Morgunblaðið - 19.05.1989, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989
Hreppsnefiid Reykhólahrepps:
Sauðfl árveikivarnir
gagnrýndar fyrir
að leyfa heyflutninga
Miðhúsum, Reykhólasveit.
RIÐUVEIKI kom upp í Saurbæ í Dalasýslu á síðasta
ári. Þá bönnuðu SauðQárveikivarnir flutning á heyi frá
Ólafsdal vestur yfir varnargirðingu í Gilsfirði. Nýlega
leyfðu hinsvegar SauðQárveikivarnir flutning á heyi frá
næsta bæ við sláturhúsið í Saurbæ yfir í Reykhóla-
hrepp. Hreppsneftid Reykhólahrepps fundaði um málið
12. maí sl. og þar var gerð samþykkt, þar sem hrepps-
nefhdin lýsir furðu sinni á að heyflutningarnir skuli
hafa verið leyfðir.
í samþykktinni segir enn-
fremur: „Þær röksemdir
Sauðfjárveikivarna að verið
sé að flytja hey af túnum,
þar sem sauðfé gangi ekki,
eru léttvægar fundnar, ekki
síst í ljósi þess að sláturhús
er staðsett við hlið þeirra
túna, sem um ræðir og því
ekki ólíklegt að fugl geti
borið smit.“
GANGA verður farin í
kvöld fóstudagskvöldið 19.
maí út á Kjalarnestanga.
Gangan hefst við Brautar-
holt klukkan 21 og verður
gengið suður í Nesvík, síðan
með Gullkistu og Messingi
yfir í Kinnarhóla. Að lokum
„Ósamkvæmi í ákvörðun-
um um þessi mál er til þess
eins fallin að vekja úlfúð
meðal manna og gera að
engu álit þeirra á ákvörðun
yfírvalda í þessum efnum,“
segir einnig.
„Síðast en ekki síst er það
alveg óskiljanlegt að yfirvöld
þessara mála skuli ekki taka
verður horft á sólarlagið af
Brautarholtsborginni og
göngunni lýkur við Brautar-
holt. A leiðinni verður hugað
að gróðri, fjörulífí og rifjuð
upp jarðsaga og örnefni.
(Fréttatilkynning)
þess að verið er að taka
óþarfa áhættu um framtíð
landbúnaðar, ekki síst í hér-
uðum á borð við Reykhóla-
hrepp, þar sem niðurskurður
vegna riðu myndi jafngilda
eyðingu byggðarinnar.
Á meðan þekking á smiti
og útbreiðslu riðuveikinnar
er ekki meiri en raun ber
vitni, er það forkastanlegt
að yfirvöld taki með þessum
hætti óþarfa áhættu.
I ljósi þessa skorar hrepps-
nefnd Reykhólahrepps því á
viðkomandi yfirvöld að taka
á þessum málum af meiri
festu en verið hefur hingað
til. Jafnframt vill hún beina
því til allra þeirra, sem um
þessi mál fjalla, að hafa það
í huga að um framtíð heilla
byggðarlaga geti verið að
tefla. Reynslan er nú þegar
farin að sýna að þar sem
einu sinni er skorið niður,
verður ekki stundaður sauð-
fjárbúskapur aftur. Þetta á
eftir að koma enn betur í ijós
á komandi árum þar sem
allt útlit er fyrir það að enn
þurfi að draga verulega úr
kindakjötsframleiðslunni,"
segir í samþykkt hrepps-
nefndar Reykhólahrepps.
Sveinn
fastar á þessu máli í ljósi
Kvöldferð um
Kjalarnestanga
„I IOFHГ
- MEÐ KRÚTTMÖGUM
í VETRARBRAUTINNI
Nú mæta hressar krúttmagakonur og skemmta sér
með
krúttmögum að norðan.
Fluggpð þjónusta frá klukkan 19.00.
Fordrykkur - flugbakki aðeins kr. 2.850,-
Fjölbreytt skemmtiatriði. KynnirSunna Borg.
Lúdó og Stefán.
Tryggið ykkur miða í tíma - síðast var uppselt.
Hittumst hressar!! Krúttmaganefndin.
► *\C/* *
BRAUTARHOLTI20. SÍMAR 29098 OG 23335.
(GENGIÐINN FRÁ HORNIBRAUTARHOLTS OG NÓATÚNS)
FLUGLEIDIR
Vesturbæingar í hreinsunarátaki:
Morgunblaðið/Sverrir
Leiðindaveður var sl. laugardag þegar hreinsunarvika hófst í Vesturbæ. Þrátt
fyrir það gekk hreinsun framar vonum og sést borgarstjórinn, Davíð Oddsson,
hér taka til hendinni ásamt öðrum íbúum hverfisins.
Tóku vel við sér
þrátt fyrir veðrið
Vesturbæingar tóku
vel við sér í hreinsunará-
taki, sem hófst síðastlið-
inn laugardag, þrátt fyrir
fremur slæmt veður þann
dag. Reykjavíkurborg,
íbúa-, foreldra- og kenn-
arafélög standa sameig-
inlega fyrir hreinsunar-
átakinu i hverfum borg-
arinnar og verður borg-
inni skipt upp í fjóra
hluta. Átakið stendur yfir
í eina viku í hveijum
borgarhluta.
Einar Örn Stefánsson,
formaður íbúasamtaka
Vesturbæjar, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að
börn jafnt sem fullorðnir
hefðu komið saman kl.
11.00 á laugardagsmorgni
í Vesturbæjarskólanum.
Þar var liðsöfnuðinum
skipt upp í hópa, sem fóru
í hreinsunarherferðir um
opnu almenningssvæðin.
Síðan væri það í verka-
hring íbúa að hreinsa vel
til í eigin görðum. Rusla-
pokum hefur verið dreift í
verslanir og sjoppur. Þá
hafa Ibúasamtökin látið
hanna veggspjöld og sól-
skyggni með slagorðinu
„Vor í Vesturbæ“ og bif-
reið með gjallarhorni inn-
byrðis er daglega ekið um
Vesturbæinn til að minna
íbúa á hreinsunarvikuna.
Hinn árlegi vordagur í
Vesturbæ verður haldinn
nk. laugardag, en þá hefst
jafnframt hreipsunarvika í
Austurbæ, frá Kringlumýr-
arbraut að Elliðaám.
Hestamannamessa
í Langholtskirkju
ÁRLEG messa hesta-
manna verður í Langholts-
kirkju á sunnudaginn og
hefst klukkan 11. Frá
Víðidal verður riðið klukk-
an 10.
Prestur verður séra Sig-
urður Haukur Guðjónsson og
organisti Jón Stefánsson.
Þorgeir Ingvason, fram-
kvæmdastjóri Fáks, predik-
ar, lesarar verða Gunnar
Eyjólfsson og Klemens Jóns-
son og hljóðfæraleikarar úr
röðum hestamanna flytja
GOMLU DANSARNIR
í kvöld frá kl. 21.00-03.00
Hljómsveitin DANSSPOfitfi ásamt söngvurunum ðmu Þor-
stelnsogQrAtari.
Dans-
stuðið
er í
Ártúni
Vagnhöfða 11. Raykjavlk, simi 685090.
stwnsogurtteri.
>tTMÍI5Q
tónlist undir stjórn Lárusar
Sveinssonar.
Girðing verður sett upp
við Langholtskirkju fyrir
hesta og munu skátar gæta
þeirra. Að lokinni guðsþjón-
ustunni verður borðhald í
safnaðarheimilinu.
Hófóar til
.fólksí öllum
starfsgreinum!