Morgunblaðið - 03.05.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.05.1989, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 1989 Háskólamenntaðir hj úkrunarfi-æðingar: Verkfall boðað hjá borginni frá 17. maí FÉLAG háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá Reykjavíkurborg hefur boðað verkfall frá og með 17. maí næstkom- andi, hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Ef til verkfallsins kemur mun það hafa einhverja skerðingu á starfsemi Borgarspítal- ans í for með sér, auk þess sem einhver röskun verður á heimahjúkr- un og ungbamaeftirliti á vegum Heilsuvemdarstöðvarinnar. Af 33 hjúkrunarfræðingum sem á kjörskrá eru í Félagi háskóla- menntaðra hjúkrunarfræðinga hjá Reykjavíkurborg greiddu samtals 30 atkvæði um verkfallsboðun á fundi um síðustu helgi, og sam- þykktu 22 þeirra verkfallsboðun, en sex voru á móti. Margrét Bjömsdóttir hjúkrunar- framkvæmdastjóri á Borgarspítal- anum sagði að starfsemi á nokkrum deildum spítalans muni væntanlega skerðast eitthvað ef til verkfalls hjúkrunarfræðinganna kemur, en ennþá væri ekki ljóst að hve miklu leyti. Hún taldi þó að ekki þyrfti að loka neinum deildum spítalans af þeim sökum, en ömgglega yrði um einhverja fækkun sjúkrarúma að ræða. Hún sagði jafnframt að þeim tilmælum hafi þegar verið beint til félagsmanna að vinna ekki yfírvinnu, og taldi hún að áhrifa þess færi sennilega að gæta í þess- ari viku. Ef af verkfalli háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga hjá Reykjavík- urborg verður mun væntanlega verða nokkur röskun á starfsemi bamadeildar Heilsuvemdarstöðvar- innar og í heimahjúkrun, en fjórir af tuttugpi hjúkmnarfræðingum sem starfa við heimahjúkmn á Heilsuverndarstöðinni em háskóla- menntaðir. Frá slysstað á Bláflallavegi. Morgunblaðið/Júlíus Axel Arnar Þorgilsson. Banaslys á Bláflallavegi TÓLF ára drengur lést í um- ferðarslysi á Bláflallavegi síðdegis á mánudag. Siysið varð efst á Bláfjallavegi, nærri Kristjánsdölum. Fólksbfl var ekið upp veginn og á móti jeppa. Þar sem bílamir mættust em háir snjóraðningar. Jeppinn fór upp á mðningana, en valt þá og skall með vinstri hlið á fólks- bílnum. Hann valt síðan aftur yfír á hægri hlið. Drengurinn, sem var farþegiri'framsæti jeppans, kast- aðist út við veltuna og varð undir bílnum. Hann lést samstundis. Drengurinn hét Axel Amar Þorgilsson, fæddur 2. febrúar 1977. Hann var til heimilis í Brekkubyggð 20 í Garðabæ. Frumvarp um breytt ríkisábyrgðargjald: Gjald innheimt af inn- lendum skuldbindingum Möguleg tekjuaukning ríkissjóðs 80 til 100 milljónir króna RÍKISSTJÓRNIN hefúr lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á greiðslu ríkisábyrgðargjalds. Samkvæmt gildandi lögum er ríkisábyrgðargjald aðeins greitt vegna erlendra skuldbindinga, en frumvarpið gerir ráð fyrir því að gjaldið verði einnig greitt af innlendum skuldbindingum sem njóta ríkisábyrgðar. Gert er ráð fyrir að gjaldið renni í ríkissjóð og geti aukið tekjur hans um 80 til 100 milUónir á ári, þar af 40 til 50 milljónir króna á þessu ári. Jóhannes Árna- son sýslumaður látinn JÓHANNES Árnason, sýslumaður í Snæfellsnes- og Hnappadals- sýslu, lézt á heimili sínu í Reykjavík síðastliðinn