Morgunblaðið - 03.05.1989, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989
35
Húsbréfafrumvarpið:
Ríkisstjórnin nær sam-
komulagi við Kvennalista
SAMKOMULAG hefur náðst milli ríkisstjórnarinnar og þingflokks
Kvennalistans um framgang frumvarps ríkisstjórnarinnar um hús-
bréfakerfið. Alexander Stefánsson kveðst ekki hafa breytt afstöðu
sinni um að rétt sé að fresta gildistöku frumvarpsins og Ólafur Þ.
Þórðarson telur frumvarpið stangast á við stjórnarskrána. Enn er
ágreiningur meðal ríkisstjórnarflokkanna um vexti á lánum Bygging-
arsjóðs ríkisins, en þingflokkur Alþýðubandalagsins samþykkir ekki
hærri vexti en 4,5%.
Samkomulag hefur náðst með
ríkisstjórninni og þingflokki
Kvennaiistans um framgang hús-
bréfafrumvarps ríkisstjórnarinnar.
Samkomulagið felur í sér eftirfar-
andi:
Samkomulag í fjórum liðum
í fyrsta Iagi verði skipuð nefnd
á vegum félagsmálaráðherra til að
endurskoða hinn félagslega hluta
húsnæðiskerfisins. Nefndin skili
niðurstöðum fyrir 1. nóvember nk.
Hlutverk nefndarinnar skal vera að
leggja fram tillögur um endurbætur
á fyrirkomulagi lánveitinga til fé-
lagslegra íbúðabygginga með það
fyrir augum að einfalda lánafyrir-
komulagið og auka skilvirkni fé-
lagslega íbúðalánakerfisins. Nefnd-
inni er falið að gera tillögur um
breytt fyrirkomulag á stjórnun og
úthlutun á félagslegri aðstoð í hús-
næðiskerfinu. Jafnframt er nefnd-
inni falið að gera tillögur um „fram-
kvæmd ráðstafana" og leita Ieiða
til að auka framboð leiguhúsnæðis
og til að jafna húsnæðiskostnað
leigjenda til samræmis við húseig-
endur.
í öðru lagi felst í samkomulaginu
að ríkisstjórnin skuldbindur sig til
að auka um 600 milljónir fram-
kvæmdafé til félagslega hluta
íbúðakerfisins. Á þessu ári verði
100 milljóna kr. raunaukning á
framlögum, fyrir utan það sem felst
í bréfi ríkisstjórnarinnar til Al-
þýðusambandsins í_ tengslum við
kjarasamningana. Á árinu 1990
verði svo 500 milljóna raunaukning
framkvæmdafj ár.
í þriðja lagi skuldbindur ríkis-
stjórnin sig til þess að hækka ekki
vexti á lánum sem úthlutað hefur
verið úr Byggingarsjóði ríkisins,
þegar húsbréfakerfið kemst í fram-
kvæmd.
í fjórða lagi mun Kvennalistinn
taka þátt í undirbúningi gildistöku
húsbréfakerfisins og fylgjast með
þeirri reglugerðarsmíð sem fram
þarf að fara.
Ágreiningur um vexti lána
Byggingarsjóðs ríkisins
Húsbréfamálið er enn ekki út-
kljáð í ríkisstjórninni, þar eð þing-
menn Alþýðubandalagsins gera fyr-
irvara varðandi þriðja lið samkomu-
lagsins. Hefur þingflokkurinn lýst
því yfir að hann geti ekki samþykkt
meiri hækkun en sem nemur einu
prósentustigi, eða úr 3,5% í 4,5%.
Fundaði þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins stíft um þessi mál í gær.
Kvennalistakonur sáttar
„Við erum ákaflega sáttar við
þetta samkomulag," sagði Þór-
hildur Þorleifsdóttir (K/Rvk) í
samtali við Morgunblaðið. Hún
benti á að Kvennalistakonur teldu
húsbréfin vera mikla framför í hinu
almenna kerfi, en að þær hefðu
haft áhyggjur af því að það yrði á
kostnað félagslega hlutans. Hefðu
þær því lagt mikla áherslu á að
tengja þessi tvö mál. Um þær ýmsu
spurningar sem Kvennalistinn hefur
sett fram vegna húsbréfakerfisins
sagði Þórhildur að ýmsum af þeim
spurningum yrði væntanlega svarað
við meðferð milliþinganefndar í
sumar en sumar væru þess eðlis
að þeim yrði ekki svarað nema í
ljósi reynslu af kerfinu. Þórhildur
kvaðst reikna með því að allur þing-
flokkur Kvennalistans styddi nú
húsbréfafrumvarpið.
