Morgunblaðið - 08.04.1989, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989
að kynnast þessari einstöku ömmu
sem ég hafði sagt þeim svo mikið frá.
Eftir því sem árin líða metum við
æ meira gildi þess að hafa kynnst
góðu fólki og verið samvistum við
það á bemsku- og æskuárum. Ég
átti þessu láni að fagna.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðar hnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Guð blessi minningu hennar.
Gísli Geirsson
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð þinn náðarkraftur,
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjöm Egilsson)
Sunnudagsmorguninn 2. þ.m. lést
í sjúkrahúsinu í Neskaupstað
tengdamóðir mín, Eyleif Jónsdóttir,
og verður útför hennar gerð frá
Norðfjarðarkirkju í dag. Mig langar
að minnast hennar með nokkrum
orðum.
Eyleif fæddist að Horni í Nesjum,
A-Skaftafellssýslu, þann 2. mars
1908, dóttir hjónanna Guðbjargar
Lússíu Þorsteinsdóttur og Jóns Ey-
jólfssonar bónda þar. Eyleif var
næstelst sex systkina en þau voru:
Hafsteinn, Óli Sigurður, Nanna
Halldóra, Ingibjörg og Guðni. Haf-
steinn er látinn fyrir mörgum árum.
Ég kann ekki að rekja uppvaxtar-
ár Eyleifar, en árið 1926 kom hún
til Norðfjarðar með eiginmanni
sínum, Gísla Bergsveinssyni útgerð-
armanni, og hefur búið þar síðan.
Fyrri kona Gísla, Ólöf Stefánsdóttir,
var þá látin eftir skamma sambúð
og voru þau barnlaus. Gísli lést árið
1971 og bjó Eyleif áfram í húsi
þeirra á Strandgötu 22, þar til hún
flutti í íbúð sína í Breiðabliki í Nes-
kaupstað, en þar eru íbúðir aldr-
aðra. Þar undi hún hag sínum vel
og átti góða vini og var virt í þeirra
hópi. Efa ég ekki að vinir hennar
þar muni sakna hennar.
Böm Eyleifar og Gísla eru fimm,
Ólöf Sigríður, gift Gunnari Guð-
mundssyni, Jóna Guðbjörg, gift ívari
Pétri Hannessyni, Bergsveina Halld-
óra, gift Geir Siguijónssyni, Gísli
Sigurbergur, giftur Guðrúnu Jó-
hannsdóttur, og Sólveig Siguijóna,
gift Hermanni Skúlasyni. Afkom-
endur Eyleifar og Gísla eru orðnir
40 talsins. Eyleif stjómaði lengst af
mannmörgu heimili og hjá þeim
dvaldi oft langdvölum fólk sem vann
við útgerð Gísla og einnig skyldfólk
þeirra hjóna og sumt af því til fjölda
ára. Foreldrar Gísla, þau Sigríður
Gísladóttir og Bergsveinn Ásmunds-
son, vom hjá þeim til æviloka og
einnig Sigurbergur bróðir Gísla. Ég
veit að allt þetta fólk virti húsmóður-
ina mikils og þá ekki síst' fyrir hlýju
hennar og dugnað.
Eyleif gat verið föst fyrir þegar
það átti við en engan vildi hún þó
styggja vísvitandi. Hún vakti vel
yfir því sem henni var trúað fyrir
og helgaði heimilinu krafta sína og
kunni ekki að hlífa sér.
Fyrr á ámm vom þau Eyleif og
Gísli með nokkum búskap og komu
þau störf eðlilega mikið í hlut Eyleif-
ar, enda Gísli oft fjarverandi á vert-
íðum og þetta því viðbót ofaná heim-
ilishaldið. Farið var á fætur fyrir
allar aldir og seint gengið til náða.
Á þessum ámm var þetta hlut-
skipti þeirra kvenna sem áttu eigin-
menn sína á sjónum að vera langtím-
um einar heima með börnin og vinna
flest sem vinna þurfti, þegar eigin-
mennirnir vom á vertíðum í fjarlæg-
um verstöðvum. Þá bjó fólk ekki við
þau þægindi sem nú tíðkast og eðli-
lega hafa störfin krafist meiri vinnu
og fyrirhafnar af þeim sökum. Ég
hafði rætt þetta við Eyleifu og hún
svaraði brosandi eitthvað á þá leið,
að þá hefði hún verið ung og frísk.
