Morgunblaðið - 03.05.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.05.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989 33 Yfir 160 milljónir fyrir þriggja stunda útsendingu * Island númer 20 á þátttakendaskránni Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunbladsins. Þátttakendur í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva eru mættir til leiks í Lausanne i Sviss. Keppnin verður haldin í hátí- ðasal Palais de Beaulieu, funda- og konserthöll borgarinnar, laug- ardagskvöldið 6. mai n.k., klukkan 19 til 22 að íslenskum tíma. Æfingar og upptökur á „póstkortum", sem verða sýnd fyrir hvert lag, standa alla vikuna en lokaæfing verður haldin á föstudaginn og keppnisdaginn sjálfan. ísland er númer 20 á þátttakendaskrá svo Daníel A. Haraldsson flytur lagið „Það sem enginn sér“ eft- ir Valgeir Guðjónsson þriðji síðastur í keppninni. Svisslendingar hafa lagt hart að sér við undirbúning keppninn- ar. Hún kostar þá um 5 milljónir sv. franka (yfir 160 milljónir ísl. kr.). Stuðningsfyrirtæki keppn- innar, eins óg til dæmis SONY, Kodak og Jacobs Suchard, bera hluta kostnaðarins en svissneska sjónvarpið bróður partinn. Fjögurhundruð fermetra svið Sviðinu, sem listamennirnir koma fram á, er skipt í þrennt og nær yfir um 400 fermetra svæði. Mikill ljósaleikur, speglar og hreyfanlegir veggir eiga að lífga upp á bakgrunn söngva- ranna og kynnanna tveggja. 55 manna hljómsveit, sem Benoit Kaufman stjórnar, leikur undir. 650 hljómlistamenn í Sviss sóttust eftir sæti í hljómsveitinni. 110 þeirra var boðið að leika fyrir Kaufman og hann valdi helming þeirra til liðs við sig. Keppendum er heimilt að mæta með sinn eig- inn stjómanda. Finnar hafa gert það síðan þeir hófu þátttöku og mun Ossi Runne nú stjóma hljóm- sveit í Evrópukeppninni í 24. sinn. Kaufman er Frakki, fæddur í París árið 1946. Hann hóf tónlist- arnám 8 ára gamall og byijaði að semja sex ámm seinna. Hann hefur unnið náið með mörgum frönskum stjörnum og lög eftir hann hafa komist á franska vin- sældalistann. Hann hefur samið tónlist fyrir balett, kvikmyndir, leikhús og sjónvarp og hann rak tvö upptökuver í París til skamms tíma. Charles Hernu, varnarmála- ráðherra Frakka, fól honum að semja tónlist fyrir sjónvarpsþætti um franska herinn og hátíðlegt herlag árið 1983. 350 manna hljómsveit fmmflutti bæði verkin sama ár. Kaufman hefur síðan starfað í Lausanne. F egnrðardrottning' kynnir keppnina ásamt íþróttafréttamanni Kynnarnir tveir em velkunnir í frönskumælandi hlutanum í Sviss. Lolita Morena er fædd á Ítalíu haustið 1960 en fluttist þriggja ára gömul til Sviss. Hún lagði stund á sögu og tungu Forn- Egypta og tungumál eftir stúd- entspróf. Hún talar frönsku, ítölsku, spönsku, þýsku og ensku reiprennandi. Hún var fegurðar- drottning Sviss 1982 og fjórða í „Miss World“ og „Miss Universe". Hún var kjörin ljósmyndafyrir- sæta heims („Miss Photogenic Universe") árið eftir og hefur síðan aðallega starfað sem fyrir- sæta en einnig verið kynnir í ýmsum sjónvarpsþáttum, gefið út plötu í París og ferðast um og komið fram með spánska söngvar- anum Julio Iglesias. Ferill Jacques Deschenaux er ekki eins litskrúðugur. Hann er 44 og hefur verið íþróttafrétta- maður hjá sjónvarpinu síðan 1973. Hann vakti athygli 1972 er hann skrifaði ævisögu vinar síns, svissneska kappakstur- skappans Jó Siffert, sem lést í Bretlandi 1971. „Lallað“ í lok fyrstu keppninnar 22 þjóðir taka þátt í Söngva- keppninni að þessu sinni. Palais de Beaulieu tekur 2.000 manns í sæti en keppninni verður sjón- varpað beint til um 30 ríkja. Búist er við að 400 til 600 milljónir horfi á hana. Þetta er í þriðja skiptið sem