Alexander: Fráleit
hrossakaup
„Samkomulag þetta breytir engu
Eigið fé í sjávarútvegsfyrirtækjum:
Rýrnaði um 5 til
6 milljarða 1988
Áætlaður halli i ár 900 m.kr. að öllu óbreyttu
„Seðlabankinn hefur metið eiginflárbreytingu í sjávarútvegi í
heild á árinu 1988. Samkvæmt endurskoðuðu mati bankans frá 19.
apríl hefur eigið fé rýrnað um 5,7 milljarða króna ef miðað er við
hækkun byggingarvísitölu frá ársbyrjun til ársloka. í þessu mati
hefiir Seðlabankinn miðað við þjóðarauðsmat á fiskiskipaflotanum;
ef hinsvegar er miðað við vátryggingamat fiskiskipaflotans nemur
rýrnunin 6,1 milþ'arði króna.“
1987 hefði numið 22,8 þús. m.kr.
miðað við tryggingarmat skipa eða
32% af heildarskuldum og að það
myndi lækka í 13,4 þús. m.kr. 1988
eða í 16%. Rýrnun eiginijár milli
áranna væri því 9,4 þús. m.kr. en
ef sama hlutfall eiginfjár hefði átt
að haldast í árslok 1988 eins og
það var 1987 hefði það þurft að
vera 13,4. þús. m.kr. hærra.
Miðað við rekstrarskilyrði og
verðlag nú í apríl er halli botnfisk-
veiða og -vinnslu áætlaður miðað
við heilt ár um 900 m.kr. og má
því reikna með, að eigið fé rýrni á
árinu 1989 að sama skapi miðað
við óbreytt rekstrarskilyrði."
Staðan getur þó enn versnað, þar
eð verðuppbætur og aukin endur-
greiðsla söluskatts renna og út eft-
ir mánuð, sem þýðir tekjulækkun
um 6%.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra svaraði fyrir helgina
fyrirspumum frá Kristni Péturssyni
(S/Af) um eiginfjárrýmun fyrir-
tækja í sjávarútvegi á liðnu ári.
Framansagt er hluti svars ráðherr-
ans. Ráðherrann sagði ennfremur
að Þjóðhagsstofnun hafi áætlað að
eigið fé í botnfiskveiðum og -vinnslu
hafi rýrnað um 1,1 milljarð á árinu,
miðað við verðlag í lok ársins, en
samkvæmt reikningsskilavenjum
endurskoðenda við ársuppgjör hafi
það rýrnað um 3,9 milljarða króna.
Mismunur á áætlunum felst í mis-
mun uppgjörsaðferða.
í svari ráðherra sagði ennfremur:
„Rétt þykir að upplýsa að sam-
kvæmt skýrslu Seðlabanka íslands
frá 5. desember sl., sem afhent var
ríkisstjórninni þá, áætlaði bankinn
að eigið fé fyrirtækja í sjávarútvegi
í afstöðu minni, enda fráleitt að
stunda slík hrossakaup um jafn
mikilvæg mál,“ sagði Alexander
Stefánsson (F/Vl), fulltrúi Fram-
sóknarflokksins í félagsmálanefnd
neðri deildar, og bætti við að sam-
komulag ríkisstjórnarinnar kæmi
frumvarpinu ekki við. Kvaðst Alex-
ander telja rétt að fresta afgreiðslu
frumvarpsins. Gert er ráð fyrir því
að nefndin afgreiði frumvarpið frá
sér í dag. „Þeir sem láta múlbinda
sig til að halda þessari manneskju
í ríkisstjórninni hljóta að samþykkja
frumvarpið,“ sagði Alexander.
Kemur ftmmvarpinu
ekki við
Geir Haarde (S/Rvk), fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í félagsmála-
nefnd neðri deildar, sagði sam-
komulag ríkisstjórnarinnar og
Kvennalista ekki koma frumvarpinu
við; það fjallaði um aðra hluti. Kvað
Geir það vera raunalegt að Kvenna-
listinn félli frá því að ræða um efnis-
atriði og léti bjóða í sig; skilyrði
Kvennalistans kæmu frumvarpinu
ekki við og í samkomulaginu fælist
engin málamiðlun um frumvarpið
sjálft. „Þær hefðu allt eins getað
krafist breytinga á umferðarlögum
gegn því að samþykkja frumvarp-
ið.“
Um ágreining stjórnarflokkanna
um vexti, sagði Geir, að annað hvort
hefði Alþýðubandalagið ekki skilið
um hvað málið snerist eða þeir
hefðu hugsað sér, eins og félags-
málaráðherra að koma ábyrgðinni
af svo óvinsælum aðgerðum yfir á
stjórnarandstöðuna."
