Morgunblaðið - 15.03.1989, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15.; MARZ t!989
21
Fegurðarsamkeppni
Reykjavíkur annað kvöld
Fegurðarsamkeppni
Reykjavíkur 1989 fer fram á
Hótel Borg, fímmtudaginn 16.
mars. Fimm stúlkur keppa um
titilinn að þessu sinni. Stúlkurnar
fimm eru Anna Rún Atladóttir,
Hildur Dungal, Hugrún Linda
Guðmundsdóttir, Hulda Ingvars-
dóttir og Theódóra Sæmunds-
dóttir.
Til mikils er að vinna fyrir þá
stúlku sem hlýtur titilinn fegursta
stúlka Reykjavíkur. Auk þess að
vinna sér þátttökurétt í Fegurðars-
amkeppni íslands sem fer fram í
Hótel Islandi í maí nk. vinnur hún
m.a. ferð til Benidorm með Ferða-
skrifstofu Reykjavíkur, demants-
hring frá Jóni og Óskari, Seiko-
arbandsúr og fataúttekt frá versl-
uninni Tangó.
Síðan fá allar stúlkumar Cloé-
ilmvatn og Elísabet Arden snyrti-
vörur. Blóm og skreytingar eru frá
Blómálfinum Vesturgötu.
Dómnefnd er skipuð Friðþjófi
Helgasyni ljósmyndara, Magnúsi.
Ketilssyni sölumanni, Matthildi
Guðmundsdóttur verslunarmanni,
Sigtryggi Sigtryggssyni frétta-
stjóra og Sóley Jóhannsdóttur dans-
kennara.
Theódóra Sæmundsdóttir.
Stúlkumar koma tvisvar fram, í
baðfötum og í síðkjólum, sem þær
hafa sjálfar valið. Ymis skemmtiat-
riði verða á boðstólum s.s. tískusýn-
ing og Jóhannes Kristjánsson eftir-
herma skemmtir af sinni alkunnu
snilld.
Matseðill kvöldsins verður sjáv-
arréttarsinfónía og i eftirrétt verður
boðið upp á Par-ís Emmess. Reynt
verður að hafa kvöldið með frönsku
Hulda Ingvarsdóttir
ívafi m.a. með því að hafa franska
tískusýningu, maturinn verður með
frönskum stíl, borin verða fram
frönsk vín með matnum, Globus
verður með franska bifreið til sýnis
o.m.fl. Kynnir kvölsins verður
Valdimar Om Flygering.
(Fréttatilkynningf)
stimpildælur
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
VARAHLUTIR!
Guðbjörg ÍS með sölu-
met í Vestur-Þýskalandi
Ekki leyflt að selja úr gámum í næstu viku
GUÐBJÖRG ÍS seldi 314 tonn,
aðallega af karfa, fyrir 20,134
milljónir króna, eða 64,05 króna
meðalverð, í Bremerhaven í
Vestur-Þýskalandi á mánudag
og þriðjudag. Þetta er hæsta
heildarverð í íslenskum krónum
sem íslensk skip hafa fengið á
fískmörkuðunum í Vestur-
Þýskalandi. Gamla metið átti
Vigri RE en hann seldi fyrir
20,119 milljónir króna 4. maí
1988.
Gámar, sem selt verður úr á
fiskmörkuðunum í Vestur-Þýska-
landi í þessari viku, komu of seint
til að ná uppboði á þriðjudag.
Ákveðið hefur verið að ekki
verði leyft að flytja út físk í gám-
um til sölu á vestur-þýsku mörkuð-
unum í næstu viku. Það var einn-
ig gert á sambærilegum tíma á
síðasta ári til að koma í veg fyrir
offramboð á íslenskum ísfiski í
páskavikunni. Samkvæmt upplýs-
ingum umboðsmanna í Vestur-
Þýskalandi er talið að þessi
ákvörðun verði til þess að fiskur
úr skipum seljist á viðunandi verði.
Auk Guðbjargar ÍS selja í Vest-
ur-Þýskalandi í þessari viku: Víðir
HF 230 tonn, Viðey RE 320 tonn,
Kolbeinsey ÞH 165 tonn, Snæfugl
SU 215 tonn og Hegranes SK 190
tonn. Samtals verða því seld um
1.430 tonn úr íslenskum skipum
í Vestur-Þýskalandi í þessari viku.
í næstu viku verða seld þar sam-
tals 660 tonn úr skipum, þar af
selur Ögri RE 320 tonn, Már SH
210 tonn og Sunnutindur SU 130
tonn.
Fiskmarkaðurinn í
Hafitiarfírði:
Eldislúða seld
í fyrsta skipti
ELDISLÚÐA var seld í fyrsta
skipti á fískmarkaðinum í Hafn-
arfírði í gær, þriðjudag. Þá voru
seld þar 124,5 kg af lúðu frá
íslandslaxi fýrir 290,99 króna
meðalverð. Hæsta verð var 305
krónur en lægsta 285 krónur.
Á fiskmarkaðinum í Hafnarfírði
voru í gær seld samtals 162 tonn
af blönduðum afla fyrir rúmlega
sex milljónir króna. Seld voru
meðal annars 89 tonn af karfa
fyrir 28,32 króna meðalverð, rúm-
lega 35 tonn af slægðum þorski
fyrir 47,76 króna meðalverð, 19
tonn af óslægðum þorski fyrir
42,48 króna meðalverð og 8 tonn
af slægðri ýsu fyrir 87,53 króna
meðalverð.
Gunnar Ásgeirsson h.f.
Suðurlandsbraut 16 - Sími 680780
GXT868
allt þetta
• Fjarstýring
• Magnari 2x25W með
5 banda tónjafnara
• Útvarp með FM MV
LW, 24 stöðvaminnum,
sjálfvirk stöðvaleit
• Tvöfalt segulband með
Dolby B og hraðaupptöku
(high speed dubbing)
• 70W hátalarar
þrískiptir
• Vandaður viðarskápur
með glerhurð
29.790.-