Svisslendingar halda Söngva- keppni evrópskra sjónvarps- stöðva. Þeir riðu á vaðið árið 1956 en þá tóku sjö þjóðir þátt í keppn- inni og henni var sjónvarpað beint til tíu ríkja og útvarpað til sjö. Svissneska lagið „Refrains“, sem söngkonan Lys Assia flutti, vann. Sigurinn tók svo á hana að hún gleymdi alveg textanum þegar hún átti að syngja lagið aftur og hún „lallaði" bara sigurlagið við undirleik hljómsveitarinnar í lok útsendingarinnar. Kanadíska söngkonan Celine Dion vann keppnina fyrir Svisslendinga í fyrra. Unnið að stoftiun Lands- Framkvæmdastjórinn Jónas Halldórsson. Morgunbiaðið/Júiíus „Hef starfrækt út- sölumarkaði í tíu ár“ segir Jónas Halldórsson Útsölumarkaður er á annarri hæð JL-hússins um þessar mund- ir. „Þetta er starfrækt á sömu nótum og markaðurinn í Kola- portinu og fólk fær sama góða verðið og þar. Munurinn er ein- faldlega sá, að ég er búinn að Umferðarslys Fimm ára telpa varð fyrir bíl FIMM ára telpa slasaðist mikið þegar hún varð fyrir bíl á Hringbraut í Hafnar- firði sl. fóstudag. Hún er nú á batavegi. Telpan var á reiðhjóli og fór fyrir bíl, sem ekið var eftir Hringbraut. Hún skall framan á bílnum og var flutt á slysa- deild. Þar kom í ljós að hún var höfuðkúpubrotin og lá hún á gjörgæsludeild þar til á mánu- dag. Hún er nú á batavegi. starfrækja svona markaði í tíu ár og það er eins og núna fyrst sé dijúgur hluti þjóðarinnar að vakna upp við það að það er ekkert niðurlægjandi eða athug- unarvert við að versla hagkvæmt og ódýrt,“ sagði Jónas Halldórs- son framkvæmdasljóri Útsölu- markaðarins í samtali við Morg- unblaðið. „Hjá mér fást til dæmis góð vöru- merki fyrir brot af því verði sem varningurinn myndi kosta út úr búð. Þetta er gott mál fyrir heildsal- ana sem geta komið birgðum í verð og þetta er enn betra mál fyrir við- skiptavinina sem gera góð kaup,“ sagði Jónas. Jónas sagði ennfremur, að þessi söluaðferð væri við lýði út um allan heim og sjálfur hefði hann fyrst séð slíkt í Bandaríkjunum fyrir tíu árum. „Þá varð þetta að hugsjón hjá mér og hef ég starfrækt slíka markaði síðan. íslendingar hafa verið seinteknir með svona verslunarháttum, en þetta er allt að koma og öldin orðin önnur,“ bætti Jónas við. sambands aldraðra í LOK apríl var haldin í Reykjavík ráðstefiia á vegum Félags eldri borgara til undirbúnings að stofnun Landssambands aldraðra. Aformað er að halda stofnfund sambandsins á Akureyri þann 19. júní og var kosin fimm manna nefiid á ráðsteftiunni til að annast allan undirbúing. I frétt frá Félagi eldri borgara um þetta mál segir m.a. að sam- bandinu sé ætlað að vinna að hags- munamálum aldraðra og koma fram fyrir hönd aðildarfélaganna gagn- vart alþingi, ríkisstjórn og öðrum sem hafa með málefni aldraðra að gera fyrir landið í heild. Að öðru leiti munu félögin starfa sjálfstætt. Rétt til aðildar hafa félög fólks sem er 60 ára eða eldra. Landssamband- ið á að stuðla að samvinnu þessara félaga og vinna að stofnun nýrra í þeim héruðum sem þau hafa ekki verið stofnuð. Landsfund Landssambands aldr- aðra á að halda annað hvert ár og fer hann með æðsta vald í málefn- um félagsins. A landsfundi sitja 2 fulltrúar frá hveiju aðildarfélagi en félög með yfir 500 félagsmenn fá viðbótarfulltrúa. í fréttinni segir ennfremur að margt þarfnist nú lagfæringar varðandi málefni aldraðra. Má þar nefna sem dæmi að enginn getur lifað af núverandi ellilífeyri og tekjutryggingu. Húsnæðismál eru mikið vandamál en æskilegt sé að fólk geti lifað eðlilegu og sjálfstæðu lífí í eigin húsnæði sem lengst. í niðurlagi fréttarinnar segir svo: „Það er því tímabært að sameina þau félög sem vinna að málefnum aldraðra í eitt stórt samband sem auðveldar baráttu fyrir hinum ýmsu nauðsynjamálum sem sameiginleg eru öllum burt séð frá búsetu.