Morgunblaðið - 03.05.1989, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989
Herfluffvöllur
efitir Vigfus B.
Jónsson
Þriðjudaginn 18. apríl sl. birtist
á forsíðu Alþýðublaðsins undir feit-
letaðri fyrirsögn og tilheyrandi
kveinstöfum um illt atvinnuástand
á Norður- og Norðausturlandi frétt
af undirskriftasöfnun í Þingeyjar-
sýslum. Tilgangur undirskriftanna
er greinilega sá, að fá NATO-her-
flugvöll lagðan austur í Aðaldals-
hrauni sem næst því á blábökkum
drottningar hinna íslensku fall-
vatna, Laxár í Aðaldal. Trúlega er
það ekki tilviljun, að Alþýðublaðið
leggur mikla áherslu á þessa frétt,
því utanríkisráðherra Jón Baldvin
Hannibalsson hefur gert sér far um
að setja þrýsting á þetta NATO-
flugvallarmál.
Ekki er mér kunnugt um, hversu
staðið hefur verið að téðri undir-
skriftasöfnun né árangur af henni
og tek lítt mark á sögum þar um.
Hitt þykir mér trúiegt, að ýmsir
þeir, sem léð hafa nöfn sín á undir-
skriftalistana, hafi ekki að fullu
gert sér grein fyrir, hvað þeir eru
að biðja um. Einmitt það er tilefni
þess, að ég set hér nokkrar línur á
blað. Nú hefur mál þetta ýmsar
hliðar og er ekkert einkamál
Húsvíkinga og Þingeyinga. Þetta
mál er að sjálfsögðu mál íslensku
þjóðarinnar í heild frá öllum sjónar-
miðum séð. Það er raunar eðlilegt
að peningalykt leggi af framkvæmd
upp á milli 10 og 20 milljarða króna
og þá ekki hvað síst nú, þegar illa
er búið að undirstöðuatvinnugrein-
um þjóðarinnar. Gallinn er bara sá,
að þegar peningalyktin er sterk, þá
er það gjaman þefnæmið sem ræð-
ur ferðinni, en ekki sjónin og því
hættar við að menn beri af leið.
Ef til þessarar framkvæmdar kæmi
yrði að sjálfsögðu mikil uppsveifla
í atvinnulífínu umhverfís hana um
u.þ.b. þriggja ára skeið, en ekki
sýnist mér nú, að allir gulllækimir
mundu renna ofan í vasa Húsvík-
inga og Þingeyinga. Hitt fínnst mér
trúlegra að margir mundu yfírgefa
undirstöðuatvinnugreinamar til að
taka þátt í gullæðinu og síðan meira
og minna skolast burt ásamt ýmsu
öðru, þegar útfallið kæmi, sem
vissulega yrði afdrifaríkt. Að því
loknu er næsta óljóst, hver staða
þeirra atvinnugreina væri, sem
staðið hafa undir góðu mannlífi á
Húsavík og í Þingeyjarsýslu. Menn
mættu gjaman minnast þess, hver
örlög byggðra bóla á Langanesi
urðu í sambandi við mannvirkin á
Heiðarfjalli o.fl. því hliðstætt. En
hvaða augum sem menn líta at-
vinnumálin í þessu sambandi og
hvernig sem málið þróast, þá munu
ár líða áður en sjálfur gullkálfurinn
kemur og því of snemmt fyrir menn
að stinga höndum í vasa og hefja
biðstöðuna. Margir eru haldnir
þeirri bamalegu skoðun, að NATO
muni byggja slíkt mannvirki ári
þess að nota það nema á ófriðartím-
um.
í því sambandi er vert að vekja
athygli á því, að æfíngarflug hljóð-
frárra hervéla er mjög óvinsælt á
þéttbýlissvæðum Vestur-Evrópu og
herþotuflugmenn þaðan að hluta til
þjálfaðir yfír stijálbýlu svæði á
Nýfundnalandi. Það skyldi nú bara
aldrei vera, að þeim hjá NATO hefði
dottið í hug, að nýta stijálbýlið í
Þingeyjarsýslu til æfingaflugs og
láta umhverfi vallarins njóta þeirra
unaðsóma og slysahættu, sem
hljóðfráum herþotum fylgir? í leið-
inni væri svo kominn stuðpúði fyrir
vissa aðila, ef til styijaldarátaka
kæmi. Það er vafalaust betra að
hafa ekki öll skotmörkin heima hjá
sér. Þá er það illskiljanleg hemað-
arkúnst að byggja fullkominn her-
flugvöll og láta hann liggja óvarinn
svo gott sem við fætuma á hugsan-
legum óvini, sem tæpast mundi nú
boða komu sína fyrirfram, ef í það
færi. Það mætti alveg segja mér,
að teygt yrði duglega á orðinu „frið-
artimar", ef þurfa þætti og vissu-
lega sýnist einu og öðru mega koma
fyrir á því athafnasvæði, sem vellin-
um er ætlað. íslendingar hafa löng-
um viljað leggja sinn skerf til friðar
í heiminum og séð hef ég fólk við
þá fögru iðju, að ganga friðargöngu
með friðarljós í annarri hendinni.
