Morgunblaðið - 03.05.1989, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989
45
Opið bréftil Þorsteins Pálssonar:
Má biðja um skil-
virkari stjórnar-
andstöðu?
eftir Geir Viðar
Vilhjálmsson
Herra Þorsteinn Pálsson, al-
þingismaður: „Aftur, og nýbú-
inn?“, var það sem mér datt í hug
þegar ég heyrði _það hljóð í þér í
kvöldfréttum RUV að þú viljir
núverandi stjórn Steingríms Her-
mannssonar frá völdum. Að því
að mér skilst aðallega vegna Al-
þýðubandalagsmanna. Þú segir þá
ráða stjórnarstefnu í átt frá því
frjálslyndi sem þú óskar að taka
að þér að framfylgja. Því vil ég
spyija þig: Hvað með síðustu stjórn
í röðinni? Þar réðir þú væntanlega
stefnunni meira en samstarfsflokk-
urinn, eða þó jafnræði hafi jafnvel
verið með samstjórnarflokkunum,
þá varst þú sem forsætisráðherra
oddamaður og skarst úr ágreiningi
er upp kom. Því þarftu að fara svo
fljótt í stjórn aftur? Nýhorfinn frá
leiðtogasætinu? Gætirðu ekki
greint nánar frá stefnu þeirri sem
þú kallar fijálslynda sjálfstæðis-
stefnu og í áþreifanlegum dæmum,
með tilvísan til fyrirliggjandi ríkis-
stjómarmála á næstu mánuðum?
Greint frá því, til dæmis í Morgun-
blaðinu, hvemig þú vilt taka á fyr-
irliggjandi stjórnarmálum í nafni
Sj álfstæðisflokksins?
Hér á ég við meira en einkaskoð-
anir þínar, ég á við að þú leiðir
það sem þýtt hefur verið úr ensku
sem skuggaráðuneyti um tíma og
sýnir með tilvísan til starfa ríkis-
stjómarinnar nú út þetta ár, hvem-
ig Sjálfstæðisflokkurinn undir
Geir Viðar Vilhjálmsson
þinni forystu tæki á sömu málum
og ríkisstjórnin. Ég legg eindregið
til að þú verðir við þessari áskorun
minni því ég veit að margir, já
mjög margir, íslendingar hafa ekki
lengur áhuga á slagorðum og lof-
orðum heldur vilja sjá áþreifanleg
dæmi um framkvæmd stefnunnar
í daglegri ákvarðanatöku og
stjórnun.
Gefðu þessari ríkisstjóm frið til
áramóta og kepptu við Steingrím
og félaga hans i þessari ríkisstjórn
um vönduð stjórnmálaleg vinnu-
brögð í „undirbúningsstjórn“ undir
þinni formennsku.
Höivndur er sálfræðingur.
orka
Nýju Wonder rafhlöðurnar,
Green Power, eru algerlega
kvikasilfurslausar. Þær eru því hlaðnar
„hreinni" orku og valda engri
umhverfismengun. Þess vegna má að
skaðlausu henda þeim að notkun lokinni.
Lífrænt efni hefur nú komið í stað
kvikasilfurs.
Green Power rafhlöðurnar eru lekafríar og
endast lengur en venjulegar rafhlöður.
Stuðlum að hreinu umhverfi - notum
Green Power rafhlöður.
Heildsala og smásala:
Olíufélagið hf
SUÐURLAINIDSBRAUT 18
SfMI 681100
ÍJ/MSVEGNASAAB?
ið hjá lögreglunni lendum í umferðaróhöppum
eins og aðrir. Fyrir nokkru lenti einn af okkar mönnum sem ók
lögreglubíl af Saab-gerð í alvarlegu óhappi. Ég er þess fullviss að
styrkleiki bifreiðarinnar kom í veg fyrir stórslys.
Lögreglumaðurinn mætti hér til vinnu daginn eftir
og þakka ég fyrir það að hann var á Saab
en ekki einhverri annarri bifreið."
Alberl Alberlsson, yfirlögregluþjónn á Keflavíkurfiugvelli.
...SAABafótalástæðum
—ekki síst öryggisástæðuin.
Vorlilboð
Saab1989
Nr.2
Saab 900i 4 dyra, sjálfskiptur, framhjóladriíinn.
Litað gler, vökvastýri, vökvabremsur,
plussáklæði, armpúði í aftursæti o.fl. o.fi.
Verð
Afsláttur
VoitUboð
kr. 1.376.000,00
kr. 137.000,00
kr. 1.239.000,00
Gtobusi
Lágmúla 5, s. 681555