Morgunblaðið - 13.05.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.05.1989, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjóm og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið. Jamstaða - samkeppni að er meginmál til að tryggja velferð og batn- andi kjör landsmanna að búa atvinnuvegunum, ekki sízt framleiðsluatvinnuvegunum, lífvænlegt umhverfí. Atvinnu- lífíð verður að hafa tekjur um- fram gjöld til að stuðla að meiri umsvifum í þjóðarbúskapnum, framleiðni- og tækniþróun og stærri skiptahlut á kjaravett- vangi. Á þetta hefur verulega skort hér á landi, eins og viðvar- andi taprekstur undirstöðu- greina vitnar gleggst um. Jafnframt er það mikilvægt fyrir hinn almenna neytanda, einstaklinga og heimili, að heil- brigð samkeppni ráði ferð í framboði vöru og þjónustu, bæði um gæði og verð. Sam- keppnin hefur hvarvetna í ver- öldinni reynzt bezta neytenda- vemdin. Hér eru henni skorður settar. í fyrsta lagi gætir enn ýmiss konar hafta, miðstýring- ar og einokunartilburða. I ann- an stað eru óvíða jafn háir ríkis- skattar [neyzluskattar] í verði vöru og þjónustu. Af þessum og fleiri ástæðum er vöruverð, einkum matvælaverð, verulega hærra hér á landi en í grannríkj- um beggja megin Atlantshafs- ins. íslenzk framleiðsla á í harðn- andi gæða- og verðsamkeppni við erlenda, bæði hér heima og erlendis. Framleiðslugreinar gera af eðlilegum ástæðum kröfu til þess að stjómvöld og samfélagið skapi þeim rekstrar- lega jafiistöðu í þeirri sam- keppni, eftir því sem aðstæður frekast leyfa. Sú krafa nýtur skilnings og stuðnings almennings. í fyrsta lagi vegna þess að rekstrarlegt öryggi atvinnuveganna og al- mennt atvinnuöryggi eru tvær hliðar á einu og sama fyrirbær- inu. í annan stað vegna þess að fjárhagslegir burðir atvinnu- lífsins er hinn raunverulegi lífskjararammi landsmanna. í þriðja lagi vegna þess að vel- gegni innléndrar framleiðslu er ein meginforsenda árangurs í baráttunni gegn viðskiptahalla við umheiminn og erlendri skuldasöfnun. Þetta á m.a. við um þær iðngreinar sem fram- leiða vörur til útflutnings og vömr sem spara gjaldeyri, eins og Kristinn Bjömsson, fram- kvæmdastjóri, benti réttilega á í grein hér í blaðinu. „Það sem farið er fram á er að iðnaðurinn búi við eðlilegan starfsgrundvöll og njóti jafn- réttis á við aðrar atvinnugreinar og sömu starfsskilyrða og er- lendir keppinautar", segir Kristinn í grein sinni. Hann tíundar ýmis dæmi þess að stjómvöld hafi beinlínis skekkt samkeppnisstöðu tiltekinna iðn- greina, bæði innbyrðis og út á við, og segir orðrétt: „í fyrsta lagi er lagt sérstakt 25 af hundraði vömgjald á sælgæti, innlent og erlent, en 90 daga gjaldfrestur veittur á innkaupsverði erlendu vömnn- ar. í öðm lagi er ekkert sam- bærilegt gjald lagt á bakarís- sælgæti, en sérstakur jöfnunar- tollur, 24 af hundraði, lagður á innfluttar kökur! (Til að skerpa á samkeppni og ná niður verði, eða hvað?) Og í þriðja lagi er heimilað að flytja inn smjörlíki án allra gjalda og án þess að innlendir framleiðendur fái nokkra aðlögun, í þeim tilgangi að lækka verðlag. Ég fæ ekki séð samræmi í þessum ákvörð- unum. Þvert á móti er