Morgunblaðið - 28.02.1989, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRUAR 1989
Varaflug'völlur
Ein lítil ráðherrarevía
eftir Gísla G.
Auðunsson
Einu sinni enn hefur mikill hiti
hlaupið í umræðuna um hugsanleg-
an alþjóðlegan varaflugvöll á Is-
landi. Eg tel ástæðulaust að rekja
undangengna umræðu, en bendi á
ágæta samantekt um málið eftir
Þórhall Jósepsson í Morgunblaðinu
laugardaginn 18. þ.m. undir heit-
%iu: „Varaflugvöllur fyrir milli-
landaflug: Deilt um tvær gjörólíkar
lausnir." í sama blaði er greint frá
því í frétt á baksíðu að Landeig-
endafélag Laxár og Mývatns mót-
mæli „harðlega þeim hugmyndum
sem fram hafa komið varðandi
byggingu flugvallar á vegum NATO
í Aðaldal".
Ég tel það ekki úr vegi að fleiri
úr héraði láti skoðun sína á málinu
í ljós en fulltrúar Landeigendafé-
lagsins, sérstaklega þar sem ég er
á öndverðri skoðun við þá félaga.
Flugbrautabætur
ráðherrans
Flestum á nú að vera ljóst að
"*álþjóðlegur varaflugvöllur, sem
þjónað geti öllum flugvélum er ann-
að og meira mál en bútamir sem
núverandi samgöngumálaráðherra
vill skeyta við Akureyrar- eða Egils-
staðaflugvelli og kalla varaflugvelli.
Slíkt tjasl er ekki ungum og snörp-
um manni samboðið og sýnir reynd-
ar dæmafáa skammsýni af æðsta
manni samgöngumála þjóðarinnar.
Og þó að þessi „lausn" hans megi
teljast slarkandi gagnvart tveggja
hreyfla farþegaþotum þá gengur
hún alls ekki gagnvart stærri þotum
til farþega- og vöruflutninga.
Ég býst við að ráðherrann hafí
fylgst það vel með alþjóðlegri fram-
vindu samgangna að hann geri sér
fulla grein fyrir þeirri gífurlegu
aukningu, sem er að verða í frakt-
flugi, t.d. milli Evrópu og Austur-
Asíu. Slíkt fraktflug fer ekki, og
mun ekki fara fram, með neinum
smáþotum. Finnst ráðherranum það
einskis virði að Islands geti boðið
upp á örugga millilendingu fyrir
alþjóðlegt fraktflug? Eða hversu
vinsæll áfangastaður telur hann að
Island verði í alþjóðlegu farþega-
og fraktflugi ef vélamar þurfa alla
tíð að flytja með sér nægilegt elds-
Skrifstofutækninám
Betra verð - einn um tölvu
Tölvuskóli íslands
S: 67 14 66
FRICÖ rafmagnshitablásarar ern
hljóðlátir smekklegir og handhægir
Frico rafmagnshitablásarinn, TEMPERATOR 200,
fæst hjá Rönning. Þessi frábæri hitablásari er
léttur og meðfærilegur.
Hann er með hitastillingu, valrofa fyrir afl og loftmagn,
kröftugan blástur og yfirhitavörn.
TEMPERATOR 200 er sterkbyggður, mjög hljóðlátur
og með hitöld úr ryðfríu stáli.
Hjá Rönning fást einnig fleiri gerðir af hitabl^surum
sem henta nánast hvar sem er.
Frico TERMOVARM ofnar eru hannaðir til að þola
raka t.d. í skipum og bátum.
Hann er mjög fyrirferðarlítill en gefur góðan hita.
Á ofninum er rofi af og á, hitastillir og yfirhitavörn.
Framhlið er einfalt að fjarlægja með einu handtaki
til að auðvelda þrif.
Það er notalegt að sitja við ylinn frá Frico TERMOVARM.
Véldu FRICO
Rofi af og á.
Sérstök hitaþolin lakkhúð. ...i/llli
0IHIIH"1
Einfalt að fjarlægja
framhlið til að
auðvelda þrif.
Hitastillir.
JOHAN
/r RONNING HF
neyti til að ná flughöfn á Skotlandi
eða Grænlandi ef Keflavík bregst?
Ráðherrakredda
Ég býst við að samgöngumála-
ráðherra viti reyndar allt um þetta.
