Morgunblaðið - 03.05.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.05.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989 Borgarráð: Ákvörðun bæj arstj órnar- innar í Kópavogi marklaus Forsenda eðlilegra samskipta að staðið sé við samninga BORGARRAÐ samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær, bókun þess efnis að það teldi ályktun bæjarstjórnar KópaVogs marklausa, er varðar riftun samnings milli sveitarfélaganna um breytingu á mörkum kaupstaðanna og hann úr gildi fallinn. Átelur borgarráð harðlega hvernig að þessu máli hefur verið staðið að hálfu bæjar- yfirvalda Kópavogs. Jafnframt að það sé forsenda fyrir eðlilegum samskiptum við Kópavogskaupstað að bæjarstjórn virði gerða samn- inga. I bókun Davíðs Oddssonar borg- arstjóra, sem samþykkt var með þremur samhljóða atkvæðum en Siguijón Pétursson (Alþb.) og Sig- rún Magnúsdóttir (Frams.) sátu hjá, segir að borgarráð telji rétt að fram fari hlutlaus úttekt á vægi Fossvogsbrautar í umferðarkerfi höfuðborgarsvæðisins og á um- hverfislegum áhrifum verði hún lögð. Meðan ekki hafi verið tekin endanleg afstaða til brautarinnar verði engar ráðstafanir gerðar, sem útiloki hana um alla framtíð, jafn- vel þótt hún verði lögð neðanjarðar að verulegu leyti. „Slíkar ráðstafan- ir geta reynst afdrifaríkari en svo að veijandi sé að ráðast í þær án undangenginnar faglegrar athug- unar.“ í bókun Siguijóns Péturssonar segir meðal annars, að borgarmála- ráð Alþýðubandalagsins hafi ítrek- að samþykkt að ekki eigi að leggja hraðbraut um Fossvogsdal og Hlíðarfót. Þrátt fyrir það sé full ástæða til að mótmæla einhliða uppsögn samningsins, sem gerður er af tveimur eða fleiri aðilum og verður að vera jafn bindandi fyrir alla, þó einhveijir telji að forsendur hafi breyst. „Það verður hins vegar að fordæma það að borgarstjórinn í Reykjavík skuli, án umboðs frá borgarráði, neita að endurnýja samning við Kópavogsbæ um sorp- losun. Samningi, sem er alls óskyld- ur deiluefninu.“ Elín G. Ólafsdóttir, (Kvl.) segir í bókun sinni að það sé óeðlilegt og jafnframt óæskilegt að sam- skipti sveitarfélaganna sé stefnt í voða með einhliða yfirlýsingum að- ila, án nokkurrar umfjöllunar í borgarráði eða borgarstjórn Reykjavíkur. I bókun Sigrúnar Magnúsdóttur, sem er efníslega samhljóða ályktun borgarmálaráðs Framsóknarflokks- ins frá síðustu helgi, átelur hún harðlega framkomu borgarstjóra í deilunni og fordæmir þær yfirlýs- ingar sem hann hefur látið frá sér Hæstiréttur: Stjórnarformaðurinn greiði þrotabúi Hafskips tæpar 2,9 millj. auk vaxta HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm skiptaréttar og dæmdi Ragnar Kjartansson, fyrrverandi stjórnarformann Hafskips, til að greiða þrotabúi fyrirtækisins tæplega 2,9 milljónir króna, auk vaxta frá 1. janúar 1982. Ragnar krafðist þess að kröfiim þrotabúsins á hend- ur honum væri skuldajafhað við þær kröfiir sem hann gerði á hend- ur þrotabúinu. Hæstiréttur féllst hins vegar aðeins á kröfiir búsins á hendur Ragnari. Þrotabúið krafðist endurgreiðslu bifreiðakaupaláns, úttekta af hlaupareikningum Hafskips og of- tekinna viðbótarlauna. Ragnar krafðist þess á móti að fá greidd laun, sem hann taldi sig eiga inni hjá fyrirtækinu. Fyrir Hæstarétti benti hann á, að lagðar væru saman úttektir hans og Björgólfs Guð- mundssonar, fyrrverandi forstjóra Kópavogur: Almennur borgara- fiindur um Fossvogsdal TALSMENN stjórnmálaflokk- anna í bæjarstjórn Kópavogs ásamt Samtökum um verndun Fossvogsdals, hafa ákveðið að efiia til almenns baráttufúndar um verndun dalsins, í íþróttahúsi