hér um alvarlega mismunun að ræða“. Niðurstaða greinarhöfundar er að hér „sýnist vanta nauð- syniega, ákveðna, opinbera stefnu í málefnum iðnaðarins". Ríkisstjómin sýnist enga mark- vissa stefnu hafa í málefnum einstakra atvinnuvega eða at- vinnulífsins í heild. Hana rekur eins o g rótlaust þangið — undan breytilegum straumum og vind- um — um víðan sjá. Þess vegna m.a. sæta undirstöðugreinar atvinnulífsins viðvarandi tapi, ganga á eigin fé og safna skuld- um. Þessvegna steyta æ fleiri fyrirtæki á skeijum greiðslu- stöðvana og gjaldþrota. Þess vegna er hér skráð meira at- vinnuleysi en verið hefur síðast- liðin tuttugu ár. Þess vegna m.a. hefur sá lífskjarabati, sem var nokkur, staðnað — og kjarastaða fólks jafnvel versn- að. Það er meginmál, sem fyrr segir, að búa íslenzkum at- vinnuvegu.rn jafnstöðu til að mæta samkeppni í framleiðslu, þjónustu og markaðssetningu. Skref í þá átt má stíga með nauðsynlegum breytingum á lögum um vörugjald í tengslum við upptöku virðisaukaskatts um næstu áramót, eins og við- skiptaráðherra vék reyndar að í grein hér í blaðinu 10. maí sl. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989 25 Gaspur í stað úrræða Eldvígsla Jónasar Krisljánssonar gefin út á dönsku ÚT ER komin í danskri þýðingu skáldsaga Jónasar Kristjánssonar, forstöðumanns Stofiiunar Arna Magnússonar, Eldvígslan. Á dðnsku hefiir sagan hlotið nafiiið Dddaaben. Þýðinguna gerði Erik Sönder- holm, lektor. Hann er látinn fyrir nokkru, en var meðal annars for- stöðumaður Norrænahússins hér. Þýðing þessi var eitt af síðustu verk- um hans. Eldvígslan kom út hér á landi árið 1983. eftir Þorstein Pálsson Verkfall háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna hefur staðið alltof lengi og valdið svo mörgum svo miklum erfiðleikum að ekki verður við unað. Ríkisstjóm sem ekki getur fundið lausn á þessari vinnudeilu hefur í raun gefist upp á að stjóma landinu. Það hörmulega — en um leið lærdómsríka — við þessa deilu er að til henanr virðist einkum stofnað vegna fyrirheita sem helstu forystu- menn núverandi ríkisstjómar gáfu samtökum launafólks meðan þeir voru í stjómarandstöðu. Þegar Ólafur Ragnar Grímsson, núverandi Qármálaráðherra og aðalsamninga- maður ríkisins, og Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, töluðu máli stjómarandstæðinga fyrir nokkmm mánuðum fullyrtu þeir að hægur leikur væri að auka kaupmátt launafólks vemlega. Strax og Ál- þýðubandalagið kæmist til valda yrðu kröfur launþegasamtakanna, hvort sem er ASI, BSRB eða BHMR, að veruleika. Vekfallið — afkvæmi Alþýðubandalagsins Forystumenn launþega máttu vita að þetta vora tóm áróðurs- brögð. En sannfæringarmáttur Olafs Ragnars og Svavars hlýtui að hafa verið mikill því launþegafor- ingjamir í BHMR féllu að minnsta kosti fyrir þessu og tóku þá félaga á orðinu. Afleiðingamar birtast okkur í mynd óvenju langs verk- falls sem fyrst og fremst bitnar á saklausu fólki sem er ekki aðilar að vinnudeiiunni, s.s. sjúklingum og skólafólki. Þetta verkfall hefur leitt af sér óþolandi ástand í skóla- og heilbrigðismálum og er farið að ógna starfsemi í mikilvægum at- vinnugjeinum. Hið