Morgunblaðið - 10.05.1989, Page 22
22
MORGUNBLAÐIB MIÐVIKUDAGUR 1Ó. MAÍ 1989
Bandarískt
herskip:
Sex farast
í eldsvoða
Washington. Reuter.
SEX bandarískir sjóliðar biðu
bana og fimm særðust þegar
eldur kom upp í birgðaskipi
bandaríska sjóhersins, White
Plains, í Suður-Kínahafi í
gær. Talsmenn bandaríska
sjóhersins sögðu að eldurinn
hefði komið upp í vélarrúmi
skipsins í um 100 sjómílna
fjarlægð frá Hong Kong og
að tekist hefði að slökkva eld-
inn með aðstoð annarra skipa.
Birgðaskipið White Plains.
Mótmælt
í Leipzig
Austur-Berlín. Reuter.
AUSTUR-ÞÝSKIR lögreglu-
menn létu til skarar skríða
gegn 500 andófsmönnum sem
efndu til mótmæla í Leipzig
og handtók 16 manns. Að
sögn andófsmanna safnaðist
hópurinn saman eftir kvöld-
messu á mánudag til að mót-
mæla villandi upplýsingum
stjómvalda um bæjarstjómar-
kosningar sem fram fóru á
sunnudag. Einnig var því
mótmælt að 100 manns voru
handteknir á sunnudag fyrir
að andæfa kosningunum í
Leipzig.
Norrænir varnar-
málaráðherrar:
Vilja að út-
gjöld vegna
friðargæslu-
sveitajafiiist
Kaupmannahöfn. Reuter.
FJÓRIR norrænir varnar-
málaráðherrar, frá Noregi,
Svíþjóð, Danmörku og Finn-
landi, hvöttu til þess í lok
samráðsfundar þeirra í Kold-
ing í Danmörku í gær að að-
ildarríki Sameinuðu þjóðanna
legðu jafnt af mörkum til frið-
argæslusveita SÞ. Þeir sögðu
að kostnaður legðist að of
miklu leyti á þau ríki sem
legðu til flesta friðargæslu-
liða.
Verkfall
hjá BBC
London. Reuter.
Hátt í 12.000 fréttamenn
og tæknimenn hjá BBC World
Service hófu tveggja sólar-
hringa verkfall í gær með
þeim afleiðingum að útsend-
ingar útvarps og sjónvarps
riðluðust verulega. Forráða-
menn BBC, sem er í ríkiseign,
hafa boðið starfsmönnum 7%
launahækkun og hafa ítrekað
að tilboðið sé endanlegt. Verð-
bólga í landinu er hins vegar
7,9% og búist er við að hún
aukist á næstunni. Starfs-
menn BBC krefjast 16%
launahækkunar og segjast
þeir hafa mun lægri laun en
starfsmenn á einkastöðvum.
Reuter
A TLANTIS LENTIÁ EFTIR ÁÆTL UN!
Geimferjan Atlantis lenti 38 sekúndum á eftir áætlun
eftir annars vel heppnaða íjögurra daga geimferð á
steyptri flugbraut í Mojave-eyðimörkinni í Kalifomíu í
fyrradag. Mikill hliðarvindur var í lendingunni sem tókst
þó mjög vel. í ferðinni var rannsóknarfarinu Magellan
skotið áleiðis til Venusar. í október verður samskonar
könnunarfari skotið frá geimfeiju áleiðis til Júpíters og
í desember mun geimfeijan flytja risastóran geimkíki á
braut um jörðu. Myndin vartekin er Atlantis lenti í fyrra-
dag. Á innfelldu myndinni veifar áhöfnin til ljósmyndara.
Valdaráni
afstýrt í
Guatemala
Guatemalaborg. Reuter.
Stjórnarhermenn í Mið-
Ameríkuríkinu Guatemala brutu
í gær á bak aftur tilraun nokk-
urra fyrrverandi og núverandi
herforingja og fylgismanna
þeirra til að ræna völdum í
landinu.
