Morgunblaðið - 03.05.1989, Qupperneq 16
16
i......
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989
Nú stendur yfir dreifing á sumarstarfs-
bæklingi íþrótta- og tómstundaráös Reykjavíkur.
Að vanda er í bækiingnum að finna
upplýsingar um nánast alla þá starfsemi
sem félög, samtök og stofnanir í Reykjavík
gangast fyrir nú í sumar.
Bæklingnum er
dreift til allra nemenda grunnskólanna í
borginni og eru foreldrar hvattir til að kynna
sér vel ásamt börnum sínum þá möguleika
sem þar er að finna.
Innritun í starf á
vegum íþrótta- og tómstundaráðs hefst á
sérstakri innritunarhátíð í Laugardalshöll
laugardaginn 20. maí kl. 13.00-17.00.
BNIW
FIMMAN
VEKUR ÞIG UPP
AF DRAUMI.
MYNDVERK UM
GAGNRÝNI
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
í anddyri Norræna hússins getur
þessa dagana að líta nokkur mynd-
verk, er gerð voru í tilefni mál-
þings um listir og listgagnrýni, sem
nú er nýlokið. Myndverkin áttu
víst að fjalla um viðhorf viðkom-
andi listamanna til listrýni og lis-
trýnenda og eru aðallega eftir
myndlistarmenn er teljast af yngri
kynslóð.
Er slík framkvæmd ákaflega
norrænt fyrirbæri því að sjálfsögðu
er slíkt þing haldið fyrir alla aldurs-
hópa og því ættu einnig allir ald-
urshópar að vera virkjaðir í slíka
framkvæmd — annað er mismun-
un. Og að auki er ungur listamað-
ur ákaflega teygjanlegt hugtak.
Upplýsingar um myndverkin
liggja hvergi frammi, og ekki var
einu sinni ljósritaður blöðungur
sjáanlegur með einföldustu upplýs-
ingum fyrir gest og gangandi þau
tvö skipti er mig bar að garði.
Lakara er svo að illa er staðið
að upphengingunni og það klúðurs-
lega, að ég minnist ekki að hafa
séð annað eins á þessum ágæta
stað. Þvert á móti minnist ég
margra mjög vel upp settra sýn-
inga.
Er það von mín að sjálft mál-
þingið hafi hlotið betri umbúðir og
að þetta sé ekki lýsing á því og
framkvæmdunum í kringum það í
hnotskurn. Sjálf myndverkin eru
svo allt annar handleggur því að
það er broddur í þeim sumum en
þó ber á því að einstakir hafi ekki
skilið tilganginn til fulls. Dæmi um
einfalda lausn, sem bæði gæti tal-
ist kímin og beinskeitt, er t.d.
mynd Tuma Magnússonar og
sannfærðist ég enn frekar um það
við seinni skoðun. Tók ég eftir, að
fleiri voru mér sammála, og mætti
því ætla að hún vinni á, og vissu-
lega hefði hún verið upplögð á
veggspjald og þá jafnvel enn frem-
ur en sú stásslega mynd Helga
Þorgils sem valin var, þótt fullboð-
leg væri.
Það er alveg rétt sem segir, „að
listrýni eigi alltaf rétt á sér ef hún
er vel unnin og af fólki, sem vissi
um hvað það væri að ijalla“, og
sama er hægt að segja um fram-
kvæmd sem slíka, að hún eigi full-
komlega rétt á sér ef kunnáttu-
Morgunblaðið/Sverrir
Þrjú úr framkvæmdaneftid Málþingsins með veggspjald þingsins,
eftir Helga Þorgils Friðjónsson, frá vinstri: Einar Jóhannesson klar-
inettleikari, Lisa von Schmalensee lektor og Lars Áke Engblom for-
stjóri Norræna hússins.
menn standa að baki framkvæmd-
unum.
Hér hefði vel upp sett sýning
skilað mun eftirminnilegri árangri.
V atnslitamyndir
Ekki er langt síðan haldin var
stór og mikil sýning á málverkum
og vatnslitamyndum Eiríks Smith
í menningarmiðstöð þeirra Hafn-
firðinga, Hafnarborg.
Og nú hefur Gallerí Borg nýlok-
'fe?
ið við að kynna 22 nýjar vatnslita-
myndir eftir listamanninn. Sýning-
unni lauk 2. maí.
Á sýningunni í Hafnarborg voru
það vatnslitamyndirnar, sem vöktu
langmesta athygli mína fýrir fersk-
leika sinn og upplifaðar stemmn-
ingar frá náttúrunni. Málverkin
voru meiri skáldskapur, sem á
glæsilegan hátt var færður í
stílinn.
Hvað þessa sýningu áhrærir, þá
er bæði um landslagsstemmningar
og skáldskap að ræða, og hin
glæsilegu pensilstrik eru ræktuð
til fulls, ásamt snöggum sveiflum
og áhrifamiklum ljósbrigðum, er
skera iðulega myndflötinn.
Skipta má sýningunni í tvennt,
sem eru hinar stóru myndir í neðri
sal og hinar smærri á palli, eða
efri sal. Og ólíkt þykja mér hinar
stóru myndir hrifmeiri hinum
smærri. Þykist ég kenna þar skyld
vinnubrögð og í abstrakt-expressj-
óníska tímabilinu hjá Eiríki, hvað
fersk og lifandi vinnubrögð snertir.
Á stundum trufla mig andlitin
og verurnar í myndum Eiríks, sem
mér finnst hann hafa leitað full
mikið til á undanförnum árum og
gjarnan glata töfrum sínum, með
þessum stöðugu endurtekningum.
Og þannig hreifst ég einna mest
af þeim myndum, þar sem þeirra
sér ekki stað.
Sýningin ber nokkurn keim af
því, að allar myndimar eru unnar
á þessu ári og þannig virka þær
mest sannfærandi, sem hann hefur
lagt mesta alúð við og nær að
bregða upp mjög sannfærandi lit-
brigðum úr náttúrunni.
Og eins og fleiri sýningar Eiríks
Smith þá er þessi engin undantekn-
ing, hvað þrótt og frískleika snert-
ir, er svo marga hrífur upp úr skón-
um...
Nú er vandi að velja!
Eiríkur Smith listmálari.