Það er því heldur en ekki þversagn-
arlegt nú, að sjá sumt af þessu
fólki svo gott sem að taka sér kröfu-
spjald í hina höndina og krefjast
lagningar herflugvallar í næsta
nágrenni sínu. Meginþorri íslend-
inga vill hafa varið land og hafa
vissulega haft ástæður til þess, en
þeir hinir sömu verða að gera sér
grein fyrir því, að heimsmyndin er
breytt frá því, sem var árið 1949,
þegar við gengum í NATO. Austur
í Moskvu er maður að nafni Gorb-
atsjov, sem sannanlega hefur reynt
að höggva klakaböndin af þjóð
sinni, leiða hana til betra mannlífs
og draga úr hemaðarstefnu. Þessi
maður á án efa gnótt óvildarmanna
í heimalandi sínu, sem feig vilja
störf hans og stefnu. Lagning her-
flugvallar hérlendis nú yrði ömgg-
lega ekki hjálp til handa Gorbatsjov
og félaga hans, heldur trúlega mik-
ið vatn á myllu andstæðinganna og
vel fallið til að auka spennuna við
norðaustanvert Atlantshaf, - sem
nóg er þó fyrir. Það væri því ekk-
ert smáræðis friðartillegg hjá okkur
íslendingum að bæta við okkur
herflugvelli, eða hvað sýnist mönn-
um? Við í þessum heimshluta höfum
lifað við svokallaðan vopnaðan frið
frá síðustu heimsstyijöld og fínnst
nú mörgum tími til kominn, að frið-
urinn hvíli á traustari undirstöðum,
en vopnunum einum, t.d. breyttum
hugsunarhætti og vinsamlegri sam-
skiptum þjóða. Það er líka tími til
kominn, að núverandi utanríkisráð-
herra geri þjóð sinni trúverðuga
grein fyrir því, hvað það er, sem
svo mjög knýr á um nýjan herflug-
völl hérlendis nú fremur en áður.
En nóg um það.
Enginn getur svo minnst á her-
flugvöll í Aðaldalshrauni án þess
að náttúruvemdarsjónarmið séu
rædd sem gildur þáttur og mat lagt
á það, hversu mörgum náttúruperl-
um við höfum efni á að fóma, eða
setja í stórhættu. Laxár- og Mý-
vatnssvæðið er sérstaklega lög-
vemdað, enda ekki undarlegt þar
sem svæðið er ein sérstæðasta nátt-
úmperla á gjörvöllu norðurhveli
jarðar, bæði hvað lífríki og fegurð
snertir. Ef marka má þau riss, sem
ég hef séð af hinum umrædda flug-
velli, þá teygir hann norðausturhorn
öryggisbrautar sinnar út í Laxá.
Staðreyndin er sú, að þótt hann sé
fyrirhugaður lítið eitt vestar en
gamli völlurinn þá kemur hann mun
nær ánni af þeim sökum, að hann
mun ná 1,6 km norðar og svo því,
að blessaðri ánni þóknast ekki að
renna í beinni loftlínu. Hún ferðast
þama með austuijaðri hraunsins,
sem hvergi er nærri beinn. Auðvitað
skiptir það ekki sköpum, hvort þessi
flugvöllur yrði lagður einhveijum
spöl austar eða vestar, því segja
má að í öllu falli yrði hann að hluta
til byggður ofan á Laxá, því svo
marga farvegi á hún bæði undir og
í hrauninu, víðsvegar. Af þeim sök-
um getur vart svæði, sem er jafn
berskjaldað fyrir olíu- og efnameng-
un, og er þá Skjálfandaflói að sjálf-
sögðu inni í dæminu. Olíuslýs hljóta
að vera afdrifarík í slíku umhverfi,
en þau em tíð fyrirbæri eins og
kunnugt er. Við Islendingar emm
nú búnir að hafa búsetu í okkar
landi í yfir 1100 ár og lengst af
þeim tíma umgengist náttúmna án
tillits til afleiðinganna. Slíkt verðum
við auðvitað að fyrirgefa formæðr-
um okkar og forfeðmm vegna
harðrar lífsbaráttu á liðnum öldum,
Vigfus B. Jónsson
„ Að öllu samanlögðu
finnst mér að þeir, sem
nú vilja óragir í þágu
hernaðarmannvirkis
taka þá áhættu, er hér
um ræðir, ogþað við
lífeeð mikillar náttúru-
perlu, þurfi ekki að
bregðast ókvæða við,
þótt til vamar sé snú-
ist.“
þegar teflt var við hungurvofuna
um líf eða dauða. En nú á tímum
þekkingar, tækni og mikilla tæki-
færa hlýtur mönnum að vera skylt
að fara með allri gát. Þess skal og
getið, að fólk, sem alla ævi hefur
lifað við bijóst náttúmnnar og leit-
ast við að bæta hana og veija áföll-
um, hefur vanalega ei litlar tilfinn-
ingar til hennar. Því líkt finnst auð-
vitað sumum allt að því óleyfilegt,
enda þótt ókannað sé, hversu hinir
sömu brygðust við, ef byggja ætti
herþyrlupall í blómagarðinum
þeirra.
