Morgunblaðið - 15.03.1989, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.03.1989, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1989 Kosningar í Háskólanum KOSNINGAR eru f Háskóla íslands í dag. Tveir listar eru í boði, listi Vöku, félags lýð- ræðissinnaðra stúdenta, og listi Röskvu, samtaka félags- hyggjufólks. Kosið er um fimmtán af þijátíu fulltrúum Stúdentaráðs, þar af tvo í Háskólaráð. Fylking- amar hafa haft jafnmarga full- trúa í Stúdentaráði í vetur en Vaka farið með stjóm ráðsins og Röskva haft fuUtrúa náms- manna í stjóm LÍN. Kjörfundur hefst klukkan 9 og stendur yfir til klukkan 18. Kosið er í 15 kjördeildum í hinum ýmsu byggingum Háskólans. Á kjörskrá eru tæplega 4500 manns. Sjá nánar Af innlendum vettvangi á midopnu. Nýr dómsfor- maður skipaður SVERRIR Einarsson saka- dómari hefur verið skipaður dómsformaður í Hafskips- og Útvegsbankamálum i stað Péturs Guðgeirssonar, sem Hæstiréttur heimilaði að viki sséti í málinu. Ásamt Sverri munu saka- dómaramir Amgrímur ísberg og Ingibjörg Benediktsdóttir skipa dóminn. Agreiningur í yfirnefiid Á FUNDI ríkissáttasemjara með fiilltrúum bænda og neyt- enda í sexmannanefiid i gær var ákveðið að vísa til yfir- nefndar ágreiningi um launa- lið verðlagsgrundvallar sauð- Qár- og kúabúa við verðlagn- ingu landbúnaðarvara um síðustu mánaðamót. Guðlaugur Þorvaldsson ríkis- sáttasemjari sagði að enginn grundvöllur fyrir samkomulagi hefði komið fram, og báðir deilu- aðilar verið því samþykkir að ágreiningnum yrði vísað til yfir- nefndar. Engin ákvörðun um Amarflug ENGIN ákvðrðun var tekin um framtið Amarflugs á fundi ríkisstjómarinnar í gærmorgun, samkvæmt upp- lýsingum Halldórs Ásgríms- sonar, sjávarútvegsráðherra. Umferðarslys á Suðurnesjum FJÓRIR slösuðust í tveimur umferðarslysum í mikilli hálku á Suðuraesjum með fimm mínútna millibili á átt- unda timanum í gærkvöldi. Vanfær kona var flutt á sjúkrahús til skoðunar eftir að bfll sem hún ók Ienti í árekstri við annan á Sand- gerðisvegamótum. Þá voru þrír fluttir á sjúkra- hús eftir árekstur á mótum Reykjanesbrautar og Grindavík- urvegar. Meiðsli þeirra voru ekki talin alvarleg. Kennarar: Arangnrs- laus fiindur Fundur var með samn- inganefndum beggja kenn- arafélaganna og samninga- nefind ríkisins í gær. Honum lauk án árangurs og án þess að til nýs fundar væri boðað en þó er gert ráð fyrir að af öðrum fundi geti orðið á föstudaginn kemur. Samninga- nefnd ríkisins fundar með BHMR f dag. -f Morgunblaðið/Emilía I 203 ára sögu Reykjavíkur hafa firndir í borgarráði verið haldnir 4.000 sinnum og var sá sögulegi fimdur haldinn í gær. Hann sátu talið frá vinstri: Jón G. Tómasson borgarritari, Hjörleifur B. Kvaran framkvæmdastjóri lögfræði- og stjórasýsludeildar, Stefán Her- mannsson aðstoðarborgarverkfræðingur, Þorvaldur S. Þorvaldsson forstöðumaður borgarskipulags, borgarfuUtrúarair Elín G. Ólafs- dóttir, Vilhjálmur Þ. Viihjálmsson og Katrin Fjeldsted, Magnús L. Sveinsson forseti borgarstjórnar, Davið Oddsson borgarstjóri, Gunn- ar Eydal