Morgunblaðið - 03.05.1989, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989
Helga Finnsdótt-
ir — Minning
Fædd28. september 1895
Dáin 25. apríl 1989
Móðursystir mín, Helga Finns-
dóttir, andaðist 25. apríl 93 ára
eftir frekar stutta en stranga sjúk-
dómslegu. Helga var fædd á Stóru
Borg undir EyjaQöllum. Dóttir hjón-
anna Ólafar Þórðardóttur og Finns
Sigurfínnssonar bónda. Þau hjón
eignuðust stóran bamahóp eða 11
börn en til fullorðinsára komust
ekki nema 8 þeirra. Aðeins eitt
þeirra er nú á lífi, Friðfínnur Finns-
son, 87 ára og var hann yngstur.
Helga ólst upp hjá foreldrum sínum
til 5 ára aldurs en þá drukknaði
faðir hennar í sjóslysi við Vest-
mannaeyjar árið 1901 er hann
ásamt fleiri mönnum var að fara í
kaupstaðarferð til Vestmannaeyja.
Stóð þá ekkjan ein uppi með sinn
stóra bamahóp og gekk með yngsta
bamið.
í þá daga var fátt um úrræði
fýrir fátækar ekkjur. Eða ekkert
nema að tvístra bamahópnum og
leita á náðir vina og vandamanna.
Og ekki hefur það verið sársauka-
laust. Helgu var komið fyrir í sömu
sveit, fyrst um sinn. Síðan liggur
leiðin til Vestmannaeyja. Það hafði
móðir hennar og systkini sest að.
Og þar ólst hún upp. Og eins og
algengt var á þeim tímum var skóla-
gangan stutt, en vinnan þeim mun
meiri. Og strax er hún var fær um
hóf hún öll venjuleg störf. Ekki
vom kjör þau er biðu fátækra ungl-
inga á þeim tíma glæsileg. En ekk-
ert bugaði Helgu. Út í heim skyldi
haldið. Árið 1915 fer hún til Kaup-
mannahafnar og hefur þar störf við
saumaskap hjá Magasin du Nord
og undi hag sínum vel. Ávallt eftir
það hafði hún sterkar taugar til
þess lands og þjóðar. Hún kemur
heim eftir tveggja ára dvöl ytra.
Og tekur þá ugp fyrri störf í Vest-
mannaeyjum. Árið 1920 gekk hún
að eiga Siguijón Pálsson sjómann
frá Keflavík. Þeirra fyrstu búskap-
arár vom í Vestmannaeyjum. Síðan
liggur leiðin til Reykjavíkur árið
1930. Þeim hjónum varð 6 bama
auðið. Elstir vom tvíburamir Finnur
og Siguijón Siguijónssynir, en Sig-
uijón lést aðeins 17 ára gamall og
var öllum mikill harmdauði. Næst
er Henný Dagný. Hún var gift Ein-
ari Þorsteinssyni en hann lést árið
1978. Ólöf Ingibjörg gift Helga
Eiríkssyni. Pálína gift Sigmundi R.
Helgasyni. Jóhanna gift Fróða Err-
emo og búa þau í Bandaríkjunum.
Er sumar fór í hönd var tvöföld
gleði þar sem hvert ár var von á
Helgu frænku ásamt bömum sínum
til Vestmannaeyja. Oft leitar hugur-
inn til þeirra stunda er Helga ásamt
systmm sínum og bamaskaranum
lögðust í ferðalög vítt og breitt um
eyjamar, inn í dal og upp fyrir
hraun. Var þá gjaman farið í ýmsa
leiki enda leiksvæðið stórbrotið því
fallegt er Dalíjallið og tignarlegt
umhverfið allt. Miklir kærleikar
vom með þeim systmm og fjöl-
skyldum þeirra. Áramótafagnaður
árviss hjá þeim hjónum Helgu og
Siguijóni. Vomm við hjónin þeirrar
ánægju aðnjótandi að fá að taka
þátt í þeim gleðskap ásamt bömum
þeirra. Þá var sérstök stemmning
sem ekki gleymist þeim er þess
nutu, svo samtaka vom húsbænd-
umir í því að veita og gleðja gesti
sína. Og ekki fór það framhjá manni
að taka eftir því hvað Helga hafði
mikið yndi af því að lagfæra blóm
í vasa og tendra ljós í stjaka. Þar
var fagurkerinn að verki enda næm
fyrir fegurðinni hvar sem hún fyrir
augu bar. Árið 1975 missti Helga
mann sinn. Eftir að hún varð ekkja
flutti hún til dóttur sinnar og
tengdasonar, Pálínu og Sigmundar
Helgasonar í Mosfellsbæ. Þar bjó
hún í 8 ár. Þar undi hún hag sínum
vel og var eftirlæti allra á heimil-
inu. Hún naut ellinnar, ferðaðist
mikið innanlands sem utan. Nú
þegar leiðir skilja og hún hefur lagt
upp í þá för er við öll eigum vísa,
kveðjum við góða og merka konu.