Að öllu samanlögðu finnst mér
að þeir, sem nú vilja óragir í þágu
hemaðarmannvirkis taka þá
áhættu, er hér um ræðir, og það
við lífæð mikillar náttúmperlu,
þurfi ekki að bregðast ókvæða við,
þótt til vamar sé snúist. Sannarlega
vona ég það, að aldrei reyni á þær
vamir til hins ýtrasta, heldur nái
menn hinni réttu leið með augun
opin. Því bið ég fólk að fara frið-
samlega í þessu máli og með allri
kurteisi, en kveikja ekki ófriðarbál
að óþörfu. Einnig bið ég fólk að
hugleiða málið frá sem flestum hlið-
um með það í huga, að komi þessi
flugvöllur í Aðaldalshraun, þá er
hann kominn til að vera en ekki til
að fara og örugglega ekki alfarið
á okkar valdi, hvern veg málin þró-
ast umhverfis hann.
Þá finnst mér rétt að vekja at-
hygli á því, að sá flugvöllur, sem
fyrir er hér í Aðaldalshrauni, hefur
ágætlega þjónað samgöngum við
héraðið og ekkert voða verkefni að
auka hann og bæta til stærri hlut-
verka. Það teldi ég verðugra verk-
efnj en lagningu herflugvallar.
Ég vil svo að lokum geta þess,
að grein þessi er ekki skrifuð til
að æpa að skoðunum annarra né
til að munnhöggvast við menn. Hún
er miklu fremur skrifuð í þeim til-
gangi að vekja athygli á því, að hér
er um meiriháttar mál að ræða, sem
snertir hvern einn og einasta íslend-
ing allt frá innstu dölum til ystu
annesja þessa lands.
Slík mál eru þess verð, að þau
séu tekin til rólegrar yfirvegunar.
Það gæti e.t.v. komið í veg fyrir
að upphlaupsmenn og offarar réðu
ferðinni.
Höfundur er bóndi að Laxamýri.
Vetrarlegt um að litast
í Miklaholtshreppi
Borg í Miklaholtshreppi.
SÍÐASTA vetrardag var hér allan daginn hríðarkóf og hvöss norð-
austanátt. Tveggja stiga frost var um morguninn, en seinni part
dagsins komst hitinn í irostmark.
Það er enginn sumarsvipur hér
á umhverfínu, miklar fannir og hús
sums staðar byrgð af snjó og mikið
af túnum á kafi í snjó. Illa hefur
gengið að opna leiðir um Kerlingar-
skarð vegna veðurofsa. Það átti að
moka leiðina síðasta vetrardag og
það tókst að opna rétt um hádegið,
en þá versnaði svo skyndilega veðr-
ið, að allt var orðið ófært aftur.
Bfllinn með snjóplóginum fór út af
og valt, en ekki urðu meiðsli á
mönnum, sem í honum voru. Þá var
orðið mjög þungfært um Heydal,
en Fróðárheiði er fær.
Við sem hér búum erum orðin
leið á þessari sífelldu norðanátt og
illviðrum, sem henni fylgja. Von-
andi er að sumarið sé ekki langt
undan, því það_ er farið að heyrast
í vorfuglum. Óska ég svo lands-
mönnum farsældar á komandi
sumri.
-Páll
Dagur aldraðra
Uppstigningardagur
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Eldra fólki safnaðarins sér-
staklega boðiðtil guðsþjónustunn-
ar. Kaffiveitingar í boði Kvenfélags
Árbæjarsóknar í safnaðarheimilinu
eftir messu. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Sigurbjörn Einarsson biskup préd-
ikar. Eftir guðsþjónustu býður
safnaðarfélag Ásprestakalls eldri
sóknarbörnum til samveru í safn-
aðarheimili Áskirkju. Kaffiveitingar
og almennur söngur. Munið kirkju-
bílinn. Sr. Árni Bergur Sigurbjörns-
son.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Sýning á handavinnu
aldraðra í safnaðarheimilinu eftir
messu. Kaffiveitingar. Hátíðartón-
leikar kl. 17. Sr. Ólafur Skúlason.
