Morgunblaðið - 15.03.1989, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1989
Svipmyndir úr Borginni/ Ormsson
Eftirlegukindur
á skattstofunni
$ 1 | ■ u Wm - / -T
* V ™
-J
Þrátt fyrir óblíða veðráttu allt
frá áramótum, snjókomu, skaf-
renning eða blindbyl og kulda, í
bæjum, þorpum og sveitum, nán-
ast um land allt, þá er svo sem
engin ástæða til að örvænta og
því síður að halda því fram að
ekki komi betri tíð. Við búum í
harðbýlu landi þar sem forfeður
okkar fengu ýmsu að kynnast þeg-
ar veðrið er annars vegar og við
nútímamenn höfum ekki fengið að
kynnast slíku nema sem sýnis-
homi. Hér áður fyrr komu harðind-
isár og eitt árið frostaveturinn
mikli sem svo er nefndur og gekk
nærri mannfólki og þá ekki síður
búfénaði.
Það er ólíku saman að jafna,
kjörum nútímamanna og þeirra
sem drógu björg í bú á átjándu
og nítjándu öldinni. Forfeður okkar
voru svo lánsamir að vera lausir
við lánskjaravísitöluna og verð-
tryggð lán og þurftu ekki að hafa
daglegar áhyggjur af afborgun af
lánum frá Húsnæðismálastjórn eða
bönkum og sparisjóðum enda
húsakynni ólíkt lélegri en gerist
og gengur nú á dögum, torfkofar
og kannski í einstaka tilfelli snjó-
hús. Þó hafa þeir líklega búið yfir
þeim innri friði og gleði sem
nútímamaðurinn í allsnægtum
virðist fara svo mikið á mis við í
lífsgæðakapphlaupi ár eftir ár. Og
hér verður nokkra vikna snjór og
skafrenningur af og til nútíma-
manninum tilefni til að finnast
næstum allt ómögulegt.
Eg þekki t.d. kaupmann með
kvöldsöluleyfí á góðum stað í borg-
inni sem ekur daglega á voldugri
fólksbifreið sem má líklega komast
á upp á hæstu fjallstinda. Það er
ekki fýrr farið er að snjóa að hann
telur Sest að vera ekkert í lúguop-
inu það kvöldið og eins gott að
sitja bara heima og horfa á Stöð
2 fram á nætur, því þar er alltaf
sólskin og fólk sem kann að brosa,
þó varla sé tilefni til annars en að
skæla yfír volaðri veröld.
Svo eru aftur þeir sem endilega
vilja fá stöku sinnum vetrarríki
með tilheyrandi blindbyl, skafrenn-
ingi og snjókomu og kunna illa við
sig í stöðugum stillum og aðgerð-
arlausu veðri vikum saman. Um
daginn þurfti ég að taka leigubíl
í erindum upp í Breiðholt. Að heim-
ili mínu kom leigubíll sem líktist
eiginlega helst þotu frekar en bif-
reið, svo til nýkominn á götuna,
búinn öllum nýjustu uppfinningum
og við stýrið sat ungur maður á
að giska um þrítugt, í svartri leð-
urblússu, dökkhærður og vingjam-
legur og ég ekki fyrr kominn inn
í bílinn að hann spurði:
— Hvert á að aka greifanum?
Þessi spuming kom mér sannar-
lega á óvart, þannig hafði ég aldr-
ei áður verið ávarpaður. Ég varð
um stund orðlaus.
— Upp í Breiðholt, takk, sagði
ég svo.
— Það snjóar, sagði bílstjórinn,
greinilega í góðu skapi þegar hann
ók inn Rauðarárstíginn.
— Já, og það bara verulega.
— Ekkert sem orð er hafandi
á. „Drekinn" klífur snjóskaflana
eins og ekkert sé. Nú reynir á
hann, nú er veðrið. Ég kann bara
vel við svona veður, sagði leigubíl-
stjórinn.
„Drekinn“ klauf snjóskaflana
sem urðu á vegi okkar fimlega og
allt í einu var hann kominn upp í
Breiðholt að húsi sem ég átti er-
indi í.
— Hér býr konsúllinn, sagði
leigubílstjórinn. Þá sá ekki út úr
augum, blindbylur og það lá svona
ljómandi vel á leigubílstjóranum.
Bíllinn hafði staðist prófið.
Og það eru ekki bara bílar á
ferð í snjó og skafrenningi. Einn
daginn kom ég auga á Harald Jó-
hannsson, hagfræðing, á ferð í
frakka, berhöfðaðan og frakkann
tel ég að hann hafi átt og notað
af hagkvæmisástæðum í áraraðir
og tilsýndar úr strætisvagni sá ég
hvar Guðmundur J. Hallvarðsson,
tónlistarkennari, kom út úr Hljóð-
færahúsi Reykjavíkur við Lauga-
veg, uppáklæddur með nótna-
bunka undir hendi, kannski verð-
andi tónskáld, rétt rúmlega fertug-
ur, fyrmm liðsforingi í byltingar-
her róttækrar æsku á sjöunda ára-
tugnum, nú fjölskylðumaður, með
íbúð og bíl.
