Morgunblaðið - 12.03.1989, Blaðsíða 17
koffiÚKBLÁEÍDD MARZ J!ð8a .
„Erwin Van Haarlem" (fyrir utan Old
Bailey í London): „Fyrsta flokks njósnari."
„Listaverkasalinn“ Van Haarlem (í listaverkasölu í Odessa,
október 1985): Lítil sem engin viðskipti.
Joanna Van Haarlem:
blóðrannsókn sýndi að hún
var ekki móðir njósnarans.
Samtökin bentu Van Haarlem á
Robert nokkum Lipman þegar hann
þurfti að fá endurskoðanda til að
fara yfir reikninga sína. „Ég hafði
sjálfur áhuga á andófsmönnum í
Sovétríkjunum,“ sagði Lipman í
réttarhöldunum. „Ég stóð í bréfa-
skiptum við rússneska fjölskyidu,
sem að lokum fékk að fara úr landi.
Þegar ég talaði um þetta við Van
Haarlem kvaðst hann þekkja þetta
mál og lét allundarleg ummæli falla
þess efnis að það væri í hans verka-
hring að fylgjast með slíku.“
Baráttumönnum gyðinga í Bret-
landi kom á óvart að Van Haarlem
hefði verið tékkneskur leyniþjón-
ustumaður. Samtök þeirra velta því
fyrir sér hvað vakað hafi fyrir hon-
um, en þau hafa ekkert fundið er
gæti bent til þess að hann hafi skað-
að þau. Bent er á að hann hafi
fundið upp aðferð til að halda uppi
sambandi við sovézkan andófsmann
með leynilegum hætti þannig að
bréf til hans og frá honum hafi
farið fram hjá ritskoðendum KGB.
Veijandi Van Haarlems, Nigel
Salts, hélt því fram í réttarhöldun-
um að í raun og veru hefði hann
reynt að hjálpa gyðingum með því
að fylgjast með þeim og þjónað
hagsmunum Breta. Hann hélt því
fram að ákæruvaldinu hefði ekki
tekizt að sanna sekt hans.
Til Rússlands
í október 1985 fór Van Háarlem
til Moskvu og Kiev ásamt fámenn-
um hópi manna úr Conscience. Van
Haarlem var þýðandi læknis í hópn-
um. Nefndarmenn ræddu m.a. við
nokkra andófsmenn gyðinga, sem
vildu flytjast frá Sovétríkjunum.
Þegar hann kom aftur til Bretlands
lýsti hann ástandinu „á áhrifamik-
inn hátt og af mælsku“ að sögn
Howards.
Van Haarlem talar rússnesku
reiprennandi, en enginn virðist hafa
spurt að því hvers vegna tékknesk-
ur flóttamaður væri svona vel að
sér í málinu, eða hvers vegna hann
tæki þá áhættu að fara til Sovétríkj-
anna.
Hann heimsótti aftur nokkra
andófsmenn í Sovétríkjunum í nóv-
ember og desember 1986. Hann fór
þrívegis til Austurríkis og í október
1987 fór hann til New York og sat
mikilvæga ráðstefnu um kjör
sovézkra gyðinga. „Öll þessi ferða-
lög þjónuðu þeim tilgangi að veita
Tékkum mikilvægar upplýsingar
um andófsmenn í Rússlandi og fleiri
löndum," sagði Amlot í réttarhöld-
unum, en bætti því við að óhugs-
andi væri að það hefði verið eina
verkefni hans. Þar sem hluti réttar-
haldanna fór fram fyrir luktum
dyrum kom fátt fram um aðra starf-
semi Van Haarlems.
Starfsmenn MI5 fóru að fýlgjast
með Van Haarlem eftir Rússlands-
ferð hans 1986. Þeir lögðu undir
sig íbúð gegnt húsi hans og komu
þar fyrir öflugum sjónaukum,
myndavélum og hljóðnemum.
Hljóðnemum var einnig komið fyrir
í íbúð hans, sími hans var hleraður
og honum var veitt eftirför hvert
sem hann fór.
Veizlan í þinginu
í nóvember 1987 sat Van Haar-
lem kvöldverðarboð, sem stuðnings-
menn ísraels héldu í brezka þing-
húsinu. Boðsgestir voru 150 talsins
og þeirra á meðal voru fyrrverandi
forseti ísraelska herráðsins, þing-
menn úr báðum deildum brezka
þingsins, kunnir iðnrekendur og
verkalýðsforingjar. „Hann var mjög
géðfelldur og kurteis og hét að
greiða 20 pund þegar efnt var til
samskota í veizlunni," sagði Rhoda
Harris úr samtökum, sem kalla sig
„ísraelsvinir Verkamannaflokks-
ins“, í réttarhöldunum.
Þegar Van Haarlem hafði verið
handtekinn í fyrravor og færður á
næstu lögreglustöð fór hann þess á
leit að svofelld skilaboð yrðu send
tékkneska sendiráðinu: „Edwin Van
Haarlem hefur verið handtekinn.“
Orðið var við ósk hans.
