Morgunblaðið - 03.05.1989, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1989
Ebenezer Guðjóns-
son - Minning
Fæddur 16. desember 1915
Dáinn 19. apríl 1989
Ebenezer Guðjónsson, fyrrverandi
starfsmaður Bókaútgáfu Menningar-
sjóðs, lézt hinn 19. apríl sl. á 74.
aldursári. Hanri var jarðsunginn í
gær 2. maí. Af því tilefni skulu hér
flutt nokkur kveðju- og þakkarorð
frá því fyrirtæki, sem hann starfaði
hjá í nær tvo áratugi.
Ebenezer hóf störf hjá Bókaútgáfu
Menningarsjóðs á árinu 1968 og kom
víða við í störfum sínum fyrir útgáf-
una, annaðist bókalagerdreifingu til
bókaverzlana, innheimtu, daglegt
uppgjör í afgreiðslu og sitthvað fleira
svo sem til fellur í litlu fyrirtæki, sem
ekki er ofmannað. Það er ekki ofsög-
um sagt að öll þessi störf vann
Ebenezer af einstakri elju, samvizku-
semi og öryggi, svo að þar var ekki
hægt að bæta um betur. Hann var
vakinn og sofínn yfir velferð fyrir-
tækisins í smáu sem stóru, þjónaði
því af slíkri trúmennsku, að betur
hefði hann ekki getað gert, þótt hann
hefði átt það sjálfur. Hann hafði ta-
mið sér félagslegt hugarfar og hug-
sjón samvinnu og vissi, að þar sem
vinnustaður hans var opinber eign,
var hann sameign okkar allra og
samkvæmt því var unnið. Þá var það
ómetanlegt fyrir bókaútgáfuna, að
Ebenezer var sjálfur mikill bókamað-
ur, átti valið bókasafn og hafði góða
þekkingu á bókum, svo að ávallt
mátti til hans leita með árangri í
þeim efnum.
Mér er kunnugt um það, að for-
svarsmenn Menningarsjóðs á liðnum
árum sem og annað starfsfólk mat
Ebenezer mikils sem starfsmann og
félaga. 0g vel man ég er að því dró
að Ebenezer hætti störfum vegna
aldurs, að þáverandi framkvæmda-
stjóri, Hrólfur Halldórsson, hugsaði
til brottfarar hans með miklum kvíða,
vitandi hve starfsmaður hann var og
að ekki væri hlaupið að því að fylla
skarð hans.
Ebenezer lét af störfum fyrir ald-
urs sakir um áramót 1985-86, en á
þeim árum, sem liðin eru, hefur iðu-
lega verið til hans leitað um aðstoð,
þegar mikið var að gera, í jólaö-
sinni, birgðatalningu um áramót,
vinnu vegna dreifingu bóka á bóka-
markaði o.s.frv. Alltaf brást Ebenez-
er vel og skjótt við og kom á vett-
vang, reiðubúinn að leggja frekari
skerf fram í þágu síns gamla fyrir-
tækis, nú síðast fyrir nokkrum vik-
um, og við væntum þess, að slíkt
gæti haldið áfram um sinn, þótt ald-
ur færðist yfir. En enginn má sköp-
um renna.
Fyrir hönd Bókaútgáfu Menning-
arsjóðs og Menntamálaráðs íslands
vil ég láta í ljós þakkir til Ebenezers
Guðjónssonar fyrir heilladijúg störf
hans í þágu Menningarsjóðs um
tveggja áratuga skeið. Konu hans,
Ásgerði, börnum þeirra og fjölskyld-
um eru sendar innilegar samúðar-
kveðjur við fráfall hans.
Einar Laxness
í gær var Ebbi mágur minn kvadd-
ur hinstu kveðju. Hann kvaddi þetta
líf síðasta vetrardag eftir nokkurra
daga sjúkrahússvist.
Sumarið er framundan og hann
var þegar farinn að undirbúa garðinn
sinn að Heiðargerði 61. Hann hafði
mikið yndi af að hlúa að garðinum
og sjá árangur af því, enda voru þau
hjónin stolt af garðinum sínum og
bar hann þess vitni hvað þau voru
samtaka í að gera hann fallegan.
Fullu nafni hét hann Ebenezer
Guðjónsson, en ég kallaði hann alltaf
Ebba. Hann var fæddur að Hofakri
í Hvammssveit í Dölum 16. des.
