Morgunblaðið - 11.05.1989, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1989
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1989
31
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
FlaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið.
Stórhuga framtak
Flugleiða
Fáar fullvalda þjóðir eru
jafn háðar viðskiptum og
samgöngum við umheiminn og
við Islendingar.
Við erum eyþjóð, yzt í ver-
aldarútsæ, sem flytur úr landi
meira af þjóðarframleiðslu og
inn stærri hlut nauðsynja en
flestar aðrar. Velferð í landinu
hvílir að stórum hluta á hag-
kvæmum milliríkjaviðskiptum.
Lega landsins í Norður-
Atlantshafi, miðsvegar milli
hins gamla og nýja heims,
eykur á margs konar mikil-
vægi þess, ekki sízt í sam-
göngum milli Evrópu og
Ameríku.
Búseta í landinu hefur alla
tíð byggzt að dijúgum hluta á
öruggum samgöngum við um-
heiminn. Það var, svo dæmi
sé tekið, engin tilviljun að Is-
lendingar settu það skilyrta
ákvæði inn í Gamla sáttmála
1262-1264 að „sex skip skuli
ganga af Noregi til Islands tvö
sumur hin næstu, en þaðan í
frá sem konungi og hinum
beztu bændum landsins þykir
hentast landinu“. Það var ekki
sízt ónógur innlendur floti til
að halda uppi samgöngum við
landið sem knúði landsmenn
til Gamla sáttmála.
Svo háðir sem Islendingar
vóru samgöngum við umheim-
inn á þrettándu öld hefur mik-
ilvægi þeirra margfaldazt —
hóflega orðað — með gjör-
breyttri heimsmynd. Breyttar
aðstæður spanna alla þætti í
samskiptum þjóða heims, en
einkum á sviði framleiðslu, við-
skipta og samgangna, mennt-
unar og þekkingar.
Það er ekki sízt mikilvægt
að „tryggja samgöngur til og
frá landinu með eigin flug-
flota“, eins og Sigurður Helga-
son, stjórnarformaður Flug-
leiða, komst réttilega að orði
þegar ALDÍS, hin nýja Boeing
737-400-þota Flugleiða kom
til landsins fyrir fáeinum dög-
um.
Steingrímur J. Sigfússon,
samgönguráðherra, sagði
m.a., að með komu þessarar
þotu til Islands væri fagnað
nýjum kafla í islenzkri flug-
sögu. Og víst er að með kaup-
um á fimm Boeing 737-400-
þotum hafa Flugleiðir stigið
djarft skerf til styrktar og
tryggi ngar öruggu m flugsam-
göngum okkar við umheiminn.
Þetta framtak treystir íslenzkt
atvinnulíf, tryggir flugfar-
þegum betri farkosti og flug-
liðum betri vinnutæki. Hlið-
stætt skref þarf óhjákvæmi-
lega að stíga, áður en langir
tímar líða, að því er varðar
innanlandsflugið, sem gegnir
vaxandi hlutverki í samfélag-
inu.
Því stóra skrefi, sem Flug-
leiðir hafa nú stigið inn í
framtíðina, fylgir mikil fjár-
festing, mikil rekstraráhætta.
Þessi fjárfesting er ekki aðeins
í farkostunum sjálfum, sem
þó vegur efalítið þyngst, held-
ur og í menntun flugliða, flug-
virkja, flugumsjónarmanna
o.s.frv. Ef vel tekst til, sem
vonandi verður, reynist þessi
fjárfesting gjöful, bæði fyrir
flugfélagið og þjóðfélagið. Þær
þjóðir einar, sem halda vöku
' sinni á sviði menntunar, þekk-
ingar og tækni, ganga til góðs
götuna fram eftir veg.
Fjölmargar atvinnugreinar,
þar á meðal allir þættir ferða-
þjónustu, tengjast hagsmuna-
lega flugsamgöngum. Sama
máli gegnir um menningarleg,
félagsleg og viðskiptaleg
tengsl við umheiminn, sem
vaxa ár frá ári. Þetta framtak
er því mikilvægt fyrir flesta
þætti samfélagsins — og
íslenzkt atvinnu- og efna-
hagslíf á heildina litið.