Digranesprestakall: Sameiginleg
guðsþjónusta Kópavogssafnaða í
Kópavogskirkju, uppstigningardag
kl. 14. Dagur aldraðra. Sr. Kristján
Einar Þorvarðarson og sr. Þor-
bergur Kristjánsson þjóna fyrir alt-
ari. Sr. Árni Pálsson prédikar.
Samvera í safnaðarheimilinu Borg-
um að lokinni guðsþjónustu. Sókn-
arnefndin.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 14. Dag-
ur aldraðra. Sr. Ólöf Ólafsdóttir
prédikar. Sr. Hjalti Guðmundsson
þjónar fyrir altari. Kaffidrykkja á
Hótel Borg eftir messu. Eldri borg-
urum í söfnuðinum boðið. Sóknar-
nefndin.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Guðmundur Óskar
Olafsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Guðmundur
Karl Ágústsson prédikar. Sr.
Hreinn Hjartarson þjónar fyrir alt-
ari. Kór aldraðra í Gerðurbergi
syngur undir stjórn Sigurbjargar
Hólmgrímsdóttur. Sóknarprestur.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Öldruðum sérstaklega boð-
ið til kaffidrykkju eftir messu. Sam-
koma hjá UFMH kl. 20.30.
Prestarnir.
HJALLAPRESTAKALL í Kópavogi:
Sameiginleg guðsþjónusta safnað-
anna í Kópavogi á uppstigningar-
dag kl. 14. Kirkjudagur aldraðra.
Sr. Kristján Einar Þorvarðarson og
sr. Þorbergur Kristjánsson þjóna
fyrir altari. Sr. Árni Pálsson prédik-
ar. Samvera í safnaðarheimilinu
Borgum að lokinni guðsþjónustu.
Sóknarnefndin.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 14.
Kaffisala Kvenfél. Háteigssóknar í
Sóknarhúsinu Skipholti 50A kl.
15—17. Sr. Tómas Sveinsson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Sameig-
inleg guðsþjónusta allra safnaða í
Kópavogi í Kópavogskirkju kl. 14.
Dagur aldraðra. Sr. Kristján Einar
Þorvarðarson og sr. Þorbergur
Kristjánsson þjóna fyrir altari. Sr.
Árni Pálsson prédikar. Samvera í
safnaðarheimilinu að lokinni guðs-
þjónustu. Sóknarnefndin.
LANGHOLTSKIRKJA: Dagur aldr-
aðra í Langholtskirkju, kirkju Guð-
brands biskups. Guðsþjónusta kl.
14. Prestur sr. Sigurður Haukur
Guðjónsson. Kór Langholtskirkju.
Organisti Jón Stefánsson. Öldruð-
um og ástvinum þeirra er boðið
ásamt vinum okkar, bifreiðarstjór-
um Bæjarleiða og fjölskyldum
þeirra, í veislukaffi eftir athöfnina
í kirkjunni og þá hefst sýning á
munum sem hinir öldruðu hafa
unnið að í vetur. Sýnum þakklæti
okkar til þeirra er réttu okkur hag-
sæld dagsins og fjölmennum.
Sóknarnefnd.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14 á degi aldraðra. Þor-
steinn Ólafsson fyrrv. yfirkennari
prédikar. Kyrkjukórinn syngur.
Kaffi í safnaðarheimilinu eftir
messu í boði sóknarnefndar.
Kirkjukvöld kl. 20.30. Kirkjukórinn
flytur negrasálma o.fl. Þröstur
Eiríksson organisti stjórnar kórn-
um og leikur á orgel. Sr. Bern-
harður Guðmundsson, fræðslu-
stjóri kirkjunnar, ræðir ýmsar hlið-
ar mannlífsins milli tónlistaratriða.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Orgel- og kórstjórn Reynir Jónas-
son. Sr. Ólafur Jóhannsson.
SELJASÓKN: Guðsþjónusta kl. 14.
Dr. Jakob Jónsson prédikar. Kór
Ölduselsskóia syngur í guðsþjón-
ustunni undir stórn Margrétar
Dannheim. Kvenfélag Seljasóknar
býður eldri borgurum til kaffi-
drykkju að lokinni guðsþjónustu.
Kirkjukórinn syngur undir stjórn
Kjartans Sigurjónssonar. Sóknar-
prestur.
SELTJARNARNESKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Veislukaffi verður
borið fram í safnaðarsal kirkjunnar
að lokinni messu. Sighvatur Jónas-
i