Morgunblaðið - 28.02.1989, Síða 41

Morgunblaðið - 28.02.1989, Síða 41
ÞAD SJA ALLIR að dað getur ekki verið skynsam- legt að sleppa svona tækifæri 35.060 fyrir alla veggsamstæðuna með liösum og Ijósakappa. Tvilum veggsamstæðurnar eru FALLEGAR eeei aAúaaai es HuoÁomÆiHd gkiajhmuohom . ............... MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989 41 REYKJAVÍK VERSLUN Morgunblaðið/Ragnar Axelsson. Guðmundur Helgason tók á móti sendingu Hrekkjalóma til banka- stjóranna. SEÐLABANKINN Hrekkjalómafélagið í Vest- mannaeyjum hefur sent banka- stjórum Seðlabanka Islands einn kassa fullan af kryddstaukum til þess að krydda Jón Baldvin og aðra rauðkembinga eins og segir í bréfí Lómanna. Bréf Hrekkjalómanna er svohljóðandi: “Til bankastjóra Seðlabanka Is- lands frá Hrekkjalómafélaginu í Vestmannaeyjum: Við sendum ykkur suðaustan 17 baráttukveðjur, en verðum að biðja afsökunar á því að bréfið er ekki skrifað með blýanti. Við vorum bún- ir með okkar, því það er svo bragðm- ikið kryddið í blýinu. Hins vegar sendum við ykkur nokkra stauka af Aromat kryddi til þess að krydda Jón Baldvin og aðra rauðkembinga. Með vinarþeli og virðingu, fyrir hönd Hrekkjalóma, Þórarinn Sigurðsson forseti. Tvilum mahogny veggsamstœða Breidd 240 sm, hæð 176 sm, dýpt 41 sm Tvær vandaðar oy fallegar veggsamstæöur á hrelnt ótrúleyu verði Sendum samdægurs út ó land ssja? Húsgagna*höllin Hef alltaf verið heppinn með viðskiptavini - segir Jón í Straumnesi sem er að hætta kaup- mennsku eftir 36 ára starf Tvilum beiki veggsamstæða Breidd240 sm, hæð 176 sm, dýpt 41 sm VANDAÐAR Jón Sigurðsson kaupmaður hef- ur selt verslunina Straumnes við Vesturberg og hættir á næst- unni verslunarrekstri eftir 36 ára starf sem kaupmaður. Heiðar Vil- hjálmsson, sem áður rak verslan- imar Kaupgarð og Þingholt, tekur við Straumnesi. „Það hafa orðið gífurlegar breytingar í versluninni á þessum tíma, sérstaklega með tilkomu stórmarkaðanna á sínum tíma,“ segir Jón. Hann stofnaði Straum- nes við Nesveg árið 1953 og rak hana til ársins 1972 er hann flutti verslunina og nafnið með í eigið húsnæði að Vesturbergi 76 í Breiðholtshverfi. Áður stundaði hann nám við Samvinnuskólann, vann í verslun í Svíþjóð og hjá KRON. „Ég er að verða með elstu kaupmönnum, kannski síðasti geirfuglinn," sagði Jón. Jón sagði að undanfarin ár hefðu verið erfíð hjá hverfaversl- ununum. Látlaus áróður hefði verið fyrir stórmörkuðunum. Hann taldi þó að núna væri fólk farið að átta sig betur á mikil- vægi þess að hafa góðar verslanir í hverfunum og fullyrti að verð- munur á milli smærri og stærri verslana væri minni en áður. Því ættu að vera bjartari tímar fram- undan. Jón sagði að Straumnes hafi alltaf gengið vel og þakkaði það þrotlausri vinnu. „Ég hef alltaf unnið mikið, aldrei minna en tíu tíma á dag og flestar helgar enda Jón Sigurðsson í Straumnesi. ganga svona verslanir ekki nema með vinnu og aftur vinnu. Ég hef verið ákaflega heppinn með við- skiptavini. Reyni alltaf að gefa mér tíma til að rabba og hafa sem mest samband við þá. Það gerir vinnuna skemmtilegri og árang- urinn betri. Ég held að það sé sterkasta vopn hverfaverslananna í samkeppninni við stórmarkað- ina,“ sagði Jón. Jón sagði að vissulega væri eftirsjá í versluninni en nú hefði verið rétti tíminn fyrir sig að hætta. „Ég er ákaflega heilsu- hraustur og búðin í mjög góðu standi. Úr því fjölskyldan var því samþykkt fannst mér kjörið að hætta núna og bíða ekki eftir því að ég missti tökin á þessu," sagði Jón. Jón hættir rekstri Straumness 3. mars og Heiðar tekur við. Jón sagðist eiga húsnæðið áfram. ... sgig ■y s&uaBg^jg KROSSVIÐUR T.d. vatnslímdur og vatnsheldur - úr greni, blrki eða furu. SPÓNAPLÖTUR T.d. spónlagðar, plast- húðaðar eða tilbúnar undir málningu. Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket. Einstök gæöavara á sérdeiíis hagstæðu verðl’ SPARIÐ PENINGA! - Smíðið og sagið sjálf! Þið fáið að sníða niður allt plötuefni hjá okkur í stórri sög - ykkur að kostnaðarlausu. 621566 BJORNINN Við erum í Borgartúni 28

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.