Saga íslenzka flugsins er
ævintýri líkust. Einstaklingar
þeir, sem brutu ísinn og
byggðu atvinnugreinina upp,
lyftu sannkölluðum Grettistök-
um. Flugið er gott dæmi um
það hvað menntun, þekking
og framtak einstaklinganna
getur fært samfélaginu þegar
vel tekst til. Þó var oft á bratt-
an að sækja og vegartálmar
þröngsýni á stundum í vegi
forystumannanna.
Kaupin á nýjum þotum
Flugleiða færa okkur heim
sanninn um að enn situr djörf-
ung við stjórnvöl fyrirtækisins.
Framundan er hörð fjölþjóðleg
sarakeppni, þar sem fram-
víndan er að hluta til ófyrir-
séð. Morgunblaðið árnar Flug-
leiðum, starfsfólki fyrirtækis-
ins og þjóðinni allri heilla með
þann mikilvæga áfanga, sem
nú hefur verið náð.
Ahrif verkfalls félaga í BHMR
Hugsanleg framlenging skólaárs:
Kæmi illa við sumar-
hótel í framhaldsskólum
EF SKÓLI yrði lengdur fram á sumarið eftir að verkfalli Hins íslenzka
kennarafélags lýkur kæmi það væntanlega illa við ferðaþjónustu. Sum-
arhótel eru rekin í nokkrum framhaldsskólum á landsbyggðinni, og
lenging skólaársins myndi raska starfsemi þeirra. Pantanir á hótel-
plássi snemmsumars eru byrjaðar að berast, margar frá útlendingum.
Ferðaskrifstofa Islands rekur tvö
edduhótel í framhaldsskólum; í
Menntaskólanum á Akureyri og í
Menntaskólanum á Laugarvatni.
Tryggvi Guðmundsson hjá eddudeild
skrifstofunnar sagði í samtali við
Morgunblaðið að mikið væri búið að
panta á báðum stöðum; frá 18. júní
á Akureyri og frá 10. júní á Laugar-
vatni. „Þetta eru staðfestar pantanir
erlendis frá og fólk er í mörgum til-
vikum farið að borga inn á þær. Frá
okkar hálfu er útilokað að kennsla
verði framlengd í þessum skólum,
það yrði stórkostlegt mál. Eins og
neytendalöggjöfin er víða í ná-
grannalöndunum, veit ég ekki hvern-
ig það endaði," sagði Tiyggvi.
Ekki mikil brögð
að verkíallsbrotuiii
EKKI hafa verið mikil brögð að verkfallsbrotum í yfirstandandi
verkfalli tólf félaga innan BHMR, hins vegar hefúr hjá sumum þeirra
borið nokkuð á undanþágubeiðnum sem fallið hafa í misjafnan jarð-
veg. Þá er nyög gengið á verkfallssjóði, enda munu allir hafa verið
rýrir fyrir. Þessar upplýsingar fengust hjá ýmsum forystumönnum
þeirra félaga sem eru í verkfalli.
Pétur Jónsson, skipaður af ráðu-
neyti í undanþágunefnd með Félagi
íslenskra Náttúrufræðinga sagði í
samtali við Morgunblaðið, að hátt
bæri óskir aðila tengda fiskeldinu
um undanþágur til að flytja inn
fóðurbæti. Sagði Pétur undanþágu-
beiðnir hafa borist frá fjórum aðil-
um sem málið snertir, Fiskeldis-
stöðvum, Landssambandi um fisk-
eldi og hafbeit, Framleiðendum fóð-
urs til fiskeldis og svo Landbúnað-
arráðuneytinu. Hver beiðni hefði
fengið sína umfjöllun, en öllum
hefði verið hafnað og hann taldi
ekki fyrirsjáanlegt að breyting yrði
þar á þrátt fyrir að fiskeldið væri
að komast í þrot vegna þessa.
Verkfall Stéttarfélags lögfræð-
inga í ríkisþjónustu hefur helst þau
Nokkrir í störf-
um sem ekki
krefjast mennt-
unar þeirra
NOKKRIR þeirra háskólamennt-
uðu ríkisstarfsmanna sem nú eru
í verkfalli vinna ekki að við þá
grein sem þeir hafa sérmenntað
sig í en eru engu að síður í við-
komandi fagfélögum. Tölvusér-
fræðingur Ríkisútvarpsins er
lærður jarðfræðingur, félagi í
FÍN og í verkfalli.
