Morgunblaðið - 10.05.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.05.1989, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 1989 Minning: * Jóhannes Arna- son9 sýslumaður Fæddur 20. apríl 1935 Jóhannes víða við í atvinnu- og fé- Dáinn 30. apríl 1989 lagsmálum. Hann var formaður í Hinn 17. júní árið 1956 settu 47 ungmenni upp hvítu kollana á Sal Menntaskólans á Akureyri og, gengu út í bjartan en eilítið svalan sumardaginn. Við vorum að kveðja skólann okkar, kveðja ágæta læri- feður og kveðja hvert annað. Að baki voru gleðirík ár í frábærum skóla og góðum félagsskap og framundan var lífið og nokkru meiri alvara. Þrír úr þessum hópi eru nú látn- ir. Jóhannes Ámason lést hinn 30. apríl sl. Jóhannes Ámason Sturlaugsson fæddist 20. apríl 1935 á Geirseyri. Foreldrar hans vom Sturlaugur Friðriksson, sölumaður í Reykjavík, og Anna Sigríður Jóhannesdóttir, sem lengi bjó í Flatey á Breiðafírði en síðar á Patreksfírði. Jóhannes lauk landsprófí frá hér- aðsskólanum'a Núpi í Dýrafírði vorið 1952 og settist síðan um haustið í 3. bekk Menntaskólans á Akureyri ásamt nokkmm skólafé- lögum sínum frá Núpi. Stúdents- prófí lauk hann úr máladeild MA árið 1956 eins og áður segir. Leiðin lá síðan í Háskóla íslands þar sem hann lauk prófí í lögfræði hinn 27. maí 1963. Á námsámm sínum starfaði Jó- hannes m.a. sem ritari Qárveitinga- nefndar Alþingis á þingum 1959—60, auglýsingastjóri dag- blaðsins Vísis frá maí 1961 til árs- loka sama ár og erindreki Sjálf- stæðisflokksins frá maí til október 1958. Að loknu prófí í lögfræði var Jóhannes ráðinn sveitarstjóri í Pat- rekshreppi frá 1. júní 1963 til 31. desember 1968; jafnframt var hann fulltrúi sýslumannsins í Barða- strandasýslu frá 1. ágúst 1963 til 30. apríl 1964, en eftir það rak hann lögfræðiskrifstofu á Patreks- fírði með sveitarstjómarstarfínu þar til hann var skipaður sýslumað- ur í Barðastrandarsýslu 15. nóvem- ber 1968. Jóhannes tók síðan við embætti sýslumanns í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu 15. ágúst 1982 og gegndi því til æviloka. Utan embættisstarfa sinna kom Neista, félagi ungra sjálfstæðis- manna í Vestur-Barðastrandarsýslu 1957—1959, í stjóm Sambands ungra sjálfstæðismanna 1957— 1961, varaformaður 1959—1961, formaður í sjálfstæðisfélaginu Skildi á Patreksfírði 1964—67 og aftur 1973—1976, varaþingmaður á Alþingi fyrir VestQarðakjördæmi apríl—maí og okt.—des. 1975, jan.—febr. 1977 og febr.—mars 1987. Hann sat í flokksráði Sjálf- stæðisflokksins 1974—1980. Jóhannes sat i Reykhólanefnd 1964—1969, var stjómarformaður útgerðarfélagsins Vesturrastar hf. á Patreksfírði 1964—1969, formað- ur atvinnumálanefndar Vestfjarða 1969—1970, í stjóm Viðlagatrygg- ingar frá 1975 og í stjóm hlutafé- lags um rekstur Hótels Flókalundar frá 1972. Hann var stjómarformað- ur Flóabátsins Baldurs hf. um ára- bil. Ekki fer á milli mála að Jóhann- es Ámason var mætur og dugmik- ill sýslumaður, sem naut sín vel í fjölbreyttu starfi. Hann vildi veg landsbyggðarinnar sem mestan og barðist gegn aukinni miðstýringu og skertum völdum héraðanna. Stjóm sýslumálefna lék honum í hendi og hann kunni illa sumum þeim breytingum sem nú er verið að gera á héraðsstjóminni og taldi þær skaða landsbyggðina. Hann vildi efla landsbyggðina með því að taka upp þriðja stjómsýslustigið og barðist fyrir þeirri skoðun sinni í ræðu og riti. Eftirlifandi eiginkona Jóhannes- ar Ámasonar er Sigrún Siguijóns- dóttir, en þau gengu í hjónaband 20. maí 1961. Böm þeirra eru: Ólaf- ur Þór, f. 16. september 1961, BA í