Morgunblaðið - 15.03.1989, Qupperneq 1
56 SÍÐUR B
62. tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stjórnarkreppa í Suður-Afríku:
Botha neitar enn
að láta af embætti
Höfðaborg. Reuter. Daily Telegraph.
STJÓRN Þjóð-
arflokksins i
Suður-Aíríku,
sem fer með
ríkiastjórnar-
völd, er sögð
einhuga um að
P.W. Botha
forseti eigi að
fela nýkjöm-
um flokksleið-
toga forsetavöldin.
gengur flokknum
P. W. Botha
Hins vegar
erfiðlega að
finna rétta leið að þessu takmarki
þar sem Botha, er nýlega fékk
hjartaáfall, harðneitar að víkja og
Hagnaður
SAS 30,6
milljarðar
Óaló. Reuter
HAGNAÐUR af rekstri SAS-
flugfélagsins i fyrra nam 3,71
milijarði sænskra króna, eða
jafhvirði 30,6 mil^jarða
íslenzkra króna. Er það 51%
hækkun miðað við rekstrar-
hagnað SAS árið 1988. Alls
námu Qárfestingar félagsins
jafhvirði 33,3 miljjarða
fslenzkra króna í fyrra, þar
af helmingurinn í nýjum flug-
vélum.
Rúmlega helming hagnaðar
SAS í fyrra má relq'a til flugvéla-
sölu, sem nam 1,93 milljörðum
sænskra króna eðajafnvirði 15,9
milljarða íslenzkra, og sölu fast-
eigna. Ef flugvéla- og fasteigna-
sala er undanskilin nam hagnað-
ur af rekstri SAS í fyrra 1,34
milljörðum sænskra eða jafnvirði
11,1 milljarðs íslenzkra króna.
Jan Carlzon, forstjóri SAS,
sagði á blaðamannafundi í gær
að reiknað væri með áfram-
haldandi hagnaði af rekstri fé-
lagsins á þessu ári. Flugleiða-
kerfi félagsins yrði stækkað og
hótelum fjölgað, en auk flug-
rekstrar er SAS umsvifamikið á
sviði hótel- og veitingarekstrar.
sagði f sjónvarpsviðtali á sunnu-
dagskvöld að hann myndi hugsan-
lega sifja f embætti til ársloka.
F.W. de Klerk, hinn nýi leiðtogi
flokksins, reynir nú að treysta að-
stöðu sína svo að hann geti þvingað
Botha til að segja af sér forsetaemb-
ættinu, sem er mjög valdamikið.
Botha sagðist í gær myndu koma til
starfa á skrifstofu sinni í dag, mið-
vikudag.
Sumir lögspekingar segja að Bot-
ha sé ekki stætt á því að sitja áfram
þar sem hann sé ekki þjóðkjörinn
heldur hafí þingflokkur Þjóðar-
flokksins kosið hann til embættisins
og hljóti því að geta vikið honum.
Hins vegar hefur verið bent á að
stjómarskráin kreflist þess að vísu
að forseti ráðfæri sig við ríkisstjóm-
ina en ekki að hann fari að ráðunum.
Þjóðarflokkurinn á ýmissa kosta völ,
annarra en þess að hefja málsókn.
Hann getur t.d. neitað að samþykkja
flárlög er lögð verða fram í dag og
þar með þvingað fram kosningar.
Margir kenna hefndarþorsta í garð
flokksins um framferði Botha en
aðrir segja að hann hafi andstyggð
á eftirmanni sínum. Hvítir Suður-
Afríkumenn vilji að íeiðtogi sé ákveð-
inn og harður af sér; takist de Klerk
ekki að beija Botha strax til hlýðni
mun hann bíða mikinn álitshnekki.
Reuter
Þátttakendur f leiðtogafundi EFTA-ríkjanna. Á myndinni eru forsæt-
isráðherrarnir (f.v.) Hans Brunhart, Lichtenstein, Jean Delmuraz,
Sviss, Harri Holkeri, Finnlandi, Franz Vranitzky, Austurrfki, Gro
Harlem Brundtland, Noregi, Ingvar Carlsson, Svíþjóð, Steingrímur
Hermannsson og Georg Raisch, framkvæmdastjóri EFTA.