• Samkvæmt upplýsingum launa-
deildar íjármálaráðuneytisins er al-
gengt að starfsmenn í hliðstæðum
störfum á ríkisstofnunum séu félag-
ar í SFR, Starfsmannafélagi ríkis-
stofnana. Að sögn Guðbjargar Jóns-
dóttur starfsmannastjóra Ríkisút-
varpsins hélt hann að eigin ósk
áfram aðild að FÍN eftir að hann
hóf störf hjá Ríkisútvarpinu en jarð-
fræðimenntun var ekki áskilin
vegna starfsins.
Unnur Steingrímsdóttir formað-
ur FÍN sagðist í samtali við Morg-
unblaðið vita um nokkur dæmi af
þessu tagi. Hún sagðist telja eðli-
legt að menn réðu hvaða stéttarfé-
lagi þeir tilheyrðu, meðan þeir full-
nægðu inntökuskilyrðum hvað
menntun varðar. Engar kröfur
væru gerðar um að menn störfuðu
í því fagi sem þeir hefðu menntað
sig til. „Menn hljóta að velja það
stéttarfélag þar sem þeir telja kjör-
um sínum best borgið," sagði Unn-
ur Steingrímsdóttir.
áhrif, að út eru gefin „marklaus"
veðbókarvottorð eins og komist var
að orði er rætt var við félaga í stétt-
arfélaginu. Þá fengist ekkert þing-
fest og munu vera yfirvofandi kær-
ur til hæstaréttar vegna þess. Þá
munu ýmis málaferli dragast veru-
lega á Iangin.
Verkfall félagsráðgjafa og sál-
fræðinga hefur valdið meiri vanda
heldur en kemur upp á yfirborðið,
fólk sem á við geðræn vandamál
að etja, krabbameinssjúklingar,
sængurkonur, einstæðar mæður og
konur sem þurfa á fóstureyðingu
að halda, verða af þeirri þjónustu
sem umræddir hópar veita, Guðrún
Ögmundsdóttir, talsmaður Stéttar-
félags íslenskra Félagsráðgjafa
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að ekki væri hægt að lýsa þeim
vanda sem verkfallið hefði í för
með sér fyrir þetta fólk, sem hefði
litla eða enga möguleika á því að
láta á sér bera og þrýsta á um sín
mál.
Annars hefur verkfallið farið í
stærstum dráttum friðsamlega
fram, þó kom til kasta verkfall-
svarða hjá Félagi íslenskra Fræða,
er kallaður var til danskur sérfræð-
ingur til að leggja síðustu hönd á
viðgerð á Hólabríkinni, altaristöflu
Hólakirkju. Það tókst ekki að ljúka
viðgerð fyrir verkfallið og var kom-
ið í veg fyrir komu þess danska
hingað til lands. Arkítekt einn sem
ætlaði að leggja hönd á plóginn við
uppgröftinn á Bessastöðum var
einnig stöðvaður áður en hann gat
hafist handa.
Hótel ísafjörður rekur sumargist-
ingu í Menntaskólanum á ísafirði.
Þar fengust þær upþlýsingar að
búið væri að skrá pantanir frá 9.
júní. Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum
hefur afnot af Menntaskólanum þar
á sumrin, og þar eru komnar bókan-
ir seinast í maí og upp úr 8. júní.
Á Sauðárkróki rekur Ferðaþjón-
ustan Áning sumarhótel í Fjöl-
brautaskólanum. Jón Gauti Jónsson
hjá Áningu sagði að upp úr 6. júní
færu að koma á hótelið erlendir
ferðahópar, sem væru löngu búnir
að panta pláss. Áning ætti sam-
kvæmt samkomulagi að fá skólann
til afnota 26. maí og reynt hefði
verið að ná sem beztri nýtingu á
hótelinu með því að skipuleggja þar
fundi og ráðstefnur frá þeim tíma
og þangað til ferðamannatíminn
hæfist fyrir alvöru. „Dráttur kæmi
bölvanlega við okkur, og við erum
óróir núna. Það má segja að það sé
alltaf hægt að fresta og aflýsa at-
burðum, en margt af því, sem til
stendur er þess eðlis að slíkt er tæp-
lega hægt,“ sagði Jón Gauti. Hann
sagði að hótelið væri þéttbókað fram
til 20. ágúst.