Svona var Eyleif, hún gerði lítið úr
því sem hún hafði afrekað og í
umræðum um menn og málefni var
hún mjög hlutlaus og mér vitanlega
lagði hún aldrei til nokkurrar mann-
eskju.
Éyleif var mjög vinnusöm og verk-
lagin. Hún saumaði úr nýju oggömlu
á sig og sitt fólk og einnig pijónaði
hún mikið á börnin. Eftir að Eyleif
kom í Breiðablik kom vel í ljós
hversu verklagin og vandvirk hún
var, en þar vann hún mjög vandaða
handavinnu og ég veit að margir
dáðust af útsaumi hennar og einnig
dúkum og fleiru, sem hún málaði.
Eyleif og Gísli áttu fallegt heim-
ili, sem gott var að koma á. Var
snyrtimennska þar í fyrirrúmi og ég
veit að marga undraði hvað þessi
hægláta kona kom miklu í verk. Ég
á góðar minningar frá fyrstu komum
mínum á heimili þeirra hjóna og
fann að mér, sem öðrum, var tekið
þar með einlægni og hlýju.
Eftir að við Jóna fluttum til
Reykjavíkur var farið heim í sumar-
leyfum þegar börnin okkar voru
yngri og alltaf var okkur tekið opn-
um örmum. Bömin okkar minnast
oft þeirra-stunda sem þau áttu fyrir
austan hjá ömmu og afa á Norðfirði.
Þegar börn Eyleifar og Gísla“úxu
úr grasi, gat Eyleif farið með Gísla
á vertíðar og bjuggu þau þá nokkra
vetur bæði í Hafnarfirði og í Vest-
mannaeyjum og komu þá oft á heim-
ili barna sinna, sem búsett voru hér
syðra, og alltaf var það tilhlökkun
að fá þau í heimsókn.
Þann 12. febrúar sl. varð fjöl-
skyldan fyrir þeirri miklu sorg að
yngsti sonur Gísla og Guðrúnar,
Eyleifur Þór, lést af slysförum. Allir
undruðust þá styrk Eyleifar en hún
stóð sem klettur, en eflaust hefur
þó sorgin rist dýpra en við hugðum.
Ég vil með þessum fátæklegu
orðum kveðja tengdamóður mína,
Eyleifu Jónsdóttur. Gengin er góð
kona. Guð blessi minningu hennar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
ívar Hannesson
IHADEGINU
OG Á h
KVOLDIN
VAL UM FJÓRA
AÐALRÉTTI
SÚPU OG KAFFI
Veldu einn af fjórum
aöalréttunum.
— HAKKABUFF
•m LASAGNA
■■ PÖNNUSTEIKTAN KARFA
— RÉTT DAGSINS
súpa og kaffi fylgir,
allt þetta fyrir kr. 470—490
Barnaskammtur kr. 315-330
FJOLSKYLDUMÁLTÍÐ
FYRIR FJÓRA MEÐ
GOSI, SAMTALS KR.
Að sjálfsögðu geturðu einnig
valið einhvern af okkar 15 sér-
réttum og farið á salatbarinn.
POTTURINN
NÓATÚNI
Þegar hugað er að bílakaupum.vakna margar spurningar, m.a.
hver er tilgangur bílsins, hverjar eru aðstæðurnar o.s.frv. Hér
að neðan gefur að líta nokkrar staðreyndir um Lada Samara.
’iffgfSem dæmi má nefna framúrskarandi fjöðrun, hátt undir lægsta
jj^apunkt, kraftmikill og sparneytinn. Sé einhverjum spurningum
mM ósvarað, ræddu þá við sölumenn okkar, sem gefa nánari upplýs-
Sp^jflingar um Lada Samara og ath. að verðið er engin spurning.
Ótrúlegt
farangursrými
Hliðarlistar
Hjólkoppar
Framdrifsbíll á algjöru
undraverði: 430.000.-
Einstök fjöðrun
Umboðsaðilar; T:-
Bilás.Akfanesi.S. 93 12622
Jóhannes Kristjánsson, Akureyri. S.
Bilaleiga Húsavikur. S. 96-418B8.
Sitl
Opið á iaugardögum frá kl. 12-16
Beinn sími í söludeild: 31236.
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR
HSfyíía Ármúla 13, Sími 681200.
yt&'&'- MRRg .';-SpL2*11 B" Stórir hliðarspeglar báðum megin Öryggisbelti fyrir
alla farþega