Discovery:
Flýtírbilun
heimferð?
Houston. Reuter.
BILUNAR varð vart í einum
þriggja eldsneytisgeyma geim-
feijunnar Discovery f gær og var
talið að hún gæti leitt til þess að
stytta yrði fimm daga geimflug
feijunnar um sólarhring.
Geimfaramir drógu úr orkunotkun
og lokuðu hinum bilaða geymi meðan
vísindamenn á jörðu niðri könnuðu
hvers eðlis bilunin væri. Ef ekki yrði
hægt að komast fyrir hana minnkaði
flugþol geimfeijunnar og senda yrði
hana heim degi fyrr en ella, þar sem
gert er ráð fyrir að hún geti mest
verið tveimur dögum lengur á braut
ef veðurfar útilokaði lendingu á fyrir-
fram ákveðnum tíma.
Sex stundum eftir geimskot í
fyrradag kom áhöfnin á Discovery
100 milljóna dollara, 5,2 milljarða
króna, fjarskiptahnetti á braut um
jörðu. í gær fengust geimfaramir
einkum við kvikmyndatöku vegna
gerðar breiðtjaldsmyndar um um-
hverfismál. Mynduðu þeir uppblást-
urssvæði við Chad-vatn og skógar-
eyðingu við ósa árinnar Níger í
Afríku, rigningarsvæði í Perú í Suð-
ur-Ameríku og gífurlega elda, sem
nú geisa í Big Bend-þjóðgarðinum í
vesturhluta Texas-ríkis í Banda-
rílqunum.
Jafnframt var ætlunin að geim-
faramir næðu kvikmyndum af norð-
urljósunum sem nú sjást á heið-
skírum kvöldum allt suður til Texas
vegna mikilla sólgosa.
Steingrímur Hermannsson á leiðtogafíindi EFTA:
Islendingar beygja sig aldrei
undir neina yfirrflgastoftiun
Ósló. Frá Kristófer Má Kristmssyni, fréttaritara Morgunbladsins.
ÍSLENDINGAR geta aldrei beygt
sig undir neina yfirríkjastofnun,
sagði Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, í ræðu sinni á
fundi forsætisráðherra sex aðild-
arríkja Fríverslunarsamstaka
Evrópu (EFTA) hér f Ósló í gær.
„Við getum aldrei gefið eftir fidl-
veldi okkar eða rétt okkar til að
taka sjálfir nauðsynlegar ákvarð-
anir til að varðveita lífsbjörg okk-
ar og sjálfstæði," sagði ráðher-
rann einnig. Fyrr um daginn hafði
Gro Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra Noregs, sem boðaði til
fundarins, sagt á blaðamanna-
firndi, að þvf sterkara sem al-
þjóðasamstarf væri þeim mun
minni lfkur væru á þvf, að einstak-
ar þjóðir næðu fram áhugamálum
Bresku fjárlögin:
Vegið að verðbólgu
London. Reuter.
NIGEL Lawson,
Qármálaráð-
herra, mælti f
gær fyrir nýju
Qárlagafrum-
varpi brezku
stjórnarinnar
Og sagði megin- ^ Lawaon
markið þess vera að draga úr
verðbólgu. Frumvarpið felur
ekki f sér neinar skattabreyting-
ar og gerir ráð fyrir hallalausum
fjárlögum.
Lawson sagði að háir vextir yrðu
lykilatriði f viðureign sinni við verð-
bólguna, en bankavextir eru nú
13%. Gert væri ráð fyrir því að
verðbólgan færi í 8% á árinu en
hún yrði komin í 5,5% í árslok og
4,5% vorið 1990. Verðbólga síðasta
árs nam 6,8% en ófyrirséð aukning
einkaneyziu gerði verðbólguspár
Lawsons fyrir síðastliðið ár að
engu.
