Morgunblaðið - 11.05.1989, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGlÁ fí.-MÁ ’ÍW
Fegurðardrottning
íslands 1989
KEPPENDUR KYNNTIR
Fegurðardrottning íslands 1989 verðurkjörin
á Hótel íslandi á miðnætti mánudagskvöldið
15. maí, að kvöldi annars dags hvítasunnu.
Tíu stúlkur taka þátt í úrslitakeppninni að
þessu sinni, en undankeppni hefur þegar farið
fram í öllum kjördæmum landsins. Sjö manna
dómnefnd mun skera úr um hver hlýtur hinn
eftirsóknarverða titil. Dómnefndina skipa:
Olafur Laufdal veitingamaður, sem er
formaður, Sigtryggur Sigtryggsson
fréttastjóri, Friðþjófur Helgason ljósmyndari,
Erla Haraldsdóttir danskennari, Sóley
Jóhannsdóttir danskennari, Anna Margrét
JónsdóttirFegurðardrottningíslands 1987 og
Ingi Björn Albertssonalþingismaður. Auk
Fegurðardrottningar íslands 1989, verður
valin besta ljósmyndafyrirsætan og keppendur
velja úr sínum hópi vinsælustu stúlkuna.
Keppendur koma fram á sundbolum og í
samkvæmiskjólum og verður athöfninni
sjónvarpað beint á Stöð 2. Kynnar á
úrslitakvöldinu verða leikararnir Sigrún Waage
og Valdimar Örn Flygenring. Hér kynnir
Morgunblaðið fimm stúlknanna, sem þátt taka
í úrslitakeppninni. Hinar fimm verða svo
kynntar í Morgunblaðinu á laugardag.
Ljósmyndir: Bjarni Eiríksson
Elfa Hrund
Guttorms-
dóttir
Guðrún
Eyjólfsdóttir
B uðrún Eyjólfsdóttir var
■ ~WT kjörinn
V m Fegurðardrottning
Vesturlands í
undankeppninni, sem fram fór á
dögunum. Hún er 18 ára, fædd 20.
nóvember 1970 á Akranesi.
Foreldrar hennar eru Ása
Valdimarsdóttir og Eyjólfur
Harðarson. Guðrún stundar nú nám
við Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi, en stefnir á erlenda
listaskóla. Helstu áhugamál hennar
eru ferðalög, íþróttir, teikning og
að kynnast fólki. Guðrún er 178 sm.
aðhæð.
Guðbjörg
Hilmars-
dóttir
Heiðrún
Perla
Heiðarsdóttir
TT
Jeiðrún Perla
m ■ Heiðarsdóttir er 18 ára,
m M fædd í Reykjavík 14.
m nóvember 1970 og var
kjörin Fegurðardrottning
Suðurlands í forkeppninni. Hún býr
nú í Hveragerði. Foreldrar hennar
eru Heiðar Magnússon og Kristín
Kristinsdóttir. Heiðrún Perla stundar
nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands
og starfar með náminu á Heilsuhæli
Hveragerðis. Hún stefnir að vinnu
við ferðamál í framtíðinni enda eru
þau helstu áhugamál hennar auk
útiveru, tónlistar og námsins. Hún
æfir bæði sund og skíðaíþróttir.
Heiðrún Perla er 173 sm. að hæð.
Hildur
Dungal