Minningin um hana mun lifa
áfram í hugum okkar er hana
þekktum. Sérstakar kveðjur flyt ég
frá systmm mínum sem búa í Nor-
egi, þeim Grétu Perlu og Ólöfu.
Far svo blessuð frænka kær
för þín stefnir Guði nær,
eftir dáðríkt ævispor
eilíft sérð þú byija vor.
(Matt. Joch.)
Ingibjörg Finns Petersen
í dag er til moldar borin frá
Fossvogskirkju Helga Finnsdóttir,
sem lézt 25. apríl sl. á Hjúkmnar-
heimilinu Skjóli, Reykjavík. Helga
fæddist 28. september 1895 á
Stóraborg, Áustur-Eyjafallhr.,
Rang. Foreldrar hennar vom Finn-
ur Sigurfinnsson f. 15. nóv. 1855,
d. 16. maí 1901, bóndi á Stómborg
og k.h. Ólöf Þórðardóttir f. 20. jan.
1863, d. 1935. Finnur, er fímmti
maður í beinan karllegg frá Högna
Sigurðssyni presti f. 11. ágúst
1693, d. 7. júlí 1770, þekktur fyrir
að eiga átta syni, er allir urðu
prestar. Finnur fórst í sjóslysinu
mikla á uppstigningardag 1901, er
Eyjafjallabátnum Björgólfí hvolfdi
f innsiglingunnni til Vestmanna-
eyja, með 28 manns úr sömu sveit
innanborðs og aðeins einn maður
komst lífs af.
Helga var aðeins fímm ára, þeg-
ar faðir hennar dmkknaði og móðir
hennar gekk þá með 13. barnið, sem
fæddist sjö mánuðum síðar. Af
systkinahópnum dóu 5 í fmm-
bemsku, en 8 komust til fullorðins-
ára, þau vom: Jónína, Jóhann,
Kristinn, Þórfinna, Sigrún, Helga,
Ingibjörg, Finnbogi og Friðfinnur.
Jóhann, Ingibjörg og Finnbogi náðu
ekki þrítugsaldri og nú er Frið-
finnur einn eftir á lífi. Eftir lát Finns
reyndi Ólöf að búa áfram á Stóm-
borg, en gafst upp eftir eitt ár og
varð að láta flest bömin frá sér,
Helga ólst upp hjá vandalausum,
fyrst á Hlíð undir Eyjafjöllum, síðar
í Vestmannaeyjum. Skömmu eftir
fermingu réðst hún í vist til læknis-
hjónanna þar, Halldórs Gunnlaugs-
sonar og Önnu Sigrid (fædd Therp)
og hefur vinátta og tryggð haldist
með fjölskyldu Helgu og þeirri fyöl-
skyldu æ síðan. Á þeirra vegum fór
Helga til Kaupmannahafnar árið
1915 til náms í kjólasaum og dvaldi
þar við nám og störf í tvö ár hjá
Magasin du Nord.
Helga giftist í Vestmannaeyjum
20. maí 1920, Siguijóni Pálssyni
f. 12. ágúst 1896 í Hjörtsbæ í
Keflavík. Foreldrar hans vom Páll
Magnússon f. 12. apríl 1851 í
Hjörtsbæ, d. í mai 1934 og seinni
k.h. Þuríður Nikulásdóttir f. 18.
sept. 1855 í Beijaneskoti, A-Eyja-
fjallahr., d. 30. sept. 1940 í
Keflavík. Fyrsta árið bjuggu Helga
og Siguijón í Vestmannaeyjum, en
fluttu þá til Keflavíkur og bjuggu
þar í tæp þijú ár, fluttu síðan til
Keflavíkur og bjuggu þar í tæp
þijú ár, fluttu síðan aftur til Vest-
mannaeyja og bjuggu þar til ársins
1930, er þau fluttu til Reykjavíkur.
Siguijón var sjómaður framan af
ævi, en vann einnig öll almenn störf
er til féllu í landi, síðustu 25 árin
var hann vélgæzlumaður hjá Gijót-
námi Reykjavíkurborgar. Siguijón
lézt 15. ágúst 1975 á Borgarspítal-
anum Reykjavík.