Morgunblaðid/Sverrir
Sigurður Sveinsson, borgarfógeti, ásamt þeim skjölum, sem borist hafa til þinglýsingar síðan verkfall
lögfræðinga i rikisþjónustu hófst. Við borðið situr Ríkharður Sveinsson, starfsmaður embættisins.
Þúsundir skjala bíða þinglýsinga
„Bunkinn heldur áfram að hlaðast upp. Það er lítið annað um það
að segja. Tekið er á móti skjölum til þinglýsingar, en það eru allir
lögfræðingarnir í þinglýsingum i verkfalli nema ég,“ sagði Sigurður
Sveinsson, borgarfógeti, í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði erfitt að gera sér
grein fyrir hversu mörg skjöl biðu
þinglýsingar. Þau væru örugglega
eitthvað á þriðja þúsund. Síðan
mætti búast við að einstaklingar
og fasteignasalar væru með dágóð-
an bunka hjá sér sem biði þinglýs-
ingar. Sigurður sagðist sjálfur hafa
verið að hlaupa í að þinglýsa skjöl-
um. Það sæi samt ekki högg á
vatni. Venjulega berast um það bil
150 skjöl daglega til þinglýsingar
til borgarfógetaembættisins. Held-
ur hefði dregið úr þeim fjölda síðan
verkfall hófst.
Allar deildir borgarfógetaemb-
ættisins hafa lamast í verkfalli lög-
fræðinga, þó mismikið. Áhrifa verk-
fallsins gætir mest í þinglýsinga-
deild.
Lánasjóður námsmanna:
Lán vegna verkfiillsins?
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson.
Hafrannsóknastofhun
hættir við 5 leiðangra
„VIÐ HOFUM hætt við fimm rannsóknarleiðangra vegna verkfallsins,"
sagði Jakob Jakobsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar. Hann sagði
að næstkomandi þriðjudag ætti svokallaður vorleiðangur að heljast þar
sem kanna eigi ástandið á Islandsmiðum.
Menntamálaráðuneytið hefúr
spurzt fyrir hjá Lánasjóði
íslenzkra námsmanna livað varð-
ar hugsanlegt aukanámslán til
iðnskólanema, sem þurfa að sitja
lengur á skólabekk en ella vegna
verkfalls Hins íslenzka kennara-
félags. Að sögn Sigurbjörns
Magnússonar, stjórnarformanns
LIN, verða ekki gefin svör strax.
Er allt virtist stefna í verkfall
Félags háskólakennara fyrir tæpum
tveimur vikum kröfðust háskóla-
stúdentar þess að stjórn LÍN heimil-
aði aukalán fyrir þann tíma, sem
skólaárið kynni að lengjast. Samið
var við kennara áður en til þess
kæmi að stjórnin þyrfti að svara.
Það eru hins vegar ekki eingöngu
háskólastúdentar, sem eru í láns-
hæfu námi, heldur einnig nemendur
ýmissa sérskóla, þar sem kennarar
eru í verkfalli.
Sigurbjörn Magnússon sagði að
ef sérskólanemar í lánshæfu námi
myndu sækja um aukalán vegna
lengingar skólaárs yrði að meta það
með tilliti til hvers einstaklings.
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra sagði að farið yrði yfir mál
sérskólanema, og þau rædd við
Lánasjóðinn.
Hvað framhaldsskólanema, sem
ætla í háskóla í haust, varðar, sagði
Sigurbjörn að Lánasjóðurinn myndi
viðhafa þá almennu reglu að bíða
prófskírteina eða einhvers mats á
nemendum, sem jafngilti því, til
þess að hægt væri að sækja um
námslán fyrir næsta vetur. „Þeir
stúdentar, sem hafa þegar fengið
inngöngu í skóla erlendis fá að sjálf-
sögðu einnig sína eðlilegu fyrir-
greiðslu, þótt þeir hafi kannski ekki
lokið stúdentsprófí hér heirna,"
sagði Sigurbjörn.
Jakob sagði að hætt hefði verið
við tvo rækjurannsóknarleiðangra
vegna verkfallsins og humarrann-
sóknir hefðu átt að heíjast á þriðju-
daginn. Einnig hefði verið hætt við
rannsóknir á hrygningarsvæðum við
Suðvesturland. „Um 75 manns vinna
hjá Hafrannsóknastofnun og þar af
er 41 í verkfalli," sagði Jakob. Hann
sagði að 6 manns hefðu unnið við
hvalarannsóknir og 3 þeirra væru í
verkfalli. „Það er því hætt við að
okkar staða verði veikari en ella á
ársfundi Alþjóða hvalveiðiráðsins
sem haldinn verður á næstunni,"
sagði Jakob Jakobsson.
