Morgunblaðið - 15.03.1989, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1989
Minning:
Olga Egilsdóttir
Fædd 6. maí 1912
Dáin 5. febrúar 1989
Olga fæddist í Vatnsleysu í
Fnjóskadal. Foreldrar hennar voru
hjónin Theódóra Þórðardóttir og
Egill Olgeirsson.
Mín fyrstu kynni af Olgu voru,
er hún kom kaupakona til föður-
bróður míns í Staðarhól, sem er
nýbýli úr Öngulsstöðum og er þar
stutt á milli bæja.
Olga var myndarleg stúlka,
dökkhærð með brún glampandi
augu, vei greind og laglega hag-
mælt. En fyrst og fremst hafði hún
skemmtilega framkomu. Létt í lund
og unglingunum féll vel að vera í
návist hennar.
Hún hafði nýlega verið á Hús-
mæðraskólanum á Laugum í
Reykjadal, en stuttu eftir að hún
kom heim varð hún fyrir því óláni,
að bærinn, sem hún átti heima á,
brann og hún missti allt sitt, nema
smápjötlu af útsaumuðum dúk. En
Olga var ekki að æðrast. „Ég fékk
að læra þama og góðu minningam-
ar um skólann þær brenna ekki.“
Þannig var Olga.
Á Öngulsstöðum var margt af
ungu fólki og Olga varð strax ein
af okkur. Við fórum í sund í Lauga-
land og það var jafnvel farið alla
t
Faöir minn,
HAUKUR ÓSKARSSON,
rakarameistari,
lést í hjartadeild Landspítalans 13. þessa mánaöar.
Fyrir hönd tengdadætra og barnabarna,
Haukur Ragnar Hauksson.
t
Maöurinn minn,
BÁRÐUR MAGNÚSSON
frá Stelnum,
Norðurgaröi 13, Hvolsvalli,
andaöist í Landspftalanum aðfaranótt 13. mars.
Fyrir hönd aöstandenda,
Anna Sigurgeirsdóttir.
t
Móöir okkar,
ÁSLAUG GUÐJÓNSDÓTTIR,
Hrafnistu, Hafnarfiröi,
áður Háaleitisbraut 44,
lóst mánudaginn 13. mars. Jaröarförin auglýst síöar.
Bjarni Oddsson,
Guðjón Oddsson.
t
Faðir okkar,
ÞORGRÍMUR MARÍUSSON,
Höfðabrakku 16,
Húsavfk,
andaöist í sjúkrahúsi Húsavíkur 12. mars.
Brynja Þorgrímsdóttir,
Skjöldur Þorgrímsson,
Helga Þorgrfmsdóttir,
Sigurbjörn Þorgrfmsson,
Sigrún Þorgrfmsdóttir.
Guðrún Þorgrfmsdóttir,
Marfa Þorgrímsdóttir,
Jónfna Þorgrfmsdóttir,
Steinunn Þorgrfmsdóttir,
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
JÓNAS K. JÓSTEINSSON
Mávahlíð 8,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 16. marskl. 15.00.
Gráta Kristjánsdóttir,
Kristfn Jónasdóttir, Valdimar Örnólfsson,
Kári Jónasson, Ragnhildur Valdimarsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir, amma og
langamma,
SIGURRÓSINGA HANNEA GUNNARSDÓTTIR,
Sóiheimum 40,
verður jarðsungin fimmtudaginn 16. mars kl. 13.30frá Langholtskirkju.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Guðmundur H. Kristinsson,
Magnús Birgir Kristinsson,
Sigrún Ásta Kristinsdóttir,
Sigurður Kristinsson,
Ingólfur Kristinsson,
Anna Guðrún Kristinsdóttir,
Kristinn Enok Guðmundsson,
Eyrún Þorsteinsdóttir,
Jónfrfður Loftsdóttir,
Ragnar Wiencke,
Anna Jónsdóttir,
Sæunn Erlingsdóttir,
Jóhann Snorri Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabarn.
leið í Vaglaskóg á hverju sumri. Á
þessum áram var félagslífíð blóm-
legt og Olga naut sín vel í leik og
starfí með ungu fólki sveitarinnar.