sunnudag. Jóhannes var 54 ára að aldri. Jóhannes Ámason fæddist þann 20. apríl 1935 á Geirseyri við Pat- reksfjörð. Foreldrar hans vom Stur- laugur Friðriksson, sölumaður í Reykjavík og eiginkona hans, Sigríð- ur Jóhannesdóttir á frá Flatey á Breiðafírði, síðar búsett á Patreks- fírði. Jóhannes varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1956 og lauk embættisprófí í lögfræði frá Háskóla íslands 1963. Jóhannes var sveitarstjóri á Patreksfírði frá árinu 1963 til ársloka 1968 og jafnframt fulltrúi sýslumannsins í Barðastrand- arsýslu árin 1963 til 1964, en stund- aði síðan málflutningsstörf og útgerð samhliða starfí sveitarstjóra. Hann varð sýslumaður í Barðastrandar- sýslu 1968 til 1982, en sýslumaður í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu frá 1982 til æviloka. Jóhannes Ámason lét sig félags- mál miklu varða. Hann sat í nefndum ýmissa fyrirtælga og félaga, oft sem Jóhannes Ámason formaður. Hann var formaður Neista, félags ungra sjálfstæðis- manna í Vestur-Barðastrandarsýslu, sat í stjórn Sambands ungra sjálf- stæðismanna, varaformaður um skeið og var tvívegis formaður sjálf- stæðisfélagsins Skjaldar á Patreks- fírði. Þá átti hann um tíma sæti í flokksráði Sjálfstæðisflokksins og sat á Alþingi sem varaþingmaður Vestfjarða. Eftirlifandi eiginkona Jóhannesar er Sigrún Siguijónsdóttir, ættuð úr Reykjavík. „í þessu fmmvarpi er lagt til að skuldbindingar umræddra aðila í formi innlendra verðbréfa myndi gjaldstofn til ábyrgðargjalds með sama hætti og skuldbindingar þeirra gagnvart erlendum aðilum," segir meðal annars í athugasemd- um við fmmvarpið. Þar segir enn- fremur: „Með þessu móti er stefnt að því að samræma gjaldtöku vegna rkisábyrgða, meðal annars í því skyni að koma í veg fyrir mismun- un. í þessu sambandi má benda á að ríkissjóður ber ábyrgð á öllum skuldum ríkisviðskiptabanka. Bankamir bjóða verðbréf til sölu á innlendum lánsfjármarkaði, meðal annars í samkeppni við ríkisskulda- bréf og verðbréf lánastofnana, sem ekki njóta ríkisábyrgðar." Gjaldskylda samkvæmt fmm- varpinu nær til ríkisviðskiptabank- anna tveggja, Landsbankans og Búnaðarbankans og þeirra fjárfest- ingarlánasjóða, sem em með ríkis- ábyrgð, að undanskildum Bygging- arsjóði ríkisins og Byggingarsjóði verkamanna. Hér er einkum um að ræða Byggðastofnun, Fiskveiða- sjóð, Framkvæmdasjóð, Iðnlána- sjóð, Iðnþróunarsjóð og Stofnlána- deild landbúnaðarins. „Það má auðvitað segja að þeir bankar og sjóðir, sem hafa ríkis- ábyrgð, eigi að greiða fyrir hana,“ sagði Halldór Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra, í samtali við Morgunblaðið. „Þá væri eðlilegt að slík greiðsla rynni í Ríkisábyrgða- sjóð, þannig að hann gæti staðið undir þeim ábyrgðum, sem á hann falla með eiginfé. Þetta er ekki hugsunin með þessu fmmvarpi, heldur er ætlunin að peningamir renni í ríkissjóð og það sem stingur í augu er að ekkert samræmi er í skattheimtunni. Þannig á Atvinnu- tryggingasjóður útflutningsgreina að vera undanþeginn ábyrgðar- gjaldinu af því hann er gælusjóður forsætisráðherra en hins vegar Byggðasjóður ekki, þótt lánveiting- ar úr sjóðnum séu algjörlega sam- bærilegar. Það er auðvitað út í hött að Framleiðnisjóður