Morgunblaðið - 15.03.1989, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1989
39
Daði Sigurvins-
son - Kveðjuorð
Daginn sem við fréttum að hann
Daði frændi okkar væri alvarlega
veikur greip okkur mikill kvíði. Við
trúðum því ekki að svona hraustur
og góður íþróttamaður sem hann
var lægi nær dauða en lífi á sjúkra-
húsi. Þetta hlaut að vera einhver
misskilningur. Hann sem var alltaf
svo hress og skemmtilegur strákur.
Daði var alltaf til fyrirmyndar og
öllum sem kynntust honum líkaði
mjög vel við hann. Við lát Daða
frænda vöknuðu upp margar spurn-
ingar í bijóstum okkar, meðal ann-
ars sú, hvers vegna svona ungur
og efnilegur strákur sem Daði var
þyrfti að yfirgefa heiminn jafn
snögglega og hann í blóma lífsins,
hann sem átti allt lífið framundan.
Söknuðurinn er sár en minning-
arnar margar og góðar því að Daði
var ekki bara frændi okkar heldur
einnig besti vinur. En eins og segir
í lagi Vilhjálms Vilhjálmssonar,
„Eitt sinn verða allir menn að
deyja" og kveðjum við því Daða
með sárum söknuði og hugsum um
allar góðu stundimar sem við nut-
um með honum, um leið færum við
foreldrum hans og systur okkar
innilegustu samúðarkveðjur og biðj-
um góðan Guð að styrkja þau á
þessum erfiðu tímum.
Linda og Arnar Karl.
Þegar þessar línur voru í mótun
varð mér litið á stóra mynd af
íþróttahópi sem við Sigurvin Ein-
arsson unnum með árið 1982. Það
hafði gengið vel um sumarið en
fyrir síðasta leik þurfti Sigurvin að
halda erlendis og þá var Daði, son-
ur hans, fulltrúi hans.
Þar fór stoltur 6 ára strákur og
hann bar ábyrgðina vel. Þetta var
eitt af einkennum Daða Sigurvins-
sonar, traustur og óvenju kraftmik-
ill strákur með mikið keppnisskap
og mjög sterka réttlætiskennd.
Þessi skapgerðareinkenni hans
gáfu reyndar stríðnum heimilsvini
oft tækifæri til aðgerða en þó lærð-
um við með tímanum hver æskileg
mörk voru í þeim efnum.
Ekki alls fyrir löngu fórum við
Daði saman í ökuferð og ræddum
allt milli himins jarðar. Þar fann
ég heilbrigða lífsstefnu og háleit
markmið og mér var hugsað til
þess að við þyrftum fleiri unga
menn með slíka hæfileika. Mér varð
einnig ljóst að með sínum miklu
íþróttahæfileikum næði hann langt.
I nokkum tíma höfðu meiðsli háð
Daða en nú var hann að ná sér og
við höfðum ákveðið að taka skotæf-
ingu í knattspyrnu fyrir mánaða-
mótin. En mörkin hans Daða urðu
ekki fleiri. Hann dó aðeins 14 ára
gamall.
Ég er þakklátur fyrir samfylgd-
ina þótt mér finnist hún hafi verið
of stutt. Ég bið Guð um að gefa
vinum mínum Didda, Kittý og Emu
og öðmm aðstandendum styrk í
sorg þeirra.
Sigurður Þorsteinsson
FRA PHILIPS
á vegum Heimilistækja
og PHILIPS Export BV.
í Sætúni 8 —
Miövikudaginn 15.
- fimmtudaginn 16.
og föstudaginn 17.
kl. 10-12og 15-16 alla
dagana.
Tækin kynnir sérfræðingur frá PHILIPS Ro Vredenbregt.
• Nýjar geröir sveifluskjáa „Oscilloscopes“
• Nýjar geröir fjölsviösmæla „Multi Meters“
• „Function Generators“
• og fleira áhugavert sem kemur á óvart.
Vinsamlegast tilkynniö þátttöku
til tæknideildar, sími 69 1500.
Heimilistæki hf
Taeknideild • Saetúni 8
SlMI: 69 1500
f/cd e/UMtSveájýOjéegtk í Som/uh^ujk,
TVOFALDUR
1. VINMNGUR
á laugardag
handa þér, ef þú híttír
á réttu tölurnar.
Láttu þínar tölur ekki
vanta í þetta sinn! s
Sími 685111. Upplýsingasímsvari681511.
1 jgfö\
S Bladió sem þú vaknar vió!