Morgunblaðið - 03.05.1989, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 03.05.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989 7 Vorhreingerningar hjá borginni Starfsmenn gatnamálastjóra eru önnum kafiiir þessa dagana við hreinsun á gangstéttum og götum borgarinnar eins og sjá má á þessari mynd, sem tekin var á Njarðargötunni um helgina þegar tankbíll ók þar um og spúlaði götuna. Á launum hjá bænum í vinnu hjá ráðuneytinu: Ósk um launagreiðsl- ur dregin til baka Felagsmálaráðuneytið hefiir dregið til baka ósk um að Kópavogsbær greiði laun félagsmálastjóra bæjarins í fimm daga á meðan hann vinn- ur að gerð frumvarps um félagsþjónustu sveitarfélaga. Að sögn Berg- lindar Asgeirsdóttur, ráðuneytisstjóra, dró ráðuneytið ósk sína til baka vegna þeirra undirtekta, sem hún fékk í bæjarráði Kópavogs fyrr, sem frábað sér slík tilmæli í framtíðinni. Berglind sagði að ríkið greiddi ákveðna þóknun eða sérfræðikostnað fyrir þau nefndarstörf, sem unnin væru á vegum ráðuneytanna. Jafn- framt tíðkaðist það að utanaðkom- andi starfskraftar ynnu slík störf utan hefðbundins vinnutíma. Hins- vegar, f þessu tiltekna máli, hefði sú vinna sem fara þurfti fram, þótt það umfangsmikil áð ákveðið var að kanna undirtektir Kópavogsbæjar gagnvart því að fá starfsmanninn lánaðan án þess að laun hans hjá Kópavogsbæ yrðu skert. „Þarna var um ósk að ræða sem sveitarfélagið tók síðan afstöðu til og ef henni er synjað þá verður ráðuneytið sjálft að leita leiða til þess að greiða sem svarar til fimm daga vinnu. Það á hinsvegar eftir að koma í ljós hvort viðkomandi starfsmaður tekur sér frí í vinnu eða vinnur verkið utan síns vinnutíma," sagði Berglind. Menntamálaráðherra: Ekki samstaða um aukna skattheimtu SVAVAR Gestsson, mennta- málaráðherra segir að ekki sé samstaða á Alþingi um að ganga legra í skattheimtu, en þegar hafi verið gert. Því sé skattþoli fólks náð, eins og hann komst að orði í útvarpsviðtaii á Rás 2 fyrir skömmu. „Þó að það sé ljóst að ýmsir eigi fjármuni í þessu þjóðfélagi, sem væri hægt að sækja með viðbótars- köttum, þá er ekki samstaða um það hér í þinginu að ganga lengra í skattheimtu, en þegar hefur verið gert,“ sagði Svavar í samtali við Morgunblaðið. Svavar sagði að af þeim ástæð- um, að ekki væri hægt að ná sam- stöðu á Alþingi um aukna skatt- heimtu, hefði verið ákveðið á Al- þingi, við afgreiðslu fjárlaga, að það yrði að koma til sparnaður hjá ríkinu, fremur en aukin skatt- heimta. Því hafi hann notað þau orð að skattþoli fólks væri náð. Björn Þórarinsson íKílakoti látinn Björn Þórarinsson í Kílakoti er látinn, 84 ára að aldri. Björn fæddist þann 30. mars 1905 í Kílakoti í Kelduhverfi, Norð- ur-Þingeyjarsýslu, sonur hjónanna Ingveldar Björnsdóttur og Þórarins Sveinssonar, bónda og hreppstjóra. Hann lauk prófi frá gagnfræða- skóla Akureyrar 1924 og var skóla- stjóri barnaskólans í Keldunes- hreppi 1924-1932. Björn var bóndi í Kílakoti frá 1932 til 1966, en skrifstofumaður í skattstofunni í Reykjavík frá 1966. Hann gegndi fjölda trúnaðarstarfa í sinni heima- sveit, var meðal annars formaður sóknamefndar og í stjórnum Ung- mennafélags Keldhverfinga, íþróttasambands Norður-Þingey- inga og Ungmennasambands Norð- ur-Þingeyinga. Þá sat hann á þingi sem varaþingmaður Norðurlands eystra um tíma árin 1962 og 1963. Björn Þórarinsson Björn