Heildaráhrifin til óþæginda
-segir orkumálastjóri
Mikiö álag síðustu
daga í Blóðbankanum
„Þetta ástand er orðið afskaplega þreytandi. Beiðnum hefúr fjölgað
nú í seinni tíð, bæði frá spítölunum hér á höfúðborgarsvæðinu og
eins frá Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Þar hefúr þurft að gera
meiriháttar uppskurði síðustu daga svo að það hefur verið tilfinnan-
legt álag á starfsemi Blóðbankans frá síðustu helgi,“ sagði Ólafúr
Jensson, yfirlæknir Blóðbankans.
„HEILDARAHRIF verkfallsins
eru til óþæginda og ef það dregst
á langinn veldur það óþægindum
varðandi Jarðhitaskóla Samein-
uðu þjóðanna, þar sem náttúru-
fræðingar hafa kennt við
skólann," sagði Jakob Björnsson
orkumálastjóri.
Jakob sagði að verkfallið hefði
til dæmis seinkað rannsóknum
Orkustofnunar á skilyrðum til fisk-
eldis, svo og rannsóknum varðandi
boranir eftir heitu vatni.
Náttúrufræðingar hjá stofnunum
sem heyra undir iðnaðarráðuneytið,
boðuðu Jón Sigurðsson, iðnaðarráð-
herra, á sinn fund á mánudag. Þar
var ráðherra meðal annars skýrt frá
því að mörg verkefni hjá Orkustofn-
un, Iðntæknistofnun og Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins
væru farin forgörðum vegna verk-
falls BHMR. Þessar stofnanir hefðu
því orðið fyrir tekjutapi og mjög
margar af sértekjum þeirra væru í
hættu, segir í fréttatilkynningu frá
Félagi íslenskra náttúrufræðinga.
í fréttatilkynningunni segir einn-
ig, meðal annars: Hjá Orkustofnun
eru 40 félagar í FÍN í verkfalli, eða
um 50% af starfsliði stofnunarinn-
ar. Starfsemi Jarðhitaskóla Sam-
einuðu þjóðanna liggur niðri meðan
á verkfalli stendur. Einnig liggja
niðri allar vatnamælingar, grunn-
vatnsrannsóknir sem tengjast öflun
og verndun neyslu- og nytjavatns,
ráðgjöf við boranir og eftirlit með
borholum. Undirbúningsvinna við
jarðgöng á Vestfjörðum raskast.
Hjá Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins er um verulegt
tekjutap að ræða vegna verkfalls-
ins, segir í frétt FÍN. Af liðlega 40
starfsmönnum stofnunarinnar eru
7 í verkfalli.
Hjá Iðntæknistofnun íslands
voru ýmis skammtímaverkefni í
gangi þegar verkfallið skall á. Sum
þessara verkefna eru farin forgörð-
um og önnur í hættu ef verkfallið
dregst á langinn. Það er mat FÍN
að beint tekjutap Iðntæknistofnun-
ar sé um 300 þúsund krónur á viku.
Blóðbankinn hefur þurft að kalla
út talsvert marga blóðgjafa til að
fylla í skörðin og hafa náttúrufræð-
ingar þurft að skima blóðið og
krossprófa. „Við höfum notið skiln-
ings hjá undanþágunefndinni og hjá
þeim náttúrufræðingum, sem um
málið fjalla. Þá þurftum við í gær
að fá undanþágu vegna erfðaefnis-
greiningar á tíu vikna gömlu fóstri,
sem talið er að hafi erfiðan sjúk-
dóm,“ sagði Ólafur.
Blóðbankinn hefur þurft að biðja
um undanþágur á verkfallstímanum
viðvíkjandi ýmsum sérrannsóknum
og hefur undanþágunefnd orðið við
þeim óskum. „Þetta skapar auðvit-
að mikið vinnuálag á þá örfáa nátt-
úrufræðinga, sem fást til þeirrar
neyðartilfellavinnu, sem starfrækt
er,“ sagði Ólafur. Tveir náttúru-
fræðingar eru á neyðarvakt Blóð-
bankans á hefðbundnum vinnutíma,
frá 9.00 til 17.00 og sinnir einn
náttúrufræðingur neyðarvakt á öðr-
um tímum sólarhringsins.