Þegar hann var spurður að því
hvort hann hefði stundað njósnir
neitaði hann því og sagði: „Ég vil
leggja á það áherzlu að ég hef aldr-
ei ætlað að valda ensku stjórninni,
Bretlandi og þjóðinni tjóni.“ Hann
hélt því ákveðið fram í yfirheyrslum
lögreglunnar að Van Haarlem væri
hans rétta nafn og neitaði að svara
spumingum um starfsemi sína í
Bretlandi. Hann lét heldur ekkert
uppskátt í réttarhöldunum.
Simon-Brown dómari sagði við
hann í lok réttarhaldanna: „Ég er
ekki í minnsta vafa um að þú ert
dyggur, hlýðinn og úrræðagóður
njósnari. Ég er í engum vafa um að
í framtíðinni hefðir þú gert allt það
sem tékkneskir yfirmenn þínir
hefðu beðið þig um að gera, hversu
skaðlegt sem það hefði orðið hags-
munum okkar . . . “
„Hlýöinn og úrræðagóður
njósnari.“: Dulmálslyklar í sápu-
stykkjum.
Vlnsæll leynistaður: Bjórkrá
sem hlaut dulnefnið „Marx“.
upplýsingum um andófsmenn gyð-
inga í Sovétríkjunum og víðar,
bæði fyrir tékknesku leyniþjón-
ustuna og þá rússnesku, en einnig
um stuðningsmenn gyðinga og
tékkneska útlaga.
Hann gekk meðal annars í sam-
tökin Conscience, sem hafa stutt
baráttu sovézkra gyðinga. Formað-
ur samtakanna, Alan Howard, seg-
ir að Van Haarlem hafi sótt nefnda-
fundi og gert tillögur um gerð áróð-
ursspjalda fýrir samtökin. „Hann
var geðugur furðufugl og hafði
góða kímnigáfu, en gat ekki að-
Iagazt neinum hópi,“ sagði Howard
um Van Haarlem í yfirlýsingu, sem
var lesin í réttarhöldunum. „Eitt-
hvað virtist ósjálfrátt halda aftur
af honum og ég kynntist honum
aldrei."
.
weburg
8 liðo úrslit í Evrópukeppni meistaraliða
í handbolta í Laugardalshöll
íkvöldkl. 20.30
Styðjum sterkasta handboltalið Islands
tilsigurs
Allir í Höllina - Áfram Valur
Forsala
frá kl. 18 ■ Laugardalshöll
Veifingahúsið Blósteinn,
Hraunbæ 102, sími 673311
Smárabakarí,
Kleppsvegi 152,
sími 82425
Hraunbæ 102, sími 672875
Alp bílaleigan, Hlaðbrekku 2, Kóp.,
sími 43300, afgreiðslan
v/Umferðarmiðstöðina, sími 17570
Sportval, Hlemmi og Kringlunnni
Bergur Guðnason hdl. (Skattþjón-
ustan), Langholtsvegi 115, sími
82023
Hænco hf., Suðurgötu 3,
sími 12052
DHL-hraðflutningar, Skeifunni 7,
sími 689822
Bókabúðin Embla, Völfufelli 21,
sími 76366
Iðnaöarbankínn
VARÐAN HF.,
Grettisgötu 2, sími 19031
Björgun hf.,
Sævarhöfða 4, sími 682833
Steypustöðin hf.,
Sævarhöfða 4, sími 680300
Viðar G. Elíasson, endurskoðandi,
Suðurlandsbraut 14, sími 687777
Lögmenn, Austurströnd 3,
sími 621697
Nýja Ijósprentunarstofan,
Skúlagötu 63, sími 19222
liARR.STINCAKIIMQt)
UERÐBRÉFAMARKAOURINN
Hatnarsiræti 7 101 Reykiavtk Oi9i)?8566
Hótel Saqa v/Haqatorq,
sími 29900
ís-spor hf., Auðbrekku 4,
sími 43244
Hummel sportbúðin, Ármúla 40
Hummel sportbúðin, Eiðistorgi
S. Ármann Magnússon, Skútuvogi
12
Islenskir aðalverktakar,
Höfðabakka 9, sími 82766
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen
hf., Ármúla 4, sími 84499
Trésmiðja Jóns Gíslasonar,
Skemmuvegi 10, sími 75910
Grandi hf.
Pólar hf., Einholti 6, sími 18401
Gróco hf.,
Grensásvegi 16, sími 688533
Aco hf., Skipholti 17, sími 27333
Endurskoðunarskrifstofa Bergs
Tómassonar hf., Síðumúla 33,
sími 687210
Háaleitisapótek, Háaleitisbraut 68,
sími 82101
MS, Bitruhálsi 1
Kjöreign, Ármúla 21, sími 685009
Löggiltir endurskoðendur,
Ármúla 4, sími 686377
Löqmenn, Lækjarqötu 2,
sími 621644
Niðursuðuverksmiðjan ORA,
Vesturvör 12, sími 41995
Olafur Gústafson hdl,
Kringlunni 7, sími 21860
Sendibílastöðin hf.,
Borgartúni 21, sími 25050
Gleraugnaverslunin 0PTIK,
Lækjartorgi