Ég veit að jafnaldrar mínir og eldri
minnast Olgu þessi sumur sem góðs
félaga.
En mest og best kynntist ég Olgu
í Reykjavík. Við voram þar saman
nokkra vetur. Hún vann fyrst I
hattabúð og lærði að sauma hatta,
endar var hún mjög lagtæk. Einnig
var hún stundum í búðinni. Ég kom
oft í búðina til hennar og alltaf fór
ég glaðari heim. Henni var svo ein-
lægt að koma öðram í gott skap.
Olga hætti fljótt að vinna þama og
fór í önnur störf.
Seinnipart vetrar 1942 leigðum
við saman herbergi á Stýrimanna-
stígnum. Það var í gömlu húsi.
Herbergið með norðurglugga.
Glugginn gisinn svo oft var kalt.
En þarna leið okkur samt vel. Olga
var í hjúkranamámi en ég vann á
bamaheimili. Við áttum sameigin-
lega kunningja sem við heimsóttum
er við áttum frí saman.
Eitt atvik er mér sérstaklega
minnisstætt og sýnir það þá hlið á
Olgu sem hún átti í ríkum mæli en
það var hjálpsemi. Einn daginn er
Olga kom heim lá ég fársjúk með
háan hita. Olga fór að hlúa að mér
sem best hún gat. Úti var mikið
frost og hvasst af norðri svo kalt
var í herberginu. Ég man að glugg-
inn var alhélaður. Fyrripart nætur
fer Olga að búa sig út og segist
ætla að skreppa eftir ofni sem hún
vissi af. Hún bað mig að vera bara
róleg. Ofninn sótti hún niður undir
höfn í hús til konu sem hún þekkti.
Þetta var á striðsáranum. Hermenn
á hveiju götuhorni og herbúðir á
leiðinni. En ekki lét Olga það aftra
sér. Hún vakti svo það sem eftir
var nætur. Þorði ekki að sofna frá
ofninum. Fór því nær ósofín í vinn-
una um morguninn. Þessu atviki
mun ég aldrei gleyma. Þama var
tryggð og vinátta að verki. Unnið
var í kærleika.
Olga var heilsteyptur persónu-
leiki. Hún var ekki eitt í dag og
annað á morgun. Fljótt eftir þennan
vetur skildu leiðir, þótt aldrei slitn-
aði sambandið á milli okkar.
Sumarið 1944 flutti Olga til Ak-
ureyrar með lítinn son sinn, Egil
Viktorsson. Hún kom sér brátt upp
litlu húsi og fór að vinna á sauma-
stofu, en eins og áður er getið var
Olga afar vel verki farin. Theodóra
móðir hennar flutti til hennar og
sá um drenginn. Faðir Olgu drakkn-
aði árið 1922. Móðir hennar var
alltaf heimilisföst hjá henni upp frá
þessu. Skrapp til sona og tengda-
dætra tíma og tíma, en oftast
dvaldi hún hjá Olgu sem annaðist
hana mjög vel í ellinni. Hún var
eina dóttirin en tvo bræður átti
Olga, sem lengst af voru búsettir
fyrir sunnan.
Gaman var að fá Olgu í heimsókn
og góð vora orðin á jólakortunum,
oftast í bundnu máli.
Nokkram áram eftir að Olga
flutti til Akureyrar giftist hún Stef-
áni Hallgrímssyni og fluttist með
honum austur að Amarstöðum í
Fljótsdal. Og fór móðir hennar með
þeim. Þarna áttu þau góð ár og
fallegt heimili. Ofan við bæinn er
þéttur og fallegur skógur. Þar veit
ég að Olga hefur átt góðar stundir
því að hún var næm á fegurð nátt-
úrannar. Sannarlega náttúrannar
bam í innsta eðli sínu.