Snælandsskóla næstkomandi laugardag 6. maí, kl. 14. „Þetta verður baráttufundur Fossvogsvina og er fyrst og fremst haldinn til upplýsingar og kynning- ar á málinu,“ sagði Kristján Guð- mundsson bæjarstjóri. Á fundinum verður meðal annars fjallað um nugsanlega mengun og umhverfis- ihrif í dalnum vegna lagningu nrautarinnar auk þess, sem sjónar- mið bæjarstjórnarinnar verða <ynnt. Hafskips, og þeim samanlögðu út- tektum skipt í tvennt, án þess að tilraun væri gerð til að leiða í ljós raunverulegar úttektir Ragnars. Málsástæða þessi var hins vegar talin of seint fram komin. í málinu kom m.a. fram, að Ragnar gerði samninga við Hafskip um viðbótarlaun, sem nema skyldu ákveðnum hundraðshluta af rekstr- arafkomu félagsins frá 1977. Hann byggði mál sitt á því, að hagnaður hefði orðið af rekstri Hafskips árið 1984 samkvæmt ársreikningi fé- lagsins það ár og ætti að reikna viðbótarlaun af bættri rekstraraf- komu félagsins það ár miðað við árið 1977. I dómi Hæstaréttar seg- ir, að þann 6. desember 1985 hafi bú Hafskips verið tekið til gjald- þrotaskipta. Ragnar hafi ekki leitt í ljós, að hagnaður hafi orðið af rekstri hlutafélagsins árið 1984 og beri því að hafna kröfu hans um viðbótarlaun fyrir það ár. Kröfum Ragnars var öllum hafn- að, en fallist á réttmæti krafna þrotabúsins. Ragnar var því dæmd- ur til að greiða þrotabúinu 2.849.153 krónur auk vaxta frá 1. janúar 1982 og 250 þúsund krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómararnir Guðmundur Jónsson, Guðrún Erlendsdóttir og Hrafn Bragason, Amljótur Björnsson, settur hæstaréttardómari, og Sig- urður Líndal, prófessor. fara án samráðs við borgarráð. „Framsóknarflokkurinn er ein- dreigið á móti lagningu Fossvogs- brautar og hefur bent á, að með því að fjölga akreinum á Miklu- braut og nýta betur umferðaræðar eins og Elliðavog og Sætún sé Foss- vogsbrautin óþörf.“ Flutt hafi verið tillaga í borgarstjórn um að dalur- inn verði útivistarsvæði en hinsveg- ar verði það að teljast ámælisverð vinnubrögð af bæjarstjórn Kopa- vogs að segja upp einhliða og fyrir- varalaust samningi þeim sem í gildi hefur verið milli sveitarfélaganna án þess að láta á það reyna hvort ekki gæti náðst samkomulag um skynsamlega nýtingu dalsins. Loks lagði Davíð Oddsson borg- arstjóri fram sérstaka bókun, þar sem fram kemur að Reykjavíkur- borg hafi jafnan sýnt Kópavogi vin- semd og veitt margvíslega þjónustu en samstarfsvilji Kópavogs hafi á hinn bógin verið lítill í fjölmörgum efnum. „Framferði þeirra að und- anförnu er þó sýnu verst, og reynd- ar óþekkt í samskiptum einstakl- inga, hvað þá á milli sveitarfélaga. Við því hlýtur Reykjavíkurborg að bregðast. Borgin mun að sjálf- sögðu, hér eftir sem hingað til, virða alla samninga, sem hún hefur gert við sveitarfélagið en mun ekki leng- ur leggja lyklq'u á leið sína til að sýna því vinsemd sem það vill hafa með að gera og metur einskis. Bók- anir fulltrúa minnihlutaflokkanna sýna glöggt að þeim er meira í mun að koma höggi á mig sem borgar- stjóra en gæta hagsmuna Reykjavíkur og Reykvíkinga, þegar að þeim er vegið. Það hefur sann- ast áður og sannast enn.