Morgunblaðið - 10.05.1989, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MAI 1989
27
Bj arnarfj ör ður:
Stöðuvatn á Djúpvegi
Laugarhóli.
DJÚPVEGUR má lieita að hafa
verið ófær smærri bílum mestan
hluta sl. viku, vegna stöðuvatns
sem myndaðist á honum á Kálfa-
nesflóa, norðan Hólmavíkur. Var
þetta svo mikill vatnselgur að
draga varð minni bíla yfir eða
þeir snéru frá. Þeir sem gerðu
það ekki áttu á hættu að stöðv-
ast þarna.
Um þriðja maí tók að safnast svo
mikið vatn á veginum norðan
Hólmavíkur, að það varð fljótlega
ófært fyrir smæstu bíla. þetta var
á svokölluðum Kálfanesflóa, en þar
er sléttlendi mikið og djúpur snjór
ennþá, sem hindraði með öllu að
vatnið gæti runnið burt. Smám
saman jókst vatnið og varð enn
meiri farartálmi, en úrræði til að
bæta þarna um fundust ekki fyrr
en seint á laugardag þann 6. maí,
að grafin var geil í snjóinn og krap-
ið umhverfis svo nokkuð af vatninu
rann burt.
Gárungar kölluðu þetta jafnvel
„Rauða hafið“ og minntust þess er
það opnaðist svo að gyðingar gætu
gengið yfir það þurrum fótum.
Ekki varð mönnum samt að ósk
sinni og ófáir bílar drápu á sér áður
en vatnsborðið var lækkað, en þar
sem dýpst var, flaut yfir ljós bíla.
- SHÞ
Kvenstúdentar
á Hótel Borg
Arshátíð Kvenstúdentafélags
Islands og Félags íslenskra há-
skólakvenna verður á Hótel Borg
á morgun.
25 ára stúdínur ætla að sjá um
skemmtiatriði. Miðar eru seldir á
Hótel Borg í dag milli kl. 16 og 18.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 9. maí.
FISKMARKAÐUR hf í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 41,50 41,50 41,49 0,040 1.639
Þorskur(óst) 41,50 41,50 41,50 1,791 74.308
Ýsa 88,00 57,00 60,97 1,673 101.971
Ýsa(ósl.) 54,00 54,00 54,00 0,797 43.038
Ýsa(smá) 15,00 15,00 15,00 0,177 2.655
Karfi 29,00 27,00 27,83 0,836 23.264
Ufsi 27,50 27,00 27,25 11,733 319.701
Steinbítur 24,00 11,00 20,11 0,972 19.544
Hlýri 15,00 15,00 15,00 0,123 1.845
Langa 30,00 30,00 30,00 2,434 73.005
Lúóa 240,00 75,00 113,31 0,556 63.000
Koli 35,00 35,00 35,00 0,074 2.590
Keila 10,00 10,00 10,00 0,443 4.430
Skötuselur 70,00 70,00 70,00 0,003 210
Samtals 33,77 21,650 731.200
Selt var frá Faxeyri og úr bátum. í dag verða m.a. seld 25 tonn
af þorski og 3 tonn af steinbít úr Núpi ÞH og þorskur úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 47,00 37,00 41,87 1,466 61.379
Ýsa 77,00 50,00 63,05 8,630 544.150
Karfi 34,00 34,00 34,00 0,122 4.026
Ufsi 28,00 15,00 27,12 2,278 61.778
Steinbítur 37,00 11,00 11,95 1,521 18.179
Hlýri 7,00 7,00 7,00 0,192 1.344
Langa 20,00 20,00 20,00 0,200 4.000
Lúða 280,00 280,00 280,00 0,046 2.880
Blálanga 27,00 27,00 27,00 0,792 21.384
Keila 8,00 8,00 8,00 0,158 1.264
Samtals 47,21 15,494 731.457
Selt var úr bátum. í dag verða meðal annars seld 10 tonn af
ufsa úr Freyju RE og óákveðið magn úr bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 49,50 49,50 49,50 0,500 24.750
Þorskur(óst) 47,50 25,00 44,40 20,815 924.089
Ýsa 53,00 53,00 53,00 2,000 106.000
Ýsa(óst) 61,00 20,00 50,63 32,323 1.636.376
Karfi 15,00 15,00 15,00 1,130 16.950
Ufsi(óst) 22,00 15,00 20,19 1,807 36.479
Steinbítur 6,00 5,00 5,56 0,900 5.000
Skarkoli 40,00 35,00 37,81 0,955 36.105
Lax 195,00 195,00 195,00 0,057 11.115
Samtals 46,11 61,557 2.838.086
Selt var aðallega úr Eldeyjar-Boða GK og Hraunsvík GK. 1 dag
verða m.a. seld 47 tonn af þorski, 2 tonn af steinbít og 2 kör
af ýsu úr Eldeyjar-Hjalta GK, 60 tonn af þorski úr Sveini Jóns-
syni KE og 10 til 15 tonn af ýsu úr Þuriði Halldórsdóttur GK.