Aðeins hafa þtjár hjartaskurðað-
gerðir hafa verið framkvæmdar á
Landspítalanum frá því að verk-'
fallið hófst 6. apríl sl., en undir
venjulegum kringumstæðum er
reynt að gera þrjár slíkar aðgerðir
á viku hverri, samkvæmt upplýsing-
um Harðar Alfreðssonar, hjarta-
skurðlækni. Ekki mun vera hægt
að sinna skurðaðgerðunum hérlend-
is í eins miklum mæli og áður þar
sem slíkar aðgerðir krefjast mikils
viðbúnaðar í Blóðbankanum.
Upplýsingaskrif-
stofa fyrir fram-
haldsskólanema
Menntamálaráðuneytið opnar í
dag uppiýsingaskrifstofú fyrir
framhaldsskólanemendur, að-
standendur þeirra og kennara.
Skrifstofan verður til húsa hjá
framhaldsskóladeild ráðuneytisins
við Hverfisgötu og mun starfsfólkið
verða nemendum til ráðgjafar.
Rannsóknastarf-
semin er lömuð
„Rannsóknastarfsemi stofnun-
arinnar er lömuð og undirbúning-
ur fyrir jarð- og búfjárræktartil-
raunir liggur niðri vegna verk-
fallsins," sagði Þorsteinn Tómas-
son forstjóri Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins.
|
„Starfsmaður fóðureftirlits er í
verkfalli og það hefur tekið fyrir
aðföng af sáðvöru og fóðri til lands-
ins. Ef kornbændur fá ekki sáðvöru
strax minnka líkur á uppskeru og
eftir tvær vikur þýðir ekkert að sá,“
sagði Þorsteinn. Um 50 manns vinna
hjá stofnuninni og þar af eru liðlega
30 í verkfalli, það er að segja nátt-
úrufræðingar, matvælafræðingar og
einn bókasafnsfræðingur.
Hallormsstaður:
Engin plöntusala
í verkfalli
SALA á plöntum liggur nú niðri
á Hallormsstað vegna verkfalls
náttúrufi-æðinga, en að öllu jöfhu
ætti aðalsölutíminn að vera haf-
inn. Þá vantar Landgræðslu ríkis-
ins túnvingulsfræ, sem þarf að
húða fyrir notkun og á að nota í
sumar. Þetta kemur m.a. fram í
greinargerð sem fúlltrúar frá
Félagi íslenskra náttúrufræðinga
og dýralækna sem starfa hjá
stofnunum er heyra undir sam-
göngu- og landbúnaðarráðuneytið
hafa afhent Steingrími J. Sigfús-
syni, landbúnaðarráðherra.
í greinargerðinni segir, að neyðar-
ástand sé að skapast hjá fjölmörgum
ríkisstofnunum þar sem meirihluti
starfsmanna er í verkfalli. Eru þar
talin upp ýms atriði, sem fjallað hef-
ur verið um í fréttum Morgunblaðs-
ins, en auk þeirra segir meðal ann-
ars: Stór hluti af sértekjum Skóg-
ræktar ríkisins er í hættu, þar sem
sala á plöntum liggur niðri á Hall-
ormsstað. Fyrirsjáanlegt er að veru-
legur skortur verði á plöntum til
gróðursetningar á næstu árum, þar
sem framleiðslan á þessu ári verður
lítil sem engin ef verkfallið leysist
ekki á næstu dögum. Hjá Land-
græðslu ríkisins vantar fræ sem ligg-
ur í tolli og verður ekki afgreitt fyrr
en að verkfalli loknu. Undirbúningur
áburðarflugs á að vera hafinn og því
geta landgræðsluframkvæmdir í
sumar orðið minni en efni stóðu til.
Starfsemi RB
raskast ekki
„STARFSEMIN hjá okkur raskast
ekki vegna verkfallsins en nokkur
verkefiii tefjast," sagði Hákon
Ólafsson forsljóri Rannsókna-
stofnunar byggingariðnaðarins.
Hákon sagði að vegna verkfallsins
liggi til dæmis niðri gæðamat á stein-
steypuefnum. Hjá stofnuninni eru
44 starfsmenn og sjö þeirra eru í
verkfalli, þar af fímm jarðfræðingar,
eínn landfræðingur og einn bóka-
safnsfræðingur.
