Morgunblaðið - 19.05.1989, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989
„ Far&u inn i herben^ið þ'itt og vertu þar
þargab til þú hePur Laert cÁ haga
eins 09 ma&ur, “
Það var víst stuð á kalli
þegar ég kom heim í
nótt... ?
Hugsanlega er betra að
segja til um þetta á ann-
arri rás.
HÖGNI HREKKVÍSI
/,jpETTA EfZ EFTIRLÆT/S SOKP7UNMAM HANS . -
..HANN LéTSKOHSA HANA."
Þessir hringdu . . .
Misskilningur og
rangfærslur
Tjaldvagn
Ljósgrár tjaldvagn var tekinn
trausta taki fyrir nokkru. Hann
er með 10 tommu Austin mini
dekkjum og tveggja blaða ijöð-
rum. í honum er fjögura súlna
brúnt tjald en yfirbreiðslan er or-
anslit. Síðast sást vagninn aftan
í Volvobíl á gatnamótum Austur-
bergs og Suðurhóla. Þeir sem vita
hvar vagninn er niður kominn eru
vinsamlegast beðnir að hringja í
síma 71199.
Kettlingur
Bifreiðareigandi hringdi:
„ Eins og fram hefur komið í
fjölmiðlum uppá síðkastið standa
yfir undirskriftarsafnanir á
bensínstöðvum á Sauðárkróki og
krefjast Sauðkræklingar þess að
bifreiðaskoðunarstöð Norðurlands
vestra, umdæmi Sigluijörður -
Sauðárkrókur, verði reist þar.
Hefur þetta mál tekið einkenni-
lega stefnu og verið rangtúlkað
og misskilið af hálfu Sauðkrækl-
inga. Skora ég því hér með á Sigl-
firðinga að láta skoðanir sínar í
ljós.“
Góð grein
íbúi við Fífuhvamm hringdi:
„Ég vil þakka Lofti Þorsteins-
syni fyrir góða grein í Morgun-
blaðinu 12. maí. Þar reifar hann
hugmynd sem ég hef mikið velt
fyrir mér, að gera Kópavogsdalinn
að útivistarsvæði í stað þess að
hlaða niður byggð þar. Ráðgert
er að leggja nýjan veg um Kópa-
vogsdal. Er ekki hætta á mengun
frá honum vegna þess hve loftið
er oft kyrrstætt í svona dældum?
Ég tel að Kópavogsbúar ættu að
velta þessu fýrir sér.“
Ljósgrár og hvítur kettlingur
með rauða ól fór að heiman frá
sér að Reynimel 78 fyrir nokkru.
Hann er mjög gæfur og sást síðast
við Hagakot. Þeir sem hafa orðið
varir við kisa eru vinsamlegast
beðnir að hringja í síma 622743.
Týnd næla
Nokkuð stór, gömul gyllt víra-
virkisnæla týndist fyrir rúmri
viku. Eigandinn gekk Hellusund,
Ingólfsstræti, Bergstaðastræti og
Laugaveg að Smiðjustíg. Einning
gæti nælan hafa týnst á Skóla-
vörðustíg. Finnandi er vinnsam-
legast beðinn að hringja í síma
12379.
Góð og fljót þjónusta
Kona að vestan hringdi:
„Ég vil þakka Kjötbúð Péturs
við Laugaveg fyrir fyrir góða
þjónustu. Ég hringdi til þeirra og
pantaði sendingu til Noregs og
var hún komin til viðtakanda þar
eftir tvo daga. Þessar sendingar
fara í gegn um Böglapósstofuna
í Reykjavík og þakka ég jafnframt
fyrir fljóta og góða þjónustu þar.“
Kðpavog* legxur i hi4 umdeil
Undmrði I Ktmvogidal, i «ai
Um» og bajantjðmin iformar
•yHanð* mðguleika úlivwt
«v«rðí»ín» I Kðpavogadal. \
t ossvogsbraut og liags-
nunir Kópavogsbúa
•flirLoflAJ.