Hins vegar varð hann fyrir því ein-
hvem tíma á lífsleiðinni að drekka
í sig pólitíska kreddu, sem hann vex
ekki frá. Þessi kredda kemur m.a.
fram sem sjúkleg tortryggni í garð
Atlantshafsbandalagsins, vægt til
orða tekið. I ljósi þessa verður að
skoða framgang hans í varaflug-
vallarmálinu undanfarið. Allt kapp
skal lagt á að troða „varaflugvöll-
um“ niður í nægileg þrengsli svo
að óhugsandi sé að þar fái frakt-
flugvélar eða herflugvélar athafnað
sig. Því er Aðaldalurinn algjört eit-
ur í hans beinum þó að öll skilyrði
séu þar best frá sjónarhóli flugör-
yggis. En samgöngumálaráðherr-
ann okkar virðist hafa efni á að
blása á flugöryggið ef það þjónar
hans pólitísku kreddu.
Viðhlæjendur ráðherrans
En ráðherrann á sér fylgismenn,
t.d. kreddubræður í Alþýðubanda-
lagi. Og meira að segja Landeig-
endafélag Laxár og Mývatns er
komið í hópinn. Það er ekki að ófyr-
irsynju, sérstaklega þar -sem þeir
gefa sér að væntanlegur flugvöllur
yrði „mjög nærri bökkum Laxár".
Hvað skyldi „mjög nærri" þýða í
þeirra munni?
Nú hefur mér verið tjáð af mönn-
um sem þekkja inn á aðflugsskil-
yrði að flugvöllur byggður af Atl-
antshafsbandalaginu yrði byggður
þar sem aðstæður em bestar og
yrði því væntanlega settur niður
mun vestar en núverandi Húsavík-
urflugvöllur. Það var eingöngu af
spamaðarástæðum að Húsavíkur-
flugvöllur var settur niður þar sem
hann er og á þeim stað verður eng-
inn alþjóðaflugvöllur byggður að
ýtrustu kröfum. Landeigendafélag-
ið getur því andað léttar og snúið
sér gegn áþreifanlegri „ógn við
lífríki árinnar". Eða vakir nokkuð
annað fyrir þeim?
Farvegir öfundar og öfga
En ráðherrann á sér fleiri við-
hlæjendur. Allir ' öfundarmenn
framsækinnar þróunar á Skjálf-
andasvæðinu mun fylkja sér í þann
flokk. En það verður ekki nefnt
öfund opinberlega. Andróðurinn
verður rekinn undir öðmm nöfnum.
Eitt dæmi um slíkt birtist í áður-
nefndri grein í Morgunblaðinu 18.
þ.m. Allir viðmælendur blaðsins
vom nefndir með nafni, nema einn.
Hann kaus að láta kalla sig Akur-
eyringinn og sagður gjörkunnugur
Gísli G. Auðunsson
„Nú hefur mér verið
tjáð af mönnum sem
þekkja inn á aðflugs-
skilyrði að flugvöllur
byggður af Atlants-
hafsbandalaginu yrði
byggður þar sem að-
stæður eru bestar og
yrði því væntanlega
settur niður mun vestar
en núverandi Húsavík-
urflugvöllur. Það var
eingöngu af sparnað-
arástæðum að Húsavík-
urflugvöllur var settur
niður þar sem hann er
og á þeim stað verður
enginn alþjóðaflugvöll-
ur byggður að ýtrustu
kröfiim. Landeigenda-
félagið getur því andað
léttar og snúið sér gegn
áþreifanlegri „ógn við
lífríki árinnar“.“
flugmálum nyrðra. Hann var ekki
að klípa utan af því, Það er „ekk-
ert mál að Akureyrarflugvöllur
verði varaflugvöllur“. Þetta er bar-
asta „furðuleg umræða". Aðaldals-
hraunið „er eitt viðkvæmasta svæði
landsins og kemur næst Mývatns-
sveitinni að því leyti".