Engin lækkun tekjuskatts mun
eiga sér stað á árinu eins og í fyrra
en ellilífeyrisþegar, sem halda
áfram starfi, munu þó ekki lengur
sjálfkrafa borga skatta stundi þeir
atvinnu. Þá verður stuðlað að al-
þýðukapítalisma, eins og Lawson
orðaði það; almenningur verður
hvattur til að kaupa hlutabréf í
fyrirtækjum gegn skattafrádrætti.
Neil Kinnock, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, gaf Lawson lága
einkunn og sagði flárlagafrum-
varpið kjaftfullt af gömlum tugg-
um.
Viðbrögð verðbréfamarkaðarins
voru hins vegar jákvæð og hækk-
uðu hlutabréfavísitölur.
sfnum óbreyttum. Eftir viðræður
og skipti á upplýsingum kæmust
menn að sameiginlegum niður-
stöðum.
Á Óslóar-fundinum er rætt um
framtíð EFTA og hvort beina eigi
starfi samtakanna inn á svipaðar
brautir og Evrópubandalagið (EB)
hefur fetað, en það er dæmigerð
yfirrílqastofnun. Á blaðamannafund-
inum sagði Gro Harlem Brundtland,
að hún sæi EFTA ekki fyrir sér sem
yfirríkjastofnun en á hinn bóginn
væri nauðsynlegt að móta þar sam-
eiginlegan feril við töku ákvarðana.
Þannig væri ljóst að samningsumboð
til handa EFTA í viðræðum við EB
væri þvf virkara þeim mun víðtækara
sem það væri. í þessu sambandi
mætti spyija, hvort þetta væri skerð-
ing á sjálfstæði ríkja eða aðeins eðli-
leg þróun í samskiptum þeirra. Taldi
hún víst að á næstu mánuðum gerð-
ust atburðir innan EFTA og EB sem
engann hefði órað fyrir á sfðasta
ári. Þegar Steingrímur Hermannsson
var spurður um þessi ummæli norska
ráðherrans sagði hann, að menn yrðu
að fara með gát og spuming væri
hve langt væri unnt að ganga án
þess að sogast inn f hringiðuna.
í ræðu sinni sagðist Steingrímur
Hermannsson taka undir með þeim,
sem vildu styrkja skrifstofu EFTA.
Evrópusamstarfið þróaðist með þeim
hætti, að einstakar þjóðir yrðu að
taka af skarið. Sveiflur í íslensku
efnahagslífi væru miklu meiri en í
nokkru öðru EFTA- eða EB-ríki
vegna þess hve fiskveiðar skiptu
miklu fyrir það. Þess vegna kæmi
ekki til álita að íslendingar samein-
uðu efnahagsstarfsemi sína háþróuð-
um efnahagskerfum f Evrópu. Af
þessum sökum væri „full“ aðild að
Evrópubandalaginu ekki „inni f
myndinni". íslendingar yrðu ávallt
sjálfir að hafa stjóm á auðlindum
sínum og teldu að aldrei yrði unnt
að stjóma þeim úr fjarlægð á þann
veg að fslenskra hagsmuna yrði
gætt. íslendingar væru eindregnir
stuðningsmenn fríverslunar en hefðu
fyrirvara varðandi frelsi f fjármagns-
hreyfingum, á þjónustu og mannafla.
Hins vegar væm þeir ávallt fúsir til
að kanna allar hliðar þessara mála
en aðlögun yrði að verða stig af stigi
og byggjast á mati á áhrifum hennar
á íslenskt fullveldi.
í lok máls síns vék Steingrímur
Hermannsson að fríverslun með fisk
innan EFTA og sagðist' vonast til
þess að á fundinum gætu menn sam-
einast um hana, þótt enn hefði ekki
tekist samkomulag um orðalag þess
efnis í lokaályktun fundarins. Á
meðan óvissa væri um þetta hefði
íslenska sendinefndin fyrirvara á af-
stöðu sinni til lokaályktunarinnar.