Morgunblaðið - 03.05.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.05.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989 25 Isafiörður: Áformum sóknameftidar um nýja kirkju hafhað ísafirði. ÍSFIRÐINGAR breyttu afstöðu sinni til staðsetningar og gerðar nýrrar sóknarkirkju þegar þeir felldu ársgamla samþykkt aðalsafnaðarfundar með 869 atkvæðum gegn 290 í almennri atkvæðagreiðslu sl. laugardag. Akvörðunin, sem var hafnað, var tekin á aðalsafnaðarfundi í apríl og maí í fyrra, en þar var ákveðið í atkvæðagreiðslu að falla frá end- urnýjun gömlu kirkjunnar, sem brann í júlí 1987. Jafnframt fór fram atkvæðagreiðsla um staðarval og var meirihlutinn fylgjandi því að reisa nýja kirkju á uppfyllingu neðan við nýja sjúkrahúsið. Að sögn Gunnlaugs Jónassonar, formanns sóknarnefndar, hefur söfn- Aðalfimdur Alli- ance Francaise Aðalfundur Alliance Francaise verður haldinn í dag miðvikudag kl. 20.30. Fundurinn fer fram á Franska bókasafninu, Vesturgötu 2. uðurinn nú tekið afdráttarlaust aðra stefnu og væntir hann þess að sam- komulag takist um aðra lausn. Hann telur þrjá valkosti helst koma til greina. í fyrsta lagi að gera upp gömlu kirkjuna og ef til vill stækka hana eitthvað. í öðru lagi að lagfæra hana til bráðabirgða og nota þar til ný verður reist, en að endurbyggja þá gömlu Eyrarkirkjuna í sinni uppr- unalegu mynd og nota hana sem minjakirkju. í þriðja lagi að byggja nýja kirkju á gömlu lóðinni og nýta þá jafnframt lóð við Sólgötu, sem sóknarnefndin á. Hann taldi þó að það hefði ýmsa erfiðleika í för með sér þar sem fara þyrfti yfir sjö graf- staði á milli núverandi kirlq'u og Sólgötulóðarinnar. Hann taldi þann möguleika samt sem áður færan, en sagðist leggjast eindregið gegn því að kirkjan yrði breikkuð vegna föida leiða, sem þá þyrfti að fjarlægja. Gunnlaugur sagðist telja að besta kostinum við kirkjubyggingu hefði verið hafnað. Við því væri hinsvegar ekkert að segja. Menn yrðu einfald- lega að sætta sig við næstbesta kost- inn. Aðalatriðið væri að samstaða næðist um nýja ákvörðun. Hann sagðist mjög ánægður með mikla þátttöku í atkvæðagreiðslunni og vonaðist til að sjá sem flesta á fram- haldsaðalsafnaðarfundinum, sem fara á fram í kapellu ísafjarðarsafn- aðar í Menntaskóla ísafjarðar næst- komandi sunnudag klukkan 16.00. Á þeim fundi verða kosnir þrír af fimm aðalmönnum í safnaðarstjórn og væntanlega tekin ákvörðun um hvaða leið á að fara til lausnar þeim vanda, sem söfnuðurinn á nú við að búa, en kapellan er á sal Menntaskól- ans á ísafirði þar sem jafnframt fara fram leiksýningar, tónleikar og sam- komur menntaskólanema. Úlfar. Rosemary Kajioka flautuleikari og Katarína Óladóttir fiðluleikari. Tvennir tónleikar Tónlistarskólans Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur tvenna tónleika í Norræna húsnu nú í vikunni. Fyrri tónleik- arnir eru í dag miðvikudaginn 3. maí og þeir seinni fimmtudaginn 4. maí og eru báðir tónleikarnir einleikarapróf nemenda frá skól- anum. Á tónleikunum í dag leikur Rose- mary Kajioka, flautuleikari verk eft- ir J.S. Bach, G. Fauré, F. Poullenc, E. Bozza og F. Martin. Við píanóið er Krystyna Cortes. Rosemary hefur stundað nám við Tónlistarskólann frá 1986 og notið leiðsagnar Bernharðs Wilkinsonar, flautuleikara. Tónleik- arnir á miðvikudag hefjast klukkan 20.30. Á tónleikunum á fimmtudagleikur Katarína Óladóttir, fiðluleikari verk eftir L.v. Beethoven, J.S. Bach, B. Bartók, H. Wieniawsky og frumflyt- ur verk eftir Eyþór Arnalds. Cather- ine Williams leikur með á píanó. Katarína hefur stundað nám við Tón- listarskólann frá 1982 og hefur Guðný Guðmundsdóttir, konsert- meistari, verið kennari hennar. Tón- leikarnir á fimmtudag hefjast klukk- an 17. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir eru velkomnir. Honda 89 Civic Shuttle 4WD 116 hestöfl Morgunblaðið/Bjaíni Eiríksson Nokkrir ráðstefiiugesta hlýða á erindi. Fundað um íslenskar fornbókmenntir: „Ráðstefhan gekk sann- arlega vonum framar“ — segir Gísli Sigurðsson „RÁÐSTEFNAN gekk sannarlega vonum framar og einn úr okkar hópi, Ornólfur Thorsson, stóð upp í lok hennar og lýsti yfir að án- ægja þátttakenda og áhugi væri Vélageymsla brann í Bol- ungarvík Bolungarvík. ELDUR kom upp í vélageymslu Karls S. Þórðarsonar í Bolung- arvík aðfaranótt mánudags. í hús- inu, sem er um 100 fermetra járnklætt stálgrindarhús, voru meðal annars geymd ýmis tæki, varahlutir og verkfæri. Auk þess var þarna inni vélskófla, sem var ótryggð. Mikið tjón varð á húsinu og því sem inni var. Slökkvilið Bolungarvík- ur var kallað út klukkan 6.00 og var húsið þá alelda. Það tók slökkviliðið um einn og hálfan tíma að ráða nið- urlögum eldsins. Mildi var að gas- hylki, sem geymd voru í húsinu, sprungu ekki, en slökkviliðsmönnum tókst að forða þeim. Eins og áður sagði varð Karl S. Þórðarson fyrir umtalsverðu tjóni í brunanum, en hann rekur verktaka- fyrirtæki í Bolungarvík. Eldsupptök eru ókunn. Gunnar beinlínis krafa um að svona ráð- stefna yrði haldin á hveiju ári hér eftir,“ sagði Gísli Sigurðsson, sem ásamt Örnólfi og Gunnari Harðar- syni stóð að ráðstefnu um íslen- skar fornbókmenntir um síðustu helgi. Alls skráðu 120 manns sig á ráðstefhuna. Gísli sagði ennfremur, að 18 fyrir- lesarar hefðu rætt vítt og breitt um bókmenntaarfinn, en einkum hefði verið rætt um fornaldarsögur, ridd- arasögur og dróttkvæði. „Það sem gerði þetta svolítið öðruvísi hjá okkur var, að fjallað var um þessar bók- menntir út frá bókmenntalegum for- sendum. Þannig fengum við menn eins og Halldór Guðmundsson, Áma Siguijónsson og Guðmund Andra Thorsson, til þess að ræða þessar bókmenntir frá sjónarhóli nútíma- bókmennta," sagði Gísli. Fyrir helgina var haft eftir ráð- stefnumönnum, að hún væri að ein- hveiju leyti hugsuð sem svar við frumkvæði erlendra fræðimanna í athugunum og rannsóknum á íslenskum fornbókmenntum. Um þetta sagði Gísli: „Við fengum miklu betri kynningu en við áttum von á og það var gam- an að fá upp nýja hreyfingu og nýj- ar hugmyndir. íslendingar hafa lengst af verið í grunnrannsóknum, enda höfum við handritin okkar, en erlendir fræðimenn hafa getað tekið íslenska texta og lesið allt mögulegt úr þeim, mannfræðiheimildir, bók- menntatexta og fleira. Við höfum ekki verið með í þeirri umræðu, ráðstefnan um helgina sýndi svo ekki verður um villst, að þetta er að breytast. Hér er líka fólk, nýlega komið frá námi, sem er farið að vinna á þessum sömu línum.“ Skákmót í Munchen: Margeir í þriðja sæti MARGEIR Pétursson stórmeistari teflir nú á opnu alþjóðlegu skák- móti í Mttnchen í Þýskalandi. Að fjórum umferðum loknum hefiir Margeir 2,5 vinning og er í þriðja sæti. í fyrsta sæti er Hollending- urinn Piket með 3,5 vinninga. Margeir byijaði vel á mótinu og vann tvær fyrstu skákir sínar, þá fyrstu gegn Cebalo frá Júgóslavíu og aðra gegn Zuger frá Sviss. í þriðju umferð gerði Margeir jafn- tefli við Lars Bo Hansen frá Dan- mörku en í fjórðu umferð kom slysa- legt tap gegn Schlosser frá Þýskalandi. Verð f rá 1030 þúsund, miðað við staðgreiðslu á gengi 1. ap. 1989 GREIÐSLUSKILMÁLAR FYRIRALLA. H) VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900 ■ Tölvusumarskólt Sumamámskeiö fyrir böm og ungllnga 11-16 ára í elsta Macintoshtölvuskóla landsins. Einstakt tækifærl til aö fá á 3. vikna námskeiW þjálfun í öllum grunnatrlöum tölvunotkunar f starfi og leik. Börn og unglingar hafa gaman af tölvum, þvf tölvur efla sköpunargleði, heilbrigöa og rökrétta hugsun. Oftar en ekki hafa böm og unglingar ekki tækifæri til að nálgast þá þekkingu sem þarf til að nota tölvur. Til aö koma til móts kröfur þeirra höfum við komið á fót námskeiöi sem sniðiö er að þörfum þeirra. Dagskrá: • Ritvinnsla og vélritun • Tölvuteiknun og myndgerð • Almenn tölvufræði og umgengni viö tölvur • Leikjaforrit • Gagnagrunnar og töflureiknar • Tölvusamskipti og gagnabankar • Heimsókn I tölvufyrirtæki Við bjóöum upp á 67 kennslustunda hagnýtt nám með úrvalskennurum. í hverjum hóp eru 10 nemendur. Hægt er að velja um hóp kl. 9-12 eða kl. 13-16. Námsgögn og hressing á námskeiöi innifalin I verði. Kennt er á Macintosh tölvur. Námskeiö byrja 5. júní, 26. júní og 14. ágúst. !■ verkfræðiþjánustan Tðlvuskófi HaHdórs Kristjónssonar Skráning og allar frekari upplýsingar I sfma 688090 eða á Grerisásvegi 16 Kreditkortaþjónusta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.