LÍFOGKIÖRf ;
KOLAPORTINU Á
LAUGARDÖGUM
KOLAPORTIÐ
MOHKaUXfOg r
... undir seðlabunkanum.
LIF Uu KIOR I
KOLAPORTINU Á
LAUGARDÖGUM
KOLAPORTIÐ
M«RKa Ðí'ORr
... undir seðlabunkanum.
„Hæltuleg'
sambönd“ í
Bíóborg
BÍÓBORGIN hefur tekið til sýn-
inga myndina „Hættuleg sam-
bönd“. Með aðalhlutverk fara
Glenn Close og John Malkovich.
Leikstjóri er Stephen Frears.
De Merteuil markgreifafrú er
hið mesta klækjakvendi og notar
vini sína hiklaust til þess að klekkja
á ýmsum, sem henni er eitthvað í
nöp við. Auk þess er hún laus á
kostunum og verðlaunar elskhuga
sína, þegar hún hefur nótað þá til
einhverra óhappaverka. Fá þeir þá
að gista hjá henni eina nótt eða
svo og fer dvalartíminn eftir geð-
þótta þessarar aðalsfrúar.
íhugunarfélag-
ið flytur
ÍSLENSKA íhugunarfélagið
hefúr nú flutt alla starfsemi sína
á Laugaveg 18a, fjórðu hæð. Þar
verður aðalskrifstofa félagsins
og kennsluaðstaða.
íslenska íhugunarfélagið var
stofnað árið 1975. Meginhlutverk
þess er að kynna og kenna íhugun-
artækni Maharishi Mahesh Yogi,
innhverfa íhugun og þau fræði sem
að baki liggja.
Fyrsta námskeiðið í hina nýja
húsnæði hefst á morgun, fimmtu-
dag, klukkan 20.30 með opnum
kynningarfyrirlestri þar sem fjallað
verður um hlutverk Innhverfrar
íhugunar í daglegu lífí.
Morgunblaðið/Ragnheiður Gunnarsdóttir.
Ingi Hans Jónsson.
Grundarjjörður:
Ingi Hans með
myndlistarsýn-
ingu
UM ÞESSAR mundir stendur
yfir myndlistarsýning í félags-
heimili Alþýðubandalagsins í
Grundarfirði. Þar sýnir Ingi
Hans Jónsson 16 myndir. Flestar
myndirnar eru vatnslitamyndir
en Ingi Hans notar líka túss, olíu-
og krítarpastel.
Ein höggmynd er líka á sýning-
unni unnin úr islensku gijóti.
Myndefni Inga Hans tengjast haf-
inu, atvinnu- og mannlífi á Grund-
arfirði fyrr og nú.
Mjög góð aðsókn hefur verið að
sýningunni og seldust flestar
myndirnar strax fyrstu dagana.
- Ragnheiður
Andakíll:
Spáð hlýnandi
veðri í júní
Hvannatúni.
A MEÐAN veðurfræðingar spá
ekki um veðurútlit fyrir lands-
menn, verður manni hugsað til
þeirra, sem geta sér til um tíðar-
far fram í tímann.
Fullorðnir menn þykja sumir
sannspáir og einn aldraður Borg-
firðingur, sem undirritaður frétta-
ritari hittir reglulega, hefur i mörg
ár leikið sér að slíkum spám og ef
á heildina er litið verður að viður-
kenna, að hann hefur talsvert til
síns máls.
í haust tók maður spá hans um
gott tíðarfar fram að jólum fegins
hendi. Spáin um snjómikinn og
langan vetur sem tæki við, var
ekkert fagnaðarefni og enn síður
því sem á eftir að fylgja: það á
ekki að hlýna að ráði fyrr en um
miðjan júní.