Steftia Alþýðu-
bandalagsins ljós
Hjörleifur Guttormsson
(Abl/Al) sagði í samtali við Morg-
unblaðið að stefna Alþýðubanda-
lagsins væri ljós; ekki geti orðið um
meiri vaxtahækkun að ræða á lán-
um Byggingarsjóðs ríkisins en sem
nemur einu prósentustigi. Taldi
Hjörleifur ólíklegt annað en að við
þessari kröfu Alþýðubandalagsins
yrði orðið, spurning væri hvort Al-
þýðuflokkurinn vildi semja. Hann
ítrekaði jafnframt að stefna flokks-
ins í þessu máli hefði legið ljós fyr-
ir frá upphafi.
Stefán Valgeirsson á móti
Stefán Valgeirsson (SJF/Nle)
kvaðst í samtali við Morgunblaðið
ekki myndu styðja húsbréfafrum-
varpið að óbreyttu. Hann væri and-
snúinn því að hækka vexti á hús-
næðislánum, hann teldi óeðlilegt að
lögfesta frumvarpið og skipa svo
milliþinganefnd; eðlilegra væri að
fresta gildistökunni þar til milli-
þinganefnd hefði skoðað málið. Enn
fremur gat Stefán þess að ráðherra
hefði óskað eftir breytingartillögum
frá Samtökum um jafnrétti og fé-
lagshyggju, sem hún hefði fengið.
Gengu þær meðal annars út á það
að þeir staðir sætu fyrir í kerfinu,
þar sem lægst verð væri á íbúðum.
Kvað Stefán ráðherra hafa tilkynnt
sér í gær að við þessu væri ekki
unnt að verða.
Brot á stjórnarskránni?
Ólafur Þ. Þórðarson (F/Vf)
sagði í samtali við Morgunblaðið
að hann sætti sig ekki við það að
Húsnæðisstofnun ríkisins væri veitt
heimild til lántöku er skuldbindi
ríkið, jafnvel þótt ríkisstjórnin sam-
þykkti slíka lántöku hveiju sinni.
Slíkt hlyti að vera í andstöðu við
ákvæði 40. gr. stjórnarskrárinnar,
þar sem kveðið væri á um það að
einungis Alþingi gæti skuldbundið
ríkið með slíkum hætti. Ríkið hefði
ekki vald til lántöku; slíkt yrði að
gerast með lánsfjárlögum.
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambandsins
og Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins takast í hendur við undirritun kjarasamninganna 1. maí.
*
Ahrif kjarasamninga á ríkissjóð:
Eins milljarðs
útgjaldaaukning
SAMNINGAR aðila vinnumarkaðarins munu hafa í för með sér 800-
1.000 milljóna útgjaldaaukningu ríkisins á þessu ári. Vonir standa
til hjá ríkisstjórninni að bætt skil söluskatts vegi verulega upp á
móti þessum útgjaldaauka. Þetta kom fram hjá Steingrími Hermanns-
syni forsætisráðherra í umræðum á þingi í gær.
Friðrik Sophusson (S/Rvk) tók ánægju sinni með það að samningar
til máls í umræðu um þingsköp og
beindi nokkrum spurningum til for-
sætisráðherra í tilefni af bréfum
ráðherrans til aðila vinnumarkaðar-
ins. Friðrik spurði m.a. að því hvort
600 miiljóna aukning niður-
greiðslna á landbúnaðarvörur kæmi
til kasta Alþingis. Einnig varpaði
Friðrik fram þeirri spurningu hvort
að sú athugasemd í bréfínu til Al-
þýðusambandsins að til greina
kæmi að að hafa tvö þrep í virðis-
aukaskattinum væri stefnuyfirlýs-
ing um lækkun matarskattsins.
Benti hann á að tillögur Sjálfstæðis-
flokksins í fráfarandi ríkisstjóm um
lækkun matarskatts hefði orðið
ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar að
falli. Vegna fyrirheits ríkisstjórnar-
innar um byggingu 200 nýrra fé-
lagslegra íbúða spurði Friðrik hvað-
an fjármunir til þess ættu að koma.
Friðrik innti forsætisráðherra og
eftir því hversu miklir fjármunir
ættu að fara í Verðjöfnunarsjóð
fiskiðnaðarins til verðbóta á freð-
fisk og hvort leitað yrði samþykkis
Alþingis. Friðrik óskaði einnig
sva,ra við því hvað ríkisstjórnin teldi
vera viðunandi stöðu sjávarútvegs-
ins. Um fyrirhugaðar breytingar á
lántökuskatti, vörugjaldi, jöfnunar-
gjaldi og skatti á skrifstofu- og
verslunarhúsnæði spurði Friðrik
hvort von væri á stjórnarfrum-
vörpum.