Helga og Siguijón vom komin
yfír sjötugt þegar þau eignuðust
eigin íbúð, að Feijubakka 10 í
Reykjavík, fram að því bjuggu þau
í ýmsum leiguíbúðum. Þótt húsa-
kynni væm ekki alltaf mikil vom
Helga og Siguijón mjög samhent í
því að gera heimili sitt hlýtt og
notalegt, meðal annars kom Helga
sér upp blómagarði þar sem því var
viðkomið, þau vom mjög gestrisin
og góð heim að sækja og sannaðist
á þeim hið fomkveðna, að nóg er
húsrými þar sem hjartarými er. Þó
var oft þröng á þingi, þegar bömin
vom öll heima og Helga með
saumastofu inn á heimilinu, þvi á
kreppuámnum upp úr 1930 var oft
litla vinnu að fá og kom því sauma-
kunnátta Helgu að góðum notum
við að afla heimilinu lífsviðurværis.
Auk þess að starfrækja saumastofu
hafði Helga sníða- og saumanám-
skeið fyrir Húsmæðrafélag
Reykjavíkur í íjölda mörg ár. Helga
var saumakona af Guðs náð, hún
var smekkvís og lagin og svo nýtin
á efni að undran sætti, nóg var að
koma með til hennar mynd í blaði
af einhverri flík, hún mældi út
mest með augunum keypti efni og
flíkin var tilbúin á skömmum tíma
og það merkilegast var afgangur
af efninu var enginn, ég gleymi þvi
aldrei er hún einu sinni sem oftar
saumaði kjól á dótturdóttur sína
að efnið var I knappara lagi, engin
sáust þess þó merki á kjólnum full-
gerðum, en ef kraganum var snúið
við mátti sjá að neðra byrði hans
var samansett úr sjö pjötlum.
Helga og Siguijón eignuðust sex
böm og em fimm þeirra á lífí: Finn-
urf. 14. nóv. 1919 í Vestmannaeyj-
um, bókavörður á Seltjarnarnesi,
ókvæntur og bamlaus, hann lét sér
mjög annt um móður sína og reynd-
ist henni hlýr og góður sonur þar
til yfír lauk. Siguijón Helgi f. 14.
nóv. 1919 í Vestmannaeyjum, d.
24. des. 1936 í Reykjavík, aðeins
17 ára mikill efnispiltur og hvers
manns hugljúfi, varð hann foreldr-
um sínum og ástvinum hinn mesti
harmdauði. Henný f. 29. apríl 1922
í Keflavík, maður hennar var Einar
Þorsteinsson rakárameistari f. 19.
ágúst 1921, d. 14. apríl 1978, þau
eiga tvö börn og eitt bamabarn.
Ólöf f. 4. okt. 1923 í Keflavík,
maður hennar er Helgi Eiríksson
aðalbókari f. 13. febr. 1922 í Sand-
felli A-Skaft., þau eiga sex börn,
níu bamaböm og fimm bamabarna-
böm. Pálína f. 17. júní 1931 í
Reykjavík, hjúkmnarfræðingur,
maður hennar Sigmundur Ragnar
Helgason f. 7. des. 1927 í
Reykjavík, skrifstofustjóri, þau eiga
þijú böm og fjögur bamaböm. Jó-
hanna Kristín f. 31. maí 1935 í
Reykjavík, húsmóðir í New York,
maður hennar Fróði Ellemp f. 17.
febr. á Seyðisfirði, vélfræðingur,
þau eiga tvö börn. Heima hjá Helgu
og Siguijóni fæddist einnig dóttur-
dóttir þeirra, Sigrún Dúfa 25. okt.
1942 og átti þar heima fímm fyrstu
æviár sín og var ætíð tekin sem ein
af dætmnum og bám þau alla tíð
mikla umhyggju fyrir henni. Af-
komendur Helgu em í dag 38.
Fjómm ámm eftir lát Siguijóns
flutti Helga til Pálínu dóttur sinnar
í Mosfellsbæ og bjó þar við um-
hyggju og hlýju, þar til hún flutti
í þjónustuíbúðir aldraðra við Dal-
braut í Reykjavík. Helga var þrek-
mikil og heilsuhraust fram á síðasta
ár, sístarfandi og þurfti alltaf að
láta eitthvað vera að gerast í kring-
um sig, hún hafði yndi af ferðalög-
um og lét ekki aldurinn aftra sér,
komin á tíræðisaldur fór hún ein í
stó rferðalög jafnvel til útlanda.
