Morgunblaðið - 29.03.1989, Blaðsíða 49
Í8fif S3AM .es StTOAOTJínvníM GI(5AiÍ9MUOíIOM
8F
Amma hafði sínar skoðanir á
hlutunum og oft fannst fólki hún
kannski full dómhörð, en það var
víst, að hún kom til dyranna eins
og hún var klædd.
Amma var mér eins og bezta
amma getur verið og um leið traust
og góð vinkona, enda tel ég mig
einstaklega heppna að hafa átt
hana að. Við gátum auðveldlega
gleymt okkur í samræðum okkar
um hin ýmsu mál, allt frá upp-
skerunni í kálgarðinum og upp í
stjómmál. Já, það var yndislegt að
geta — hvenær sem var — komið
við í Barmahlíðinni í smá kaffísopa,
eða, ef þannig stóð á, í mat.
Eg er þakklát fyrir að amma
náði að kynnast litlu langömmu-
stelpunni sinni — henni Lovísu
Dröfn — og gaman er að eiga mynd
af þeim saman, frá seinustu jólum,
með þá litlu í hekluðum kjól, en
hann lauk hún við daginn fyrir
níræðisafmælið sitt síðastliðið vor.
Guð styrki Erlu og fjölskyldu,
tengdaföður minn og ijölskyldu í
söknuði þeirra. Minningin um góða
konu lifir áfram. Ástarþakkir fyrir
allt og allt.
Kaupmannahöfn í mars.
Hans Unnþór Ólason,
Helena Mjöll Jóhannsdóttir
og Lovísa Dröfii Hansdóttir
Látin er vinkona mín, frú Una
Guðmundsdóttir, á 91. aldursári.
Hún var af sunnlensku bergi brotin.
Margs er að minnast ög margs að
sakna eftir rúm 40 ára kynni. Mað-
ur hennar, Þórður Þórðarson, lést
fyrir nokkrum árum. Hann var
ættaður af Snæfellsnesi. Mjög mik-
ið jafnræði tel ég að verið hafi með
þeim hjónum, bæði voru þau frá-
bærlega sterkir stofnar. Er kynni
okkar hófust bjuggu þau með
tveimur bömum sínum á Lokastíg
20 hér í bæ. íbúðin var tvö her-
bergi og eldhús. Hjá þeim var
sífelldur gestagangur, fólk utan af
landi er kom til Reykjavíkur ýmissa
erinda, oft til að leita sér lækninga
um lengri eða skemmri tíma. Ekki
var greiðsla tekin fyrir uppihaldið.
Varla er hægt að tala um annað
þeirra hjóna án þess að hins sé
minnst, svo áþekk og samhent vora
þau. Bæði frábærlega laghent og
atorkumikil. Kom það best í ljós er
LITGREINING
MEÐ
CROSFIELD
ER
LYKILLINN
AÐ VANDAÐRI
LITPRENTUN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1989
49
kom að þeim áfanga að koma upp
eigin húsi. Ekki tíðkaðist mikið á
þeim áram að húsmæður ynnu utan
heimilis en Una vann alltaf meira
og minna aukavinnu við að sauma
eða í físki o.fl. í stopulum frístund-
um „lék“ hún sér við útsaum, kúnst-
bróderaði margar fallegar myndir
o.fl. Þau hjón vora af þeirri kynslóð
sem.ekki vildi skulda neinum neitt
og því var það að Þórður lagði nótt
við dag meðan húsið var í smíðum,
m.a. veit ég ekki betur en hann
hafi sjálfur smíðað eldhúsinnrétt-
ingu ásamt fleira innanhúss.
Um hugskot mitt læðist kaldur
geigur, líkt er sumri hallar og
dimma tekur. Eignast íslenska þjóð-
in framar svona sterka stofna,
vinnusama, sparsama og heil-
steypta? Við vonum hið besta.
Hafi Una mín hjartans þakkir
fyrir allar samverastundir okkar.
Farsæld þér fylgi, fegurðar njóttu.
Bogga
ki iLTJLD jX
j téíiSítuíT g3j_|
' ssgs g|
\ I81AN08
2486.-kr
sparnaður
* með Dulux El sparnaðar
perunni.
Til dæmis Dulux Ei 15w
• Sparar 2486 kr. í orkukostnaði
miöað viö orkuverð Rafmagns-
veitu Reykjavíkur 5,18 kr/kw.st.
• Áttföld ending miðað við venju-
lega glóperu.
OSRAM
MERKI SPARISJÓÐANNA
BERST VÍÐA UM HEIM
Erlendar ábyrgðir og innheimtur
Sparisjóðirnir auka stöðugt þjónustu sína og nú á sviði alþjóðaviðskipta. Fyrir-
tæki og einstaklingar sem leggja stund á erlend viðskipti geta snúið sér til
neðangreindra sparisjóða, varðandi erlendar ábyrgðir eða innheimtur.
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Sparisjóður vélstjóra,
Sparisjóður Kópavogs, Sparisjóður Hafnarfjarðar og Sparisjóðurinn í Keflavík.
MYNDAMÓT HF