lætur eftir sig eiginkonu, Guðrúnu Ásbjörnsdóttur, og þijú börn. Umboðsmaður Alþingis: Ráðuneyti draga úr hófi að veita umbeðnar upplýsingar GAUKUR Jörundsson, umboðs- maður Alþingis, segir í skýrslu um störf embættis umboðs- manns Alþingis á síðasta ári, sem lögð hefúr verið fyrir Al- þingi, að í nokkrum tilvikum hafi dregist úr hófi að ráðu- neyti hafi orðið við tilmælum hans um greinargerð og upplýs- ingár, og í fæstum þeirra tilvika hafi þau staðfest móttöku erind- is hans eða gert grein fyrir töf- um á svörum. Gaukur hefúr af þessu tilefni ritað forsætisráð- herra bréf og óskað upplýsinga um hvort ráðuneyti fylgi ekki einhverjum starfsreglum um svör við erindum, sérstaklega þegar afgreiðsla dregst lengur en ástæða er til að vænta. í skýrslunni segir Gaukur Jör- undsson að hann telji óhjákvæmi- legt að vekja athygli Alþingis á ofangreindum atriðum þar sem forsenda laga um umboðsmann Alþingis sé að hann sé virtur svars og tillit sé tekið til álita hans. Ef sú forsenda bregðist telur hann að það hljóti að koma í hlut Al- þingis að taka á ný afstöðu til þess með hvaða hætti skuli unnið að endurbótum á stjórnsýslu hér á landi. Gaukur segir að endanlegt vald umboðsmanns Alþingis sé fyrst og fremst fólgið í því að hann getur krafið stjórnvöld um upplýs- ingar og skýringar á ákvörðunum þeirra og framkomu, en hvorki stjórnvöld né sá sem kvörtun hefur borið fram sé bundin af áliti og niðurstöðu umboðsmanns að lög- um. Hins vegar komi það skýrt fram af greinargerð með frum- varpi til laga um umboðsmann Alþingis að þau séu reist á þeirri forsendu að stjórnvöld hljóti yfir- leitt að fara að áliti umboðs- manns. Hann segir jafnframt að starf umboðsmanns Alþingis sé enn í mótun og engan veginn sé fullreynt hvernig brugðist verði við því af stjórnvöldum, en hann leggur áherslu á að starf umboðs- manns ætti oft að geta orðið stuðningur við endurbætur sem stjórnvöld vinna eða stefna að. LSD-smyglið: Maðurinn laus eftir játningu MAÐURINN sem setið hefúr í gæsluvarðhaldi grunaður um innflutning á LSD hingað til lands, hefúr verið látinn laus. Hann hefur játað að hafa smygl- að þúsund skömtum af efninu til alndsins. Lögreglan lagði hald á um 700 skammta. Metsölublai) ú hverjum degi! Dansstúdio Sóleyjar '89 8. maí / -<# / j / c, / 8. ma 1 í. JAZZBALLETT - BALLETT - MODERN - JAZZ FUNK 4 viknó námskeió þar sem þú mætir 3 x í viku. Þetta verður skemmtilegt en erfitt námskeió. Jamaie Graves frá New York og Bryndís Einars- dóttir kenna. Innritun hafin í simum 687701 og 687801. 8. ma .. '4. í i I TEYGJUR OG ÞREK Skemmtilegir og hressir tímar fyrir alla sem vilja vera í gáóu formi fyrir sumarió. Gáóar teygjur og styrkj- andi æfingar fyrir maga, rass og læri. Innritun hafin í símum 687701 og 687801. 8. maí SUMAR TRÍÓ JÁ HVAÐ ER NÚ MÐ??? Þaó eru teygjur og þrek - þrekhringur og úti-skokk sem vió blöndum saman og gerum fjörugt og skemmti- legt. Tilvalið fyrir vinnufélaga eóa kunningjahópa til að taka sig saman og byrja sumarið meó „stæl“. Innritun hafin í símum 687701 og 687801. ^ /\ ^ MICHAEL JACKSON DANSAR Meiriháttar 4 vikna námskeið fyrir stráka og stelpur á aldrinum 7-9 ára og 10-12 ára. Innritun hafin í símum 687701 og 687801. 77T -g*' I s ó il e y j ^ © ^ 687701 Engjateigur 1 • 105 Reykjavik 687801
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.