>orsteinsson
Jafnvel rðlynduatu tbúum Kðpa-
er farið að Uðakra ðbilg}öm
ða Baqaratjðmar Kðpavoga til
rlrhugaðrar Foaavogabrautar.
inhliða yfirtýaing bsjaritjðmar-
vioatððu afna með bvi að felaat að
baki ihugafðlagi um IþtðUaiðkun.
Það varpar aldru Ijðai i frumhlaup
Barjaratjómar Kðpavoga, að heim-
ildir Skipulagastjðmar ríkiaina
akortir til að veita byggingarleyfl i
Af hilfu Reykjavtkur virðiat rikja
eindreginn vi|ji til að leyaa Foaa-
vogadeiluna. Til daemia mun
Krykjavikurborg hafa boðið að
verulegur hhiti brautarmnar yrði
niðurgrafinn, aem myndi koata
aukalega um 600 m0|jðnir Itrðna.
Það hlýtur að vera öakaataða að
aerrýa við aðila aem tt tilbúinn að
taka i aig allkan (ðmarkoatnað.
Hðr er um að rjrða hiar Qirhasðir,
acm gietu nýat til margvlalegra
umhverfiaverkefna I Kðpavogi.
ÚtivUUrsvæðið I
Kópavogad&l
„Sú alvarlcgn misklið
8om nú cr komin upp,
cr líklcK til að skaða
stórlega hagamuni
Kópavogsbúa. Leita
vcrður ailra lciða svo
að ckki komi til slita &
samvinnu bæjarfélag-
Niðurlag
Kröfuharka
Til Velvakanda.
í síðustu viku birtist í Velvak- |
anda grein eftir færeyskan blaða-
mann, sem fannst „lágt risið á
íslenskum kvikmyndagerðarmönn-
um“ talandi ensku á kvikmyndahá-
tíðinni í Þórshöfn. Að sjálfsögðu
getur blaðamaðurinn haft sína
skoðun á tungutaki íslendinga sem
eru að tjá sig á erlendri grundu,
en hér er um óþarfa kröfuhörku
að ræða.
ísland varð sjálfstætt 1944 og
sleit þar með öilum tengslum við
Danmörku. íslenskan er, enn sem
komið er, ómenguð af erlendum
slæðingum og er líklegast svo
„hrein“ að ekki nokkur maður á
Norðurlöndum skilur okkur, nema
ef vera kynni eldri Færeyingar og
e.t.v. nokkrir afdala Norðmenn. Af
þessum sökum eigum við erfitt með
að ávarpa útlendinga á eigin '
máli... Um það hvort við eigum
að tala dönsku, finnsku, sænsku eða
norsku þegar við þurfum að gera '
okkur skiljanleg er í raun frekjuleg
krafa. Norðmenn, Svíar og Danir
búa yfír því hamingjuláni að skilja
hverjir aðra. Því er hins vegar ekki
til að dreifa þegar íslenska er ann-
ars vegar og sömu sögu má segja
um samísku eða inúísku og fær-
eysku, nema hvað þessar þjóðir eru
nýlendur og eru látnar læra tungu-
mál kóngs síns eða drottningar.
Þessi kvöð liggur, sem betur fer,
ekki lengur á okkur. Samvinna okk-
ar við önnur Norðurlönd stendur
ekki og fellur með því hvort íslend-
ingar tali „prentsmiðjudönsku",
sem er í senn lítillækkandi fyrir
íslendinga og Dani. Það eru viðhorf
manna til samstarfsins sem skipta
meginmáli, en þetta samstarf mun -
aidrei takast ef menn finna eilíflega (
einhver smámál til þess þjarka um.
Að lokum; er Jústiníanus blaðamað-
ur afkomandi Núma konungs í (
Róm? Var þá Númi norrænn eftir
allt saman?
G.H. og H.Þ.
Kisa í óskilum
í húsi í Hafnarfirði hefur falleg
læða verið í óskilum siðan í lok
febrúar. Hún er svört, með hvíta
bringu og hvítar afturloppur og
með bláa hálsól þegar hún fannst.
