Morgunblaðið - 03.05.1989, Side 27

Morgunblaðið - 03.05.1989, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 1989 27 Sviss: Konur fá kosningarétt ZUrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. KARLAR í svissnesku kantónunni Appenzell Ausserr- hoden komu í síðasta sinn einir saman á vellinum í þorpinu Hund- wil um helgina til að ákveða stjóm kantónunnar. Kosningaréttur kvenna var borinn undir þá í fimmta sinn síðan 1972 og þeir sam- þykktu Ioks með naumum meirihluta að veita konum rétt til að greiða atkvæði um málefhi kantónunnar. Allar svissneskar konur hafa haft kosningarétt í þjóðarkosningum síðan 1971. Appenzell Innerrhoden er nú eina hafa ekki kosningarétt í kantónu- kantónan í Sviss þar sem konur kosningum. Þar eins og í Ausserr- EB: Sardínuiðnaður verndaður Brussel. Reuter. Framkvæmdastjórn Evrópu- bandalagsins (EB) kynnti í gær til- lögur um lágmarks gæðakröfur vegna innflutnings á sardínum í dósum til aðildarríkjanna. í yfirlýs- ingu frá stjórninni segir meðal ann- ars að í sardínudósunum megi að- eins vera ein sardínutegund og að 30 af hundraði innihaldsins skuli vera fiskur. Framleiðendur sardínu- dósa í aðildarríkjum bandalagsins hafa varað við því að framleiðsla þeirra geti lagst niður vegna inn- flutnings á ódýrari sardínudósum, aðallega frá Marokkó. hoden halda borgararnir þing undir berum himni einu sinni á ári og greiða atkvæði með því að rétta upp hendina. Karlmenn hafa haldið þessi þing einir í aldaraðir. Karlam- ir í Innerrhoden hafa tvisvar fellt tillögu um kosningarétt kvenna en nú líður væntanlega ekki á löngu þangað til þeir feta í fótspor kyn- bræðra sinna í Ausserrhoden. Ann- ars má búast við að kantónan verði kærð fyrir hæstarétti og þvinguð í jafnréttisátt. Fimmtán þúsund karlar höfðu kosningarétt í Ausserrhoden á sunnudag. Um íjórðungur þeirra gerði sér ferð til Hundwil og þótti þröngt á þingi. 32 þús. manns hafa nú kosningarétt í kantónunni. Ótt- ast er að þingstaðirnir séu orðnir of litlir og bein þátttaka borgaranna jafnvel orðin úrelt. Þingið mun ákveða innan fjögurra ára hvort breyta þarf stjórnarfyrirkomulagi kantónunnar. Sergio Leone látinn Rómaborg. Reuter. SERGIO Leone, einn kunnasti kvik- myndaleik- stjóri Ítalíu, lézt á heimili sínu í Róma- borg á sunnu- Sergio Leone dag af völdum hjartaslags, sex- tugur að aldri. Leone var oft nefndur faðir spagettívestranna en svo nefndust ofbeldisfullar kúrekamyndir, sem teknar voru í heimalandi hans. Hann vann að kvikmynd um umsátrið um Leníngrad er hann dó. Leone var að horfa á sjónvarp er hann lézt. Bandaríkin: Hermálaneftid ræðir við Rússa Washington. Reuter. Hermálanefnd fuiltrúadeildar Bandaríkjaþings hyggst stefna Sergej Akhromejev, marskálki, fyrrum yfirmanni sovézka herr- áðsins og ráðgjafa Míkhaíls Gor- batsjovs, Sovétleiðtoga, í varnar- málum á sinn fund í júní til þess að heyra sjónarmið Sovétmanna og afstöðu þeirra til fyrirhugaðra útgjalda stjórnar George Bush, forseta, til varnarmála. Nefndin mun einnig fara í kynnisferð til Sovétríkjanna nú í maí af sama tilefni. Líbanon: Skotið á að- stoðarmann Arafats Sídon. Reuter. ISSAM Salem, aðstoðarmaður Yassers Arafats, leiðtoga Frelsi- samtaka Palesstínumanna (PLO), særðist alvarlega er grímuklædd- ur maður skaut tveimur skotum í höfuð hans af stuttu færi í Sídon í gær. Talið er að morðtilræðið tengist valdabaráttu innan PLO- manna í Sídon. Norðurlönd: Skiptast á bæjar- starfsmönnum FRÁ og með september næstkom- andi munu bæjar- og sveitarfélög á Norðurlöndunum geta skipst á starfsmönnum, samkvæmt sam- norrænni áætlun. Fyrirkomulagið verður með sama sniði og viðhaft hefur verið við skipti á ríkisstarfs- mönnum, en 500 embættismenn hafa tekið þátt í þeim frá 1979. Flestir þeirra telja að skipti á embættismönnum hafi verið af hinu góða og hvetja til þess að þeim verði haldið áfram og sam- starf af þessu tagi aukið milli Norðurlandanna. Miðað er við að menn dvelji í nágrannalandinu í allt að 3-4 mánuði. Þeir, sem taka þátt taka í starfsmannaskiptum, munu halda launum sínum og réttindum og fá að auki dvalar- styrk sem svarar 5.500 dönskum krónum á mánuði. Hækkar hún í 6.500 d.kr. um næstu áramót. Vopnahlé í Súdan Khartoum. Reuter. SADEQ al-Mahdi, forsætisráð- herra Súdans, fagnaði í gær vopnahlésyfirlýsingu skæruliða og sagði stjórnina myndu reyna stuðla að því að það yrði upphafið að varanlegum friði í landinu, þar sem skæruliðar og stjórnarher- menn hafa tekizt á frá 1983. Skæruliðar hafa náð 12 mikilvæg- um borgum á sitt vald frá áramót- um og kom vopnahlésyfirlýsing þeirra mjög á óvart. Aðalf undur FR-deildar 4 verður haldinn sunnudaginn 7. maí á Hótel Loftleiðum kl. 14.00. Stjórnin. Aóalfundur iþróttafélagsins Leiknis verður haldinn mánudaginn 10. maí nk. kl. 20.30 í Austurbergi 1. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Önnur mál. stjórnin. I SKEMMTILEGT OG FJÖLBREYTT HEILSUÁTAK í Heilsugarðinum í Garðabœ er lögð áhersla á margbreytilega líkamsþjálfun semsiyrkirogeykurþol, Pú mœtir hvenœr sem þér hentar og [51 mú einsoftívikuogþúvilt. • • w. i Inni-ogútiþjálfun Allir finna eititivað við sitt hœfi í Heilsugarðinum því þjálfunin er bœði fjölbreyttog skemmtileg, Þartvinnastsaman: • Markvisstœkjaþjálfun ^ •Hressileg leikfimi • Skokkeftirskipulögðum skokkleiðum undir leiðsögn kennara. Þú fullkomnar svo daginn með því að skella þér í gufuna og nuddpottinn á eftir. Nuddarar geta séð um að ná úr þér slreitunni og góðir Ijósabekkir eru alttaf við höndina, í Heilsugarðinum í Garðabœ er öll aðstaða til fyrirmyndar. Fagfólk er á staðnum sem þú geiur ráðfœrtþig við: Lœknir, íþróttafrœðingur, nœringarfrœðingur og sjúkraþjálfari. Láttu heilsuna hafa forgang og skelltu þér í Ijöruga heilsurcekt. • Ókeypis reynslutími • Skráning og upplýsingar í síma 656970 eða 656971. X-2 HEILSUGARÐURINN GARÐATORGI1, GARÐABÆ. Ta * I, I %

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.