Morgunblaðið - 15.03.1989, Síða 51
51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1989
HANDKNATTLEIKUR
Valsmenn ræða við
Paul Tiedemann
Tiedemann kemurtil móts við Valsmenn í Magdeburg
VALSMENN hafa rœtt vid
Paul Tiedemann, fyrrum
þjálfara austur-þýska lands-
liðsins, um afi hann taki að
sér þjálfun Valsliðsins næsta
vetur. Viðræður eru f gangi
og á föstudaginn munu Vals-
menn funda með Tiedemann.
Valsmenn fara á morgun til
Austur-Þýskalands þar sem
þeir leika síðari leikinn gegn
Magdeburg og ráðgert er að
Tiedemann komi tii móts við
liðiðþar.
Við höfiim rætt við Tiedemann
og viljum fá hann til að taka
við liðinu. Við ætlum að hittast í
Magdeburg og ræða málin," sagði
Þórður Sigurðsson, formaður
handknattleiksdeildar Vals, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Tiedemann kom lengi til greina
sem landsliðsþjálfari og stjóm
HSÍ ræddi við hann. Það virtist
ekkert því til fyrirstöðu að hann
tæki við landsliðinu en ekkert
hefur komið úr þeim viðræðum.
„Ég veit ekki hvort hann kemur
frekar til okkar en HSÍ. En ég
hef rætt við hann og við munum
halda þeim viðræðum áfram,"
sagði Þórður.
Tiedemann þjálfaði austur-
þýska landsliðið í 20 ár en hætti
eftir ólympíuleikana í Seoul. Þar
lentu Austur-Þjóðveijar í 7. sæti,
eftir sigur á íslendingum. A-
Þjóðveijar urðu Ólympíumeistar-
ar undir stjóm Tiedemans 1980 í
Moskvu.
Paul Tledamann
tféam
FOLK
B ERNA Lúðvíksdóttir, lands-
liðskona úr Val í handknattleik, er
á fömm til Sviss. Erna mun gerast
leikmaður með liði þar í landi.
■ ATLJ Hilmarsson tognaði á
ökkla í leik með Granollers gegn
Teka. Atli, sem skoraði eitt mark
í leiknum, sem Teka vann, 22:13,
er ekki fullkomlega búinn að ná sér
eftir meiðslin sem hann hefur átt
við að stríða.
■ PÁLL Óla&son, handknatt-
leiksmaður úr KR, gekkst undir
uppskurð á á hnéi í gær. Eins og
komið hefur fram meiddist Páll í
leik KR og KA á föstudasgskvöldið
og kom í ljós í gær að krossbönd
í öðru hnénu væru slitin. Páll spilar
því ekki meira með KR í vetur og
er það mikil missir fyrir KR-inga.
I SIGURÐUR Sveinsson,
homamaður KR-inga, var ekki á
leikskýrslu í leik KR og Gróttu á
mánudagskvöldið. Sigurður lék þó
með KR-ingum. Mistökin komu
ekki í ljós fyrr en Sigurður fékk
gula spjaldið í leiknum og skrá átti
það á skýrsluna. Hann fékk því
rauða spjaldið og var útlokaður frá
frekari þátttöku í leiknum.
■ KNA TTSP YRNIJMENN
Vals í meistaraflokki fara í æfinga-
búðir til Sviss í apríl.
Bogdan heiðraður og HSÍ fékk milljón
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Sveinn Bjömsson, forseti íþróttasambands íslands, sæmdi Bogdan Kowalczyk, landsliðsþjálfara í handknattleik,
æðsta heiðursmerki ÍSÍ í gær „fyrir störf að íþróttamálefnum," eins og hann sagði. „Hann hefur starfað hér í 10
ár og unnið þrekvirki." Bogdan þakkaði fyrir og sagði að hann tæki við þessari viðurkenningu fyrir hönd allra
þeirra, sem hefðu lagt hönd á plóginn varðandi árangur landsliðsins. Svavar Gestsson, menntamálaráðherra,
sagði við sama tækifæri að árangur landsliðsjns skipti miklu máli fyrir æskuna sem og þjóðina alla. Friðjón
B. Friðjónsson, formaður afreksmannasjóðs íslandSj færði HSÍ eina milljón króna vegna árangursins í B-
keppninni og Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSI, gaf ÍSÍ gullpening frá keppninni. Þá gaf hann samband-
inu veggspjald frá keppninni, áritað af öllum leikmönnum, þjálfurum og fararstjómm og sams konar gjöf fengu
menntamálaráðherra og Bogdan.
HANDKNATTLEIKUR / V-ÞÝSKALAND
Bredemeier
tekur við af
Ivanescu
Færfimm aðstoðarmenn
■ INGI Björn Albertsson, al-
þingismaður og fyrrum landsliðs-
maður úr Val, hefur leikið sem
miðvörður í æfíngaleilgum með 2.
deildarliði Selfoss að undanfömu.
■ LÁRUS Guðmundsson hefur
tekið skotskóna með sér til Hlíðar-
enda. Hann hefur skorað mörk fyr-
ir Valsmenn í æfingaleikjum að
undanfömu.