Og einn daginn þegar kom þýða
með rigningarskúmm, þriðjudags-
morgunn, og síðustu forvöð að
endumýja í Háskólahappdrættinu,
hitti ég Einar Má Guðmundsson,
rithöfund, á Laugaveginum fyrir
framan Vinnufatabúðina. Hann
var í svartri leðurblússu og bláum
gallabuxum og þegar ég sá hann
nálgast og varla orðið bjart af
degi hélt ég að þama væri á ferð
táningur úr einhverri popphljóm-
sveitinni sem er um það bil að
öðlast hina langþráðu heimsfrægð.
Nei, þá var það metsöluhöfundur-
inn og húmoristinn sjálfur, lítillát-
ur eins og fyrri daginn, svona rétt
að hann kannaðist við það að vera
sá höfundur sem verið er að þýða
á fjölda tungumála. Alltaf jafna-
lúðlegur og vingjarnlegur og mér
sem datt svona í hug eftir á þegar
ég gekk áleiðis að Kjörgarði, að
endurnýja í happdrættinu, að
ókunnugur hefði getað haldið að
Einar væri bara ósköp venjulegur
starfsmaður rafmagnsveitunnar
sem hefði verið að lesa af mælum,
þarna í verslunum við Laugaveg-
inn.
Ég var í seinna lagi með skatt-
skýrsluna í ár. Þriðjudaginn 14.
febrúar skilaði ég henni inn í aðal-
stöðvar Skattstofunnar við
Tryggvagötu og hafði nánast á
tilfinningunni að ég hefði framið
einhvem glæp, að vera þremur
dögum síðar á ferðinni en gert er
ráð fyrir. Guðmundur Steingríms-
son, starfsmaður, sá góðkunni jaz-
zisti og trommari, taldi að málið
væri ekki litið alvarlegum augum^,
og engin ástæða til að hafa af því
neinar áhyggjur. Það voru þarna
fleiri eftirlegukindur að koma í
leitimar og ég ekki einn um að
vera í seinna lagi. Hitti þar á
göngum í aðalstöðvum Skattstof-
unnar kunningja sem hefur verið
í margs konar vinnu og var um
tima með sjálfstæðan atvinnu-
rekstur á síðasta ári. Hann er mið-
aldra maður og þrátt fyrir að hann
hefði tæplega ástæðu til að brosa
og gera að gamni sínu þá gerði
hannj)að samt.
— Ég er nánast gjaldþrota, sagði
hann þegar við hittumst.
— Hvað segirðu?
— Já, ég fór út í atvinnurekstur
sem einfaldlega gekk ekki upp.
Er stórskuldugur með íbúðina á
nauðungaruppboði og nánast
aleiguna.
— Og útlitið slæmt?
— Já. Enginn friður fyrir lög-
fræðingum, það er heill hópur á
eftir mér. Ég er ekki borgunarmað-
ur fyrir því sem farið er fram á.
Auma ástandið. Ég bauðst til að
láta setja mig í hlekki ef það
mætti verða til þess að létta á
skuldabyrðinni.
— Setja þig í hlekki? Nei, hvað
segirðu?
— Já, í hlekki á Skólavörðustíg-
inn eða Síðumúlann, ef það má
verða til þess að losa mig úr skuld-
unum. Ekki vonlaust að það verði
til þess að þeir hætti að ónáða
mig, lögfræðingamir.
— Eru einhver dæmi til þess að
menn hafi látið loka sig inni í
fangaklefa hlekkjaðir á höndum
og fótum, í þeim tilgangi að losa
um skuldir? spurði ég.
— Það hef ég ekki hugmynd um.
Ég er aftur þeirrar skoðunar að
þetta sé eina leiðin, sagði kunningi
minn. Og enn brosti hann og hafði
þó tæplega ástæðu til þess.
HAGGLUNDS DENISON
HAÞRYSTI-VÓKVABÚNAÐUR
TIL SJÓS OC LANDS
vængjadælur
Vökvadælur, einfaldar, tvöfaldar,
þrefaldar. Stæröir I2cm3-2l8cm3.
Þrýstingur allt aö 275 bar.
Öxul-flans staöali sásami ogá
öörum vængjadælum.
Vökvamótorar Afl sem tekur lítiö pláss. Tengist beint á víndur eða iönaöarvélar. Þola vel verstu skilyröi. Snúningsátak allt aö 150 000 iMm. v Vv
JL- ■ • A • X SJ Stimpildælur og -mótorar stærðir: I4cm3-638cm3. Þrýstingur allt að 450 bar. öxul-flans sá sami ogáöörum stimpildælum og mótorum.
ventlar Stjórnventlar, skiptiventlar, brýstiventlar. Rafstýröir 12V, 24V, 220V. Þrýstistýrðir. mM
Hönnum og setjum upp vökvakerfl.
