Morgunblaðið - 19.05.1989, Blaðsíða 29
29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989
Sumarstarf
barnaog
unglinga
BÆKLINGURINN „Sumarstarf
fyrir böm og unglinga 1989“ er
kominn út og er honum dreift
til allra aldurshópa í skólum
Reykjavíkurborgar um þessar
mundir. I bæklingi þessum er
að fínna upplýsingar um fram-
boð félaga og borgarstofhana á
starfi á leik fyrir böm og ungl-
inga í borginni sumarið 1989.
Starfsþættir þeir sem um getur
í bæklingnum eru fyrir aldurinn
2—16 ára. Flest atriði snerta íþrótt-
ir og útivist en einnig eru kynntar
reglulegar skemmtisamkomur
ungs fólks.
Utgjöld þátttakenda vegna
starfsþáttanna eru mjög mismun-
andi. Foreldrar sem hug hafa á að
hagnýta sér framboð borgarinnar
og félaganna fyrir böm sin eru
hvattir til þess að draga ekki úr
innritun þeirra.
Útgefandi bæklingsins er
íþrótta- og tómstundaráð. Innritun
í starfsþætti á vegum íþrótta- og
tómstundaráðs fer fram í Laugar-
dalshöllinni, laugardaginn 20. maí
klukkan 13-17.
Norðurlandajass
og gjörningur
NORRÆNIR djasstónleikar
verða í Heita pottinum í Duus-
húsi sunnudagskvöldið 21. maí,
kl. 21.30. Þar koma fram sænski
gítarleikarinn Lelle Kullgren,
danski píanóleikarinn Kristian
Blak, færeyski trymbillinn Jón-
leif Jensen og íslenski kontrabas-
saleikarinn Tómas R. Einarsson.
Þess utan verður á staðnum fær-
eyski listmálarinn Tórbjörn 01-
sen og mun bregða á léreft þeim
áhrifum sem tónlistin hefur á
hann.
Þeir Kristian Blak og Lelle Kull-
gren komu hingað á síðasta ári
með hljómsveitinni Yggdrasil sem
ferðaðist þá um Norðurlöndin og
hljóðritaði plötu í leiðinni.
Flóamarkaður
uppeldis- og með-
ferðarheimilis
UPPELDIS- og meðferðarheim-
ilið Sólheimum 7, Reykjavík er
heimili fyrir unglinga á aldrinum
12—16 ára sem þurfa á aðstoð
að halda. Heimilið er ein deild
innan Unglingaheimilis ríkisins.
Á heimilinu er lögð áhersla á
tómstundastarf og skipa ferðalög,
bæði innanlands _og utan, stóran
sess í því starfi. í sumar er fyrir-
hugað ferðalag hér innanlands og
er nú unnið að fjáröflun til þeirrar
ferðar.
Einn þáttur í fjáröflun er hinn
árlegi flóamarkaður sem verður
haldinn á morgun, laugardag,
klukkan 14—17 í Safnaðarheimil-
inu Langholtskirkju.
Þar verða til sölu mjög ódýr föt,
búsáhöld og skrautmunir. Uppboð
verður á húsgögnum og góðum
munum klukkan 14.30. Einnig
verður tombóla og grænmetis- og
blómamarkaður.
Uppeldis- og meðferðarheimilið
Sólheimum 7, heldur flóamarkað
á morgun, laugardag, í Saftiað-
arheimili Langholtskirkju.
Fundur um borg-
aralegar athafiiir
ÞANN 9. apríl sl. fór fram fyrsta
borgaralega fermingin á íslandi.
Aðstandendur hennar boða til
fundar um áframhaldandi starf.
Rætt verður um borgaralegar
athafnir við helstu tímamót á
mannsævinni, svo sem naftigiftir,
fermingar og jarðarfarir og hug-
að að stoftiun samtaka sem m.a.
hefðu að leiðarljósi lífsviðhorf
óháð trúarsetningum, þar sem
ti-úarleg efiii eru utan mannlegs
þekkingarsviðs.
Megináhugamál samtakanna
væru mannkynið og þau verðmæti
sem það hefur skapað. Fundurinn
verður í húsi Félags bókagerðar-
manna að Hverfisgötu 21 á morg-
un, laugardáginn 20. maí, og hefst
kiukkan 14.
(Úr fréttatilkynningu.)
Ný umferðarljós
KVEIKT verður á nýjum um-
ferðarljósum á Suðurlandsbraut
við Reykjaveg og Vegmúla, á
morgun, klukkan 14.
Umferðarljósin eru umferðar-
stýrð að hluta. Umferðarskynjarar
eru á Reykjaveg og Vegmúla og
beygjureinum fyrir vinstri beygjur
af Suðurlandsbraut.
Ef engin þverumferð er, logar
að jafnaði grænt fyrir umferð á
Suðurlandsbraut. Fótgangandi
vegfarendur geta „kallað" á grænt
ljós yfir Suðurlandsbraut með því
að ýta á hnapp.
Trúnaðarbréfí
Noregi
HINN 11. maí 1989 afhenti Har-
aldur Kröyer, sendiherra, Ólafi V
Noregskonungi trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra íslands í Noregi
með aðsetur í Osió.
