Morgunblaðið - 28.02.1989, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRUAR 1989
„Tcxrbu ob sofct. Annar -Fóivrinn. er
staerrL d. öllocn■v
Ást er. . .
bo
... nokkuð sem hlú
verður að.
TM Reg. U.S. Pat Ofl.—all wghts reserved
© 1989 Los Angeles Times Syndicate
Afsakaðu — Maðurinn
þinn er á stofii 5 ...
Með
morgunkaffinu
Þátturinn Hádegisverður-
inn hefst klukkan tutt-
ugu...
Fjölmiðlar beri saman stríð-
in í Víetnam og Afganistan
Nú, þegar Sovétmenn eru búnir
að gefast upp í Afganistan og her-
inn kominn til síns heima, eiga fjöl-
miðlamir hér að gera hlutlausan
samanburð á stríðunum í Víetnam
og Afganistan.
Lýðræðisstjómin í Víetnam bað
um aðstoð vegna uppreisnar Víet-
Cong-manna, sem ætluðu að keyra
þjóðina í kúgunarfjötra marx-
stalínismans með stuðningi Norð-
ur-Víetnama og Sovétmanna. Þá
brá svo við, að öll rauða pressan í
lýðræðisríkjunum gekk í lið með
útþenslustefnu kommúnismans.
Þetta gekk svo langt, að hlutlausar
lýðræðisþjóðir gerðu allt, sem í
þeirra valdi stóð, til að eyðileggja
frelsisbaráttu víetnömsku þjóðar-
innar og Bandaríkjanna, sem lengst
allra þjóða barðist gegn kommún-
ismanum.
Víetnam-nefndir vom stofnaðar
alls staðar og líka hér norður við
Dumbshaf. Hingað kom fyrirlesari
á fund hjá Friðar- og menningar-
samtökum íslenskra kvenna til að
úthúða Bandaríkjamönnum og lýsa
aðdáun á Ho Che Minh, sem dýrk-
aður var í Svíþjóð eins og hálfguð.
í Afganistan var staðan þannig,
að þjóðin var orðin þreytt á kúgun
kommúnistastjómarinnar, svo að
Sovétmenn sendu her inn í landið,
og nú skyldi í eitt skipti fyrir öll
barin niður með harðri hendi öll
mótstaða. Héldu Sovétmenn, að
þetta yrði fljótgert. En annað kom
á daginn.
Nú kemur í ljós munurinn á bar-
áttu Bandaríkjamanna og Sovét-
manna. Bandaríkjamenn fóm frá
Víetnam og létu stríðið afskipta-
laust, en eftir að Sovétmenn höfðu
grafið jarðsprengjur í tugþúsunda-
tali í Afganistan lofuðu þeir lepp-
stjórninni að styðja hana.
Najibullah segist ætla að beijast
til síðasta manns, hefur hreinsað
til í ríkisstjórninni og afnumið öll
borgaraleg réttindi. Eg veit ekki til
þess, að borgaraleg réttindi fyrir-
finnist í nokkm kommúnistaríki, og
hlýtur þetta að segja manni, að
skýringin á þessum réttindum í
Kabúl sé sú, að Najibjullah er múha-
meðstrúar.
Aronska og fijálshyggja fyrir-
finnast ekki í kommúnistaríkjunum,
en þar blómstrar svartamarkaðs-
brask og mútuþægni. Þar em einn-
ig sérstök sjúkrahús fyrir verka-
menn, sem ekki em mönnum bjóð-
andi.
Húsmóðir.
„Ég veit ékki til þess, að borgara-
leg réttindi fyrirfínnist í nokkru
kommúnistaríki, og hlýtur þetta
(afiiám þeirra, innsk. Velv.) að
segja manni, að skýringin á þess-
um réttindum í Kabúl sé sú, að
Najibjullah er múhameðstrúar,“
segir greinarhöfundur. Myndin
var tekin fyrir skömmu, þegar
Najibullah ávarpaði stuðnings-
menn sína á útifiindi í Kabúl.
Sorpið af höfuðborgarsvæðinu 1
gryflurnar sunnan Straumsvíkur
Til Velvakanda.
í sambandi við hið margumtalaða
sorp á höfuðborgarsvæðinu langar
mig að leggja hér orð í belg.
Suður í hraunum, fyrir sunnan
Straumsvík, þar sem áður var Ótt-
arsstaðarauðamelur, sem nú er búið
að flytja í burtu í áraraðir, em
geysistórar gryfjur eftir, sem em
þar að auki í dæld í landslaginu.
Gæti ekki verið hagkvæmt að nota
þessar gryfjur undir sorpið af höf-
uðborgarsvæðinu? Þegar þetta væri
orðið fullnýtt, væri hægt að hylja
það með jarðvegi og síðan méð grasi
og tijám.
