Morgunblaðið - 19.05.1989, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.05.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989 11 Ekki er í viðtalinu fjallað um úrræðaleysi og vanmátt núverandi ríkisstjórnar, sem veldur m.a. því að þúsundir manna eru búnir að standa í verkfalli í tæplega 6 vik- ur, né það að þúsundir nemenda geta ekki lokið tilskildum prófum. Þar er ekki hugsað um það að vanhæfni þessara þriggja vinstri forystumanna, hefur veikt tiltrú unga fólksins á lýðræðislegum stjórnarháttum. Þar er ekki heldur vikið orði að því að núverandi ríkisstjórn hefur vegna ódugnaðar og rangrar stefnu kallað atvinnuleysi yfir tæplega 3.000 manns á hábjargræðistíman- um, vetrarvertíðinni. Ekki er heldur vakin athygli á því að nú stefnir í 27% verðbólgu á næstu 12 mánuðum. Eða því að hækkun vísitölu framfærslukostn- aðar síðustu þijá mánuði samsvarar 31,5% verðbólgu. Þá hefur gengið verðið fellt um 15% gagnvart dollar síðan um ára- mót, og dugir ekki til að styrkja samkeppnisstöðu útflutningsat- vinnuveganna. Ein meginástæðan er röng stjórnarstefna. Akvarðanir teknar of seint og skortur á viðeig- andi hliðarráðstöfunum. Ekki minnist Qármálaráðherrann á hækkun eigna- og tekjuskatta, sem í mörgum tilfellum jafngildir eignaupptöku, né hækkun og álagningu vörugjalds á sl. vetri, sem gerði út af við fjölda fyrirtækja. Nei. Þetta eru ekki atriði, sem vefjast fyrir forystumönnum í ríkis- stjórn Steingríms Hermannssonar. Valdið er fyrir öllu. Fólkið, það má þjást. Það er forskrift Olafs Ragnars, Jóns Baldvins og Steingríms Her- mannssonar samkvæmt viðtali Morgunblaðsins við Ólaf Ragnar Grímsson. Skrifað 15.- maí 1988. Höíundur er einn afalþingismönn- um Sjálfstæðisfiokks fyrir Reykjavíkurkjördæmi. Villir hann, stillir hann? eftir Rafn Kjartansson I lok sjöunda áratugarins var óró- leikatímabil í skólum á Vesturlönd- um. Hópar nemenda, að vísu ekki alltaf fjölmennir, aðhylltust pólití- skar öfgastefnur, höfðu mikið dálæti á svokölluðum öreigum og alþýðu og báru dæmalausa umhyggju fyrir kjörum þess fólks, að eigin sögn, en höfðu gjarna horn í síðu kennara sinna og gerðu þeim erfítt fyrir, enda töldu þeir kennarana vera fulltrúa úrkynjaðrar borgarastéttar, hvað sem það allt saman átti nú að merkja. A þessum árum var stundum fleygt inn á kennarastofuna í Menntaskólanum á Akureyri áróð- ursritum og pésum sem áttu uppruna sinn í ríkjum einræðis og pólitískra öfga. Ég man eftir litprentuðum bæklingi frá Norður-Kóreu sem eitt sinn bar fyrir augu mín. Var þar heilsíðumynd af leiðtoga þess ríkis, Kimm II Sung, þar sem hann var að trimma í fögrum tijálundi. Undir myndinni var texti sem útleggst eitt- hvað á þessa leið. „Hinn ástkæri leið- togi vor leitar endurnæringar í faðmi náttúrunnar að loknum löngum og ströngum starfsdegi." Nú hygg ég að um það mætti deila hversu ástæll leiðtoginn hafi verið, og víst er að tijálundurinn gróskumikli var engan veginn táknrænn fyrir gróskuna í efnahagslífi Norður-Kóreu, en þeir láta sér víst ekki allt fyrir bijósti brenna áróðursmeistaramir austur þar. Ekki veit ég hvemig á því stóð, en þessar gömlu minningar rifjuðust upp fyrir mér í morgun, þegar ég sá í Morgunblaðinu myndina af fjár- málaráðherranum okkar blessuðum á heilsubótargöngu úti í náttúrunni og las viðtalið við hann. Ekki var Ólafur Ragnar að vísu á ferð í fögrum tijálundi, enda erfítt „ ... heldur hann áfram ferðinni, stefnufastur að vanda, beint út í auðnina? Tíminn mun leiða það í ljós, en spurningin brennur á okkur öllum.