Morgunblaðið - 28.02.1989, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989
35
þjónustan flutt brott.
Það er full ástæða fyrir Þingey-
inga að átta sig á þessari stöðu og
ég leyfi mér að efa að þessu héraði
hafi nokkru sinni verið sýnd meiri
óvild af hálfu ríkisvaldsins, en með
framkomu núverandi samgöngu-
málaráðherra. Látum vera að ráð-
herrann verji kreddu sína gagnvart
Atlantshafsbandalaginu. En ef
hann vildi þessu héraði vel og væri
maður til að standa við þá yfirlýs-
ingu sína, að við íslendingar ættum
að byggja varaflugvöll sjálfir og
gera það myndarlega (eins og hann
hefur sagt), þá á hann auðvitað að
setja hann niður þar sem aðstæður
eru bestar, í Aðaldal. Þvert á móti
hamast hann gegn möguleikum
héraðsins í þessum máli. Og hringa-
vitleysan gengur svo langt að segja
má að í hverri viku skeyti hann
nýjum bútum við aðra flugvelli í
vöm sinni.
Auðvitað hefði ég og allir kosið
að við íslendingar stæðum að gerð
fullkomins varaflugyallar hér í Að-
aldal. En það hefur sýnt sig æ ofan
í æ, að af slíku verður aldrei vegna
viðhorfa ríkisvaldsins til þessa hér-
aðs. Og núverandi samgöngumála-
ráðherra hefur veitt öllum slíkum
hugmyndum banahöggið. Það er
því eins gott að hætta slíkum
draumórum.
Og hvað eigum við að gera? Sitja
og hlusta á fuglasöng meðan mögu-
leikar til gagnsóknar eru kæfðir í
fæðingu. Auðvitað eigum við að
taka hólmgöngunni, semja um hlut-
ina af fullri djörfung og ganga sem
tryggilegast frá öllum atriðum
þessa máls. Hleypa lífí og, þrótti í
héraðið, þora að takast á við hlut-
ina. Að öðrum kosti heldur hrömun-
in áfram, fólksflóttinn eykst, þjón-
ustustofnanir hverfa ein af annarri.
Hér verða smátt og smátt ekki aðr-
ir eftir en sérvitrir eintrjánungar,
sem ekki þora að takast á við nútím-
ann. Þingeyingar, við höfum ekki
í neinum skilningi efni á að leika
Bjart í Sumarhúsum.
Höfundur er heilsugœslulæknir á
Húsavík.
Tölvutækninám
□ Kerfisgreining
□ Rökfræði
□ Forritun
Tölvuskóli íslands
S: 67 14 66
Brids
Arnór Ragnarsson
Undankeppni
Islandsmótsins i
sveitakeppni
Búið er að draga I riðla, og ákveða töflu-
röð f riðlunum fjórum í undankeppni Is-
landsmótsins í sveitakeppni sem fram fer
dagana 9.-12. mars næstkomandi. Spilað
verður á Hótel Loftleiðum og hefst spila-
mennska klukkan 19.30 fimmtudagskvöldið
Riðlamir eru þannig:
A-riðiU
1. Ragnar Jónsson, Rnes
2. Esther Jakobsdóttir, Rvk.
3. Júlíus Snorrason, Rvk.
4. Flugleiðir, Rvk.
5. Þorbergur Hauksson, Austurl.