Valdaránstilraunin hófst í dögun
er herþotur og þyrlur sáust á sveimi
yfir forsetahöllinni. Síðar varð ljóst
að uppreisnarmenn höfðu náð út-
varpsstöð ríkissútvarpsins í höfuð-
borginni á sitt vald er óþekktur
maður hvatti ráðamenn allra út-
varps- og sjónvarpsstöðva landsins
til að samtengja búnað stöðva sinna
við senditíðni ríkisútvarpsins því
von væri á ávarpi til þjóðarinnar.
Því ávarpi var hins vegar aldrei
útvarpað þar eð þær fréttir bárust
loks að valdaránstilrauninni hefði
verið afstýrt.
í fréttatilkynningu frá forseta
landsins sagði að fyrrum foringjar
innan flughersins og nokkrir fylgis-
menn þeirra hefðu staðið fyrir
valdaránstilrauninni. Vamarmála-
ráðherra landsins skýrði frá því í
gærkvöldi að nokkrir starfandi for-
ingjar í her landsins hefðu einnig
tekið þátt í valdaránstilrauninni og
kvað flesta leiðtoga uppreisnar-
manna á bak við lás og slá.
Fækkun langdrægra kjarnorkuvopna risaveldanna:
Undanskilja ber geimvam-
ir í hugsanlegum samning-i
- segir Richard Burt, aðalsamningamaður Bandaríkjastjórnar
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti hefur skipað Ric-
hard Burt, fyrrum sendiherra Bandaríkjanna í Vest-
ur-Þýskalandi og aðstoðarutanríkisráðherra á sviði
málefha Evrópu og Kanada, formann samninganefnd-
ar Bandaríkjanna í viðræðum við Sovétríkin um fækk-
un langdrægra kjamorkuvopna. Burt kom í síðustu
viku fyrir utanríkismálanefnd öldungadeildar Banda-
ríkjaþings og lagði áherslu á að undanskilja bæri
geimvarnaráætlun Bandaríkjamanna í hugsanlegum
samningi um fækkun langdrægra gereyðingarvopna.
Geimvaraaráætlunin hefur verið einn helsti ásteyting-
arsteinninn í viðræðum risaveldanna á þessum vett-
vangi.
Richard Burt.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, mun í dag, miðviku-
dag, ræða við hinn sovéska starfs-
ENN er allt á huldu um hvað olli
flugslysinu við Oskarshamn í
Eystri-Smálöndum síðastliðinn
mánudagsmorgun. 16 manns fór-
ust með flugvélinni þegar hún
hrapaði rétt fyrir lendingu í
ágætu veðri.
Menn úr flugslysanefnd og margir
sérfræðingar aðrir vinna nú að því
að skoða flugvélarflakið og eru
margar getgátur uppi. Hefur verið
nefnt, að fuglahópur geti hafa lent
í hreyflunum eða að bilun hafi valdið
en svörin liggja ekki á lausu enda
ekkert heillegt úr vélinni nema stélið
eitt. í gær var einnig unnið að því
að bera kennsl á líkin en eldurinn
fór svo illa með þau, að þau verða
ekki þekkt nema eftir tannlækna-
skrám, tannkortunum svokölluðu.
Fjórir þingnefndarmenn og helsti
frammámaður jafnaðarmanna í
Stokkhólmi eru meðal þeirra, sem
fórust, og var þeirra minnst í gær á
þingi með einnar mínútu þögn. Höfðu
þingstörfin þá legið niðri í sólarhring.
Flug til og frá Oskarshamn var
hafið aftur í gær og meðal annars
með flugvél sömu tegundar og fórst
bróður sinn LdUard Shevardnadze í
Moskvu. Munu þeir m.a. ræða hve-
nær hefja beri á ný viðræður um
á mánudag. Flugmennirnir tveir, sem
þá létu lífið, voru þrautreyndir í
starfi sínu, jafnt utanlands sem innan
og oft við erfiðar aðstæður.
Embættismenn sögðu að Thatcher
hefði gert Ortega það deginum ljós-
ara að ekki yrði um neina aðstoð að
ræða frá Bretum fyrr en lýðræðisleg-
ar umbætur hefðu átt sér stað í Nic-
aragua og stjórn sandinista hefði
hætt stuðningi við skæruliða í öðrum
ríkjum Mið-Ameríku.
fækkun langdrægra vopna, sem í
daglegu tali nefnast START-viðræð-
ur, en þær hafa legið niðri frá því
George Bush var kjörinn forseti
Bandaríkjanna. Líkt og áður munu
fundir samninganefndanna fara
fram í Genf.
