimili sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ að Urðar-
holti 4 var vígt á laugardag. Voru um 50 manns viðstaddir
opnunina og mættu þar m.a. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, og Salome Þorkelsdóttir, alþingismaður. Hús-
næðið hefúr verið í byggingu í eitt og hálft ár og er tæplega
Qörutíu fermetrar að stærð. Aðalfúndur Sjálfetæðisfélags Mos-
fellsbæjar var einnig haldinn á laugardag. Magnús Kjartansson
var kjörinn formaður en í sfjórn félagsins voru kosin þau Ingi-
munda Loftsdóttir, Sigurður L. Einarsson, Gunnar Hjartarsson,
Gunnar Rúnar Magnússon, ÞorkeU Einarsson, og Þuríður Yngva-
dóttir. Varamenn eru ívar Benediktsson og Valgerður Sigurðar-
dóttir.
Svala Ámadóttir, sem verið hef-
ur formaður Sjálfstæðisfélags
Mosfellsbæjar undanfarin tvö ár,
en lét af formennsku um helgina,
sagði við Morgunblaðið, að það
væri mjög mikilvægt að fá þetta
nýja húsnæði. Félagið hefði verið
algjörlega húsnæðislaust áður,
stjómarfundir verið haldnir á
heimilum félagsmanna en almennir
fundir í Hlégarði. I nýja húsnæðinu
yrðu nú nánast allir ftindir haldnir
og væri þegar búið að kaupa 36
stóla í því skyni. Félag ungra sjálf-
stæðismanna í Mosfellsbæ ætti
einnig hlut í húsnæðinu og væri
þetta sérstaklega mikill munur fyr-
ir þau. Þrátt fyrir þetta húsnæðis-
leysi hefði verið unnið öflugt starf
undanfarin ár og væm sjálfstæðis-
menn nú með 5 menn af 7 í bæjar-
stjóm.
Svala sagði að allir hefðu lagst
á eitt til að eignast þetta húsnæði
og fólk bæði unnið mikla sjálf-
boðavinnu og gefið innanstokks-
muni og fé í húsið. „Fólk er óskap-
lega ánægt yfir að þetta hafi loks
tekist. Við erum búin að hugsa
mikið og skipuleggja í kringum
þetta. Það hafa um 300 félagar
tekið þátt í fjáröflun og öðru vegna
byggingarinnar. Hafa verið haldin
bingó, kökubasarar, tombólur og
menn greitt styrktargjöld."
Byggingarnefnd bar hitann og
þungann af verkinu og áttu í henni
sæti þau Þorgeir Guðmundsson,
Öm Kjæmested, Svala Ámadóttir,
Þröstur Lýðsson og Gunnar Pálí
Pálsson.
Hið nýja félagsheimili sjálfstæðisi
4 er vígt var á laugardag.
Svala Amadóttir og Þorsteinn P
heimilisins.