Kennaranám-
skeið í Kram-
húsinu
ÞRIÐJA árið í röð heldur Kram-
húsið námskeið, ætlað íþrótta-
kennurum, tónmenntakennurum
svo og öðrum þeim kennurum
sem nota hreyfingu og tónlist
við kennslu, dagana 1.—6. júní.
Markmið nám-
skeiðsins er að
kynna kennurum
aðferðir til að
auka fjölbreytni
og nýjungar í
skólastarfi. Aðal-
kennari nám-
skeiðsins verður
Maggie Semple
sem er einn af
aðalkennurum á Laban Internatio-
nal Summmer Course. Aðrir kenn-
arar á námskeiðinu verða:
Anna Richardsdóttir íþrótta-
fræðingur, Christien Polos dansari,
Hafdís Árnadóttir íþróttakennari,
Joao DaSilva dansari, Sigríður
Eyþórsdóttir leikari og leiklistar-
kennari og Soffía Vagnsdóttir tón-
listarkennari.
Einnig halda fyrirlestra á nám-
skeiðinu; Páll Skúlason prófessor í
heimsspeki og Örn Jónsson nátt-
úruráðgjafi.
Þess skal getið að menntamála-
ráðuneytið metur námskeiðið til
punkta. Allar frekari upplýsingar
eru veittar i Kramhúsinu.
(l’r fréttatilkynningu)
Tónleikar í Víði-
staðakirkju
KÓR Víðistaðasóknar og Sigurð-
ur S. Steingrímsson barítón-
söngvari halda tónleika i Víði-
staðakirkju laugardaginn 20.
maí kl. 17.00. Á efnisskránni eru
m.a. kafli út Sálumessu eftir
Fauré, Fangakórinn úr Nabucco
eftir Verdi, Barcarole úr Ævin-
týrum Hoftmanns eftir Offen-
bach og The Holy City eftir Step-
hen Adams.
Kór Víðistaða-
kirkju var stofn-
aður haustið
1977. Söngstjóri
kórsins frá stofn-
un hans hefur
verið Kristín Jó-
hannesdóttir.
Sigurður S.
Steingrímsson er
Skagfirðingur.
Hann hefur stundað söngnám við
Söngskólann í Reykjavík og Nýja
tóniistarskólann. Undirieikari á
tónleikunum er Bjarni Þ. Jónatans-
son. . •
Leiðrétting
í frétt í viðskiptablaði Morgun-
blaðsins í gær fímmtudag, um að
bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið
Computer Associates muni opna
útibú á íslandi var ranglega farið
með nafn Kjartans Nielsen sem
ráðinn hefur verið til að veita útibú-
inu forstöðu. Morgunbiaðið biðst
velvirðingar á mistökunum.
Bókauppboð á
Selfossi
KLAUSTURHÓLAR halda sitt
150. listmunauppboð í Inghóli á
Selfossi á morgun, laugardag kl
14.
Bækumar verða til sýnis í dag,
á milli klukkan 14 og 18, á upp-
boðsstað.
Vitni vantar
LÖGRELGAN á Hvolsvelli leitar
nú mögulegra vitna vegna
bílþjófhaðs aðfaranótt síðastlið-
ins iaugardags. Bíl var þá stolið
frá Hellu og honum ekið útaf við
afleggjarann að Ásmundarstöð-
um. Bilinn er talinn ónýtur.
Bílnum, sem er grár Fiat Panda,
skrásetningarnúmer G 2143, var
stolið um nóttina á milii klukkan 2
og 5. Eins og áður sagði fannst
hann við afleggjarann að Ásmund-
arstöðum, utan vegar og hafði
greinilega oltið oftar en einu sinni
og er mjög illa farinn. Lögreglan
á Hvolsvelli beinir þeim tilmælum
til þeirra, sem einhverjar upplýs-
ingar geta gefíð um atburðinn, að
þeir snúi sér til hennar. Meðal ann-
ars hefur lögreglan áhuga á því
að vita hvort einhver eða einhveijir
hafí verið teknir upp í aðra bíla á
þessum slóðum um nóttina.
HafnarQörður:
Vinnumiðlun
fyrir skólafólk
í félagsmiðstöðinni Vitanum
Strandgötu 1, er um þessar
mundir starfrækt vinnumiðlun.
Miðlunin er ætluð skólafólki, 16
ára og eldri. Það er Hafnarfjarðar-
bær sem stendur fyrir þessu fram-
taki og er vonast til að hægt verðj
að miðla sem flestum vinnu í sum-
ar. Allir þeir aðilar er leita eftir
starfskröftum eða starfi eru hvatt-
ir til að hafa samband við miðlun-
ina. Opunartími er klukkan 10—12
og 13—16 alla virka daga.