I ÞORVALDUR Örlygsson,
landsliðsmaður í knattspymu úr
KA, stóð sig mjög vel með v-þýska
félaginu Preussen MUnster um sl.
helgi, þegar félagið vann Schöpp-
ingen, 2:0, í v-þýsku áhugamanna-
deildinni. Þjálfari liðsins var ánægð-
ur með leik Þorvalds, en hann tók
Þorvald útaf á 65. mín., þar sem
hann sagði að íslendingurinn hafi
þá verið orðinn þreyttur.
■ GUNNAR Oddsson úr KR
- lék allan leikinn með Siegen, sem
gerði jafntefli, 3:3, gegn Gttt-
ersloh.
HORST Bredemeier, þjálfari
Dussdeldorf, tekur viö stjórn
v-þýska landsliðsins af Petre
Ivanescu. Eftir átta tíma fund
forráðamanna v-þýska hand-
knattleikssambandsins í
Frankfurt á mánudagskvöldið,
var þetta ákveðið.
Bredemeier, sem þjálfaði Pál
Ólafsson hjá Dusseldorf, hefur
verið þjálfari 21 árs landsliðs og
unglingalandsliðs V-Þýskalands.
^■■■■1 Það verður hans
FráJóni hlutverk að byggja
Halldóri Upp nýtt landslið -
fyrir heimsmeist-
iV-Þýskalandi , .
arakeppnma í
Sviþjóð 1993.
Þessi litrfki þjálfari, sem fær að
þjálfa Diisseldorf áfram, á að fá
aðstoð hjá fimm öðrum þjálfurum
í V-þáykalandi. Þrír hafa nú þegar
verið nefndir. Heiner Brand, Gum-
Horst Bredemeler
mersbach, Hans-Dieter Schmitz,
Essen og Peter Meisingen, Gross-
wallstadt.
Petre Ivanescu bauðst til að vera
áfram með landsliðið og sjá um
uPPbyggingu á nýju liði, en því
boði var hafnað.
KNATTSPYRNA
Klaus Augenthaler, fyrirliði Bay-
em.
Norðmaður-
inn kom
Bayem áfram
NORÐMAÐURINN Erland Jo-
hnsen, sem leikur meö Bayern
Munchen, kom liöi sínu f und-
anúrslit Evrópukeppni fálags-
liða er hann skoraði annað A
mark Bayern gegn Hearts frá
Skotlandi f sfðari leik liðanna f
Mttnchen f gœrkvöldi.
Erland Johnsen er 21 árs vamar-
maður, kom til Bayem í byijun
keppnistímabilsins en hefur ekki
spilað nema nokkra leiki, skoraði
síðara mark Bayem
Frá með skalla á 69.
JóniH. mínútu. Áður hafði
Garðarssyni Klaus Augenthaler,
iÞýskalandi ... ° .
sem lék smn 72.
Evrópuleik, skorað stórglæsiIegtMÞ
mark efst í vinkilinn af 25 metra
færi.
Herts, sem vann fyrri leikinn í
Edinborg með einu marki gegn
engu, náði aldrei að ógna marki
Bayem þrátt fyrir hetjulega bar-
áttu. Aðeins 25.000 áhorfendur
komu á Ólympíuleikvanginn í
Munchen.
FRJÁLSAR
Þrettán
íslenskir „
hlauparar
keppa á HM
ÞRETTÁN langhlauparar
keppa næstkomandi sunnudag
í heimsmeistaramótinu f vfða-
vangshlaupum, sem fram fer f
Stafangri í Noregi, en þátttak-
an í mótinu er liður f þróunar-
verkefni Frjálsíþróttasam-
bandsins í millilengda- og lang-
hlaupum.
FRÍ ákvað að senda bæði karla-
og kvennalið til Stafangurs ouk.
einn þátttakanda í unglingaflokk. I
karlaliðinu era átta hlauparar en
til stiga teljast sex fyrstu frá hveiju
landi. Keppnislengdin er 12 kíló-
metrar. Sveit íslands skipa Már
Hermannsson UMFK, Ágúst Þor-
steinsson UMSB, Sigurður Pétur
Sigmundsson UFA, Jóhann Ingi-
bergsson FH, Daníel S. Guðmunds-
son USAH, Gunnlaugur Skúlason
UMSS, Frímann Hreinsson FH og
Kristján Skúli Ásgeirsson IR.
íslendingar sendu karlasveit í
hlaupið 1978 og 1984, en kvenna- '
sveit hefur hins vegar ekki tekið
þátt í móti þessu áður. Þar er
keppnislengdin sex kílómetrar og
skipa sveitina þær Martha Emst-
dóttir ÍR, Hulda Pálsdóttir ÍR,
Margrét Brynjólfsdóttir, UMSB og
Fríða Rún Þórðardóttir UMSK. Þá
keppir Bjöm Pétursson FH í ungl-
ingaflokki þar sem hlaupnir eru""^'
átta kílómetrar.