Morgunblaðið - 03.05.1989, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989
Við rýmum til
fyrir nýjum vörum
og bjóðum góðan afslátt
af góðu verði.
Ath: Stendur aðeins til 13. maí.
Verið velkomin.
Vid erum i
„Nútíðu
Faxafeni 14,
sími 680755
HUSGOGN
Sérmerkjum
ölglös
Sérmerkjum ölglös
með skemmtilegum
teikningum eða eftir
ykkartillögum!
V *
V
Höfðabakki 9
Reykjavík s. 685411
Sambandsúlfurinn
Reykjavíkurmær skrifar:
Sambandsúlfurinn er að gleypa
Reykjavík, góðir hálsar og virðast
ekki vera neinar hömlur á því hvað
þeir geta og gera. Það er ekki ýtt
við þeim, það virðast allir viija vera
með þeim í ósómanum.' Ég kalla
það ósóma á meðan þeir ekki standa
fyrir dreifbýlinu, sem það var nú
aðallega stofnað fyrir. Enda er það
margur sveitamaðurinn sem hefur
farið flatt í SÍS.
Hvar er nú dugnaðurinn í okkur
Reykvíkingum? Eg leyfi mér að
benda þeim mönnum á, sem eitt-
hvað hafa að segja í þessu þjóð-
félagi: „Maður líttu þér nær, Það
liggur í götunni steinn." Sambands-
úlfurinn er að gleypa þéttbýlið. Ef
þið lesið blöðin þá virðist annað
hvert orð finnast í einhverri grein
og alltaf á uppleið. Sýnishorn: Það
er komið í samkrull við Brunabót,
Álafoss, Saumastofuna Sólin, ís-
lenska aðalverktaka og ekki má
gleyma aðalútflutningsvörunni okk-
ar, sjávarafurðunum. Erykkur ekki
farið að undra hvaðan peningarnir
koma og hvað þeir geta gert mikið
án þess að gera hreint fyrir sínum
dyrum við kaupfélögin eða fólk
dreifbýlisins. Ég spyr ykkur hátt-
virtir ráðamenn þessarar þjóðar:
Hvað haldið þið að verði langt í að
þeir verði allsráðandi í þessari borg?
Hvaða dauðyfli erum við að verða
Reykvíkingar? Spyr sá sem ekki
veit. En stjórnmálamenn þessarar
þjóðar: „Varið ykkur á úlfinum.
Hann gæti gleypt ykkur.“
Síðan vii ég beina orðum mínum
til háttvirts utanríkisráðherra sér-
staklega. „Vertu ekki svona um-
komulaus milli þessara tveggja
flokka sem eru með þér í ráðum.
Þú ert vel gefinn maður. Settu fót-
inn milli stafs og hurðar áður en
það er of seint. Og burt með sam-
starfið með þessum tveimur flokk-
um, þá bjargar þú æru þinni og
þjóð um leið.“
Fyrirmyndar útstilling
Kentruck
Vandaðir
lyftarar á
lægsta verðinu
ÁRVÍK
ÁRMÚLI 1-REVKJÁVlK-SlMI 687222 -TELEFAX 687296
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
|HiOy0íiímhfehíiííj>
Til Velvakanda.
Mig langar til að minnast á það
sem vel er gert og koma þakklæti
til þeirra sem vel gera. Ég átti leið
um Langholtsveginn um páskana
og leit þar í glugga nokkurra versl-
ana, þ.á m. raftækjaverslunar sem
er á horni Langholtsvegar og
Snekkjuvogs. Það verð ég að segja
að verslunareigandinn á hrós skilið
Ungmenna-
félagar
hreinsa landið
Til Velvakanda.
Ungmennafélögin sýna lofsvert
framtak með því að beita sér fyrir
hreinsunarherferð um allt iand í
næsta mánuði. Að undanteknum
uppblæstrinum og gróðurleysinu er
ruslið og sóðaskapurinn eflaust
mesta umhverfisvandamál íslands.
Úr því ætti að bæta og vonandi
verður þetta árlegt framtak hjá
þeim. Með hreinsuninni eru félögin
að skapa sér verðugan vettvang,
sem hefur mikið hagnýtt og uppeld-
islegt gildi. í þessu skyni mætti öll
þjóðin gerast ungmennafélagar um
eina helgi ár hvert.
fyrir sérstaklega snyrtilega útstill-
ingu og greinilegar verðmerkingar.
Það mættu margir verslunareigend-
ur taka sér þennan glugga til fyrir-
myndar. Ef ekki er opið getur fólk
samt séð hvað varan kostar og því
komið seinna og verslað. Sem sagt:
Til fyrirmyndar.
Gunnar Halldórsson
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspurnir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fyigja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Borgarbúi.