Morgunblaðið - 26.04.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIRUDAGUR 26. APRÍL' 1989
17
lundi, Múlalundi og annarri starf-
semi sem til heilla horfir fyrir skjól-
stæðinga sambandsins, þeirra
sjúku, sem á leið sinni til bættrar
heilsu og þreks þurfa á að haida.
Saga SIBS og starfssaga Odds
eru svo nátengdar að ekki má segja
þær hvora í sínu lagi þannig að
mark sé á takandi. Við stofnun
SÍBS í október 1938 er Oddur á
fundinum sem læknanemi í hópi
starfsfólks og samtímis í hópi
berklasjúklinga vegna þess að þá
er hann einnig berklasjúklingur.
Frá Vífilsstöðum heldur Oddur
til framhaldsnáms í sínum fræðum,
en strax við heimkomuna verður
hann á ný virkur í samtökum
berklasjúklinga og velst tii stjórnar-
starfa 1940 hefur hann setið nær
óslitið í sambandsstjórn, stjórn
Reykjalundar og nú í forsæti stjórn-
ar SIBS.
Við stofnun Öryrkjabandalags
íslands var Oddur kjörinn fyrsti
fulltrúi SÍBS í stjórn þess og lengst
af hefur hann verið þar sem formað-
ur bandalagsins og formaður hús-
stjórnar og er nú heiðursforseti
Öryrkjabandlagsins enda má með
sanni segja að glæsilegu bygging-
arnar við Hátún séu á kraftaverka-
skrá Odds ekki síður en afreksverk
hans við byggingu Reykjalundar á
sínum tíma, sem hann hafði forystu
fyrir af mannviti sínu hagsýni og
kjarki til framkvæmdanna, því bæði
þessi stórvirki hefðu ekki komist
upp ef allt þetta hefði ekki komið
til því ekki voru peningar þá fyrir
hendi eins og sagt er nú að sé aflið
til hlutanna. Oddur afsannaði þá
reglu rækilega með fordæmi sínu,
eins og dæmin sanna.
Ekki er ætlan mín með þessum
fáu orðum að fara yfir afrekaskrá
Odds Ólafssonar formanns SÍBS
af tilefni áttræðisafmælis hans í
dag (til þess þyrfti a.m.k. 300 bls.
bók eins og afmælisbók SÍBS varð)
heldur aðeins að flytja honum inni-
legustu hamingjuöskir á þessum
merku tímamótum og þakka honum
og konu hans, Ragnheiði Jóhannes-
dóttur, samfylgdina undanfarna
áratugi því að ekki getum við hjón-
in hugsað okkur betri ferðafélaga
eða ljúfari vini við ótal tækifæri
bæði innan lands og utan.
í tilefni dagsins hafa þau hjónin
Oddur og Ragnheiður opið hús í
Hlégarði í Mosfellsbæ milli kl. 17.00
og 19.00 í dag.
Kjartan Guðnason,
formaður stjórnar
Reykjalundar.
Sauðárkrókur:
Rætt um varaflug-
völl á fundi með
samgönguráðherra
Sauðárkróki.
BÆJARSTJÓRN Sauðárkróks átti fiind með samg*öngnmálaráðherra
Steingrími J. Sigfússyni sunnudaginn 16. apríl sl. Var aðalumræðu-
efiii þessa fúndar varaflugvallarmálið, en Snorri B. Sigurðsson bæjar-
stjóri hefúr fengið frá skrifstofú Flugmálasfjóra framreiknaðan til
núvirðis kostnað þann sem varð við gerð flugvallar við Sauðárkrók
á sínum tíma.
Fram kemur í umræddri skýrslu
Flugmálastjórnar að fært til núvirð-
is kostaði gerð flugvallar við Sauð-
árkrók 94,4 milljónir og tekið er
fram að miðað sé við allar fram-
kvæmdir nema ljósabúnað og önnur
tæki og aétti því að vera inni í þess-
um tölum kostnaður við malbik það
sem er á báðum brautarendum og
hlaði auk öryggissvæða og girð-
inga.
Talið var, þegar flugvöllurinn var
gerður, að um ódýrasta flugvöll
væri að ræða sem byggður hefði
verið hérlendis. Líta heimamenn svo
á að sömu aðstæður séu enn fyrir
hendi og því sé óraunhæft að miða
kostnaðaráætlanir við sömu for-
sendur og til dæmis á Egilsstöðum.
Taldi samgöngumálaráðherra
fráleitt að á nokkurn hátt væri ver-
ið að reikna Sauðárkrók út úr
myndinni varðandi byggingu nýs
varaflugvallar, og bauðst til þess
að koma á fundi með höfundum
skýrslunnar frægu, þar sem úttekt
er gerð á því hvar líklegast er að
nýr varaflugvöllur yrði staðsettur,
og bæjarstjórn Sauðárkróks. Mættu
þá báðir aðilar heyra rök hins og
ef til vill yrði þá eytt misskilningi
um gerð skýrslunnar, ef einhver
væri.
- BB
ER
BÚIB
AÐ
SK0ÐA
BÍLINIil
Þtm?
Síðasta tala
númersins segir
til um
skoðunarmánuðinn,
/
KOSTIR ENGEL KÆLIKISTUNNAR:
einföld í notkun
til ímörgum stœrðum, frá 10 L-77 L
hœgt aðfá 12, 24 V DC og220 V AC
eyðir mjög lítilli orku
ýmis aukabúnaður fáanlegur
ný tegund af kœlipressu
leysir gasið afhólmi
hœgt að breyta ífrystikistu með því að
snúa einum takka.
- fylgin þér í:
■ BÁTINN
■ BÍLINN
■ ÚTILEGUNA
■ SUMARBÚSTAÐINN
■ FJALLAFERÐINA
■ SP0RTVEIÐINA
Nýju ENGEL kæli- og frystikisturnar eru
kærkomin nýjung fyrir alla þá sem eru á far-
aldsfæti og þurfa að nesta sig.
ENGEL kælikisturnar eru ótrúlega fyrirferð-
arlitlar, eyða litlu rafmagni og henta því mjög
vel t.d. í bíla, báta og sumarbústaði. Það eina
sem þú þarft að gera er að stinga kistunni í
samband við rafkerfið, t.d. sígarettukveikjar-
ann í bílnum.
IX
Hátsknlhf.
Ármúla 26, símar: 91 -31500 - 36700
Láttu skoða í tíma
- öryggisins vegna!
BIFREIÐASKOÐUN
ÍSLANDS HF.
Hægt er að panta skoðunartíma,
pöntunarsími í Reykjavík er 672811.