landbúnaðarins eða Ferðamálasjóður greiði slíkt gjald vegna stöðu sinnar. Loks vil ég minna á að Stofnlándeild iand- búnaðarins er þegar skattlögð um 35 milljónir króna í ríkissjóð í gegn- um afleysingaþjónustu bænda, sem ríkisábyrgðagjaldið ætti þá að drag- ast frá. Þetta er bara enn ein skatt- heimtan í eigin eyðslu núverandi ríkisstjórnar, en sem betur fer em einhveijar vomur á einstökum stjómarþingmönnum," sagði Hall- dór. Hefði ríkisábyrgðargjaldið verið komið á á síðasta ári, hefðu tekjur ríkissjóðs af því numið 72 milljónum króna. Mest hefði Fiskveiðasjóður greitt, 20,4 milljónir. Fram- kvæmdasjóður íslands hefði greitt 15.2 milljónir, Stofnlánadeild land- búnaðarins 10,4, Byggðastofnun 9.2 og Iðnlánasjóður 8,3. París: Stolin mynd eftir Erró seld á uppboði Klippimyndir Errós af forsprökkum frönsku byltingarinnar sýndar á veggjum þinghússins STOLIN mynd eftir Erró úr myndaflokknuin „Interieure Americ- anais“ var seld á uppboði í París fyrir nokkrum dögum. Myndin sýnir víetnamska hermenn inni á bandarísku heimili. Erró sagði, í samtali við Morgunblaðið, að sér hefði ekki tekizt að koma í veg fyrir sölu myndarinnar vegna einhverra formgalla á nauðsyn- legri skriffinnsku, en maður frá Karakas hefði stolið þessari mynd og 15 öðrum fyrir meira en einum áratug, Þrátt fyrir tölu- verða eftirgrennslan væri þetta eina myndin, sem hann hefði heyrt að komin væri fram í dagsljósið. Þetta væri mjög miður, þar sem hann ætti engar myndir úr þessum flokki. Erró sagði að nokkuð hefði verið um myndir eftir hann á uppboðum að undanfömu. Á fyrr- nefndu uppboði hefðu til dæmis níu myndir eftir hann verið seldar að meðtalinni þeirri stolnu. Yfír- leitt væri það talið betra að ekki væm nema tvær til þijár myndir eftir sama höfund á uppboði hveiju sinni til að eiga síður á hættu að verð yrði lágt. Að vísu kæmi sér það lítið við hvert verð fengist fyrir myndir eftir hann á uppboðum, því hann seldi sínar myndir fyrst og fremst úr galler- íum og því væm það aðrir, sem högnuðust af sölu myndanna á uppboðum. Erró sagði að verð á málverkum væri nú hátt og mynd- imar í þessu tilfelli hefðu þre- til fjórfaldazt í verði frá því hann hefði selt þær frá sér. Verðið hefði verið á bilinu 60.000 til 140.000 frankar, 500.000 til tæplega 1.200.000 krónur. Erró er einn 6 listamanna af ýmsu þjóðemi, sem hefur verið falið að sýna verk sín á veggjum þinghússins við Concorde-torg í París í tilefni afmælis frönsku byltingarinnar. Verkin em sett á filmu og sýnd sem eins konar skyggnur á kvöldin. Erró sýnir frá 29. apríl til mafloka Qölmargar klippimyndir, sem sýna helztu for- kólfa frönsku byltingarinnar, svo sem Marat, Danton og Robes- pierre. Myndimar em skeyttar saman í heild, sem tekur um 20 mínútur í sýningu og ganga þær frá 9 á kvöldin til 2 á nóttunni í einn mánuð, en þá taka verk eftir annan höfund við. „Þetta kemur mjög vel út. Á húsinu em 12 súl- ur í öllum regnbogans litum og myndunum er varpað upp á vegg- inn aftan við þær. Þetta em mjög stórar myndir, 20 metrar háir prófflar af forsprökkum byltingar- innar, enda í tengslum við bylting- arafmælið," sagði Erró í samtali við Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.