Morgunblaðið - 12.03.1989, Page 21

Morgunblaðið - 12.03.1989, Page 21
ÍIUOAOUIW1J3 WIÆMflA¥ClA, JH\<U0PÍlV flIQAJaUUOHOM ATVINNU RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR ATVINNUAUGLÝSINGAR | Markaðsmaður hjá Marel Marel hf. auglýsir eftir manni í laust starf í sölu- og markaðsdeild fyrirtækisins og mun hann starfa bæði inn- anlands og utan. Marel sérhæfir sig sem kunnugt er í framleiðslu tölvuvoga og skráningartölva fyrir fiskvinnsl- una í landi og um borð í verksmiðjuskipum. Sagt er að áhugi og þekking í fiskiðnaði komi sér vel í starfinu auk þess sem krafist er góðrar menntunar, reynslu í tölvu- vinnslu og þekkingar á einmenningstölvum. Þar til við- bótar er góð enskukunnátta og þjálfun í að minnsta kosti einu norðurlandamálanna talið skilyrði. Hér er um framt- íðarstarf að ræða. Vill einhver í fiskeldi? Frá fundi sunnlenskra loðdýrabænda. Morgunbiaðið/Sigurðurjónsson. Sunnlenskir loðdýrabændur: Samkvæmt aauglýsingu í blaðinu í dag er verið að leita að meðeiganda að fiskeldisstöð, nánar tiltekið strandstöð fyrir lax og bleikju, á einum besta stað á Reykjanesi. Framleiðsla í fyrsta áfanga er sögð verða milli 380-400 tonn og mun slátrun hefjast á sumri komanda. RAÐAUGLÝSINGAR Löggublikk Innkaupastofnun ríkins er í dag að auglýsa eftir tilboðum í alls 25 stykki af „forgangsljósum (þverljósum með til- heyrandi á þak bifreiða)" eins og segir í auglýsingunni eða í blikk-ljós á lögreglubifreiðar eins og það er betur skilgreint í fyrirsögn á auglýsingunni. Tilboðum á að skila fyrir 30. mars nk. á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins. Framkvæmda glöð borg Reykjavíkurborg er í framkvæmdahug um þessar mund- ir, því að í blaðinu í dag auglýsir Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar eftir tilboðum í alls 8 verk á vegum borgarinnar. í fyrsta lagi er fyrir hönd hitaveitunnar óskað eftir tilboðum í að steypa annars vegar 37 hita- veitubrunna og hins vegar í byggingu á 300 metra steypt- um hitaveitustokk með 450 mm stálpípu við Kringlumýr- arbraut. Gatnamálastjóri er enn stórtækari því að fyrir hans hönd er auglýst eftir tveimur tilboðum í malbikunar- viðgerðir víðs vegar um borgina, í steypta kantsteina, í viðgerðir á steyptum gangstéttum, viðgerðir á hellulögð- um gangstéttum og á lóðafrágangi við Selásskóla. SMÁAUGLÝSINGAR Gullfoss í klaka- böndum Útivist efnir í dag m.a. til ferða til Gullfoss og Geysis. Gullfoss er nú sagður í fallegum klakaböndum en einnig verður farið um Geysissvæðið, fossinn Faxi skoðaður og einnig Kerið. Tekið er fram að ekki verða farnar fleiri Gullfossferðir á þessum vetri. Tillögur til lausnar á vanda greinarinnar Landbúnaðarráðherra virðir tillögurnar ekki viðlits Selfossi. Sunnlenskir loðdýrabændur hafa lagt til við landbúnaðarráðherra að loðdýra- bændur fái skuldbreytingar í bönkum til 10-15 ára á skammtímalánum sínum og að settar verði reglur um að 10% af skinnaverði umfram 200 danskar krónur renni í sjóð sem hver bóndi á í bankan- um. Þennan sjóð noti bóndinn síðan til afborgana af lánum þegar illa árar og skinnaverð fellur. Þetta kom fram á fiindi félags loðdýrabænda á Suðurl- andi, á Selfossi sem haldinn var nýlega. Landbúnaðarráðherra vildi ekkert með þessar tillögur gera að sögn þeirra sem gengu á fund hans. Undirtektir Vals Arnþórssonar bankasfjóra Landsbank- ans voru hins vegar mun jákvæðari. Við teljum að með þeim aðgerð- um sem við leggjum til þá geti bændur orðið sjálfbjarga og þurfi ekki stöðuga aðstoð utanfrá. Með þessu fyrirkomulagi losna menn við hnýsni ofan í persónuleg- an rekstur og hagi. Og þessi tillaga gefur öllum sömu möguleika," sagði Kristinn Gamalíelsson loðdýrabóndi sem var einn þeirra sem gekk á fund landbúnaðarráðherra. Tillögur Sunnlendinga eru unnar af starfshópi