Morgunblaðið - 11.05.1989, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 11.05.1989, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1989 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL.10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Þessir hringdu . . Laun kennara Guðbjörg Tómasdóttir- hringdi: „Bókagerðarmaður spyr um laun kennara í Velvakanda föstu- daginn 5. maí og get ég upplýst hann um þetta. Flokkur 141 er grunnflokkur grunnskólakennara og þar hafa þeir í byijunarlaun á milli 50 og 51 þúsund á mánuði. Flokkur 142 er grunflokkur fram- haldsskólakennara og eru þeir með rúmlega 52 þúsund. Þetta er miðað við fulla stöðu. Kennarar sem hafa starfað í 18 til 30 ár fá 74.574 kr. á mánuði. Ég held að kennarastéttin sé eina starfsstéttin í landinu sem býr við það að hluti af launum hvers mánðar yfir árið er tekinn og geymdur vaxta og verðbóta- laust, eftir því sem ég best veit, og svo er féð notað til að borga út kaup yfir sumartímann. Yfir- leitt heyrir maður talað um að kennarar séu í fríi allt sumarið á fullu kaupi, en ég hef aldrei heyrt minnst á að hluti af þessum þrem- ur mánuðum er sumarfrí rétt eins og venjulegt fólk fær en hinn tímann eru þeir búnir að vinna af sér.“ Þakka stuðning’inn Kennari á landsbyggðinni - hringdi: „Bókagerðarmaður spyr um laun kennara í Velvakanda fyrir nokkru. Ég er kennari með BA- próf og hef kennt fulla kennslu í þijú ár. Ég hef 58.337 í laun á mánuði. Heimavinnuyfírvinna er 2,9 tímar á mánuði (u.þ.b. 1700 kr.) í mars fékk ég útborgað sam- tals 51 þúsund krónur og í mars- mánðuði borgaði ég 20 þúsund af námsláni. Ég vill þakka Félagi bókargerðarmanna og Snót í Vestmannaeyjum stuðninginn og held að hin verkalýðsfélögin hefðu betur staðið með okkur.“ Að hafa eitthvað að segja Lesandi hringdi: „í sambandi við sönglaga- keppnina vil ég koma eftirfarandi á framfæri: Agætu dægurlaga- höfundar. Athugið að hafa eitt- hvað áð segja áður en þið farið að semja því þá gæti tekist betur til. Texti lagsins sem tapaði svo glæsilega var ekki annað en bull. Við hljótum að gera meiri kröfur. Á undanfömurri áratugum höfum við eignast mörg góð dægurlög með góðum söngtextum. Ef við höfum ekkert frambærilegt færi betur á því að taka ekki þátt í þessari keppni.“ Úlpa Úlpa var tekin í misgripum í Tívolí í Hveragerði sl. laugardag. Upplýsingar í síma 688213. Fæðmgarorlof er ekki frí Til Velvakanda. Ég hef stundum gaman af að lesa það sem O.Ó. skrifar í Tímann um hin ýmsu málefni. Oft skrifar hann þátt sem nefnist „Vítt og breitt". Gamansemin þar er að vísu stundum dálítið köld og útúrsnún- ingarnir út í hött. En þó er viss glettni í þessu. Föstudaginn 3. mars skrifaði O.Ó pistil sem hann nefndi „menntandi bameignir". Þar er á skondinn hátt gert gys að þeim sem beijast fyrir því sjálfsagða réttlætismáli að vinna við heimili og uppeldi verði metin til starfsreynslu. O.Ó. þykist halda að börn skjótist út úr mæðr- um sínum og hlaupi þegar í stað út í lífið, alsjálfbjarga. Það virðist ekki hvarfla að honum, blessuðum karl- inum, að það þurfi að afla sér neinn- ar kunnáttu til að annast börn, hvað þá að sú kunnátta geti komið að gagni viðrirlausnir annarra verk- efna. Auðvitað er O.Ó. að hæðast. En því miður endurspeglar þetta háð viðhorf þjóðfélagsins til mikil- vægra og ómissandi starfa. Sannleikurinn er sá að „barn- eignafrí" eru síður en svo nein frí. Fyrir nokkrum árum fór ég í þriggja mánaða fæðingarorlof. Á þeim tíma skilaði ég samfélaginu vinnu- stundafjölda sem svaraði til liðlega átta mánaða vinnumarkaðsvinnu. Þar að auki var þetta lærdómsríkur tími. Ég gæti trúað að margar kon- ur hefðu svipaða sögu að segja. Það er heldur engin ástæða til að úti- loka karlmenn frá þeirri reynslu og menntun sem umönnun barna hef- ur í för með sér. Guðrún 20% VERDUEKKUN Eldhúsinnréttingar Baöherbergisinnréttingar Fataskápar Sýningarsalur opinn: Mánudaga-föstudaga frá kl. 09.00-12.30 og 13.30-18.00 Laugardaga frá kl. 11.00-16.00 Sunnudaga frá kl. 13.00-16.00 Innréttingar 2000 hf., Síðumúla 32, sími 680624. GARÐASTAL Afgreitt eftir máli. Allir fylgihlutir. = HÉÐINN = STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000 U Við seljum örfáa Citroén AX, árgerð 1989, á tilboðsverði í nokkra daga. Allt að 72 þúsund króna afsláttur. Citroén AX hefur slegið í gegn í Evrópu enda er hann einstaklega sprækur en sparneytinn fjölskyldubíll. Skoðanakönnun Hagvangs sýnir að íslenskir kaupendur (93% aðspurðra) kunna svo sannarlega að meta AX-inn sinn. Citroén AX fæst þriggja og fimm dyra. Hikaðu ekki, tryggðu þér splunkunýjan Citroén AX á tilboðsverði, frá 469.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.