Morgunblaðið - 15.03.1989, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ ^IUVIKUpAGUR 1,5.,MARZ 1989,,
5
TRÚBOÐSSTÖÐIN
(THE MISSION)
Stórbrotin mynd sem gerist í Suöur-Amer-
íku á 18. öld. Fjallar um þrælasölu og
tilraunir Jesú ítaprests við að útrýma henni.
Myndin hlaut Óskarsverðlaun fyrir kvik-
myndatöku. Laugardagur kl. 21:50.
ÓHUGNAÐURí ÓBYGGÐUM
(DELIVERANCE)
Spennumynd sem lýsir glæfralegri kanó-
ferð fjögurra kaupsýslumanna niður
straumþungt fljót. Aðalhlutverk: Jon Voight,
Reynolds, Ned Beatty og Ronny Cox.
Föstudagur kl. 23:30.
Óttar Ragnarsson ræðir við nokkra
norðlenska klerka. Einkum er tekin fyrir „hin
hliðin" á starfi prests; mannlegi þátturinn,
fjölskyldan, frístundir o.þ.h. Sunnudagur kl.
21:25.
FJÖR Á FRAMABRAUT
(THE SECRET OF MY SUCCESS)
Micael J. Fox er hér í hlutverki framagosans
sem kemur til New York til að slá í gegn, en
vill gjarnan stytta sér leið á topppinn.
Sunnudagurkl. 19:20.
MYRKRAVERK
(ECHOESIN THE DARKNESS)
Amerískur spennuþáttur. 1979 finnst lík
ungrar kennslukonu illa útleikið. 1986 lauk
einhverju erfiðasta sakamáli í sögu Banda-
ríkjannasem varpaðiljósi áóhugnanleg
voðaverk. Sunnudagur kl. 22:10 og mánu-
dagur kl. 21:40.
STIKILSBERJA FINNUR
Ævintýramynd eftir sögu Mark Twain um
Stikilsberja Finn og besta vin hans Tom
Sawyer. Tilvalin barna- og fjölskyldumynd.
Sunnudagurkl. 15:30.
LIST AM ANN ASKÁLINN
Þáttur um hinn fjölhæfa listamann, Andy
Warhol, sem löngum þótti umdeildur og
athyglisverður, þótt mönnum kæmi ekki
saman umfyrirhvað. Sunnudagurkl. 17.00.
HERCULE POIROT
Glænýr þáttur um einRaspæjarann fræga.
Skemmtilegurog ágæturendir, auðvitað.
Föstudagurkl. 19:30.
ROY ORBISON OG FÉLAGAR
Svart/hvít mynd af tónleikum þessa vin-
sæla söngvara. Roy flytur nokkur laga
sinna ásamt gestum: Bruce Springsteen,
Elvis Costello, Jackson Browne o.fl.
Sunnudagur kl. 13:55.
RENNT FYRIR LAX
Áhugaverður íslenskur þáttur. Tveirfélagar
njóta útivistar eina helgi i austfirskri veiðiá.
Umsjón, texti, tónlist: Pálmi Gunnarsson.
Föstudagur kl. 20:25.
MEÐ KRÚS í HENDI
írski þjóðlagaflokkurinn „The Dubliners"
kom hingað til lands í tilefni 1. mars sl.
þegar sala áfengs öls var heimiluð hérlend-
is. Sýnd er upptaka frá hljómleikum er þeir
héldu. Mánudagur kl. 20:30.
SVERÐ ARTHURS KONUNGS
(EXCALIBUR)
Riddarar hringborðsins og örlög Arthurs
konungs eru bakgrunnur þessarar
meistaralegu kvikmyndar. Ævintýramynd
þar sem spennan er í fyrirrúmi. Skírdagur
kl. 23:45.
LÍNA LANGSOKKUR
Sígild barnamynd, bráðskemmtileg. Byggð
á hinum vinsælu bókum Astrid Lindgren.
Skírdagur kl. 12:05 og föstudagur kl. 11:50.
MONTE CARLO
Ný leikin bandarísk mynd í 2 hlutum.
Greinir frá afdrifum yfirstéttarfólks í Evrópu
í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar.
Aðalhlutverk: Joan Collins, George
Hamilton, Malcolm McDowell, Peter
Waughan. Skírdagur kl. 22:15 og
föstudagur kl. 22:00.
DAVID COPPERFIELD
Kvikmynd eftir frægri sögu Charles
Dickens. Meðal stórleikara sem fram koma
eru Sir Richard Attenborough og Sir
Laurence Olivier. Skírdagurkl. 16:45.
SKEMMTILEGIR PÁSKAR
-ENGIN SPURNING
Njótið þess að vera í fríi um páskana. Horfið á vandaða páskadagskrá Stöðvar 2.
Fjöldi frábærra kvikmynda og sjónvarpsþátta. Kynnið ykkur dagskrána.
Kynnið ykkur tilboð Heimilistækja hf. og Stöðvar 2:
Nú 3000 króna afsláttur á myndlykli og ókeypis áskrift í 3 mánuði.
MYNDLYKIL FYRIR PÁSKA,- ÞAD VÆRI6AMAN.
Myndlyklar eru seldir hjá Heimilistækjum hf. og umboðsmönnum þeirra um land allt.