“ um vik á þessum árstíma, í hörðu árferði, að hafa upp á slíku mynd- efni. En kannski var myndin bara betri fyrir bragðið. Hún blekkir ekki, eins og litmyndin fallega af honum Kim í Kóreu. Ég sá ekki betur en eyðilegt umhverfi ráðherrans, með kofaskrifli í bakgrunni og þungbúin ský á himni væri einmitt táknrænt fyrir þá auðn og eymd sem leidd verður yfrir íslenskt menntakerfí, og reyndar þjóðfélagið allt, ef stefnu hans og annarra ráðamanna verður framfylgt öllu lengur. Samt leyndist í myndinni örlítil vonarglæta. í horni myndarinnar langt að baki ráðherranum glitti nefnilega í vita, hvíta og fallega byggingu. Eins og öllum er kunnugt gegna vitar því mikilvæga hlutverki að vísa mönnum veginn og leiða þá á rétta braut til að forða þeim frá óförum og slysum. En, því miður, ráðherrann sneri ekki bara baki við vitanum, hann var raunar á harða- spretti burt frá honum! Gæfulegast væri nú fyrir ráðherrann að breyta stefnunni og snúa við, meðan vitinn er enn í sjónmáli. Ætli hann geri það, eða heldur hann áfram ferð- inni, stefnufastur að vanda, beint út í auðnina? Tíminn mun leiða það í ljós, en spurningin brennur á okkur öllum. Höfundur er kennari viðMennta- skólann á Akureyri. til minnis! Garðyrkjuáhöld í úrvali Þekking - Reynsla - Þjónusta HAFNARSTRÆTI21 - ÁRMÚLA42 KYNNIWG Lausnin sem einfaldaði öll vandamál í sam- bandi við girðingar, skjólveggi og sólpalla. Föstudog Id. 13-18............Byko/Timbursala Laugardag kl. 10-14 ..........Húsasmiðjan I tilefni kynningarinnarverðursölustjóri METPOST í Evrópu staddur hérá landi. c/h NÚER RÉTTITÍMINN TIL AV HUGA AV GARÐINUM. bb a Vekjum sérstaka athygli á fjölbreyttu vöruúrvali okkar á hvers kyns garðverkfærum og áhöldum. Vorverkin í garðinum og lóðar- standsetningin verða leikur einn með réttum áhöldumfráokkur. T-69 90 lítra trallfa HJÓLBÖRUR Trallfa hjólbörur úr pressuöu stáli, léttar og meðfærilegar. Auð- veltað þvo. Fást í tveimurstæröum, 901ítra og 120 lítra, galvani- seraðar eða lakkaðar. ABURÐUR Muniö eftir garðáburðinum. -----//7/777-77' !!n/; ZZZ/ Jih/'Z//// HOZELOCK- RSL YARD-MAN bensínsláttuvélar eru á einstaklega góðum kjörum út maímánuð. Það verð býðst ekki aftur í sumar. Greiðslukjör: Staðgreiðsla, 2ja mánaða víxill eða raðgreiðslur Samkorts og EURO. SéT/ GRIPIT GARÐVERKFÆRI Vatnsdreifarar og garðslöngunipplar í úrvali. Vatnsúðakönnur, garðslöngustandar, garðljós og margt fleira. TRJÁ- KLIPPUR Léttar trjáklippur með tréhand- föngum. Lengd 54 cm. Mikið úrval af garðverkfærum frá LYSBRO/GRIPIT, allt frá minnstu plöntuáhöld- um til stærri verkáhalda. Traust vara á góðu verði. Eftlrtalin kaupfélög bjóða sömu kjör: Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi, Kaupfélaglð, Keflavík, Kaupfélag Árnesinga, Selfossi, Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri og fleiri. BYGGINGAVÖRUR BETRI ÞJÓNUSTA - BETRI SKILMÁLAR. Samkort V7SA KROKHALSI 7 - SIMI 82033 RAÐGREIÐSLUR RAÐGREIÐSLUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.