6. Gosamir, Rvk.
7. Modem Ieeland, Rvk.
8. Sigfús Þórðarson, Sland
B-ríðill
1. Hraðfr.hús Fáskrúðsfj., Austurl.
2. Sigmundur Stefánsson, Rvk.
3. Haukur Sigurðsson, Rvk.
4. Delta, Rvk.
5. Sigurður Vilhjáimsson, Rvk.
6. Jón Ingi Ingvarsson, N-vestra
7. Pólaris, Rvk.
8. Grettir Frímannsson, N-eystra
C-riðill
1. Guðmundur Þorkelsson, Vflrðir
2. Jón Steinar Gunnlaugsson, Rvk.
3. Stefán Pálsson, Rnés
4. M.L., Sland
5. Bragi Hauksson, Rvk.
6. Kristján Guðjónsson, N-eystra
7. Guðmundur M. Jónsson, Vfirðir
8. Öm Einarsson, N-eystra
D-riðUl
1. Jörundur Þórðarson, Rvk.
2. Sigfús Öm Ámason, Rvk.
3. Samvinnuferðir-Landsýn, Rvk.
4. (Vesturland)
5. Guðlaugur Karlsson, Rvk.
6. Pálmi Kristmannsson, Austurl.
7. Friðþjófur Einarsson, Rnes
8. Ásgrimur Sigurbjömsson, N-vestra
Bridsfélag Reykjavíkur
Nú er lokið 5 umferðum af 7 f aðalsveita-
keppni félagsins sem spiluð er með Monrad-
sniði. Sveit Pólaris er sem fyrr með for-
ystu, en sveit Braga Haukssonar er ekki
langt undan. Sveit Pólaris er skipuð þeim
Emi Amþórssyni, Guðlaugi R. Jóhanns-
syni, Guðmundi Páli Amarsyni, Þorláki
Jónssyni, Karli Sigurhjartarsyni og Sævari
Þorbjamarsyni. Staða efstu sveita er þann-
Pólaris 101
Bragi Hauksson 93
Modem Iceland 88
Delta 88
HótelHöfn 86
Samvinnuferðir/Landsýn 85
Bridsfélag TálknaQarðar
Lijja Magnúsdóttir og Þórður Reim-
arsson sigruðu í fjögurra kvölda aðaltvf-
menningskeppni félagsins eftir hörkukeppni
við Brynjar Olgeirsson og Egil Sigurðsson.
Lilja og Þórður hlutu 485 stig en Brynjar
og Egill 479 stig.
Birgir Lúðvigsson og Stefán Sigurðsson
urðu f þriðja sæti með 448 stig, Jón Gfsla-
son og Ævar Jónasson fjórðu með 445 stig
og Guðmundur Guðmundsson og Ólafur
Magnússon fimmtu með 444 stig.
Bridsdeild
Húnvetningafélagsins
Sveit Jóns Ólafssonar sigraði í sveita-
keppninni, hlaut 274 stig. Með Jóni spiluðu
Ólafur IngvarsBon, Tryggvi Gfslason, Gfsli
Tryggvason, Jón Lámsson og Ragnar
Bjömsson.
Röð næstu sveita:
Kári Sigutjónsson 240
Gísli Víglundsson 238
Magnús Sverrisson 225
Valdimar Jóhannsson 198
Hermann Jónsson 186
Bjöm Ámason 182
Á miðvikudaginn kemur hefst barometer-
keppni og er skráning hjá Valdimar Jó-
hannssyni. Spilað er f Skeifunni 17 kl.
19.30. Keppnisstjóri er Grimur Guðmunds-
son.
SiQVAörfALMENNAR
Suöurlandsbraut 4
SJOVADIdALMENNAR
Síðumúli 39
YTT FELAG MEÐ
STERKAR RÆTUR
Sameining Sjóvátryggingarfélags íslands hf. og Almennra Trygginga lif. er
orðin að veruleika. Það besta úr starfsemi hvors um sig hefur verið setl undir
eitt merki. Nýlt og endurbætt skipulag tryggir aukna hagræðingu í rekstri án
þess að mamdega þættinum sé gleymt.
Að baki er áratuga starf að alhliða vátryggingamálum. Með þá reynslu í
farteskinu, Iraust starfsfólk og mikla faglega þekkingu er okkur ekkert að
vanbúnaði og hefjumst því lianda af einhug. SJÓVÁ-ALMENNAK veitir
fjölbreytta fyrirgreiðslu á sviði hefðbundinna tiygginga, en einnig verður
bryddað upp á nýjungum sem auka enn á örvggi viðskiptavina okkar. Þeir
ganga að persónulegri og ábyrgri þjónustu vísri hjá okkur.
Fyrst um sinn verður öll almenn afgreiðsla á sömu stöðum og verið hefur
nema afgreiðsla Tjónadeildar verður einungis í Síðumúla 39, sími 82800, og
Innheimtudeild og sala trygginga til fyrirtækja að Suðurlandsbraut 4,
sími 692500.
Suöurlandsbraut 4 og Síðumúla 39. Umboðsmenn um allt land.