Við hjónin heimsóttum þau að
Amarstöðum og áttum með þeim
glaðar stundir á þessum fallega
stað. Á Amarstöðum tóku þau hjón
fósturson, Jón Inga Jónsson. Hann
naut ástríkis hennar eins og hennar
eigin sonur. Þama kunni Olga vel
við sig, tók mikinn þátt í félagslífí
sveitarinnar. Var í kvenfélagi og
eignaðist marga góða vini sem hún
minntist oft á. En ský dró fyrir sólu
í lífi hjónanna. Stefán missti heils-
una og þau fluttu til Akureyrar. Og
í júlí 1972 dó Stefán og var hann
jarðaður í heimabyggð sinni að
Valþjófsstöðum.
Olga hélt heimili áfram k Akur-
eyri og vann uti sem áður. Á síðasta
ári veiktist hún og gekk undir stór-
an uppskurð, en batinn kom ekki.
Hún bar veikindin með mikilli ró-
semi og æðraleysi.
Egill sonur hennar, sem býr úti
í Noregi, kom heim og var hjá henni
síðustu vikumar þar til yfír lauk.
Var henni þetta ómetanlegur styrk-
ur og gleði að hafa hann hjá sér
þessar vikur.
Þetta er ekki æviágrip. Aðeins
minningar um trausta vinkonu, sem
ég á svo mikið að þakka.
Ég þakka tryggðina og vináttuna
í marga áratugi. Syni, fóstursyni
og §ölskyldum þeirra sendi ég inni-
legar samúðarkveðjur.
Aðalbjörg Halldórsdóttir
t
Móðir okkar, tengdamóöir og amma,
ÁRNÝ MARTA JÓNSDÓTTIR,
Njálsgötu 75,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 16. mars kl.
13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarfélag vangefinna.
Jón M. Vilhelmsson, Steinunn Gfsladóttir,
Halldór K. Vilhelmsson, Áslaug B. Ólafsdóttir,
Kristfn S. Vilhelmsdóttir
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
LIUA SIGURÐARDÓTTIR,
frá Pátursborg,
Eyjahrauni 7,
Vestmannaeyjum,
lést á heimili sínu sunndaginn 12. mars. Útför hennar fer fram
frá Landakirkju laugardaginn 18. mars kl. 11.00.
Guðný Steinsdóttir, Richard Sighvatsson,
Sigrfður Magnúsdóttir, Bragi Steingrfmsson,
Arngrfmur Magnússon, Þóra Hjördís Egilsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför frænku okkar,
ÖLMU D. LEIFSSON.
Fyrir hönd ættingja,
Hallfrfður Bjarnadóttir,
Ellen Bjarnadóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
INGIBJARGAR GUNNLAUGSDÓTTUR
kennara,
Jöklafold 12.
Bjarni Ómar Jónsson og dætur,
Rósa Gísladóttir,
Gfsli Gunnlaugsson, Borghildur Magnúsdóttir,
Jón Tómasson, Ragnheiður Eirfksdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
frænda okkar,
JÓNS HALLDÓRSSONAR,
Sellátrum.
Þökkum einnig öllum sem heimsóttu hann í veikindum hans.
Sérstakar þakkir til lækna og annars starfsfólks Landspítalans
og Fjórðungssjúkrahússins Neskaupstað.
HermannJónsson,
Kristfn Jónsdóttir.
Málssókn Flug-
leiða mótmælt
KRISTINN H, Gunnarsson, vara-
maður í Flugráði hefur lagt fram
bókun á fundi ráðsins, þar sem
harðlega er mótmælt málsókn
Flugleiða á hendur Verslunar-
mannafélagi Suðurnesja vegna
ágreinings um framkvæmd
vinnustöðvunar síðastliðið vor.
Kransar, krossar
w ogkistuskreytingar.
* Sendum um allt land.
GLÆSIBLÓMIÐ
GLÆSIBÆ,
Álfheimum 74. sími 84200
9k2