Richard Burt sagði er hann svar-
aði spurningum þingmanna að ríkis-
stjórn George Bush legði einkum
áherslu á að ná fram samningum
um niðurskurð hefðbundins vígbún-
aðar í Evrópu og fækkun lang-
drægra kjarnorkuvopna. Hann vakti
hins vegar athygli á því að leysa
þyrfti fjölmörg ágreiningsefni áður
en unnt yrði að semja um fækkun
öflugustu gereyðingarvopnanna og
nefndi einkum hreyfanlegar lang-
drægar landeldflaugar, sem Banda-
ríkjamenn hafa hingað til viljað
banna en hafa nú ákveðið að koma
sér upp, ákvæði um eftirlit, og stýri-
flaugar í skipum og kafbátum sem
og í flugvélum.
Burt lýsti yfir því að í hugsanlegu
samkomulagi risaveldanna um fækk-
un langdrægra vopna bæri að undan-
skilja öll ákvæði sem á einhvern
Ortega hefur heimsótt 10 Evró-
puríki undanfarna daga í leit að efna-
hagsaðstoð. Sfðar í þessari viku hefst
í Stokkhólmi ráðstefna ríkja, sem
hyggjast veita Nicaragua aðstoð og
tilkynnti Thatcher Ortega að Bretar
myndu ekki mæta þar.
Embættismenn sögðu að Thatcher
hátt gætu takmarkað rétt Banda-
ríkjamanna til að vinna áfram að
þróun geimvama.
Allt frá því Míkhaíl S. Gorbatsjov
komst til valda árið 1985 hafa Sovét-
menn lagt á það áherslu í viðræðum
við Bandaríkjamenn að samið verði
um takmarkanir geimvama, líkt og
berlega kom í ljós á Reykjavíkur-
fundinum 1986. Telja þeir uppsetn-
ingu og ákveðnar tilraunir með slík
vopnakerfi í andstöðu við ABM-
sáttmálann svonefnda frá árinu 1972
um takmarkanir gagneldflaugakerfa
en hugmyndin að baki geimvarnará-
ætluninni er einmitt sú að unnt verði
að granda langdrægum kjarnorku-
eldflaugum á flugi. Raunar sögðu
sovéskir ráðamenn að Reagan for-
seti væri „hugsjúkur" er hann kynnti
geimvamaráætlunina árið 1983 en
fáeinum vikum áður hafði hann sagt
Sovétríkin vera „keisaradæmi hins
illa“. Nú hallast fjölmargir.sérfræð-
ingar að því að geimvarnaráætlunin
hafi fengið Sovétmenn að samninga-
borðinu á ný en þeir slitu öllum bein-
um afvopnunarviðræðum í kjölfar
þeirrar ákvörðunar NATO-ríkjanna
að hefja uppsetningu meðaldrægra
kjarnorkueldflauga í Vestur-Evrópu.
hefði sett það sem skilyrði fyrir að-
stoð við Nicaragua að raunverulegar
lýðræðisumbætur ættu sér stað, er-
lendum ráðgjöfum yrði vísað úr landi,
fækkað yrði í stjómarher landsins
og tilraunum til að grafa undan
stjórnum annarra ríkja yrði hætt.
Sagði hún Ortega að henni dygðu
ekki orð hans eða ásetningur heldur
yrði hann dæmdur af verkum sínum.
Óvenju ítarlega var skýrt frá fundi
þeirra.
Flugslysið í Svíþjóð:
Orsökin ekki auðfimdin
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
Thatcher neitar Ortega um aðstoð:
Loforð Daniels Ortega og
ásetningur dugar ekki sér
London. Daily Telegraph.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra, hafnaði beiðni um aðstoð við
Nicaragua á rúmlega ldukkustundar fundi sem hún átti með Daniel
Ortega, forseta Nicaragua, í embættisbústað sinum í Downingstræti 10
á mánudag.