Vlögeröar- og varahlutapjónusta.
Sig. Svembjörnsson hf. umboðs og heildverslun.
Skeiöarási - 210 Caröatíæ - Sími 91-52850
Reykjavíkursveitírnar keppa
um Islandsmeistaratitilinn
Morgunblaðið/Arnór
Keppnin um tvö efstu sætin í C-riðli var spennandi. f síðustu um-
ferðinni spiluðu saman sveitir Stefáns Pálssonar og Braga Hauksson-
ar en þær voru þá í efstu sætunum. Þær skiptu 30 stigunum milli
sín með þeim hætti að báðar komust í úrslitakeppnina.
___________Brids______________
Arnór Ragnarsson
Engin landsbyggðarsveitin
kornst í úrslit í íslandsmótinu í
sveitakeppni sem fram fer um
bænadagana og páska. Undan-
keppnin var spiluð um helgina á
Hótel Loftleiðum og Holiday Inn
og komust eftirtaldar sveitir í
úrslit: Sveit Flugleiða, Modern
Iceland, sveit Delta, sveit Pólar-
is, sveit Sigfusar Arnar Árnason-
ar, sveit Samvinnuferða/Land-
sýnar, sveit Braga Haukssonar
og sveit Stefáns Pálssonar.
Undanúrslitin voru að venju spil-
uð í Ijórum riðlum og spiluðu átta
sveitir í hveijum riðli. Var keppnin
að þessu sinni óvenju litlaus en
undankeppnin hefir oft verið spenn-
andi með óvæntum úrslitum. í A-
riðli var sveit Flugleiða í sérflokki
og vann alla sína leiki. Modern Ice-
land fylgdi þeim í úrslitin en mjótt
var á mununum.
Efstu 4 sveitir í A-riðli:
Flugleiðir 153
Modern Iceland 118
Ragnar Jónsson Rnes 116
Júlíus Snorrason Rvík 115
í B-riðli sigldu sveitir Pólaris og
Delta á lygnum sjó. Sveit Sigurðar
Vilhjálmssonar átti þó möguleika
en tap þeirra gegn Pólaris, 2-25,
gerði þó útslagið.
Pjórar efstu sveitir í B-riðli:
Pólaris 133
Delta 131
Sigurður Vilhjálmsson Rvík 117
Jón Ingi Ingvarsson Skagastr. 102
í C-riðli kom sveit Kristjáns Guð-
jónssonar frá Akureyri mjög á
óvart. Sveitin byijaði á að tapa
fyrsta leiknum 1-25 og átti það
eftir að verða þeim dýrkeypt. Þeir
unnu sex leiki eftir það með miklum
yfirburðum og gerðu eitt jafntefli
en vantaði 3-4 vinningsstig til að
komast í úrslitin.
Fjórar efstu sveitir í C-riðli:
Stefán Pálsson 140
Bragi Hauksson 139
Kristján Guðjónss. Akureyri 136
Jón Steinar Gunnlaugss. Rvík 106
I D-riðli vann sveit Samvinnu-
ferða/Landsýnar alla sína leiki á
meðan aðrar sveitir í riðlinum voru
að vinna hver aðra. Fyrir síðustu
umferðina hafði sveit Sigfúsar Arn-
ar næstbestu skorina sem hún hélt
og spilar því í úrslitum:
Fjórar efstu sveitir í D-riðli:
Samvinnuferðir/Landsýn 144
Sigfús Öm Árnason 124
Jörundur Þórðarson 113
Sjóvá-Almennar 102
Sveitirnar sem urðu í 3.-4. sæti
í riðlunum spila í B-úrslitum sem
spiluð eru jafnhliða úrslitunum. Þó
hefir sú breyting verið gerð á að
sigursveitin í B-úrslitunum spilar í
A-úrslitum að ári. Þá munu og 3
efstu sveitirnar í úrslitakeppninni
spila þar á næsta ári án þess að
keppa til þess.
Siglfirzku bræðurnir komust ekki
í úrslit að þessu sinni. Þeir hafa
oft sett strik í rcikninginn í úrslitun-
um en háð þeim að vera fjórir I
sveit. Úr þessu hafa þeir nú bætt
og styrkt sveit sína með tveimur
ungum mönnum, Ólafi og Steinari
Jónssonum sem eru synir Jóns Sig-
urbjörnssonar. Þá má og geta þess
að sveit Grettis Frímannssonar
vantaði eitt stig til að komast í
B-úrslitin, en ef ég man rétt þá
spiluðu þeir í A-úrslitunum í fyrra.
Eins og áður sagði fór mótið fram
á tveimur hótelum í bænum. Keppn-
isstjóri var sem fyrr Agnar Jörgens-
son.