(Úr fréttatilkynningu)
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra:
Húsakostur heimilisms í
Reykjadal endumýjaður
STARFSEMI sumardvalarheimilis
Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra i Reykjadal í Mosfellsbæ hefst
um næstu mánaðamót, en þar er
nú verið að ljúka smíði tveggja
nýbygginga, sem leysa munu af
hólmi gömlu svefnálmuna á staðn-
um. Einungis lokafrágangur er
eftir, og um næstu helgi munu
félagar úr Kiwanisklúbbnum Við-
ey í Reykjavík vinna að honum,
en þeir hafa styrkt. sumardvalar-
heimilið með vinnuframlagi sínu
undanfarin ár.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
hefur rekið sumardvalarheimili fyrir
fötluð böm í Reykjadal síðan 1963.
Að sögn Páls Svavarssonar fram-
kvæmdastjóra Styrktarfélagsins eru
gömlu húsakynnin þar orðin mjög
léleg, en þau voru byggð af miklum
Unglingaferð
til Akraness
Selfossi.
UNGLINGARÁÐ hestamannafé-
lagsins Sleipnis stendur fyrir
unglingaferð til Akraness sunnu-
daginn 21. mai.
I ferðinni er ráðgert að ungling-
arnir úr Sleipni skoði tamningastöð
og heimsæki unglinga á Akranesi
sem stunda hestamennsku. Farið
verður frá félagsheimili Sleipnis á
Selfossi klukkan 12.00 á sunnudag.
— Sig. Jóns.
vanefnum árið 1963. Hafist var
handa við byggingu tveggja nýrra
húsa síðastliðið haust, en þau munu
leysa af hólmi svefnálmu í gömlu
húsakynnunum. Smíði nýju húsanna,
sem hvort um sig er um 150 fermetr-
ar að flatarmáli, er nú nánast lokið,
og verða þau tekin í notkun þegar
starfsemi sumardvalarheimilisins
hefst 1. júní næstkomandi. Einungis
er eftir lokafrágangur utanhúss, og
munu félagar úr Kiwanisklúbbnum
Viðey í Reykjavík annast hann um
næstu helgi. Að sögn Páls hefur
Kiwanisklúbburinn Viðey aðstoðað
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
við viðhald á húsakynnunum í
Reykjadal undanfarin ár með vinnu-
framlagi félagsmanna, sem hann
sagði að reynst hefði ómetanlegt
fyrir félagið.
í Reykjadal er aðstaða fyrir 24
fötluð böm í einu, og dvelur hvert
barn á heimilinu í einn mánuð. Hing-
að til hefur heimilið verið opið í þrjá
maánuði á sumrin, en að sögn Páls
er ætlunin að nýta aðstöðuna þar
að einhverju leyti að vetrarlagi í
framtíðinni.
Kiwanisklúbburinn Viðey mun
efna til fjöiskylduskemmtunar á Hót-
el íslandi sunnudaginn 28. maí næst-
komandi til styrktar sumardvalar-
heimilinu í Reykjadal. Þar munu
ýmsir skemmtikraftar koma fram,
en allir sem að skemmtuninni standa
munu gefa sitt framlag, og verður
öilum ágóðanum varið til uppbygg-
ingarinnar í Reykjadal.
Einn gripanna á sýningu finnsku
listamannanna.
Gallerí Grjót:
Finnsk málm-
listasýning
í DAG verður opnuð sýning 10
fínnskra málmlistarinanna í Gall-
eríi Grjóti við Skólavörðustíg 4a.
Sýningin beryfirskriftina „Intima-
te Pieces“. Verkin á sýningunni eru
afrakstur vinnu nemenda á málm-
listabraut Listiðnaðarháskóians í
Helsinki á nýliðnu vormisseri.
í hópnum eru gull-, silfur og stein-
smiðir og efniviðurinn því marg-
breytilegur. Að auki er ein veflistar-
kona í hópnum. í tilefni af sýning-
unni eru allir lsitamennirnir staddir
hér á landi.
Sýningin verður opnuð í dag,
fósudaginn 19. maí, og stendur til
4. júní og er opnunartíminn frá
klukkan 12-18 alla virka daga, en
frá klukkan 14-18 um helgar.
Ólafsvík
Umboðsmann vantar til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið.
Upplýsingar í síma 91-83033.
Sltia auglýsingor
Wéiagslíf
Ungt fótk
meðhtutverk
YWAM - Ísland
Biblíufræðsla á morgun, laugar-
dag, kl. 10.00 í Grensáskirkju.
Sigríður Schram fjallar um efnið
„Hvað er lofgjörð" og hverju
kemur hún til leiðar?
Bænastund kl. 11.30.
Allir velkomnir.
Innanfélagsmót
Áður auglýst innanfélagsmót
verður haldið laugardaginn 20.
mai. Mótið hefst kl. 12.00 stund-
vislega. Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Hjálpræöis-
herinn
) Kiikjustræti 2
Vakningasamkoma í kvöld kl.
20.30. Majór Njáll Djurhuus talar
og barnagospel syngur. Biblíu-
lestur laugardag kl. 17.00 í um-
sjá majórs Njáls. Allirvelkomnir.
Skíðadeild Ármanns
Innanfélagsmót skíöadeildar Ár-
manns verður í Bláfjöllum laug-
ardaginn 20. maí.
Brautarskoðun fyrir 12 ára og
yngri hefst kl 10.
Stjórnin