Morgunblaðið - 08.04.1989, Síða 40

Morgunblaðið - 08.04.1989, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989 mnmn ©1988 Universal P>w» Syndicale x/ Úg held a& við aettum oÁ -floh'a. i beima hver-fc." Við erum engin böm, Stein- grímur Hermannsson Hvemig stendur á því, Steingrímur Hermannsson, þú sem ert forsætisráðherra þessa lands, að þú talar alltaf til okkar fólksins í landinu sem væmm við öll óvita böm? Hvemig stendur á því að þú segir iðulega eitt í dag og annað þveröfugt á morgun? Heldur þú að fólkið sé orðið svo sljótt eða kalkað eða bara svo vitlaust og dómgreind- arlaust, að það taki ekki alltaf eftir því sem þú segir eða að orð þín fari orðið inn um annað og jafnóð- um út um hitt eyrað? Hvemig í ósköpunum má það vera að þú virð- ist alltaf hafa tvennslags skoðun á svo til flestum málum? Er það til- fellið? Jú, ég hefi verið að fylgjast með þér að undanfömu gegnum fjöl- miðla, aðallega í sjónvarpi, stundum í útvarpi, en eitthvað lesið það sem haft er eftir þér i blöðum og ég verð að viðurkenna að þetta fer heldur versnandi hjá þér, oft svo að mér finnst þetta allt að þvi grát- broslegt og á það til að skella upp úr, sem er auðvitað skammarlegt að gera og frekar óþjóðlegt, þegar forsætisráðherra á hlut að máli. Ég hefí vissu fyrir því að þetta allt er farið að fara fyrir brjóstið á mörgum. T.d. þekki ég gamlan, rótgróinn framsóknarmann ættað- an að norðan, sem æsir sig töluvert upp þegar þú birtist á skjánum og flýtir sér að skipta yfir á hina stöð- ina. Um daginn hélt ég að hann væri að fá hjartaslag, þegar hann tryllist algjörlega, þá varst þú nefni- lega á báðum stöðvunum í einu! Hann missti kaffibollann úr hönd- unum, setti heilmikið út á sjón- varpið mitt, eins og það væri allt því að kenna, og rauk síðan út bölv- andi allt og öllum og hefur ekki sést síðan. Eins var þetta ekki nógu gott hjá þér þama á þinginu í janúar, þegar þú lýstir því yfír að engin gengislækkun væri í efnahags- myndinni, en það furðulega skeði að varla var liðinn mánuður þegar þú sagðir úr sama stóli að nauðsyn- iegt væri að fella gengið! Reyndar lítið fyrst en síðan bara smá „hrap“ í viðbót stuttu síðar ef Seðlabankinn ákvæði slíkt! Þú hefði nú orðað þetta öðruvísi eða jafnvel látið vera að minnast á þetta. Slæmt þótt okkur líka þegar þú talaðir, eins og hér væri á verðstöðvun, meðan allt var að hækka nær daglega, allt nema launin. Svo kom 1. mars og þá hækkaði fyrst allt verulega og mest það sem hið opinbera verð- leggur, s.s. flest þjónusta ríkis og b æjar, landbúnaðarvörur flestar, bensín, fargjöld og margt fleira. Þann daginn kom líka bjórinn og sennilega hefur hann bjargað ykkur fyrir hom í þetta skiptið. Annars er furðulegt hvað hægt er að bjóða fólkinu í landinu okkar, sennilega orðið langþreytt og heldur bara að þetta eigi að vera svona. Það skal játað að það var sniðugt hjá ykkur og rétt tímasett að demba bjómum yfír lýðinn einmitt þennan dag! Eitt enn. Hvemig datt þér í hug þama úti í Svíþjóð að bjóða honum Arafat hingað í heimsókn eða þú að heim- sækja hann? Stórhættulegt og held- ur glannalegt, fannst okkur. Hafðir þú kannske einhverja „patent“lausn á vandamálum Mið-Austurlanda uppi í erminni? Við fengum eigin- lega enga skýringu á þessu uppá- tæki þínu. Eða sagðir þú þetta óvart, kannske í hanastélsboði, svo að einhver fréttamaður heyrði og lét þessi ummæli þín leka? Þú verð- ur, Steingrímur minn, að passa þig betur gagnvart þessum fréttahauk- um. Þú þarft ekki alltaf að svara öllu sem þeir spuija þig um. Þetta em algjörir gammar, sumir hverjir, og em vísir til að koma flestu frá þér