1915. Stundaði hann nám í Laugar-
vatnsskóla og síðar í Samvinnuskó-
lanum þaðan sem harin lauk prófi
árið 1938.
Ebbi átti stórt safn góðra bóka
sem hann hafði mikla ánægju af
enda víðlesinn og fróður maður um
margt.
Hann giftist systur minni, Ásgerði
Leifsdóttur, árið 1946, voru þau mjög
samhent hjón og söknuðurinn er því
mikill hjá henni, enda árin að verða
43 sem þau eru búin að eiga saman.
Mér og bömunum mínum (er þau
voru lítil) var Ebbi einstaklega góð-
ur. Var því oft þröngt í kjallaraíbúð-
inni þeirra í Drápuhlíð þar sem þau
bytjuðu sinn búskap, og börnin þeirra
þijú voru lítil og ég var komin í heim-
sókn með mín fjögur sem öll voru á
svipuðum aldri og þeirra börn. En
þrátt fyrir þrengslin var -ailtaf líka
nóg pláss fyrir skyldfólk beggja sem
oft þurfti að gista nokkrar nætur
þegar verið var í bænum.
Með þessum fátæklegu orðum vil
ég þakka Ebba samveruna í gegnum
árin og sendi innilegar samúðar-
kveðjur til systur minnar, barnanna
hennar og fjölskyldna þeirra.
Fari hann í friði, friður guðs sé
með honum.
Ingiríður Leifsdóttir
Að kvöldi 19. apríl barst okkur sú
sorgarfrétt að afi okkar væri látinn.
Erfitt er að ímynda sér að maður sem
alla tíð hefur haft stórt hlutverk í
lífi okkar skuli skyndilega vera horf-
inn.
Afi bar alltaf velsæld annarra
meira fyrir bijósti en sína eigin og
vildi aldrei að neinn hefði áhyggjur
af sér.
Þeirri væntumþykju og hlýju sem
hann veitti okkur í gegnum árin er
erfitt að lýsa með orðum og sárt er
að hafa ekki fengið lengri tíma til
að endurgjalda hana.
Afi fylgdist ætíð með námi okkar
og framvindu af miklum áhuga. Fátt
þótti honum skemmtilegra en að
hjálpa okkur með námið og fleira.
Hann hafði ætíð svör á reiðum hönd-
um enda með víðlesnustu mönnum.
Ófáar eru þær góðu stundir er við
höfum fengið að njóta í návist afa
okkar og harmþrungið er að hugsa
til þess að þær verða ekki fleiri. Frá-
fall hans er kaldur skuggi á lang-
þráðu vori og söknuður er það eina
er fyllir huga okkar. En hugljúf
minning hans mun lifa með okkur
um ókomna tíð og við þökkum guði
fyrir að hafa gefið okkur hann.
Við biðjum guð að varðveita hann
og styrkja hana ömmu í þeirri raun
sem hún nú þarf að takast á við.
Bamaböm
Tengdafaðir okkar, Ebenezer Guð-
jónsson, er látinn. Með nokkrum orð-
um viljum við minnast hans með
þakklæti og virðingu. Margs ber að
minnast, margt ber einnig að þakka.
Ebenezer var Dalamaður að ætt
og uppruna. Hann fæddist 16. des-
ember 1915 á Hofakri í Hvamms-
sveit, sonur Guðjóns Jóhannessonar
(1896-1983) og Jensínu Ólafsdóttur
(1889-1929). Hann fluttist átta ára
gamall að Svínaskógi á Fellsströnd
og ólst þar upp hjá Elínbjörgu Jónas-
dóttur ömmu sinni og Jóel Jóhannes-
syni (dáinn 1937) föðurbróður sínum,
syni hennar. Sennilega hefur bemska
Ebenezers verið kulsöm, en hann
ræddi lítt hlutskipti sitt á þeirri tíð
og þagði löngum þó að fegurð og
frægð Dala bærist í tal. Enenezer
sá átthagana í raunsönnu ljósi og
fannst minna til um þá en skrum-
andi samferðamönnum. Átti hann
þó margt ættingja á þeim slóðum
og rækti gjarnan þá frændsemi. En
oft var hart í ári þegar hann sleit
bamskónum í Dölum vestra, og
Ebenezer mun eigi hafa dreymt um
að staðfestast þar.