uppeldisfræðum, Anna Berglind, f. 13. febrúar 1965, er stundar nám í fatahönnun í París, Siguijón, f. 23. júní 1966, verkfræðinemi við Háskóla íslands, og Elín, f. 29. okt. 1971, nemi við Menntaskólann á Akureyri. Við bekkjarsystkini Jóhannesar Árnasonar úr Menntaskólanum á SPENNANDI NAMSKEIÐ um einstæða náttúruleqa tækni Dr. Anna Edström, lífefnafræöingur frá Bretlandi, heldur á næstu mánuðum námskeið í aromatheraphy, sem er sérstakt þrýsti- punktanudd með náttúrulegum olíum. Einnig verða kenndar ýmsar aðrar aðferðir við punktanudd. Fyrsta námskeiðið var haldiö í lok síðasta mánaðar og vakti óskipta athygli og áhuga þeirra, sem þátt tóku. Enn eru fáein pláss laus á fiamhaldsnámskeið, sem haldið verður eina helgi í mánuði allt til áramóta. Tryggift ykkur þátttöku strax og fáið frekari upplýsingar hjá Ambrósíu hf., Faxafeni 10, Reykjavfk, sími (91) 680 630. Akureyri vottum eiginkonu hans og ættingjum okkar innilegustu samúð og biðjum algóðan Guð að styrkja þau í sorg þeirra. MA-stúdentar 1956 Sunnudagurinn 30. apríl, bjartur og fagur vordagur. Ekki óraði mig fýrir því, er ég gekk áleiðis að heim- ili Jóhannesar mágs míns og Sig- rúnar systur minnar, að þessi dagur ætti eftir að verða svo örlagaríkur. Að elskulegur mágur minn yrði lið- ið lík að kveldi. Allt í einu skynja ég hversu nátengdur þessi mágur minn raunverulega var mér. Er það ekki oftast þannig, að við göngum í gegnum Iífíð hugsunarlaust. Manneskjumar, sem við um- göngumst mest og eru okkur svo kærar, eru svo sjálfsagðar, að við gætum ekki að því, að einn góðan veðurdag eru þær ekki hér lengur. Og þá er orðið of seint að láta þær fínna hversu vænt okkur þótti um þær. Og minningamar streyma að, það rifjast upp er ég fyrst kom á heimili þeirra hjóna, systur minnar og Jóhannesar, aðeins 11 ára göm- ul. Þau gift fyrir stuttu og fyrsta bamið nýfætt. Það er ekki sjálfgef- ið að ung nýgift hjón kæri sig um svona aukagemsa á heimili sitt. En komin var ég og alla tíð síðan hef- ur þeirra heimili verið mitt heimili, þó að auðvitað flygi fuglinn burt, þegar unglingsárin vom að baki. En þó að fuglinn flygi var hann velkominn til baka. Eg hef ekki tölu á því, hve oft ég hef dvalið á heimili þeirra hjóna um lengri eða skemmri tíma og ætíð svo innilega velkomin. Og ekki nóg með að ég dveldi þar ein heldur var dóttir mín, Heiðrún, sjálfsagður meðlimur fjölskyldunnar eftir að hún fæddist. Oft í gegnum tíðina hef ég hugs- að um fólkið hans Jóhannesar. Sigríði, móður hans, Ellu móður- systur og öll systkinin. Hvílíkt sam- safn af góðu fólki. Mér hefur orðið hugsað til þess, hve samstaðan hef- ur verið mikil innan Qölskyldunnar, hvað þau hafa borið mikla um- hyggju hvert fyrir öðm og fyrir mökum, bömum og vandamönnum hvers annars. Ég sjálf hef ekki síst fundið fyrir allri þeirri umhyggju og elskusemi, sem þau hafa átt svo gott með að miðla öðmm af. Jóhannes og Sigrún eignuðust 4 böm, sem hafa verið foreldmm sínum til ánægju og sóma, þau em talin upp hér í aldursröð; Ólafur Þór f. 1961, útskrifaður úr félags- vísindadeild Háskóla íslands í febr- úar sl., Anna Berglind f. 1965, nemi í fatahönnun í París, Siguijón f. 1966, nemi í verkfræði í Háskóla íslands, sambýliskona, Guðný Þ. Kristmannsdóttir, nemi í Myndlista- og Handíðaskóla íslands, og yngst Elín f. 1971, nemi í Menntaskólan- um á Akureyri. Jóhannes var mikill fjölskyldu- maður og studdi við bakið á bömum sínum með ráðum og dáð. Er sökn- uður þeirra mikill er þau nú kveðja kæran föður sinn. Ég kveð Jóhannes með miklum söknuði. Raunvemlega er mér orða vant en við Heiðrún þökkum fyrir allt það sem hann, börnin hans og mín kæra systir hafa fyrir okkur gert. Ef það er sannieikur að mað- urinn uppskeri eins og hann sáir, þá er það mín trú að allur sá góð- vilji, sem Jóhannes hefur sýnt mér og Heiðrúnu og aldrei verður full- þakkaður, verði reiknaður honum til tekna á öðm tilvemsviði. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síð’sta blund, Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. > Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Elsku Sigrún systir, ÓIi, Anna, Siguijón og Ella. Fyrir ykkur em þetta erfíðir tímar. Við hér á Sól- vallagötu 36 vottum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðj- um guð að vera með ykkur í þess- ari miklu raun. Arnheiður E. Siguijónsdóttir Þrátt fyrir að við emm daglega minnt á fallvaltleik lífsins, ætlaði ég seint að trúa því að Jóhannes væri látinn, að skiptum okkar hér - á jörð væri lokið. Svo snöggt var þetta. Daginn áður höfðum við rætt saman og hugað til frekari samskipta næstu daga og það var svo margt sem við áttum órætt. En svona er þetta. Hallgrímur Pét- ursson minnir okkur á í sínum ódauðlega sálmi að á snöggu auga- bragði, afskorið verður fljótt, og lífíð sjálft minnir svo oft á að næsta degi er erfítt að treysta. En mæt er sú minning sem ég á um Johann- es og fjölskyldu hans og sú stund sem hann lætur eftir í huga mínum er fögur og skír. Ég hafði þekkt hann áður en hann gerðist sýslu- maður okkar 1982 og því hlakkað til samskiptanna. Við höfðum hist á ýmsum vettvangi, svo sem stjóm- málanna, Lionshreyfíngarinnar o.fl. Skipst þar á skoðunum, staðið sam- an að góðum hugðarefnum og lið- sinni hans mátti alveg treysta. Strax eftir komu hans hingað efld- ust kynnin og vináttan. Hann var þannig að eftir var tekið. Ég hitti hann alltaf kátan og hugsterkan í viðfangsefnum hins daglega lífs. Á málum tók hann þannig að ég held að ekki hafí verið annað hægt en una við það. í sýslunefnd einnig. Þar krufði hann hvert mál til mergj- ar og reyndi að fínna æ hinar bestu úrlausnir og það hafa mér sagt þeir sem með honum voru á þeim vettvangi að réttlætið og sanngimin hafí haldist í hendur. í dómarastarf- inu var sama að segja og ég minn- ist sérstaklega síðustu mánaðanna þegar mikil umsvif vora í sölu eigna og verðmæta og hann þurfti vera- lega að taka á og leysa erfíð mál þeirra sem höfðu orðið á vegi erfíð- leika og vandræða. Kannski var hann þá einna sterkastur. Leið- beinandi var hann góður, það fengu ég og fleiri að reyna. Því er mikil eftirsjá hér í Stykkishólmi, þar sem hann hafði unnið svo margt til góðs. Ekki var fum eða vonleýsi í neinum gerðum og bros á vör fylgdi honum hvar sem hann kom. Ég má heldur ekki gleyma hans ágæta heimili. Þar var lífsgæfa hans mest. Kona hans fylgdi honum vel eftir og bamalán áttu þau mikið. Það fór ekki á milli mála, enda varði hann þann garð vel og hlúði að. Uppsker- an er því mikil. Nú þegar ég rita þessi kveðju- og þakkarorð verður ekki komist hjá því að söknuðurinn er mikill. Hann verður ekki bættur nema með minningu um góðan dreng og þökk til guðs sem gaf hann vinum sínum og ættgarði. Guðsblessun fylgi honum á nýjum áfanga. Megi guð blessa eftirlifandi ástvini hans. Þeim sendum við hjón- in innilegar samúðar kveðjur. Bless- uð veri minningin um góðan sam- ferðamann. Árni Helgason Hún var óvænt og sár, _sú fregn er tjáði andlát Jóhannesar Árnason- ar, en hann varð bráðkvaddur að kvöldi 30. apríl, staddur í Reykjavík. Með honum er genginn drengur góður, traustur vinur og vammlaus