Skarðsheiðin séð norðan frá er
nú jökli líkust, falleg er hún en
kuldaleg svona alhvít, hvítari en
síðustu áratugi. Hafnarfjall og
Tungukollur, fjöllin í suðri upp af
Borgarnesi, segist einn gamall
Borgnesingur ekki muna hvítari en
þessar vikur. - DJ
„Ungu byssu-
bófarnir44
BÍÓHÖLLIN hefúr tekið til sýn-
inga myndina „Ungu byssubóf-
arnir“. Með aðalhlutverk fara
Emilio Esteves og Kiefer Sut-
herland. Leiksljóri er Christop-
her Cain.
Morton hefur komið sér vel fvrir í
smáborg í suðvesturhluta Banda-
ríkjanna, rekur þar bæði búskap
og verslun. Hann tekur því illa,
þegar Englendingur, John Tunstall
að nafni, leyfir sér að stofna versl-
un í samkeppni við sig.
Fyrirlestrar á
vegum Hag-
sögufélagsins
DR. TEODOR Shanin prófessor
í mannfræði og forseti félagsvís-
indadeildar háskólans í Manc-
hester heldur tvo fyrirlestra í
boði Hagsögufélags íslands á
morgun og föstudag, kl. 17, í
stofú 102 i Lögbergi.
„Smábændur og bændahag-
kerfi“ nefnist fyrri fýrirlesturinn,
sem fjallar um „þriðju leiðina" í
rannsóknum á bændasamfélögum
sem byggir mest á k'enningum
Tsjayanovs. Þessi fýrirlestur er
haldinn í samvinnu Hagsögufélags-
ins og Sagnfræðistofnunar.
„Perestrojka" er efni síðari fyrir-
lestursins. Shanin hefir góð tengsl
við ýmsa áhrifamenn innan sov-
ésku akademíunnar og einnig við
marga helstu ráðgjafa Gorbatsjovs.
Hann er nýkominn frá Sovétríkjun-
um þannig að hér gefst tækifæri
að fá upplýsingar um það sem er
að gerast og hvert perestrojkan
stefnir.
Teodor Shanin fæddist í Tallinn
í Eistlandi 1930. Hann fluttist til
ísrael og stundaði þar nám í fé-
lagsvísindum við háskólann í Jerú-
salem. Á sjötta áratugnum fór
hann til Bretlands og lauk doktors-
prófi við háskólann í Birmingham.
Kirkjubæjarklaustur:
Vortónleik-
ar Tónlist-
arskólans '
_ Kirkjubæjarklaustri.
ÁRLEGIR vortónleikar tónlist-
arskólans á Kirkjubæjarklaustri
voru haldnir í félagsheimilinu
Kirkjuhvoli laugardaginn 29.
apríl.
Komu þar fram allir nemendur
skólans og léku ýmist einleik eða
samleik á flautu, orgel, píanó og
gitar. Þá söng barnakór einnig
nokkur lög. Þess má geta að mik-
ill áhugi er á tónlistamámi i hérað-
inu, t.d. eru um 40% af nemendum
grunnskólans einnig í tónlistar-
skóla.
Skólastjóri tónlistarskólans er
Mínerva Haraldsdóttir en auk
hennar starfa við skólann 2 stunda-
kennarar.
Ágóði af tónleikum þessum
rennur í sjóð sem stofnaður hefur
verið til kaupa á flygli í félags-
heimilið. Stefnt er að því að hljóð-
færið verði komið fyrir næsta
skólaár og er ekki að efa að það
verður mikil lyftistöng fyrir allt
tónlistarlíf á svæðinu og ekki sist
nemendur tónlistarskólans, sér-
staklega þá sem langt eru komnir
í.námi. _ HSH
Nemendaverk-
eftii aðgerða-
rannsókna
Aðgerðarannsóknafélag ís-
lands heldur kynningarfúnd
þann 11. mai klukkan 17.15 um
nokkur verkefni sem nemendur
hafa nýlega unnið.
Nemendumir em flestir að ljúka
námi í tölvunarfræði frá Háskóla
íslands og hafa unnið þessi verk-
efni í námskeiðinu „Notkun að-
gerðagreiningar". Þeir munu sjálfir
kynna verkefnin og eru ætlaðar
10—15 mínúturfyrirhvertþeirra.
Auk þess mun Snjólfur Olafsson
segja stuttlega frá öðrum verkefn-
um og ræða almennt um nemenda-
verkefni. Tilgangur þessa fundar
er m.a. sá að auðvelda mönnum
að koma auga á og afmarka verk-
efni í sínu fýrirtæki.
Fundarstaður er stofa 101 í
Odda, húsi Háskóla íslands.