skrifstofustjóri borgarstjórnar, borgarfulltrúarnir Siguijón Pétursson og Sigrún Magnúsdóttir, Ágúst Jónsson skrifstofustjóri borgarverkfræðings og Þórður Þ. Þorbjarnarson borgarverkfræð- ingur. Aðalfimdur Flugleiða: Tillaga um 150 milljóna kr. hlutafl áraukningu 43 milljóna króna rekstrartap HAGNAÐUR Flugleiða á síðasta ári varð liðlega 806 mil^jónir og er hann að miklu leyti til kominn vegna sölu félagsins á fimm þotum á síðasta ári, en markaðsverð þeirra reyndist töluvert yfir skráðu verðmæti þeirra í bókum félagsins. Hins vegar varð um 43 miUjóna króna tap á sjálfiun rekstrinum, sem er þó verulegur bati frá árinu á undan þegar rekstrartapið varð tæplega 229 milljónir umreiknað á verðlag síðasta árs. Þegar við bætist að vaxtagjöld umfram vaxtatekjur námu um 100 miUjónum, er þann- ig tap af regiulegri starfsemi Flugleiða 143 miiyónir. Stjóra Eimskipafélagið: Asakanir um óeðli- lega viðskiptahætti Hlýtur að byggjast á misskilningi, segir Þórður Sverrisson EIMSKIP hf. hefiir verið kært tíl verðlagsráðs fyrir að rifta samningi um flutningsgjöld vegna þrýstings firá þriðja aðila. HeUdsaU sem flyt- ur inn páskaegg frá Frakklandi teiur sig hafa samið um að greiða 100 þúsund krónur í flutningsgjald fyrir hvern 40 feta gám, aUs 4 tíl 6 gáma. Hálftíma síðar var honum tilkynnt að Eimskip gæti ekki staðið við samkomulagið og hann yrði að greiða 300 þúsund krónur fyrir flutning hvers gáms samkvæmt bréfi hans til verðlagsráðs. Hann seg- ir því hafa verið borið við að félagið hefði orðið fyrir miklum þrýst- ingi frá innlendum sælgætisframieiðendum og frá Félagi islenskra iðnrekenda. Georg Ólafsson verðlagsstjóri kvaðst aðspurður geta stað- fest að þetta erindi hefði borist og að það hafi verið kynnt f verðlags- ráði. Þórður Sverrisson framkvæmdastjóri hjá Eimskip kannaðist ekki við þetta mál í gær og formaður FÍI þvertók fyrir afskipti félagsins af þvi. Verðlagsstofnun hefur sent Eim- skip bréf vegna þessa máls og óskað skýringa „Þetta er mjög alvarlegt mál,“ sagði Georg Ólafsson. „Ef þetta er rétt, þá er Eimskip farið að taka að sér hlutverk stjómvalda og setja vemdartolla." Þórður Sverrisson framkvæmda- stjóri hjá Eimskip segist ekki kann- ast við þessa sögu. „Ég veit ekki annað en að það flutningsgjald sem við bjóðum fyrir þetta sælgæti sé það sama og fyrír annað sælgæti á markaðnum. Þessar tölurgeta heldur ekki verið réttar, ég kannast ekki við þessa 300 þúsund króna tölu úr okkar töxtum." Hann sagðist ekki vita til að um þennan tiltekna inn- flutning hafi verið flallað sérstaklega hjá fyrirtækinu, það hlyti að byggj- ast á misskilningi. Víglundur Þorsteinsson formaður FÍI kvaðst ekki kannast við þetta mál. „Það er örugglega misskilning- ur að Félag íslenskra iðnrekenda eigi aðild að svona rnáli," sagði hann. „Félagið á ekki viðræður við einstök þjónustufyrirtæki um kjör á þjónustu þeirra. Við höfum rætt við þjónustu- fyrirtæki, þar á meðal Eimskip, á liðnum ámm um almenn kjör og stefnumörkun, en ég kannast ekki við þetta mál.