Óbreytt búvöruverð ekki
tryggt
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra sagði í svörum
sínum að leitað yrði heimilda til
Alþingis þar sem það væri nauðsyn-
legt. Steingrímur sagði um Verð-
jöfnunarsjóð fiskiðnaðarins að að
óbreyttu ættu fjármunir sjóðsins að
duga út júnímánuð, en óskir hefðu
komið fram um það að úr greiðslum
úr sjóðnum yrði dregið í júní og
greiðslum yrði haldið lengur áfram.
Forsætisráðherra tilkynnti við þetta
tækifæri að von væri á frumvörpum
frá stjóminni næstu daga um vöru-
gjald, jöfnunargjald og skatta á
skrifstofu- og verslunarhúsnæði.
Um auknar niðurgreiðslur á land-
búnaðarvörum sagði Steingrímur
að þær tryggðu ekki óbreytt bú-
vöruverð og um félagslegar íbúðir
sagði Steingrímur að 100 milljónir
væru í Byggingarsjóði verkamanna
og dygði það til þess að hefja bygg-
ingu hinna 200 íbúða. Kvað ráð-
herra hugtakið „hefja" vera teygj-
anlegt.
Virðisaukaskattur: Eitt eða
tvö þrep?
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra lýsti yfir sérlegri
væru nú komnir í höfn. Væri nú
ljóst að vinnufriður væri tryggður
á stærstum hluta vinnumarkaðarins
það sem eftir væri þessa árs og
fram á það næsta. Um þær hug-
myndir sem nefndar voru í bréfí
forsætisráðherra um tvö þrep í virð-
isaukaskatti sagði Jón Baldvin að
rétt væri að skoða vandlega allar
hliðar þess máls; lægra þrep á til-
teknum matvörum hlyti að kalla á
það að annað hvort yrði skatthlut-
fallið almennt hækkað eða ríkisút-
gjöld yrðu skorin niður sem þessu
næmi. Kvað Jón Baldvin Alþýðu-
flokkinn vera þeirrar skoðunar að
rétt væri að hafa aðeins eitt þrep
í virðisaukaskattnum.
Jón Baldvin mótmælti því að
þessar hugmyndir væru sambæri-
legar við þær hugmyndir sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði komið fram
með í ríkisstjórn Þorsteins Pálsson-
ar; á þeim tíma hefði verið tveggja
milljarða halli á íjárlögum og tillög-
ur Sjálfstæðisflokksins hefðu rýrt
tekjur ríkisins um 1,3 milljarða,
samkvæmt útreikningum ijármála-
ráðuneytisins.
Ruglandi og mótsagnir
Þorsteinn Pálsson (S/Sl) tók
næstur til máls og fordæmdi
ruglandann og mótsagnirnar í mál-
flutningi utanríkisráðherra. Benti
hann á að Jón Baldvin væri höfund-
urinn að tveimur þrepum í sölu-
skatti; annars vegar á flestum vör-
um og hins vegar á ýmissi þjón-
ustu. Sjálfstæðisflokkurinn hefði
lagt til að skattur á matvæli yrði
færður í lægra þrepið. í þessum
tillögum hefði og verið gert ráð
fyrir því að hækka tekjuskatt á
móti þannig að þetta hefði ekljt
haft í för með sér neina tekjurýmun
fyrir ríkissjóð. Þetta hefðu útreikn-
ingar Þjóðhagsstofnunar staðfest.
Þorsteinn benti á að þegar þessi
tillaga var lögð fram á sínum tíma,
hefði Jón Baldvin greint ríkisstjóm-
inni frá því að halli á ríkissjóði
væri einn milljarður, en nú segði
hann að hann hefði hafnað tillögum
Sjálfstæðisflokksins þar eð hallinn
hefði verið tveir milljarðar.
Bætt skil söluskatts
Kristín Halldórsdóttir (K/Rns)
spurði forsætisráðherra hver út-
gjaldaaukning ríkissjóðs væri í kjöl-
far nýgerðra kjarasamninga.
Steingrímur svaraði því svo til að
samningarnir hefðu í fór með sér
800-1.000 milljóna útgjaldaauka.
Hann benti hins vegar á að stórlega
betri skil á söluskatti, sem niður-
staða fyrsta ársfjórðung þessa árs
benti til, kæmi þama vemlega á
móti.