lærdómsríka við verkfallið era vinnubrögð í stjómmálum sem sannarlega era ekki til eftirbreytni: Að lofa öllu fögra í stjómarand- stöðu og ætla sér. ekki að standa við neitt af því í stjóm. Á venjulegu máli heitir slíkt Iýðskrum og þykir lægsta stig stjómmála. Enginn íslenskur stjómmála- flokkur hefur sýnt jafn mikla ófyrir- leitni á þessu sviði og Alþýðubanda- lagið. Svikin við launþegasamtökin era aðeins eitt dæmi af mörgum. Hver man ekki fund Ólafs Ragnars í Miklagarði í janúar í fyrra, þar sem krafist var afnáms „matar- skattsins"? Nú er Ólafur Ragnar sjálfur innheimtumaður þessa skatts og helsti málsvari! Um það hefur verið deilt undan- fama daga hver beri ábyrgð á því alvarlega ástandi sem skapast hefur vegna verkfalls BHMR. Forysta BHMR telur að ríkið beri ábyrgð- ina, en fulltrúar ríkisins segja að þráhyggja samtakanna í launakröf- um komi í veg fyrir samninga. í mínum huga er engum blöðum um það að fletta að sá aðili sem ber mesta ábyrgð á verkfallinu er Al- þýðubandalagið. Sá flokkur plægði þann jarðveg sem deilan er sprottin úr. Verkfallið — og afleiðingar þess — er skilgetið afkvæmi þessa ævin- týralega ábyrgðarleysis sem hefur verið leiðarljós Alþýðubandalagsins í stjómmálum alla tíð. Sérkennilegt upphlaup Forystumenn stjómarflokkanna hafa í vetur leitað allra leiða til að draga athygli almennings og fjöl- miðla frá óstjóminni í landinu með margvíslegum upphlaupum, þ. á m. ýmiss konar svigurmælum og svivirðingum um Sjálfstæðis- flokkinn og forystumenn hans. Ráð- herramir forðast rökrænar stjóm- málaumræður eins og heitan eldinn. Þeir virðast halda að þeir geti fleytt sér endalaust áfram á gaspri og gífuryrðum. „Sigló-málið“, sem svo hefur vor- ið nefnt, er skýrt dæmi um þetta. Fjármálaráðherra notaði fyrir- spumartíma á Alþingi í síðustu viku til tilefnislausra árása á fyrrverandi og núverandi þingmenn Sjálfstæð- isflokksins vegna afskipta þeirra af málum fyrirtækisins Sigló-síldar á Siglufirði. Meðan ríkið átti þetta fyrirtæki vora áram saman greiddir milljóna- tugir með því á kostnað skattgreið- enda. Þegar Albert Guðmundsson heimilaði skuldbreytingu hefur hann án vafa haft breyttar rekstrar- forsendur í huga. Um þær er ekki deilt. Sérstök lög vora samþykkt um sölu fyrirtækisins. Það var því Alþingi sjálft sem tók endanlega ákvörðun þar um. Niðurstaða þessa gönuhlaups „Forystumenn stjórn- arflokkanna hafa í vet- ur leitað allra leiða til að draga athygli al- mennings og Qölmiðla frá óstjórninni í landinu með margvíslegum upphlaupum, þ. á m. ýmiss konar svigur- mælum og svívirðing- um um Sjálfstæðis- flokkinn og forystu- menn hans. Ráðherr- arnir forðast rökrænar stjórnmálaumræður eins og heitan eldinn. Þeir virðast halda að þeir geti fleytt sér endalaust áfram á gaspri og gífuryrðum.