Það er ekki ónýtt að hafa leið-
sögn svona manna. Og ekki batnaði
leiðsögnin. Varaflugvöll, sem svari
alþjóðakröfum, á að hafa norður á
Melrakkasléttu að hans mati. Skyldi
þessi „gjörkunnugi" maður hafa
hugmynd um veðurfar á Melrakka-
sléttu? Heldur hann að ríki sama
veðurfar þar og á Akureyri eða í
Aðaldal? Heldur hann að það sé
nokkuð þokusælt þar? Veit hann
ekki að Melrakkaslétta er sannkall-
að annes óvarið fyrir öllum veðrum
og aldrei öruggt hreinviðri nema í
rakinni suðvestanátt. Hvers eiga
Akureyringar að gjalda þegar slíkir
sérfræðingar kjósa sér nafnbótina
„Akureyringur" til að dyljast. Eða
talar hann virkilega fyrir munn
nágranna okkar, Akureyringa, yfír-
leitt?
Við þurfum ekki að ganga að því
gruflandi að aðrir öfundarmenn
muni fínna margvíslega farvegi fyr-
ir tilfínningar sínar í þessu máli.
Ráðherrann hefur spilað út stærsta
trompinu. Þetta er herflugvöllur,
segir hann þrumandi raustu predik-
arans, svo að saklaust fólk skelfur
á beinunum og heyrir þotugnýinn,
ef ekki sprengjugnýinn, í loftinu.
Kannske getur hann upplýst okkur
um hversu oft þarf að vísa vélum
frá Keflavík, t.d. hversu oft á mán-
uði að meðaltali? Mig grunar að það
sé svo fátítt, að þotuflug um vara-
flugvöll verði miklu fremur kær-
komin tilbreyting í fásinninu heldur
en óþolandi ógn. Ógnin er fyrst og
fremst heilaspuni ráðherrans og
kreddubræðra hans.
Næst verður blásin upp náttúru-
vemdarhystería. Tónninn hefur ver-
ið gefínn af „Akureyringi“ sem tel-
ur Aðaldalshraun koma næst Mý-
vatnssveitinni og Landeigendafé-
lagið segir völlinn ógna lífríki Lax-
ár. Og brottfluttir, sem fundið hafa
sér lífsvettvang í nágrenni hersins
við Faxaflóa, krefjast þess að mó-
amir þeirra verða ósnortnir. Aður
en varir munu allar ár og lækir hér
í nágrenni verða fljótandi í olíu-
brák, allar fjörur svartar og sjórinn
líka, fuglalíf útdautt og fískurinn
líka, gróður visnaður eða allur kom-
inn undir malbik. Og ef þetta dugar
ekki verður helsprengju hent á
byggðina. Það var von að hroll setji
að fólki.
Herhvöt til Þingeyinga
Ég hef oft velt því fyrir mér
undanfarið hvað valdi því að Þing-
eyjarþing hrömar svo mjög. Látlaus
fólksfækkun til sveita og Húsavík,
sem lengi óx með eðlilegum hætti,
hefur nú staðið í stað sl. 5-6 ár.
Og nú á síðustu ámm hefur ýmiss
þjónusta á vegum ríkisins verið flutt
brott til Akureyrar. Og fleira er á
döfínni í þeim dúr, sumt komið í
hámæli, annað í deiglunni. Og um
leið og fólkinu fækkar minnkar
viðnámsþrótturinn, þjónustustofn-
anir beijast í bökkum.
Við slíkar aðstæður verður að
snúa vöm í sókn. Við verðum að
nýta þá möguleika sem héraðið
býður upp á. Einn slíkur möguleiki
er fullkominn varaflugvöllur. Ég
sagði að ríkið væri að flytja ýmsa
þjónustu sem staðsett var á Húsavík
til Akureyrar. Ríkisvaldið er í reynd
andsnúið þessu byggðalagi. Bemm
t.d. saman hvaða þjónustustofnun-
um það er að koma upp á Sauðár-
króki, en þessir staðir em sambæri-
legir að stærð og upplandi. Ekkert
þvílíkt er að gerast hér, frekar er
Sundaborg 15-104 Reykjavík
Tvö í einu!
Rétta rafsuðu■
tækið
fyrir bændur
og minni
verkstæði
Magma 150 er ekki einungis afar
'öflugt jafnstraums-rafsuöutæki
fyrir pinnasuðu heldur einnig
kröftugt mig/mag suðutæki með
rafknúinni þráðstýringu (EFC).
Hafðu samband við sölumenn
okkar sem veita þér faqleqa
ráðgjöf.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2,S(MI 624260
ESAB
mig/mag
pinnasuða
00 Q8P'
r"-r 1
i ^T\