Þarna skammt frá er djúpur og
krappur hraundalur, sem einnig
mætti nota til þessara hluta, þegar
búið væri að fylla grytjurnar. Gæti
þetta ekki fallið undir landgræðslu
og fegmn á landinu?
Gryfjumar mætti stækka til
muna og mundi það efni notast að
einhvetju leyti sem ofanálag. Þetta
svæði mundi taka við sorpi í nokkur
ár, eða þangað til önnur lausn fynd-
istheppilegri.
í hugum flestra væri það númer
eitt að ákveða hvar sorpið ætti að
urðast og númer tvö að staðsetja
pökkunarstöðina. Og þá er auðvitað
æskilegast, að sorpið sé flutt frá
byijun í þá áttina, sem það endan-
lega á að fara í.
Ef sorpið yrði urðað fyrir sunnan
Hafnarfjörð, ætti pökkunarstöðin
að vera á þeirri leið, en ekki fyrir
austan Árbæ. Væri ekki athugandi
fyrir bæjarstjórn Hafnarfjarðar að
bjóða land undir þetta hvort
tveggja? Við það mundi sparast
akstur úr bænum, miðað við að aka
sorpinu austur fyrir Árbæ fyrst.
Einhvers staðar verða vondir að
vera. Gæti þessi stöð ekki verið
sæmilega staðsett niður við sjó ná-
lægt Sædýrasafninu fyrir sunnan
Hvaleyri? Þetta mundi veita nokkr-
um mönnum vinnu hér í bænum.
Væri það ekki athugandi fyrir ráða-
menn þessara mála að kynna sér
þessar aðstæður?
Gamall Hafiifírðingur.
HÖGNI HREKKVISI
,,ÉG VEVT EKKI hVAR HAMN PÆR þA,EKJ
pETTA ETZEHC5MVEH3ULE&UR FlSKSVMJTÚK."
Víkverji skrifar
Yfirleitt em ræður, sem haldnar
em í afmælum svonefndar
tækifærisræður. í fimmtugsafmæli
Jóns Baldvins Hannibalssonar, ut-
anríkisráðherra sl. þriðjudag hélt
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, hins vegar ræðu
yfir afmælisbaminu, sem hafði
mikla pólitíska þýðingu.
Flestum em kunnar þær hörðu
deilur, sem orðið hafa á milli Þor-
steins Pálssonar og Jóns Baldvins
í kjölfar stjómarslitanna sl. haust.
Samskipti Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks síðan hafa verið með
þeim hætti, að fæstir hafa búizt
við, að samvinna gæti tekizt með
þessum flokkum í bráð.
Af þessum sökum vakti ræða
Þorsteins Pálssonar mikla athygli í
afmæli Jóns Baldvins. í stuttu máli
sagt, flutti formaður Sjálfstæðis-
flokksins frábæra ræðu til heiðurs
formanni Alþýðuflokksins og kom
jafnframt inn á deilur þeirra á und-
anfömum mánuðum með svo
smekklegum hætti, að eftir var tek-
ið. Eftir þessa ræðu Þorsteins Páls-
sonar við þetta tækifæri er ekki
ástæða til að ætla annað, en að
eðlilegt samband geti tekizt milli
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks,
fyrr en ella.
xxx
Líklega er ómögulegt að fá ís-
lendinga til að halda settar
reglur. Víkveiji hefur stundum gert
að umtalsefni, hvemig hundaeig-
endur brjóta þær reglur, að hundar
þeirra verði jafnan að vera í bandi,
þegar þeir em úti við. Nú er þetta
komið á það stig, að það heyrir til
undantekninga, ef hundar em í
taumi eigenda sinna á útivistar-
svæði eins og í Fossvogsdal. Hunda-
eigendur virðast líta á það sem sjálf-
sagðan hlut, að aðrir vegfarendur
séu jafn hrifnir af hundum þeirra
og þeir sjálfir. Er þetta nú ekki
nokkuð langt gengið? Hvenær ætla
borgaryfírvöld að sjá til þess að
reglur um hundahald verði haldnar?
Sama daginn og lausir hundar
æddu um Fossvogsdalinn var þar
líka fjórhól á ferð með viðeigandi
tilþrifiim. Er ekki búið að banna
fjórhjól?
xxx
Imyndatexta á baksíðu Morgun-
blaðsins í fyrradag var fullyrt,
að flestallir Islendingar mundu sitja
við sjónvarpið og fylgjast með hand-
boltaleik í París þann dag! Er þetta
nú ekki nokkuð langt gengið hjá
þeim, sem skrifa myndatexta í
Morgunblaðið?! Ekki skal dregið í
efa, að margir íslendingar hafa
fylgzt af áhuga með handboltaliðinu
í Frakklandi en hins vegar skal
fullyrt, að það er ofmælt og meira
en það, að flestallir íslendingar
hafi svo mikinn áhuga á handbolta,
að þeir hafi setið við sjónvarps-
skerminn þennan dag!