Lítil áhrif á Iðn-
tæknistofhun
„VERKFALLIÐ hefúr lítil áhrif á
heildarstarfsemi stofnunarinnar,"
sagði Páll Kr. Pálsson forstjóri
Iðntæknistofhunar íslands. „Það
lamar þó starfsemi okkar á
líftæknisviðinu og hefúr slæm
áhrif á efnistæknisviðinu.“
Páll sagði að um 70 manns ynnu
hjá stofnuninni og þar af væru 8 í
verkfalli. Hann sagði að tveir eðlis-
fræðingar og einn jarðfræðingur á
efnistæknisviði væru í verkfalli, svo
og fjórir líffræðingar og lífefnafræð-
ingar á líftæknisviði og einn mat-
vælafræðingur á matvælasviði.
Slæmt ástaud á
V eiðimálastofhun
„ÁSTANDIÐ er mjög slæmt,"
sagði Árni ísaksson veiðimála-
stjóri. Hann sagði að til dæmis
hefðu merkingar á seiðum í eldis-
stöðvum dottið uppfyrir og því
yrði minna um sleppingar í vor.
„Við missum úr heilt ár í merking-
um á villtum seiðum í Elliðaánum
ef verkfallið _ leysist ekki á næst-
unni,“ sagði Árni. Hann sagði að 20
manns ynnu hjá Veiðimálastofnun
og í laxeldisstöðinni í Kollafirði. Þar
af væru 12 í verkfalli, allir í Félagi
íslenskra náttúrufræðinga.
Húsnæðisstofiiun:
Dæmi um að lán
séu ekki afgreidd
Lánveitingar Húsnæðisstofium-
ar rikisins hafa að mestu gengið
eðlilega fyrir sig. Hinsvegar eru
nokkur dæmi þess að lánin hafi
ekki verið afjgreidd hjá veðdeild
Landsbanka Islands þar sem ekki
hafa legið fyrir nein veðbókavott-
orð vegna verkfalls lögfræðinga
í þjónustu rikisins.
Jens Sörensen, forstöðumaður
veðdeildar LÍ, sagði að reynt væri
að leggja mat á hveija lánveitingu
fyrir sig með tilliti til veðsetningar.
Engin veðbókavottorð hefðu verið
gefín út í verkfalli lögfræðinga, sem
hófst 6. apríl sl. svo að yngstu vott-
orðin væru frá því fyrir þann tíma.
Jens sagði að þeir einstaklingar, sem
ekki hefðu fengið afgreiðslu lána
sinna, yrðu að bíða þess að verk-
fallið leystist.
Fóðurfyrirtæki
að stöðvast
EITT fóðurfyrirtækjanna,
Evos, og fiskeldisstöðin Faxalax
eiga ekkert fiskifóður vegna verk-
falls náttúrufræðinga, að sögn
Friðriks Sigurðssonar fram-
kvæmdasljóra Fiskeldis- og haf-
beitarstöðva. Hann sagði að ef
verkfallið drægist á langinn stöðv-
aðist annað fóðurfyrirtæki í viku-
lokin, það þriðja ætti ekkert fóður
á lager og það fjórða gæti stöðv-
ast eftir þrjár vikur. Hann sagði
að önnur fiskeldisfyrirtæki en
Faxalax yrðu fóðurlaus eftir viku
til tíu daga.
Friðrik sagði að ekki væri hægt
að flytja inn fiskifóður og bætiefni
í fóðrið, þar sem einn starfsmaður
fóðureftirlits Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins væri í verkfalli. Menn
væru í sumum tilvikum að fóðra fisk
með öðru fóðri en mælt er með.
Rannsóknastofiiun
fiskiðnaðarins:
Ekki hættu-
leg pressa
„ÞAÐ ER EKKI hættuleg pressa
á okkur vegna verkfallsins en það
er til óhagræðis," sagði Geir Ar-
nesen aðstoðarforstjóri Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins.
„Vegna verkfallsins liggja hér til
dæmis niðri rannsóknir á lífrænum
mengunarefnum og þungmálmum,"
sagði Geir. Hann sagði að 40 manns
ynnu hjá stofnuninni og um helming-
ur þeirra, matvælafræðingar og nátt-
úrufræðingar, væru í verkfalli.