“ Morgunblaðið/Matthías Maður slasast þegar krana- bóma bognar Miðaldra maður slasaðist alvar- lega og var fluttur með sjúkra- flugi til Reykjavíkur síðastliðinn mánudag. Slysið varð þegar kranabóma bognaði er verið var að flytja til krana svo að hægt væri að skipa upp toghlerum um borð í Sigluvík en hleramir áttu að fara samdægurs suður til við- gerðar. Tvær nauðg- anir kærðar TVÆR nauðganir voru kærðar til RLR um helgina. Annar hinna kærðu var handtekinn en ekki hefúr náðst til hins. Maður bauð tveimur konum far fyrir utan skemmtistað við Ármúla. Þegar önnur hafði sest inn í bíl hans ók hann á brott og kom fram vilja sínum við hana en ýtti henni síðan út úr bílnum. Lögreglan hefur ekki náð til mannsins. Þá kærði kona mann fyrir að hafa nauðgað sér í íbúð í Breið- holti á föstudag. Sá var látinn laus eftir yfirheyrslur. Níu piltar veiktust eftir neyslu lyfla NÍU piltar á aldrinum 14-15 ára veiktust mikið aðfaranótt mánu- dags eftir að hafa tekið inn asmalyf. Þrír þeirra voru lagðir á gjörgæsludeild Borgarspítala, fimm inn á almennar deildir, en einn fékk að fara heim að lokinni skoðun. Piltamir era nú allir útskrifaðir. Einn piltanna kom á Borg- arspítalann á mánudagsmorgun, mikið veikur. Hann sagði frá því að fleiri hefðu tekið inn lyfið Teo- fyllamin, til að komast í vímu. Lyf þetta er ætlað asmasjúkling- um og venjulegur skammtur af því er ein tafla tvisvar á dag. Pilt- amir höfðu hins vegar tekið inn allt frá fjómm og upp í tuttugu töflur hver. Eftir að piltamir höfðu tekið inn lyfið veiktust þeir allir, fengu uppköst og kviðverki. Sveinbjörn Brandsson, læknir á Borgarspítala, sagði að leitað hefði verið til Rannsóknarlögreglu ríkisins til að hafa upp á hinum piltunum, svo hægt væri að koma þeim undir læknishendur. Hann sagði að sér skildist að einn drengjanna hefði fengið lyfið við ofnæmissjúkdómi. „Of stór skammtur af lyfinu veldur hjart- sláttartmflunum og krampa, sem mjög erfitt er að eiga við,“ sagði Sveinbjörn. „Hins vegar kemst fólk ekki í neina vímu af því að gleypa þessar töflur. Það sorglega við þetta er að það er tiltölulega stutt síðan unglingsstúlka lést vegna þess að hún tók inn of stór- an skammt af þessum töflum." ÓlafiirHaukur Ólafs- son læknir látinn VEÐURYFIRLIT A HADEGI I GÆR ÞETTA kort er byggt á veðurlýsingu gærdagsins, sent frá Englandi í gegn um gervihnött og tekið af veðurkortarita hjá Radíómiðun, Grandagarði Reykjavík. Vegna verkfalls Félags íslenzkra náttúm- fræðinga em ekki gerðar veðurspár hjá Veðurstofu íslands og verða lesendur Morgunblaðsins því sjálfir að spá í veðrið, eins og þeim er lagið. ÓLAFUR Haukur Ólafsson, læknir, lézt á sjúkrastolhun í Reykjavík þann 29. apríl síðast- liðinn. Haukur var þá 59 ára að aldri. Ólafur fæddist í Reykjavík 19. febrúar 1980 og vpm foreldrar hans Ólafur Haukur Ólafsson, stór- kaupmaður, og eiginkona hans, Súsanna Lilly Bjarnadóttir. Ólafur varð stúdent frá Menntaskólanum [ Reykjavík 1949 og læknaprófi lauk hann frá Háskóla íslands 1957. Framhaldsnám stundaði hann síðan á sjúkrahúsum í Svíþjóð og starfaði bæði þar og hér heima. Ólafur starfaði einnig um tíma sem læknir í Saudi-Arabíu. Almennt leyfi til lækninga öðlað- ist Ólafur í desember 1962, en hann var námskandidat á sjúkrahúsum í Reykjavík 1957 og 1958. Héraðs- læknir var hann um hríð á Flateyri og síðar á Eskifirði. Að loknu námi og starfi í Svíþjóð starfaði þann við rannsóknastofu Háskóla íslands í meinafræði. Síðar starfaði hann við geðdeild og handlæknisdeild Borg- arspítalans, en réðst þá til starfa í Svíþjóð að nýju til ársins 1974. Þaðan lá leiðin til Whittaker Corp. í Saudi-Arabíu, þar sem hann starf- aði sem sérfræðingur í fæðingar- og kvensjúkdómum. Ólafur Haukur var öryrki frá því í ágúst 1976. Eiginkona Ólafs er Ólafur Haukur Ólafsson Ásdís Kristjánsdóttir, Benedikts- sonar verkstjóra úr Reykjavík og eiginkonu hans Láru Stefánsdóttur. Ólafur Haukur og Ásdís eignuðust fímm börn og em þau öll uppkomin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.