“ Umræddur páskaeggj ainnflytj- andi leitaði til Skipadeildar Sam- bandsins og tókst að fá flutning þar fyrir um 130 þúsund krónur gáminn, að því er fram kemur í bréfi hans til verðlagsráðs. Flugleiða samþykkti á fiindi sínum í gær, þar sem reikningar félagsins voru lagðir fram, útgáfu jöfiiunarhlutabréfa að Qárhæð um 472,5 milljónir króna eða tvö- foldun hlutaljár i samtals 945 milljónir króna. Að auki sam- þykkti stjórain að leggja til við aðalfund félagsins nk. þriðjudag að boðið verði út nýtt hlutafé að fjárhæð alls um 150 milljónir króna, þannig að heildarhlutafé i Flugleiðum verður með sölu þess alls 1.095 milljónir. Eigið fé Flugleiða í árslok var rétt innan við 2,2 milljarða og jókst um rúman milljarð á árinu, fyrst og fremst vegna hagnaðar af sölu eigna. Því fé, rúmlega 940 milljónum, hefur þegar verið varið til innborgunar á nýjar þotur félagsins, sem afhentar verða á næstu 14 mánuðum. Rekstrartelcjur Flugleiða á síðasta ári námu alls liðlega 8.934 milljónum króna sem er 16% aukning milli ára, en rekstrargjöld námu 8.977 milljón- um og hækkuðu um 13% frá fyrra ári. Rekstrartapið, um 43 milljónir, jafngildir um 0,5% af veltu. í frétt frá Flugleiðum kemur fram að áríð- andi sé að fylgja eftir batnandi rekstrarafkomu, snúa rekstrartapi endanlega í hagnað og tryggja þann- ig eiginíjárstöðu félagsins enn frek- ar. Fram kemur að auk endumýjun- ar millilandaflugflotans íhugi fyrir- tækið að ráðast í byggingu flugskýl- is á Keflavíkurflugvelli, endumýjun hótela og endumýjun innanlands- flugflotans. Hlutafjáraukningin upp á 150 milljónir er nokkru lægri en reiknað hafði verið með, en samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins má iíta á þetta sem fyrsta áfanga í frekari aukningu á hlutafé félagsins og að ekki hafi þótt ráðlegt að setja meira fjármagn á markað í einu vegna hættu á að offramboð gæti orðið á Flugleiða- bréfum og gengi þeirra lækkað um- fram þá lækkun sem óhjákvæmilega verður eftir útgáfu jöfnunarhluta- bréfa. Miðað við að ný hlutabréf selj- ist nálægt tvöföldu nafnverði gæti þetta hlutafjárútboð því skilað félag- inu upp undir 300 milljónum króna. Skráð gengi hlutabréfa í Flugleiðum nú er sem næst þrefalt nafnverð en svonefiit innra virði hlutaijár Flug- leiða hefur hækkað úr 3,8 1987 I 4,6 á síðasta ári. Eyjólfur Jónason Laxárdals- hreppur: Heiðurs- borgari 100 ára Búðardal. EYJÓLFUR Jónasson í Sól- heimum, Laxárda.I, er 100 ára í dag, miðvikudaginn 15. mars. Eyjólfur er heiðurs- borgari Laxárdalshrepps og verður gestamóttaka í Dala- búð honum til heiðurs. Eyjólfur er fæddur að S61- heimum 1889 og voru foreldr- ar hans Jónas Guðbrandsson og Ingigerður Sigtryggsdóttir. Eyjólfur bjó mestallan sinn búskap i Sólheimum og var landpóstur í áraraðir milli Búðardals og Hrútaflarðar. Eyjólfur í Sólheimum er landsþekktur hagyrðingur og hestamaður. Á afmælisdaginn munu félagar úr hestamanna- félaginu Glað fagna hinum aldna höfðingja með hópreið að Dalabúð. — Kristjana

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.