“ fjármálaráðherra er sú að enginn stjómmálamaður annar dregur fyr- irtæki í pólitíska dilka í þeim mæli sem Ólafur Ragnar Grímsson. Enn minnast menn árásanna á Flugleið- ir á sínum tíma. Hápunktamir á stjórnmálaferli fjármálaráðherra íslenska ríkisins koma fram í því að grafa undan fyrirtækjum sem hann hefur ekki velþóknun á. Þorsteinn Pálsson Þjóðnýting bakdyramegin Frá því núverandi ríkisstjóm tók við völdum hefur sú ískyggilega þróun orðið í atvinnulífi okkar að ríkisvaldið er farið að hlutast til um málefni einstakra fyrirtækja og stjoma heilum atvinnugreinum með beinum og óbeinum hætti. Fyrir forgöngu ríkisstjómarinnar, eink- um fjármálaráðherra og viðskipta- ráðherra, er smám saman verið að þjóðnýta — bakdyramegin — fyrir- tæki í undirstöðuatvinnugreinum okkar. Verði þessari þróun ekki snúið við er þess skammt að bíða að atvinnulíf heilla byggðarlaga lúti fyrirmælum um einstök atriði daglegs reksturs úr Stjómarráðinu. Sósíalistamir Ólafur Ragnar Grímsson og Jón Sigurðsson vita að það þýðir ekki að boða þjóðnýt- ingu atvinnufyrirtækja fyrir kosn- ingar. Þjóðnýtingarstefnan hefur hvarvetna sem hún hefur verið reynd leitt af sér versnandi lífskjör. í ríkjum sósíalista er það einkavæð- ingin, sala opinberra fyrirtækja, sem er á dagskrá um þessar mund- ir. Þeir félagar, Ólafur Ragnar og Jón, era trúir þjóðnýtingarhugsjón- inni en hafa ekki þá karlmennsku til að bera að segja frá því opin- berlega. Þess í stað kjósa þeir að ná tangarhaldi á frjálsum atvinnu- fyrirtækjum bakdyramegin, með því að eyðileggja almennan rekstr- argrundvöll þeirra og gera þau háð sér um lán og styrki. Því miður hafa íjölmiðlar ekki áttað sig á þessari framvindu og hve víðtæk og alvarlegs eðlis hún er — en hér er sannarlega verkefni fyrir rann- sóknarblaðamenn. Ýmis' ummæli sem ijármálaráð- herra lét falla í umræðunum um Sigló-málið á Alþingi sýna hve lítinn skilning hann hefur á fijálsri at- vinnustarfsemi og hve ríkisforsjár- hyggjan er honum í merg rannin. í huga hans er með sölu ríkisfyrir- tækja eingöngu verið að „hygla“ þeim sem fyrirtækin kaupa. í dæm- inu um Sigló-síld var verið að hygla „gæðingum" Sjálfstæðisflokksins, eins og ráðherrann orðaði það. Staðrejmdir málsins skipta hann sem fyrr engu og því þýðingarlítið að benda á að „gæðingamar" sem keyptu Sigló-síld séu úr mörgum flokkum og því gangi samsæris- kenningin ekki upp. En hvemig væri að fjölmiðlarnir, svo aftur sé að þeim vikið, færa nú vandlega í saumana á þessu máli og öðram af sama tagi og létu sér ekki nægja að segja frá stóryrðum í þingsölum og gagnkvæmum ásökunum? í slíkum vinnubrögðum fælist aðhald sem er stjómmálamönnum, hvort sem er í ríkisstjóm eða stjómarand- stöðu, mikils virði. Höfíindur er formaður Sjálfstæð- isOokksins. Útgefandi dönsku þýðingarinnar er bókaútgáfan Rhodos, sem er al- þjóðleg útgáfa tileinkuð bókmennt- um, vísindum og listum. Þegar hafa birzt nokkrir ritdómar um bókina í dönskum blöðum og hefur henni ver- ið vel tekið. „Sagan er einkar spenn- andi,“ segir Henrik Ploug í Land og Folk; „víðs fjarri því að vera þurr sagnaritun. Og þó verða menn jafn- framt margs vísari, eins og vera ber af góðri skáldsögu. í Weekend Avisen - Berlingske ritar J. Boisen Smidt alllangan rit- dóm, þar sem hann gerir grein fyrir efni bókarinnar, sem honum þykir ærið hrikafengið. Hann segir meðal annars: Höfundurinn þekkir sannar- lega sínar heimildir. Skáldskap og traustum fróðleik er blandað saman á einkar fimlegan hátt, en tungumál- ið er sums staðar dálítið fomlegt og minnir á íslendingasögumar. ... En hvað sem því líður er hér einkar vel af stað farið. Það verður forvitnilegt að sjá hvert verður næsta viðfangs- efni þessa nýja skáldsagnahöfundar. Skyldi það ekki verða sótt i íslenzku fomsögumar?" Eldvígslan er fyrsta skáldsaga Jónasar, en hann hefur að auki ritað Jónas Kristjánsson mikið um íslenzk fræði. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið, að hann væri byijaður á nýrri skáldsögu, sem stæði Islendingum nær en Eldvígsl- an. Eldvígslan ijallar um einn af sonum Ragnars loðbrókar, Ubba, en hans er ekki getið í íslenzkum heim- ildum. Eggið og blaðrið Nytt íbúðahverfi hefiir ver- ið skipulagt í Kópavogsdal í KÓPAVOGSDAL hefúr verið skipulagt nýtt íbúðasvæði á 14 ha lands, þar sem gert er ráð fyrir rúmlega 2.300 manna byggð í framtíðinni. Hverfið er að hluta til úr landi Smárahvamms og í eigu, einkaaðila og verða lóðimar í þeim hluta seldar beint eða eftir að húsin eru komin upp. Er það í fyrsta sinn, sem þessi háttur er hafður á í Kópavogi. Deiliskipulagið hefúr þegar fengið samþykki bæjarstjórnar og mun hanga uppi til kynningar á Bæjar- skipulagi Kópavogs, Fannborg 2, í átta vikur. Að lokinni kynningu og fengnu endanlegu samþykki bæjarstjómar verða lóðimar aug- lýstar og munu framkvæmdir síðan væntanlega heQast í sumar. Nýtt íbúðahverfi hefur verið skipulagt f Kópavogsdal og verða lóð- iraar auglýstar til umsóknar síðar á þessu ári. eftir EyjólfKonráð Jónsson Drambsamur maður líkist eggi. — Það er svo sneisafúllt af sjálfú sér að ekkert rúmast þar annað. — A. Nimeth. Ríkisstjómin er í kreppu. Ekki svo að skilja að það hvarfli að nokkram ráðherranna að taka af- leiðingum þess og segja af sér, nei, þeir færa kreppuna dag hvem lengra og lengra yfír þjóðlífið allt. Ólafur Ragnar Grímsson sagði snemma á áratugnum að vandinn væri „blaðrið í Steingrími". Steingrímur hefur ekkert breyst heldur flotið eins og korktappi þótt hann kveikti í Róm eftir langan valdaferil og lýsti yfir þjóðargjald- þroti. Dæmalaus upplausn og óáran sækir næringu því annað en til hans. Það skyldi þó aldrei fara svo að dramb fjármálaráðherrans (ásamt pínku blaðri) gengi innan ársafmælis af annarri ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar dauðri, og flokki Ólafs í leiðinni. Það væri meiri háttar innlegg í baráttuna. Á því er enginn efí að marg- háttuð hrokafull ummæli íjármála- ráðherra í samskiptum við launa- fólk er meginástæðan fyrir þeirri hörku sem strax fór að gæta við upphaf vinnudeilnanna sem enn standa. Vænleg leið til lausnar væri að setja hann til hliðar í samn- ingaviðræðum, t.d. að senda hann í heimsreisu með viðkomu hér og þar. Hann mundi ekki telja eftir sér að friða nokkur lönd á leiðinni. Oft hef ég gaman af ráðherranum en hann er þó þeirrar einkennilegu náttúra að reyna í sífellu að aug- lýsa sjálfan sig og uppheija með því að niðurlægja aðra og gera þeim lífið örðugra. Vinnudeilurnar era ekki eina dæmið, þau era fjölmörg og skal eitt hér nefnt. í nóvembermánuði sl. sagði Ólaf- ur Ragnar í þingræðu um lánsfjár- lög að hagur SÍS væri með þeim hætti „að ef það tap