Kisa er vel vanin og auðsjáanlega
heimilisköttur. Upplýsingar í síma
53182 eftir hádegi.
Víkveiji skrifar
Víkveiji dagsins fylgdist nokkuð
með hvítasunnumóti Hesta-
mannafélagsins Fáks í Víðidal í
Reykjavík. Reyndar heitir mótið að
venju Hvítasunnukappreiðar Fáks,
en keppt er í mörgum öðrum grein-
um, þannig að þessar kappreiðar
eru orðnar á við fjórðungsmót og
vel það. Dagskráin hófst síðdegis á
fimmtudag, hélt áfram daginn eftir
og á Iaugardaginn og á mánudaginn
voru svo sýningar og úrslit. Og
þetta mun ekki hafa verið eina
hestamótið, sem íbúum á höfuð-
borgarsvæðinu bauðst að sækja
þessa helgi, því Víkverji hafði
spurnir af því, að í Kópavogi hefði
farið fram íþróttamót hestamanna
þar.
En Víkveiji dagsins var í Víði-
dalnum. Og þar gerðust margir
spennandi og skemmtilegir hlutir.
Hlutur kvenna, unglinga og bama
í hestamótum fer stöðugt vaxandi
og ef Víkveiji á að nefna eitt atriði
öðrum fremur af mótinu, þá er það
glæsileikinn, sem börnin og ungl-
ingamir sýna. Það barna- og ungl-
ingastarf, sem unnið er hjá hesta-
mannafélögunum í landinu skilar
miklum og skemmtilegum árangri.
Þessi kvöldin má líka sjá hluta
þessa starfs á stóra vellinum í
Víðidal, þar sem námskeið em hald-
in.
xxx
Og talandi um hestamennsku:
Víkveiji sótti fyrir skömmu
hestadaga í Reiðhöllinni í Víðidal.
Víkveiji hafði sótt fyrri hestadaga
og þeir síðustu ollu vonbrigðum.
Því gladdi það mest nú, að með
þessari sýningu náðu hestadagarnir
aftur sínum fyrri sessi. Og hvíta-
sunnumótið nú var líka sú skemmt-
un, sem hestamennskunni hæfir og
er henni til framdráttar.
XXX
Víkveiji veit ekki annað en ára-
langri baráttu hestamanna sé
nú að ijúka og Hestaíþróttasam-
band íslands að líta dagsins ljós.
Þar með em hestaíþróttamenn
orðnir fullgildir félagar fyrir
íþróttasamband íslands og sér
Víkveiji dagsins ástæðu til að óska
íþróttamönnum til hamingju með
þessi tímamót.
xxx
Islenzkir íþróttamenn em víðar
í sviðsljósinu um þessar mundir
en í Víðidalnum. Þrír af sterkustu
skákmönnum okkar -tefla nú í
Moskvu og hafa náð góðum ár-
angri. Ásgeir Sigurvinsson og fé-
lagar í Stuttgart urðu reyndar ekki
Evrópumeistarar félagsliða á mið-
vikudagskvöldið, en þeir em þó altj-
ént næstbeztir. Og svo er fóikið
okkar á smáþjóðaleikunum á Kýp-
ur, en þar skiptast á skyn og skúr-
ir eins og gengur. Mikilvægt er að
vera með sem víðast til að minna
á land og þjóð, en Víkveiji getur
þó ekki að því gert að honum þyk-
ir að minnsta kosti einn og einn
sigur á stórmótum nauðsynlegur til
að styrkja þjóðarstoltið.
Við getum þó kannski sagt að
einn sigur hafi unnizt. íslenzka
ríkissjónvarpið stendur sig ákaflega
vel og sendir okkur heim í stofu,
ýmist glóðvolgar fréttir eins og af
smáþjóðaleikunum eða beinar send-
ingar frá helztu knattspyrnuleikjum
Evrópumótanna. íþróttadeildin á
þeim bæ stendur sig með sóma.