Hann settist í héraðsskólann á
Laugarvatni haustið 1934 og nam
þar í tvö ár. Sóttist honum námið
prýðilega og hugði á framhald þess
enda þótt kreppa væri og horfur
bágar. Ebenezer fluttist svo til
Reykjavíkur 1937 og lauk prófi úr
eldri deild Samvinnuskólans vorið
eftir. Hann hóf störf hjá Sambandi
íslenskra samvinnufélaga 1940 og
vann þar til ársins 1968, en réðst
þá til bókaútgáfu Menningarsjóðs.
Sá Ebenezer um lager hennar vel
og dyggilega uns hann lét af störfum
fyrir skömmu vegna aldurs. Ber öll-
um kunnugum saman um að hann
hafí verið frábær í því starfi, enda
vom bækur yndi hans. Kynntist
Ebenezer umboðsmönnum og öðmm
viðskiptavinum um land allt. Hús-
bændum sínum reyndist hann trúr
og ráðhollur. Mundu þeir víst ljúka
upp einum munni um alúð hans,
stundvísi og reglusemi. Fór Ebenezer
fúslega á sinn gamla vinnustað þó
að heita ætti að hann settist í helgan
stein. Hann brá við fram á síðustu
stundu ef til þess var mælst, reiðubú-
inn að láta um sig muna.
Ebenezer festi ráð sitt 11. júlí
1946 og átti Ásgerði Leifsdóttur,
merka_ konu og traustan lífsföm-
naut. Ásgerður er og kynjuð úr Döl-
um, fædd á Kjarláksvöllum í Saurbæ,
dóttir Leifs Grímssonar og Hólm-
fríðar Sigurðardóttur. Heimili Ás-
gerðar og Ebenezers hefur verið
mörg hin síðari ár að Heiðargerði
61. Undi Ebenezer vel í þeim ranni
og virtist hvergi kvíða ellinni þó að
49
ævisól lækkaði, en þá féll skuggi
dauðans allt í einu á.
Ásgerður og Ebenezer áttu þijú
böm sem lifa föður sinn. Þau em:
Leifur Jóel, fæddur 1946, kvæntur
Sigríði ísleifsdóttur; Hólmfríður Elín,
fædd 1948, gift Andrési Magnús-
syni; Gréta Hrönn, fædd 1956, gift
Páli ísakssyni. Kveður fjölskyldan
Ebenezer harmi lostin.
Ebenezer Guðjónsson var Hæglát-
ur og hlýr maður og bar hag fjöl-
skyldu sinnar ætíð fyrir bijósti. Há-
reysti og tildur var honum sem eitur
í beinum. Gáfur hans vom farsælar
og maðurinn drengur hinn besti.
Ebenezer var heimakær og tóm-
stundum sínum eyddi hann flestum
yfír bókum og var víðlesinn og sjálf-
menntaður eins og Islendingar best
tíðka. Annar eins heimilisfaðir mun
vandfundinn. Hann fylgdist alltaf af
áhuga með því sem við gerðum og
hafði ætíð tíma til að hlusta og lið-
sinna eftir bestu getu. Hann var
skylduliði sínu einstakur hlífískjöld-
ur. Við þökkum tengdaföður okkar
samfylgdina og biðjum guð að blessa
og styrkja tengdamóður okkar á
þessum erfiðu stundum.
Tengdaböm
NUERHANN TVOFALDUR
Þetta eru tölurnar sem upp komu 29. april.
Heildarvinningsupphæð var kr. 4.940.924,-
Enginn var með fimm tölur réttar og bætist því fyrsti vinningur, sem var kr.
2.275.352,-, við 1. vinning á laugardaginn kemur.
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 394.908,- skiptist á tvo vinnings-
hafa og fær hvor þeirra kr. 197.454,-
Fjórar tölur réttar, kr. 681.214,- skiptast á 118 vinningshafa, kr. 5.773,- á mann.
Þrjár tölur réttar, kr. 1.589.450,- skiptast á 4.150 vinningshafa, kr. 383,- á mann.
Sölustaðir eru opnir frá mánudegi til laugardags og er lokað 15 mínútum fyrir útdrátt.
Sími 6851 11. Upplýsingasímsvari 681511.