sem skipaður var til að leita leiða til lausnar á vanda loðdýrabænda. Á Suðurlandi liggja lausaskuldir loðdýrabænda á bilinu 500 þúsund til 7 milljónir. Ráðherra hefur nýlega skipað nefnd til að gera úttekt á stöðu loðdýrabænda í landinu og aðstoða þá sem þess óska við endurskipu- lagningu á rekstri loðdýrabúa. Til að auðvelda þessa endurskipulagn- ingu hefur Framleiðnisjóði land- búnaðarins verið heimiluð 60 millj- óna króna lántaka sem sjóðurinn skal endurlána loðdýrabændum með hagstæðum kjörum ef það mætti verða til þess að unnt væri að koma rekstri þeirra í viðunandi horf. Sunnlenskir loðdýrabændur vilja að þessi 60 milljóna króna sjóður verði notaður þannig að viðskipta- bankar bænda hafi aðgang að hon- um við að aðstoða þá bændur sem allra verst eru settir. Magnús B. Jónsson, búvísinda- kennari og formaður bjargráða- nefndar landbúnaðarráðherra, flutti erindi á fundinum á Selfossi og kynnti á hvem veg nefndin hygðist haga störfum sinum. Hann sagði að nefndin myndi kalla eftir upplýs- ingum frá bændum sem óskuðu aðstoðar. í máli hans kom einnig fram að endurskipulagning loðdýra- ræktarinnar væri óframkvæmanleg nema til kæmi fýrirgreiðsla hjá bönkum og öllum aðilum sem veittu bændum fyrirgreiðslu. Nefndin hef- ur skrifað öllum viðskiptabönkum bænda og óskað eftir því að bank- arnir komi inn í þessa endurskipu- lagningu með skuldbreytingar á lánum. í máli bænda á fundinum kom fram að þeir telja 60 milljónimar engan veginn nægilegar til að leysa þann mikla vanda sem við er að etja. Fram kom að bankamenn telja að til að bankarnir geti skuldbreytt þurfi ríkisstjórnin að lækka bindi- skyldu þeirra i Seðlabankanum. Hugmynd starfshópsins fékk góðar undirtektir á fundinum og þeir sem til máls tóku voru á því að skuld- breyting mætti ekki vera til skemmri tíma en 10 ára. Á fundinum kom greinilega fram að mikill uggur er í loðdýrabændum sem margir telja sig svikna nú þeg- ar illa gengur, einkum þegar litið er til þess hversu menn voru hvatt- ir til að hefja loðdýraræktina á sínum tíma. Sig. Jóns. Vogar: Koli sf. verk- ar fisk í eign- um Fisktorgs Vogrim. ATVINNULEYSI hefur minnkað í Vogum að undanförnu, samkvæmt upplýsingum er Morgunblaðið fékk hjá Brynhildi Jónsdóttur, skrifstofustjóra Vatnsleysustrand- arhrepps. Um mánaðarmótin voru fimm skráðir atvinnulausir og hafði fækkað verulega frá því um miðjan desember en á þessum tíma var atvinnuleysi með því mesta sem verið hefúr á staðnum. Ein af ástæðunum fyrir því að fólki hefur fækkað á atvinnu- leysisskrá er að föstudaginn 17. febr- úar tók nýtt fyrirtæki til starfa, en það er Koli sf., sem tók eignir fisk- vinnslufyrirtækisins Fisktorgs hf. á leigu og hóf fiskverkun. Koli sf. bytjaði á loðnufrystingu. 17. febrúar og fyrir síðustu helgi var búið að frysta 30 tonn. Einar Krist- insson, annar eigandi fyrirtækisins, sagði í samtali við fréttaritara, að Koli sf. myndi aðallega verka fisk sem færi flugleiðis á markaði í Banda- ríkjunum og Evrópu. Hjá fyrirtækinu starfa 14 manns. Fiskvinnsla hefur ekki farið fram hjá Fisktorgi frá því í júní á síðasta ári, en nú stendur yfir fjárhagsleg endurskipulagning hjá fyrirtækinu,'5 sem meðal annars miðar að því að fá nýja aðila inn í reksturinn. Á með- an unnið er að endurskipulagnin- unni, hefur Koli eignimar á leigu. - E.G. Suðureyri: 25 erlendir verkamenn í vinnu Suðureyri. MJÖG gott atvinnuástand hefiir verið á Suðureyri frá áramótum og raunar einnig á síðasta ári, samkvæmt upplýsingum Ragnars Jör- undssonar sveitarsljóra. Hér starfa um 25 erlendir verkamenn og það hefur frekar vantað fólk til vinnu. Nú hefur einu fyrirtæki verið Iokað, kúfiskverksmiðjunni Bylgjunni hf., en þrátt fyrir það er ástandið gott. R. Schmidt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.