heldur áfram á næstu 10-12 mánuðum, þá verður Sambandið úr sögunni." Menn verða að hafa í huga að hér er fjár- málaráðherra að ræða sjálf ríkis- fjármálin, hann er enginn venulegur kontóristi. Hvemig halda menn að þessi orð komi við þá sem era að reyna að rétta samvinnuhreyfing- una við og lánardrottna hennar. Nú er liðinn helmingur þess „líftíma" sem ráðherrann gaf SÍS og stórfellt tap heldur áfram. Ætli hann sé jafn innilega glaður yfir þessari þróun eins og gjaldþroti mikilvægs atvinnufyrirtækis úti á landi sem verið hefur til umræðu á Alþingi í marga daga að fram- kvæði stjómarþingmanns. Þá hefur tíminn verið nægur til þingstarfa. Stjómarkreppa er orðin viðvar- andi, ekkert dramb fær dulið það. Ráðherramir munu samt halda áfram að punta sig í fínu fötin fram- an við myndavélamar sem þeir elta uppi þótt þeir hafi nánast aldrei tíma til að sinna þingstörfum. Þar munu þeir halda áfram að brosa sínu blíða brosi til undirsátanna og skellihlæja að fimmaurabrönduram á ríkisstjómarfundum. Þeir ríkja, þeir stjóma og „þeir skipuleggja". Þeir era forsjármenn fólks og fyrir- tækja og hví skyldi alþýðan þá vera upp á kant. Ekki verður þó sagt að öll tiltæki ríkisstjómar Steingríms Hermanns- sonar séu framleg. Því miður höfum við oft áður horft upp á þá hringa- vitleysu að hækka alla skatta sam- hliða gengisfellingum, ekki bara að sama skattprósentan gefi ríkissjóði meiri tekjur við hærri útreiknings- grann heldur er hún líka hækkuð í sífellu og aldrei hefur endaleysan verið meiri en nú. Skattana ber að hækka til að ná hallalausum Ijárlög- um, segja þeir, skítt með fólk og fyrirtæki. En svo vakna þeir upp við vondan draum þegar á árið líður. Hver skrambinn segja þeir, hallinn „Spá mín er sú að ljóst verði þegar vel er kom- ið fram á haustið að hallinn verði hinn mesti í sögunni samfara hæstu sköttum sem um getur.“ er meiri heldur en í fyrra, gjöldin hækkuðu meira en telgurnar. Við verðum að harka af okkur og hækka skattana og vöraverðið enn- þá meira og bíða svo bara og sjá hvort kenningin gengur ekki upp að lokum. Og þá verða þeir aftur að gleyma gjaldahliðinni og fara létt með það. Viðskiptaráðherra hefur á Alþingi upplýst að saman- lagðar gengisfellingar ríkisstjórnar- innar nemi 13.4% og ekki sé að vænta hallalauss ríkissjóðs þetta árið. Hvað skyldi hann segja þegar á árið líður. Spá mín er sú að ljóst verði þegar vel er komið fram á haustið að hallinn verði hinn mesti í sögunni samfara hæstu sköttum PÉTUR Einarsson fiugmálastjóri segir að athugasemdir Flugslysa- nefndar og aðila á vegum Sam- gönguráðuneytis Bandarikjanna um starfsaðstöðu og -reglur við flugumferðarsljórn hérlendis hafi fyrir alllöngu verið teknar til greina og úrbótum hrint í fram- kvæmd. Eins og fram kom í frá- sögn af dómi vegna þess er tvær Eyjólfúr Konráð Jónsson sem um getur. Raunar hef ég hald- ið því fram á annan áratug að skatt- þján auki halla ríkissjóðs en minnki hann ekki og verðbólguna keyra skattamir auðvitað áfram. Þetta var staðfest í fyrra og sannást í lok þessa árs nema stjómin falli og ný stjórn sem afnemur allan skatta- auka síðustu ára verði mynduð. Höfímdur