“ Verslunarhús þrotabús Verslunar Sigurðar Pálmasonar var slegið Olís á 7,3 milljónir 26. apríl sl. Hvammstangi; Olís slegið verslunarhús Hvammstanga. ANNAÐ og síðara uppboð á fast- eignum Verslunar Sigurðar Pálmasonar hf. á Hvammstanga fór fram miðvikudaginn 26. apríl. Lögmaður Olís átti hæsta boð í 600 fermetra verslunarhús þrotabúsins, 7,3 milljónir króna. Sölu á slátur- og frystihúsi var frestað til 10. mai. Sýslumaður Húnvetninga stjóm- aði uppboðinu, sem fór fram í húsa- kynnum þrotabúsins að viðstöddum lögmönnum helstu veðhafa auk bústjóra. Lögmenn Olís, Sparisjóðs V-Húnvetninga og Verslunarlána- sjóðs buðu í verslunarhúsið sem stendur við Höfðabraut. Að sögn fjármálastjóra Olís, Ríkharðs Ottós Ríkharðssonar, var OIís með þess- um kaupum að leitast við að tryggja hagsmuni sína. Lét hann að því liggja að Olís hygðist leigja hús- næðið til rekstrar, en Vöruhús Hvammstanga hf. hefur leigt hús- næðið af bústjóra þrotabúsins. Við uppboð á slátur- og frystihús- inu kom fram beiðni frá ríkissjóði um frestun, sem uppboðshaldari tók til greina. Þá hafði Sparisjóður' V-Húnvetninga boðið hæst, 3,5 milljónir króna. Var ákveðið að þriðja og síðasta uppboð á eigninni yrði 10. maí. - Fréttaritari Fiskverð á uppboðsmörkuðum 2. maf. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnaríirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 50,00 34,00 46,71 24,873 1.141.758 Þorskur(ósL) 43,50 39,00 41,19 4,509 165.725 Þorsk(smár) 15,00 15,00 15,00 0,118 1.763 Ýsa 60,00 25,00 45,75 3,398 151.326 Ýsa(ósl.) 95,00 35,00 35,03 0,018 613 Karfi 30,00 24,00 29,49 4,723 139.260 Ufsi 22,00 19,00 20,19 25,067 506.156 Steinbítur 25,00 15,00 20,88 5,164 107.541 Steinbítur(ósL) 15,00 15,00 15,00 0,146 2.188 Langa 25,00 15,00 24,75 1,975 48.872 Lúða 285,00 145,00 241,68 1,163 280.951 Grálúða 38,00 35,50 36,72 121,050 6.647.512 Keila 10,00 10,00 . 10,00 2,871 281710 Skata 40,00 40,00 40,00 0,032 1.280 Skötuselur 125,00 100,00 115,14 0,109 12.050 Skötubörð 126,00 126,00 126,00 0,031 3.706 Hrogn 118,00 118,00 118,00 59,50 7.021 Samtals 36,40 255,220 7.289.148 I dag verða meöal annars seld 23 tonn af þorski og 2,5 tonn af steinbít úr Núpi ÞH, 2,5 tonn af steinbít frá Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur og óákveðið magn af blönduðum afle i úr ýmsum bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 48,00 26,00 44,16 18,271 806.757 Þorsk(ósl.l.bL) 40,00 30,00 36,53 1,665 60.474 Þorsk(smár) 30,00 21,00 26,96 0,228 6.147 Ýsa 69,00 37,00 52,58 2,357 123.936 Steinbítur 15,00 15,00 15,00 0,083 1.245 Skarkoli 42,00 42,00 42,00 0,019 798 Hrogn 65,00 65,00 65,00 0,020 1.300 Blandað 12,00 12,00 12,00 0,46 552 Samtals 44,13 22,689 1.001.209 Selt var úr faera- og netabátum. i dag verður selt úr Freyju RE og bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur(ósL) 44,50 30,00 42,82 19,349 828.600 Ýsa 47,00 13,00 37,13 45,064 1.673.426 Ufsi 27,00 15,00 25,80 11,778 303.818 Karfi 29,00 28,00 28,34 9,773 276.922 Lúöa 225,00 160,00 200.00 0,323 64.685 Skarkoli 46,00 37,00 44,71 2,420 108.207 Keila 9,00 9,00 9,00 0,400 3.600 Lax 225,00 225,00 225,00 0,096 21.600 Samtals 36,78 89,326 3.285.822 Selt var aðallega úr Þuríði Halldórsdóttur GK, Sigurði Þorleifs- syni GK og Voninni KE. í dag verða meðal annars seld 13 tonn af ufsa, 5 tonn af karfa, 3 tonn af ýsu, 2,5 tonn af steinbít og hlýra og 4 stórlúður úr Gnúpi GK, 1,5 tonn af skarkola frá Mið- nesi hf. og 15 tonn, aðallega af þorski, ýsu, keilu og löngu úr Eldeviar-Boða GK.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.