embættismaður. Jóhannes var og einn þeirra manna sem skildi vanda landsbyggðar, vann henni allt og þorði að selja fram einarðar og vel grandaðar hugmyndir, um hvemig best yrði snúist til vamar og aukin sjálfstjóm og hagsæld í héraðum landsins. Jóhannes var fastheldinn á grón- ar venjur, traustar og gamlar stofn- anir. Skoðanir okkar féllu mjög saman um flest er laut að héraðs- málum og stjómsýslu á landsbyggð- inni. Við voram sammála um að sú atlaga sem gerð hefur verið að embættum sýslumanna í hinum dreifðu byggðum íslands og er að flestu leyti vanhugsuð og til þess gerð að hnekkja stöðum sýslu- manna, mun í raun fyrst og fremst bitna á landsbyggðarfólki og er því alvarlegt' byggðaröskunarmál. í þessum málum öllum talaði Jóhann- es af reynslu og henni óvenju mik- illi þar sem hann hafði bæði starfað sem sveitarstjómarmaður um langt árabil svo og í ýmsum stofnunum og nefndum og að endingu einnig sem sýslumaður í liðlega tvo ára- tugi. Jóhannes trúði einlægt á það já- kvæða í hveijum einstaklingi og hann var laus við að meta menn út frá pólitísku sjónarhomi, þó vissulega hefði hann mjög einarðar skoðanir í landsmálum og skipaði sér ávallt undir merki Sjálfstaeðis- flokksins. í samræmi við víðsýni og trú á vilja forsvarsmanna þjóðarinnar tii góðra verka og skynsamlegra lausna, ritaði Jóhannes nýverið prýðisgóða álitsgerð um fyrirhug- aðar breytingar til aðskilnaðar stjómsýslu og dómsvalds í héraði. Inntak hennar var að í þessum málum bæri að gæta sín, gera nauð- synlegar breytingar þó þannig að þær yrðu til bóta fyrir fólkið í landinu, sliguðu ekki ríkissjóð íjár- hagslega, enda yrði áfram byggt á því sem vel hefði reynst. Nú er leiðir skiljast er margs að minnast. Leiðir okkar Jóhannesar lágu fyrst saman á haustdögum 1952 er við settumst í 3ja bekk MA. Jóhannes kom frá Núpi, þar sem hinn virti skólastjóri séra Éirik- ur J. Eiríksson hafði mótað hann og marga aðra fríska menn er þetta haust settust í MA. Ég kom líka úr heimavistarskóla frá Eiðum eftir handleiðslu þess ágæta manns Þórarins skólastjóra Þórarinssonar. Ég fann mikinn samhljóm með þessum piltum. Þeim sem þá settust í MA var skipað saman í eina bekkjardeild B-bekk. Hinir sem fyrir vora sátu áfram saman í A-bekk. Þetta var afar ólíkt fólk, a.m.k. svona framan af enda A-bekkur einkum saman- settur af vel uppöldum stúlkuböm- um. B-bekkingar bjuggu flestir í heimavistum í því gamla góða skólahúsi frá 1906, fegurst húsa á íslandi og kynngimagnað. Lingeðja kennarar áttu ekki sjö dagana sæla við kennslu í 3ja bekk B veturinn 1952—1953. Gríðarleg hugkvæmni var í ýmsum þessara um tveggja tuga hraustra og óbældra stráka, til að fínna uppá hrellingum handa lærifeðram. Þau vináttubönd sem menn knýtast á menntaskólaáram í heimavist, slitna aldrei. Jóhannes Árnason var góður fé- lagi á heimavist. Hann var strax þá prúður í framgöngu, glettinn, en gaman hans var ávallt græsku- laust, hann vildi enga meiða. Hins vegar lét hann ekki eggja sig lengi til að fara í eina bröndótta, og reyndist rammur að afli, enda margverðlaunaður íþróttamaður og fylginn sér. Nú þegar ég handleik Carminu stúdenta 1956 frá MA, og lít á karíkatúrteikningu Páls læknis Þór- hallssonar af Jóhannesi, er sem ég hverfi 33 ár aftur í tímann. Róleg og glettin rödd Jóhannesar mælir, um leið og hann hampar tóbakspon- tunni „viltu í nefið gæskan" og sessunautur hans, prúð stúlka framan úr Eyjafirði, svarar að bragði „svei“. Þann 17. júní 1956, gengu 48 stúdentar út í sumarið á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.