er einn afalþingis- mönnum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. farþegaþotur höfðu nær rekist saman á flugi yfir Austurlandi í júni 1986, áttu þessar athuga- semdir þátt í þeirri niðurstöðu dómsins að fresta ákvörðun refc- ingar yfir flugumferðarstjórunum tveimur sem þar voru sakfelldir. Flugmálastjóri sagði að stjórnend- ur flugmálastjómar hefðu verið sam- ála og sáttir við ábendingamar, „Kópavogur er fyllilega sam- keppnisfær við nágrannabyggð- imar hvað varðar framboð á lóðum undir íbúðahúsnæði,“ sagði Birgir H. Sigurðsson skipulagsstjóri Kópavogs. „Þessi nýja byggð er mjög miðsvæðis, stutt í allar áttir með góðum tengingum við önnur hverfí og þarna er jafn skjólsælt og í Fossvogi.“ Skipulagið er unn- ið af arkitektunum þeim Ormari Þór Guðmundssyni og Örnólfi Hall undir yfirumsjón Bæjarskipu- lags Kópavogs. Upphaflega stóð til að í austasta hluta hverfisins yrði iðnaðar- og skrifstofuhverfí sem einkum hefðu lotið að skipulagn- ingu og lengd vinnutíma, endurnýjun starfsreglna og úrbótum í skólamál- um flugmálastarfsmanna. Hann sagði að flugumferðarstjórar hefðu tekið mikinn þátt í þessu starfi og sagði aðspurður ljóst að aðstæðurn- ar, sem atvikið sem dómsmálið reis útaf varð við, væru ekki lengur til staðar. en það er sá hluti sem er í eigu einkaaðila. Skipulagsyfirvöld lögðu hins vegar áherslu á að hverfið yrði hæfilega stórt skóla- hverfi í grennd við aðra þjónustu og því var gengið til samninga við landeigendur um breytta og aukna landnýtingu og náðist samkomu- lag um að þar risi íbúðabyggð. Samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir að í austurhluta hverfisins verði byggðin hæst og verða þar blokkir á þremur til átta hæðum við Dalveg en síðan lækkar byggð- in til vesturs og verður lægst vest- ast, þar sem gert er ráð fyrir tveggja hæða sambýlishúsum. „Það eru svokölluð borgarhús, sem höfð era að leiðarljósi við skipu- lagninguna, en það era tveggja til þriggja hæða sérbýlishús svipuð þeim, sem era við Gnoðarvog í Reykjavik," sagði Málfríður Krist- iansen arkitekt hjá Bæjarskipulagi Kópavogs. Gert er ráð fýrir að hverri íbúð fylgi góðar svalir og að á neðstu hæð verði íbúðin á jarðhæðinni með stórum gluggum og aðgangi að lóðinni, sem tilheyrir eingöngu neðstu hæðinni. „Það má segja að skipulagið byggi á góðri lausn á útirými og því nauðsynlegt að vanda allan frágang. Vonandi tekst vel til svo að þetta skipulag verði ekki eingöngu fallegt á korti,“ sagði Málfríður. Eftir endi- löngu hverfinu er göngustígur með litlum torgum, þar sem gert er ráð fyrir leiksvæði. Húsagöturnar liggja í boga og fylgja göngustígn- um að hluta. Skipulagið gerir ráð fyrir að hverri íbúð fylgi 1,8 bif- reiðastæði og að meirihluti þeirra verði neðánjarðar. Sunnan við hverfið liggur Fífu- hvammsvegur og er gert ráð fyrir mikilli umferð þar að fyrirhuguð- um verslunarmiðstöðvum, sem þar munu rísa á lóð Hagkaups, IKEA og BYKO. Því er gert ráð fyrir hljóðmön með veginum og einnig meðfram Dalvegi og göngustígum neðan við hana. Flugmálastjóri: Nauðsynlegar úrbætur hafa þegar verið gerðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.