Morgunblaðið - 03.05.1989, Blaðsíða 47
MORGUNBIADID MIÐVIKUDAGUR V. MAÍ 1989
Afinæliskveðja:
Valgerður Steinunn
Friðriksdóttir, 100 ára
Valgerður Steinunn Friðriksdótt-
ir, frænka mín, fæddist að Hánefs-
stöðum í Svarfaðardal 3. maí 1889
og hefur því í dag lagt að baki
heila öld. Hún var yngst þriggja
Hánefsstaðasystra, sem allar náðu
háum aldri og þeirra langlífust.
Hinar systurnar voru Anna Frið-
rika, fædd 1882 en dáin 5. desem-
ber 1980 og Elín fædd 1886 en
dáin 30. maí 1982. Einn bróður
áttu þær, Jóhann Gunnlaug, en
hann dó tæplega þriggja ára. Há-
nefsstaðasystkinin voru börn hjón-
anna Friðriks Friðrikssonar bónda
frá Skáldalæk og konu hans, Guð-
rúnar Friðriku Jóhannsdóttur frá
Selá á Árskógsströnd.
Ævi Valgerðar hefur að mörgu
leyti verið slétt og felld, en þó eng-
inn dans á rósum fremur en flestra
þeirra er heyja þurftu lífsbaráttuna
hér á landi í byijun þessarar aldar
og sorgir hafa sótt hana heim svo
sem aðra þá, er lengi lifa. Þrátt
fyrir það ber hún aldurinn vel. Ró-
semi, reisn og virðuleiki hafa alla
tíð einkennt fas Valgerðar og
tímans flaumur hefur aldrei náð að
má brott þessa drætti úr persónu-
leika hennar, miklu fremur dýpkað
þá, skerpt og skýrt. Vel munum við
systur, frænkurnar fimm að sunn-
an, gestrisni hennar, gjafmildi og
góðvild, enda notið þessara eigin-
leika Valgerðar oft er við heimsótt-
um hana á sólríkum sumardögum
í hennar fagra og gróðursæla
heimabæ, Akureyri. Við nutum þar
með Valgerði og Tótu dóttur henn-
ar gróðursins, tijánna, blómanna
og rósanna, sem alltaf döfnuðu svo
vel hjá Völlu frænku. Þótt stundum
drægi ský fyrir sólu var ávallt sól
í sinni hjá þeim mæðgum Valgerði
og Þóru Franklín. Oft yljuðum við
okkur við geisla þessarar sólar, sem
í hugum okkar mun skína áfram
löngu eftir að komið er sólarlag í
Svarfaðardalnum, sveitinni sem
Valgerður ann svo mjög.
Valgerður giftist Jónasi Franklín
Jóhannssyni, sjómanni og verka-
manni á Akureyri árið 1913 og lifði
með honum í farsælu hjónabandi
þar til hann lést, 73 ára að aldri,
4. júlí 1956. Jónas var hæglátur,
traustur og afar geðþekkur maður.
Þeim varð tveggja barna auðið.
Eldri var Jóhann Friðrik Franklín
bakarameistari, fæddur 26. júlí
1916 en dáinn 5. október 1978.
Hann var kvæntur Maríu Jóhönnu
Jóhannesdóttur frá Engimýri í
Öxnadal. Yngri var Þóra Rósa
Franklín, fædd 7. mars 1919 en
dáin 28. desember 1985. Hún gift-
ist Ólafi Daníelssyni, klæðskera-
meistara frá Hvallátrum á Breiða-
firði. Frá börnum þeirra Valgerðar
og Jónasar Franklín er kominn
fríður hópur barna, barnabarna og
barnabarnabarna.
Valgerður hefur lengst af fylgst
vel með öllu því sem við ber í heima-
byggð og lífi þjóðarinnar allrar og
aldrei legið á liði sínu þegar þjóð-
þrifa- og líknarmál eiga í hlut. Hún
tók virkan þátt í starfi Slysavarna-
félags íslands og Góðtemplararegl-
unnar á Akureyri og er þar heiðurs-
félagi með heiðursmerki Reglunnar.
1.167.101 kr.
Vinningsröðin 29. apríl:
X12-21X-112 - 222
12 réttir = 816.977 kr.
2 voru með 12 rétta-og fær hvor í sinn hlkut kr. 408.488,-
11 réttir = 350.124 kr.
38 voru með 11 rétta-og fær hver í sinn hlut kr. 9.213-.
Senn fer að vora við Eyjafjörð
og sú tíð nálgast þegar saman renna
í miðnætursól, sólarlag og sólar-
upprás. Megi ársól nýrrar aldar á
æviskeiði þínu, Valgerður frænka,
verða eins björt og hlý og sú sól
er þar hefur nú skinið í eitt hundr-
að ár. Þess óska heilshugar frænk-
ur þínar fimm að sunnan um leið
og þær senda þér kærar kveðjur á
þessum tímamótum.
Auður Garðarsdóttir