Helga tók mikinn þátt í félags-
starfí aldraðra, einkum spila-
mennsku sem hún hafði sérstakt
yndi af, allbroslegt þótti manni að
heyra þegar hún var að býsnast
yfír sljóleika og athafnaleysi gamla
fólksins, sem í mörgum tilfellum
var allt að tuttugu ámm yngri en
hún sjálf. Þannig fannst mér, allt
frá því að ég kom inn í fjölskyldu
hennar fyrir þijátíu ámm, að Helga
væri tuttugu ámm yngri, bæði í
útliti og anda, en árin segðu til um.
Hún fékk litla skólagöngu í bernsku
eins og títt var á þeim ámm, en
minnisstætt var henni, að hún örv-
hent var lamin til þess að skrifa
með hægri hendinni og taldi hún
það koma niður á því að rithönd
sín væri ekki í samræmi við aðra
handlagni hennar. Helga var þvílík
uppspretta af fróðleik að undmn
sætir, má því þakka mikilli eðlis-
greind, miklum bókalestri og stál-
minni. Þessum eiginleikum hélt hún
fram á síðasta ár og er mér sagt
að þjóðháttadeild Þjóminjasafnsins
hafi notið aðstoðar hennar við að
skrásetja ýmislegt, sem óðum er
að falla í gleymsku.
Helga var róttæk í skoðunum og
þrátt fyrir trú á eilífan sósíalisma
og alræði öreiganna var guðstrúin
sterk og einlæg, hún gat verið dóm-
hörð og sagt eitt og annað, sem
ekki féll öllum jafnvel í geð.
Góð kona er gengin, kona sem
öllum þótti vænt um, er henni
kynntust. Megi minning hennar lifa.
Loftur Baldvinsson
Brandur af brandi
brenn uns brunninn er,
funi kveikist af funa.
Maður af manni
verður af máli kunnur
en til dælskur af dul.
Þessi spakmæli Hávamála eiga
við, er ég minnist tengdamóður
minnar, Helgu Finnsdóttur, en útför
hennar verður gerð frá Fossvogs-
kapellu f dag 3. maí.
Helga fæddist að Stóm-Borg
undir Eyjafjöllum. Hún var dóttir
hjónanna Olafar Þórðardóttur og
Finns Sigurfinnssonar, er þar
bjuggu.
Föður sinn missti hún árið 1901.
Hann var ásamt fleira fólki, flestu
uhdan Fjöllunum, í kaupstaðarferð
þegar bátur þeirra fórst við innsigl-
t
Maðurinn minn,
ÓLAFUR HAUKUR ÓLAFSSON
læknir,
lést á Grensásdeild Borgarspítalans aðfaranótt laugardagsins 29.
apríl.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Ásdís Kristjánsdóttir.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og sonur,
JÓHANNES ÁRNASON,
L sýslumaður,
Stykkishólmi,
lést að kvöldi 30. apríl sl.
Sigrún Sigurjónsdóttir,
Ólafur Þór Jóhannesson,
Anna Berglind Jóhannesdóttir,
Sigurjón Jóhannesson, Guðný Þórunn Kristmannsd.,
Elín Jóhannesdóttir,
Sigríður Jóhannesdóttir.
t
Móðir okkar,
HELGA FINNSDÓTTIR,
er andaðist 25. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag,
miðvikudaginn 3. maí kl. 10.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Finnur Sigurjónsson,
Henný D. Sigurjónsdóttir,
Ólöf Sigurjónsdóttir,
Pálfna Sigurjónsdóttir,
Jóhanna S. Ellerup.
t
KRISTRÚN VILHJÁLMSDÓTTIR,
Gnoðarvogi 76,
áður húsfreyja í Vallanesi, Skilmannahreppi,
lést í Borgarspítalanum að morgni 28. april sl.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Þorsteinn Valdimarsson.
t
Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi,
HERMANN JÓNSSON
frá Sæbóli, Aðalvik,
til heimilis f Bleikargróf 5,
lést 30. apríl.
Þórunn Finnbjarnardóttir,
Jón Sigfús Hermannsson,
Helga I. Hermannsdóttir,
Jón S. Hermannsson,
Sigrfður B. Hermannsdóttir,
Finnbjörn A. Hermannsson,
Hermann Þ. Hermannsson,
Oddur Þ. Hermannsson,
Jakob H. H. Guðmundsson,
Sigrún Siggeirsdóttir,
Kristján Einarsson,
Oddný A. Óskarsdóttir,
Elín H. Gústafsdóttir,
Þóra Þórarinsdóttir
og barnabörn.
t
Hugheilar þakkir til þeirra er sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför
ÁSMUNDAR S. ÞORSTEINSSONAR
fyrrv. vélstjóra.
Guðmundur I. Ásmundsson, Sigrún Ólafsdóttir,
Þorsteinn S. Ásmundsson, Elsa B. Ásmundsdóttir
og barnabörn.