meira og minna brengluðu. Mættu sem sjaldnast fyrir framan sjónvarpsvélamar nema þú hafir frá einhveiju að segja sem þú getur staðið ömgglega við. Vertu ekkert að segja þeim að þetta eða hitt sé í könnun, athugun, rannsókn, til umhugsunar, í þreifingum á við- kvæmu stigi né í skoðun hjá fær- ustu mönnum. Kannske ættir þú bara að láta nægja stefnuræðuna á Alþingi og auðvitað ræðuna á gaml- árskvöld, sem allir þjóðhollir íslend- ingar hlusta á, kannske sötrandi bjórinn í sæluvímu og þú verður þá áreiðanlega kosinn áfram vin- sælasti stjómmálamaður landsins! Nú er sennilegt að þú sért ekki sammála öllu því sem að framan greinir, (og þó, eins og þú myndjr segja), og hugsar sjálfsagt með sjálfum þér: „Jú, jú, að vísu má segja að þið séuð engin böm, það hefí ég enda aldrei sagt. Hins vegar er ekki að neita því að þið emð óttalegir krakkar!' N.N. HÖGNI HREKKVfSI Víkverji skrifar Víkveiji hefur að undanfömu fylgst af áhuga með fréttum og skrifum um verð á kartöflum — og reyndar eggjum og kjúklingum. íslendingar neyta kartaflna í ríkum mæli og þess vegna skiptir verð þeirra miklu fyrir efnahag heimil- anna. Það er með ólíkindum, hversu dýrar kartöflumar em. Einn kunn- ingi Víkveija lét svo um mælt, að það ætti að pakka kartöflum inn í gjafapappír — þær væm orðnar svo dýrar að þær hentuðu til gjafa. I flestum verzlunum kosta tveggja kílóa pokar af kartöflum milli 240 og 250 krónur. Á mörgum heimilum endist slíkur poki í 2—3 daga. Það er því engin furða, þótt neytendur sperri eymn við að heyra, að nýjar kartöflur fáist á erlendum mörkuðum fyrir 9 krónur kílóið. Og það á meðan íslenzku kartöfl- umar em famar að spíra og verða bragðverri með viku hverri. Forstjóri hagkaup fullyrðir, að útsöluverð á nýjum erlendum kart- öflum verði ekki meira en 35 krón- ur, þ.e. nær fjórum sinnum hærra en innkaupsverðið. Það er engin smáræðishækkun. XXX 1* slenzkir neytendur vilja áreiðan- lega upp til hópa frekar kaupa íslenzkar vömr en útlendar, svo framarlega sem verð og gæði er sambærilegt. íslenzka varan má jafnvel vera nokkm dýrari, en það er fáránlegt af íslenzkum kartöflu- framleiðendum að ætlast til að fólk borgi 120—125 krónur þegar nýrri og betri vara gæti fengizt fyrir 35 krónur. Bæði framleiðendur og aðr- ir, sem hagsmuna eiga að gæta (söluaðilar), þurfa að vara sig. Þeir mega ekki ganga fram af fólki. Þá grípur það til sinna ráða. Kartöflurækt er auðveld og fjöl- margir kaupstaðabúar hafa ein- hvem tímann stundað hana. Oft hefur það verið út úr neyð. Um langt árabil (á tíma Grænmetis- verzlunar landbúnaðarins) var ekki hægt að fá ætar kartöflur í verzlun- um — jafnvel ekki á uppskerutíman- um. Á vorin þurfti iðulega að flytja inn erlendar kartöflur þegar þær íslenzku vom búnar. Þá kom oft fyrir, að þær útlendu voru einnig óætar. Það endaði með uppreisn neytenda, sem hafði í för með sér endalok Grænmetisverzlunarinnar. Farið hefur fé betra. Á ámm áður ræktaði Víkveiji sínar eigin kartöflur. Það var ekki vegna verðsins heldur vegna þess, að hann var þreyttur á að fá ekki ætar kartöflur. Það var höfuðmálið. Mikil framför varð þegar sölusam- tök kartöfluframleiðenda tóku við af Grænmetisverzlun landbúnaðar- ins. Gæðin bötnuðu að mun og Víkveiji þurfti ekki lengur að rækta eigin kartöflur til að losna við óætið. En það er full þörf á því fyrir kartöfluframleiðendur að gæta að verði vöm sinnar og milliliðakostn- aði svo að neytendur sjái ekki sitt óvænna og fari að setja niður á ný — að þessu sinni ekki vegna gæð- anna heldur vegna fjárhagslegs ávinnings. yon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.